Morgunblaðið - 13.12.1990, Page 41
: MXDRGUMBLAÐIÐ FIMMTUDÁGUK 18! tÐESEMBBR' 1990
0r41
Yfirmaður KGB lof-
ar að afstýra sundr-
ungu Sovétríkjanna
Varar við niðurrifsstarfsemi erlendra afla
Moskvu. Reuter.
VLADIMIR Krjútsjkov, yfirmaður sovésku öryggislögreglunnar,
KGB, sagði í fyrrakvöld að sveitir hans myndu gera allt sem þær
gætu til að koma í veg fyrir að róttækir umbótasinnar kæmust til
valda og stuðluðu að sundrungu Sovétríkjanna. Hann sakaði þá um
að hafa reynt að skapa ringulreið í landinu með aðstoð erlendra
afla og þóttu orð hans minna mjög á orðaval harðlínukommúnista
er kalda striðið stóð sem hæst.
Vladímír Krjútsjkov
Reuter
Kijútsjkov sagði í áhrifamiklu
sjónvarpsávarpi að öryggislögregl-
an væri staðráðin í að stuðla að því
að lýðræðisbreytingarnar í landinu
Tiéldust en beijast gegn hvers konar
niðurrifsstarfsemi. „Hættan á
sundrungu Sovétríkjanna er orðin
að veruleika, kynt hefur verið undir
þjóðernisrembingi og komið hefur
verið af stað fjöldaóeirðum. KGB
hefur griþið til aðgerða gegn þess-
um öflum, sem leitast við að skapa
ringulreið í landinu, og mun gera
svo áfram,“ sagði Ktjútsjkov og
bætti við að hann flytti ávarpið að
fyrirmælum Míkhaíls Gorbatsjovs,
forseta Sovétríkjanna.
Kijútsjkov sagði að öfgahópar
hefðu myndast víða um landið og
sumir þeirra nytu stuðnings er-
lendra afla. „Starfsmenn KGB líta
á það sem skyldu sína að beijast
gegn afskiptum erlendra sérsveita
og þeirra erlendu samtaka, sem
með stuðningi þeirra, hafa háð
leynilegt stríð gegn sovéska ríkinu
í áratugi," sagði hann.
Kijútsjkov sagði að almenningur
í Sovétríkjunum vildi njóta leiðsagn-
ar „Tsjekísta" og vísaði þar til fyrir-
rennara KGB, NKVD, og ógnarald-
arinnar í Rússlandi á þriðja ára-
tugnum er Stalín var við völd.
NKVD sendi þá hundruð þúsunda
manna, „óvini alþýðunnar" og
„skemmdarverkamenn", í fanga-
búðir. Imynduð leynisamtök voru
þá afhjúpuð og sögð tengjast vest-
rænum hreyfingum andkommún-
ista.
Vassílíj Shakhnovskíj, róttækur
Solzhenitsyn
hafnar bók-
menntaverð-
launum
umbótasinni í stjórn Moskvuborgar,
kvaðst dolfallinn yfir ávarpi Kijútsj-
kovs. „Þetta er einfaldlega aftur-
hvart til gömlu aðferðanna, sem
margir hafa næstum gleymt. Þeir
eru að leitá að óvinum heima og
erlendis til kenna þeim um mistök
okkar,“ sagði hann.
Oveður á Norðursjó:
Sex menn taldir af
Lundúnum. Reuter.
SEX skoskir sjómenn, sem saknað var eftir að bát þeirra hvolfdi í
óveðri er geisaði á Norðursjó í gær, eru taldir af. Meira en 100 menn
voru fluttir af olíuborpöllum í land vegna veðurofsans.
Björgunarþyrlur voru sendar til
að leita áhafnar bátsins og eftir tals-
verða leit voru þeir taldir af.
Nokkur olíufélög létu flytja hluta
starfsfólk af olíuborpöllum í lánd í
gær. Fjórir menn slösuðust þegar
brotsjór reið yfir olíuborpall í eigu
Amoco olíufélagsins og hreif með sér
þijá björgunarbáta. Talsmaður fé-
lagsins sagði að 38 starfsmenn af
73 hefðu verið fluttir í land.
Talsmaður breska olíufélagsins
British Petroieum (BP) sagði að einn
borpalla félagsins hefði slitnað upp
og ræki nú undan vindi. 40 af 69
starfsmönnum pallsins voru fluttir í
land í varúðarskyni.
Danskan rannsóknapall með 56
manns innanborðs rak undan vestur-
strönd Noregs í.gær en talsmenn
norskra björgunaraðila sögðu að
áhöfnin væri ekki í hættu.
Norska olíufélagið Statoil tilkynnti
að olíuframleiðsla gærdagsins á
stærsta borpalli fyrirtækisins minnk-
aði úr 775 þúsund tunnum í 420
þúsund tunnur vegna þess að ekki
var hægt að skipa olíunni upp. Ekki
þurfti að minnka framleiðslu á þeim
borpöllum sem dæla olíunni um
leiðslu til lands.
New York og Moskvu. Reuter.
ALEXANDER Solzhenitsyn,
rússneski rithöfundurinn sem
gerður var landrækur úr Sov-
étríkjunum árið 1974 vegna skrifa
sinna um harðstjórn Stalíns-
tímans, hefur hafnað æðstu bók-
menntaverðlaunum rússneska
ríkisins, að því er fram kemur í
yfirlýsingu sem útgefendur hans
í Bandaríkjunum hafa birt.
Tilkynning ríkisstjórnar Rússlands
um verðlaunaveitinguna birtist í dag-
blaðinu Sovietskaya Rossiya á þriðju-
dag. Þar var tekið fram að Solzhen-
itsyn hlyti verðlaunin fyrir „Gulag-
eyjaklasann“, sem er sagnfræðilegt
bókmenntaverk í mörgum bindum
og fjallar um fangabúðakerfið sem
harðstjórinn Josef Stalin kom á fót
í Sovétríkjunum. Gulag-eyjaklasinn
var gefinn út á Vesturlöndum um
miðjan áttunda áratuginn en í Sov-
étríkjunum fyrst núna nýlega.
í tilkynningu sinni þakkar Solz-
henitsyn úthlutunarnefndinni, en
segir að það væri bæði „rangt og
óviðeigandi að þiggja ríkisbók-
menntaverðlaun fyrir þessa bók“.
Fyrr á þessu ári gaf Mikhaíl Gor-
batsjov forseti út tilskipun, þar sem
Solzhenitsyn er boðið að taka á nýjan
leik við sovéskum ríkisborgararétti
sem hann var sviptur þegar hann var
gerður landrækur. Rithöfundurinn
hefur ekki þekkst boðið. Hann af-
þakkaði einnig boð um að heimsækja
Rússland fyrr á þessu ári.
VERTU
ÓHÁÐUR
SADDAM
HUSSEIN
Plast er unnið úr olíu og verð á því helst 1 hendur við olíuverð.
Þrátt fyrir hina miklu olíuverðshækkun á heimsmarkaði vegna atburðanna
við Persaflóa hefur okkur tekist að fá talsvert magn af TENO-plastfilmu á
góðu verði.
’Þú getur því birgt þig upp með TENO-filmu fyrir sumarið, hvað sem Saddam
Hussein gerir. Og ef þú kaupir fyrir áramót getur þú nýtt þér fjárfestinguna
við skattframtalið.
Þannig kemur JÖTUNN enn einu sinni til liðs við þig.
'V • ^
íslenskir bændur hafa sýnt að þeir treysta TENO-filmunni og hún hefur sýnt
að hún er traustsins verð.
er blásin einslags filma, og því sterkari en völsuð filma, hún er í 1800 metra
rúllum, 50 sentimetra breið og 25 /jl á þykkt.
I L M A IM
er á plasthólkum, sem ekki blotna upp í vætu, hún er í 21 kílós rúllum og
er sérpökkuð í plast og pappakassa með íslenskum leiðbeiningum.
HÖFÐABAKKA 9 112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000