Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 30
MORGUNBLAÐÍÐ FIMMTUDAGUR 13. DÉSEMBER 1990
Gefandi og krefjandi starf
að vera hljómsveitarsljóri
- segir Guðmimdur ÓU Gunnarsson, sem stjórn-
ar Sinfóníuhljómsveit íslands í fyrsta sinni
Guðmundur Óli Gunnarsson stjórnar Sinfóníuhljómsveit íslands
á æfingu í Langiioltskirkju.
íslendingar sem hafa farið til
náms erlendis í þeim tilgangi ein-
um að nema hljómsveitarstjórn,
eru sennilega teljandi á fingrum
annarrar handar. Það er þess
vegna ekki á hverjum degi, að
nýr íslenskur hljómsveitarstjóri
stígur á pall og stjórnar Sinfóníu-
hljómsveit íslands. En í þessari
viku mun það þó gerast, þegar
Guðmundur Oli Gunnarsson
stjórnar henni í fyrsta sinn. Hann
er þó ekki alveg ókunnugur þessu
hlutverki hér heima, hefur áður
stjórnað íslensku hljómsveitinni,
Kammersveit Reykjavíkur og
hljómsveitinni Caput. Einnig hef-
ur hann stjómað Háskólakórnum
um nokkurt skeið, en það var ein-
mitt kórstjórn, sem leiddi hann út
í nám í hljómsveitarstjórn.
Hljómsveitarstjórn í kjölfar
kórsljórnar
— Eg ákvað að Iæra hljóm-
sveitarstjórn eftir stúdentspróf,
sagði Guðmundur OIi í stuttu við-
tali við Morgunblaðið. Ég var
búinn að stjóma kórnum um
nokkurt skeið og mér finnst það
starf mjög gefandi en um leið
kreijandi og ákvað því að leggja
hljómsveitarstjórn fyrir mig. Eg
lærði lítillega á nokkur hljóðfæri
þegar ég var yngri og tónlistin
hefur verið ríkjandi í lífi mínu upp
frá því, sagði hann. Leiðin lá til
Utrecht í Hollandi, þaðan sém
Guðmundur Óli lauk lokaprófí í
hljómsveitarstjórn í Svíþjóð, en í
vetur er hann í einkatímum hjá
Jorma Panula í Síbeliusarakadem-
íunni í Helsinki. Jorma Panula var
á sínum tíma aðalkennari Petri
Sakari, aðalhljómsveitarstjóra
Sinfóníuhljómsveitar íslands, og
-sagt hefur verið um hann, að
hann skapi hvern snillinginn á
fætur öðmm í hljómsveitarstjórn.
En hvernig sker hann sig úr
hópi annarra kennara í hljóm-
sveitarstjóm?
— Jorma Panula er fyrst og
fremst afbragðskennari en um
leið mjög sérstakur, sagði Guð-
mundur Óli. Aðferðir hans við
kennslu eru allt aðrar, en ég átti
að venjast í Hollandi. Þar voru
kenndar á akademískan hátt
ákveðnar aðferðir við að stjórna
hljómsveitum. Panula virðist hins
vegar finnast að það, sem nem-
andinn geri, sé jafn merkilegt og
það sem hann gerir sjálfur. Með
þetta að leiðarljósi hjálpar hann
nemendunum að þroskast og efl-
ast á þeirra eigin forsendum. Ég
verð a.m.k. í vetur hjá Panula,
en annars er óráðið um framt-
íðina, sagði Guðmundur Óli.
Góðar viðtökur hjá
Sinfóníuhljómsveitinni
— Þessir tónleikar eru afskap-
lega mikilvægir fyrir mig, sagði
Guðmundur Öli um tónleika Sin-
fóníuhljómsveitarinnar í Lang-
holtskirkju í kvöld, fimmtudag.
Þetta er stærsta verk mitt í vetur
og mikilvægt að þeir gangi vel.
Það má segja að æfingar hafi
gengið nokkuð í samræmi við
áætlanir. Hljómsveitarfólkið hefur
tekið mér mjög vel. Það er vita-
skuld gagnrýnið á það sem ég er
að gera, en um leið leggja allir
sig_ fram.
I janúar stjórna ég svo tónleik-
um íslensku hljómsveitarinnar.
Annars fæ ég tækifæri til að æfa
mig með hljómsveit í skólanum í
Helsinki.
En hvernig eru atvinnuhorfur?
— Ég vissi, er ég fór út í þetta
nám, að atvinnuhorfur fyrir mig
sem hljómsveitarstjóra eingöngu
hér heima eru afskaplega litlar.
Ef ég hins vegar tek að mér kór-
stjórn áfram og stjórn minni
hljómsveita, eru þær allgóðar. En
tíminn mun leiða þessa hluti í ljós,
sagði Guðmundur Óli' Gunnars-
son, hljómsveitarstjóri að lokum.
Þess má geta að þessir tónleik-
ar Sinfóníuhljómsveitarinnar í
grænni tónleikaröð verða endur-
teknir í Langholtskirkju á laugar-
dag kl. 15.00, en löngu er orðið
uppselt á tóleikana í kvöld.
Mynd og texti: Rafn Jónsson
Kvöldlokkur
Tónlist____________
Jón Ásgeirsson
Kvöldlokkur Blásarakvintetts
Reykjavíkur voru að þessu sinni
haldnar í Seltjarnarneskirkju sl.
þriðjudag. Á efnisskránni voru verk
eftir Mozart, Triebensee, Castil-
Blaze og Beethoven. Tónleikarnir
hófust á Divertimento K.166 eftir
Mozart, sem er ritað fyrir 2 óbó, 2
ensk hom, 2 klarinett og 2 fagott.
Verkið samdi Mozart 1773, þá 17
ára en í sama mánuði (mars) samdi
hann annað Divertimento (K.186)
fyrir sömu hljóðfæraskipan og er
talið líklegt að verkin séu ætluð til
flutnings „erlendis", nefnilega í
Sambandið:
Félagið Goði hf. var stofnað
síðastliðinn þriðjudag, en tekur til
starfa 1. janúar á næsta ári. í frétt
frá Sambandinu segir, að Goði hf.
taki í öllum aðalatriðum við þeim
verkefnum, sem búvörudeild Sam-
bandsins hefur sinnt. Hlutafé fé-
lagsins skiptist að jöfnu milli Sam-
bandsins og sláturléyfíshafa.
í fyrstu stjóm félagsins vom
kosin: Guðjón B. Ólafsson forstjóri
Mílanó og því hafi hann notað
klarinett, en slík Jiljóðfæri voru
ekki til staðar á þeim tíma í Salz-
burg.
Divertimento voru oft leikin af
áhugatónlistarmönnum og jafnvel
þjónustufólki og var gerð slíkrar
utandyratónlistar oft ekki til að
auka hróður höfundanna, þó Moz-
art tækist að semja nokkur frábær
verk af þeirri gerðinni. K.166 er
fallegt og einfalt í gerð og var mjög
vel leikið en með Blásarakvintettin-
um léku Kristján Þ. Stephensen á
óbó, Peter Tompkins á enskt hom,
Guðrún Másdóttir einnig á enskt
hom, Sigurður I. Snorrason á
klarinett, Þorkell Jóelsson á horn
og Björn Th. Árnason á fagott.
SÍS, Guðsteinn Einarsson kaupfé-
lagsstjóri, Blönduósi, Jörundur
Ragnarsson kaupfélagsstjóri, Egils-
stöðum, sem er stjómarformaður,
Sigrún Magnúsdóttir kaupfélags-
stjóri, Óspakseyri og Þorsteinn
Sveinsson, Egilsstöðum. Fram-
kvæmdastjóri Goða hf. verður Árni
S. Jóhannsson en hann hefur verið
framkvæmdastjóri búvörudeildar
Sambandsins.
Samspil Guðrúnar og Peters á
enska homið var einstaklega fal-
legt, sömuleiðis á óbóin hjá Krist-
jáni og Daða Kolbeinssyni og þá
ekki síður hornin t.d. í menúettinum
hjá Joseph Ognibene og Þorkatli.
Samleikurinn í heild var glæsilegur.
Menúettinn frægi úr Don Gio-
vanni eftir Mozart var fluttur í held-
ur svona lítið spennandi tilbrigðum
eftir hljóðfæraleikara (samtíma-
mann Mozarts) að nafni Trieb-
ensee, er mun hafa lagt Mozart í
einelti og útsett verk hans heldur
gáleysislega fyrir blásara. Þrátt
iyrir að ekki væri mikið bragð að
þessum tilbrigðum, vom þau vel
leikin.
Sextett fyrir pör af klarinettum,
homum og fagottum eftir franska
tónlistarmanninn Castil-Blaze
(1784-1857) var skemmtilegur
áheyrnar en CastiI-BIaze þessi var
helst kunnur fyrir gagnrýni er hann
ritaði í Journal des Débats og ritun
tveggja binda bókar um frönsk
óperuverk (útg. 1820). Hann vann
nokkuð við þýðingar en þótti þar
fara nokkuð fijálslega með frum-
textann og jafnvel bæta óþarflega
miklu við hann frá eigin brjósti.
Meðal verka sem hann fékk skömm
í hattinn fyrir að færa úr lagi voru
óperurnar Freischiitz og Euryanthe
eftir Weber. Sextettinn var mjög
vel leikinn og til að taka eitthvað
fram, var samleikur Einars Jóhann-
essonar og Sigurðar á klarinettin
og sömuleiðis fagottistanna Haf-
steins Guðmundssonar og Björns
sérlega vel útfærður.
Tónleikunum lauk með Oktett op.
103 eftir Beethoven. Verk þetta
mun Beethoven hafa samið 1792,
sama árið og hann kom til Vínar,
og endursamið síðar en lagt verkið
til hliðar. Það var ekki gefið út fyrr
en 1830, þremur árum eftir dauða
hans og því er það með svona hátt
ópusnúmer. Þetta æskuverk Beet-
hovens (22 ára), sem er einfalt í
gerð, bæði að formi og tematískri
úrvinnslu stefhugmynda, var mjög
vel leikið.
Bók um
náttúru
MAL og menning hefur gefið út
bókina Perlur í náttúru íslands
eftir Guðmund P. Ólafsson.
í formála bókarinnar er hún sögð
vera alþýðlegt heimildarrit um
íslenskt landslag og ástarátning til
landsins.
Bókin Perlur í náttúru íslands
er tvískipt. Fyrri hlutinn fjallar um
jarðsöguna og stöðu íslands í sögu
jarðar, hvernig ísland reis úr sæ,
hvernig landslag verður til, mótast
og eyðist. Þessi hluti er í sex köfl-
um: I upphafi, Jörðin og jarðskorp-
an, ísland, Berg og jarðlög og
síðasti kaflinn heitir Sambúð við
landslag, þar sem skoðað er hvern-
ig sambúðin við landið hefur breytt
ásýnd þess og hvemig náttúran er
samofin menningu þjóðar.
Síðari hlutinn heitir Foldin fríða
og segir þar frá 70 stöðum á
landinu. Kort eru af öllum þessum
svæðum, skýringarmyndir og ljós-
■myndir, sumar á hálfum og heilum
síðum, aðrar í opnu. Og textinn er
ekki aðeins um jarðfræði, heldur
einnig sögu, þjóðfræði og bók-
menntir.
I formála bókarinnar segir m.a.:
„ísland er stórbrotið undraland sem
Perlur í
Islands
Guðmundur P Ólafsson.
er aldrei eins frá einu augnabliki
til annars. Þess vegna er það land
töfra og dulúðar. Þess vegna er
ekki hægt annað en elska slíkt land
hvort sem maður er íslendingur eða
ekki. Þess vegna eru Perlur í nátt-
úru íslands í raun ástaijátning.
Bókin er tjáning um ást og virðingu
fyrir lifandi og dauðu, fyrir landi
og sögu. Hún er skrifuð til að örva
börn Islands til að þekkja landið
sitt, og umgangast það af nær-
færni.“
Bókin er 420 blaðsíður.
Uppselt hjá alþingismanni
eftirMagnús
Oskarsson
„Sagði ég honum að atkvæði
mitt væri ekki lengur til sölu ...“
Þannig greinir háttvirtur alþingis-
maður Borgaraflokksins fyrrver-
andi, Guðmundur Ágústsson, frá
nýlegum viðræðum sínum við að-
stoðarmann Steingríms Her-
mannssonar forsætisráðherra. í
grein í Morgunblaðinu 11. þ.m.
Ekki lengur, segir blessaður
þingmaðurinn, sem unnið hefur
eið að stjórnarskránni og er sam-
kvæmt henni einungis bundinn
við sannfæringu sína. En nú er
hann sem sagt hættur að selja
atkvæði, að því er virðist vegna
þess að allt er uppselt en ekki
vegna þess að kaupendur skorti.
Allir vita að ömurlegt líf núver-
andi ríkisstjórnar hefur frá upp-
hafi hangið á bláþræði atkvæða-
kaupa á Alþingi, þótt skort hafi
formlega vitneskju um þau við-
skipti. En nú hefur einn úr hópi
þingmanna bætt úr þessu og af
fyrra bragði og óbeðinn skýrt frá
atkvæðasölu sinni sem hann að
vísu kveðst hættur, í bili a.m.k.
Þótt ólíklegt sé, má vera að
einhveijir vilji líf þessarar ríkis-
stjórnar sem lengst og hafi af því
ábyggjur að atkvæðasölur á Al-
þingi leggist niður. Þeim til hugg-
unar skal á það bent að Stefán
Valgeirsson hefur engar yfirlýs-
ingar gefið í þá átt og að Sólnes
og Óli eru á sínum stað.
Höfundur er borgarlögmaður.
Hlutafélag stofn-
að um búvörudeild
STOFNAÐ hefur verið nýtt hlutafélag, Goði hf, sem tekur við starf-
semi búvörudeildar Sambandsins. Eru stofnendur 20 sláturleyfisha-
far um allt land, Samband íslenskra samvinnufélaga og nokkur kaup-
félög. Er þetta fyrsta hlutafélagið af fimm, sem stofnuð verða um
þann rekstur sem Sambandið hefur haft með höndum. Hlutafé er
300 milljónir króna og er það að fullu innborgað.
Himimm s haskBlaIslands
Wf mm mm ■VffffiMwf m vænlegast til vinnings
KR.75.ÖQÖ
1632 3515 6957 9879 18628 20214 26218 30440 39658 44743 46049 50538
2312 3678 7164 10154 19557 24030 27747 36194 41090 44857 48352 55502
3495 5329 8922 13160 20094 24528 28820 38390 42009 44871 48469 55774
Við vinnslu á tólfta útdrætti Happdrættis Háskóla íslands, sem birtist í blaðinu í
gær, féllu niður 75 þúsund kr. vinningarnir. Lesendur og happdrættið eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.