Morgunblaðið - 13.12.1990, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 13.12.1990, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990 frásagnarlist VEGURINN UPPÁ FJALLIÐ eftir Jakobínu Sigurðardóttur. Kjarngott mál, Ijóslifandi persónur, verðug viðfangsefni og hlý kímni eru sem fyrr aðalsmerki höfundar. Þessar nýju smásögur Jakobínu sæta tíðindum. SVEFNHJÓLIÐ eftir Gyrði Elíasson. Þetta er önnur skáldsaga Gyrðis en hann hlaut Stílverðlaun Þórbergs Þórðarsonar 1989. Þessi saga er í senn kátleg, ævintýraleg og ógnvekjandi, skrifuð af þeirri málsnilld sem höfundur hefur þegar getið sér orð fyrir. HELLA eftir Hallgrím Helgason. Óvenjuleg saga um unglingsstúlku í litlu þorpi úti á landi. Lýsingar höfundar á löndum sínum eru bæði fyndnar og glöggar og auga hans fyrir náttúrunni einstakt. Með Hellu er sleginn nýr tónn í íslenskum bókmenntum. MÝRARENGLARNIR FALLA eftirSigfús Bjarlmarsson. Þetta eru fyrstu sögur Sigfúsar Bjartmarssonar sem áður hefur vakið mikla athygli fyrir Ijóðabækur sínar. Fimm samtengdar sögur úr íslenskri sveit sem snúast um hringrás mannlífs og náttúru. Orðfærið er auðugt og sérkennilegt, sprottið úr þeim heimi sem sögumar lýsa svo eftirminnilega. Bœkur eru ódýrari Laugavegi 18. Sími 15199 - 24240. Síðumúla 7-9 Sími 688577. fyrirheit sumars sungu“ ___________Bækur_________________ KjartanÁrnason Elías Mar: Hinumegin við sól- skinið. Ljóð, 47 bls. Iðunn 1990. Þessi bók er ekki ýkjamikil að vöxtum, ein fimmtán frumsamin ljóð og tíu þýðingar. Frumsömdu ljóðin eru ort á árunum 1983-89 en þýðingarnar spanna þijátíu ára tímabil, 1957-87. Þessar upplýsing- ar fást í allsérstæðu efnisyfirliti þar sem hvorki eru tilgreind blaðsíðutöl né rétt röð ljóðanna en þau þess í stað flokkuð í aldursröð; þetta fyrir- komulag hefur sína kosti en er nokkuð ruglandi hafi maður hug á að glöggva sig á röð efnisins í bók- inni. Ljóðin í Hinumegin við sólskinið eru flest hver frásagnarljóð. Skáld- ið segir sögu og dregur upp my.nd af atviki eða atburðum sem stund- um eru sveipaðir blæju dæmisög- unnar — án þess þó að vera beinlín- is dæmisögur. Hér má nefna Organ- istann sem ekki kunni að leika staka nótu en svaraði bón skáldsins um sýnishorn af list hans með langri þögn og síðan: „Heyrirðu ekki ...?/ Heyrirðu ekki/ hvað ég spila vel?“ Fleiri ljóð má nefna til þessarar sögu, s.s. Hagspeki, Enn eina heimsmynd, Vatnið eða Skáldið mikla. Fyrsta og síðasta ljóðið í frum- samda hluta bókarinnar skera sig nokkuð úr hvað varðar efni og framsetningu. / minningu Þuríðar Kvaran er fyrsta ljóðið og hið eina sem bæði er stuðlað og rímað. Forðum vöktu söngvar úr suðri hlýju sælu trega blandna á vori nýju, æskuvori; fyrirheit sumars sungu sálinni ungu. Svo segir í fyrsta erindi með vísun í Jónas. í lokalínunum segir frá stefjabrotum sem gegnum aldir: „hvísla til vor undursamlegum orð- um/ enn líkt og forðum.“ Seinasta frumsamda ljóðið er Bæn: Ég bið þess ég megi lifa til vors svo ég geti risið af beði og og leitt barnungann þangað sem blómin eru og fuglamir og sagt: líttu á svona erum við mörg. En Elías á fleiri strengi í hörpu sinni en þennan sem tjáir auðmýkt og gleði frammi fyrir sköpunarverk- inu. Á tveggja alda afmæli Rasmus- ar Chr. Rask 1987 orti hann sam- nefnt ljóð sem e.t.v. mætti kalla hugleiðingu prófarkalesarans um tungu sína og stöðu hennar: ráðunaut stofninnar rásar rekur meinhorn í vörðurnar hæ menningarvitanum stendur í mannvitsbrekkunni Elías Mar myrkur fellur á bæ Það er reyndar ekki aðeins próf- arkalesarinn Elías sem hér er á ferð heldur líka samfélagsrýnirinn og húmoristinn; við sjáum ýmis kennileiti um hnignun útvarpsís- lenskunnar og ráðaleysi menning- arvitans sem — í tvennum skilningi — stendur á mykjuhaug mannvits- ins. Það svífur kyrrlátur andi yfir ljóðunum í þessari bók. Á fáeinum stöðum örlar þó á nokkuð skarpri kaldhæðni, jafnvel sjálfshæðni. Þýðingar Elíasar eru mjög í sama anda og ljóð hans sjálfs, eins og reyndar títt er um þýðingar. Hér eru ljóð fimm skálda: Johans L. Runebergs, eins af þjóðskáldum Finna, en hann lést 1877 og er þýðingin mjög í 19. aldar stíl; sá franski Jean Genet á hér ljóðið Hinn dauðadæmdi úr samnefndri ljóða- bók sinni. Einsog víðar í verkum sínum fjallar hann í kvæðinu um sakamann og lýsir honum sem engli: „Óskiljanlegt að dæmdur sé til dauða/ drápsmaður sá er bjartar skín en sólin." Ann-Marie Scholand- er er Svíi sem ég veit ekki deili á en yrkir fallega líkingu um skýin sem nýtur sín vel í þýðingu Elías- ar. Loks þýðir Elías sjö ljóð eftir víetnamska skáldið Thanh Hai. Það er nokkur viðburður að víetnamskur skáldskapur sjáist í íslenskri þýð- ingu og er hann kærkomin viðbót við okkar oft og tíðum takmörkuðu heimssýn. Ekki eru þó sjáanleg bein víetnömsk einkenni á þýðing- um Elíasar;rijóðin fjalla flest um fátæklinga í hörmung stríðs, hetju- dáðir, móðurást og gætu að mínum dómi allt eins verið ort í einhverju landi S-Ameríku eða annars staðar þar sem saklausir líða í stríðum, enda bera þýðingarnar engin sér- stök þjóðleg einkenni. Skáldsaga eftir Leó E. Löve ÍSAFOLD hefur gefið út bókina Fórnarpeð eftir Leó E. Löve. í kynningu útgefanda segir m.a.: „Bókin ijallar um ungan blaðamann sem kemst að því sér til skelfingar að þjóðkjörinn trúnaðarmaður mis- notar aðstöðu sína gróflega í eigin- hagsmunaskyni. Blaðamaðurinn leggur allt í söl- urnar til að fletta ofan af svikunum og inn í atburðarásina fléttast óvæntir atburðir. Ótrúlegt er hvaða aðgerðum valdamiklir peningamenn beita til að verja hagsmuni sína. Þeir svífast einskis. Jafnvel mannslíf eru þeim einskis virði.“ Fórnarpeð er 214 bls. og að öllu leyti unnin í ísafoldarprentsmiðju hf. Leó E. Löve
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.