Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
45
Giljagaurí
Þjóðminjasafnið
GILJAGAUR kemur í heimsókn
á Þjóðminjasafnið í dag. Jóla-
sveinarnir koma þangað einn af
öðrum fram til jóla, ævinlega
klukkan 11.
Hafnarfjarðarkirkja:
30 tillögur að
safnaðarheimili
og tónlistarskóla
ÞRJÁTIU tillögur bárust í samkeppni um safnaðarheimili og tón-
listarskóla við Hafnarfjarðarkirkju. Fyrstu verðlaun, kr. 1.380 þús.,
hlutu þau Sigríður Magnúsdóttir arkitekt og Hans Olav Andersen
arkitekt á Teiknistofunni Tröð hf., önnur verðlaun, kr. 830 þús.,
hlutu Baldur O. Svavarsson arkitekt og Pétur H. Ármannsson arki-
tekt og þriðju verðlaun, kr. 550 þús., hlaut Inga Ðagfinnsdóttir arki-
tekt.
í keppnislýsingu segir: „Við-
fangsefni þessarar samkeppni er
hönnun safnaðarheimilis Hafnar-
ijarðarkirkju og tónlistarskóla á
keppnissvæðinu og skipulag alls
svæðisins. Rík áhersla er lögð á að
bygging(ar) og skipulagið í heild
taki tillit til Hafnarfiarðarkirkju og
FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA
12. desember.
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 121,00 96,00 100,26 79,049 7.925.247
Þorskursmár 86,00 86,00 86,00 0,217 18.664
Ýsa 134,00 105,00 131,54 2,224 292.602
Ýsa smá 68,00 68,00 68,00 0,188 12.785
Ýsa (ósl.) 99,00 89,00 97,00 0,978 94.870
Karfi 43,00 43,00 43,00 0,140 6.020
Ufsi 36,00 36,00 36,00 0,005 198
Ufsi ósl. 36,00 36,00 36,00 0,029 1.044
Steinbítur 68,00 68,00 68,00 0,262 17.816
Steinbíturósl. 62,00 62,00 62,00 0,269 16.679
Langa 87,00 54,00 78,86 0,697 55.008
Langa ósl. 70,00 70,00 70,00 0,235 16.450
Lúða 425,00 355,00 411,74 0,390 160.783
Keila ósl. 42,00 42,00 42,00 0,836 35.133
Samtals 101,16 85,596 8.658.725
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Þorskur(sL) 119,00 85,00 110,23 55,256 6.090.946
Þorskur(ósL) 109,00 78,00 98,15 8,518 836.014
Ýsa (sl.) 139,00 110,00 128,59 3,896 500.989
Ýsa (ósl.) 108;00 ' 78,00 97,00 8,656 841.387
Blandað 39,00 39,00 39,00 0,086 3.354
Karfi 53,00 53,00 53,00 1,530 81.090
Keila 41,00 41,00 41,00 1,308 53.628
Langa .83,00 76,00 81,58 4,903 400.020
Lúða 540,00 255,00 418,40 0,882 369.030
Lýsa 63,00 54,00 56,34 0,610 34.370
Steinbítur 70,00 67,00 67,80 0,113 7,661
Ufsi 57,00 41,00 54,30 6,945 377.145
Undirmál 89,00 67,00 80,72 1,066 86.052
Samtals 103,25 93,769 9.681.686
FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf.
Þorskur (sl.) 112,00 104,00 • 106,34 5,032 535.150
Þorskur (ósl.) 120,00 87,00 116,96 21,283 2.499.211
Ýsa (sl.) 141,00 123,00 133,53 1,089 145.413
Ýsa (ósl.) 132,00 75,00 118,21 0,697 82.391
Hlýri/Steinb. 69,00 69,00 69,00 0,115 7.935
Lúða 515,00 325,00 476,52 0,079 37.645
Karfi 15,00 15,00 15,00 0,010 150
Lýsa 39,00 39,00 39,00 0,255 9.945
Blandað 43,00 43,00 43,00 0,043 1.849
Langa 79,00 66,00 71,92 0,863 62.067
Keila 62,00 44,00 57,85 1,675 96.954
Ufsi 57,00 45,00 48,86 0,566 27.654
Samtals 110,27 31,708 3.496.364
Selt var úr Skarfi og Albert Ólafssyni. Á morgun verður selt úr Hauki GK.
Olíuverö á Rotterdam-markaöi, síöustu tíu vikur,
2. okt. -11. des., dollarar hvert tonn
BENSIN
5.0 12.
26. 2.N 9. 16. 23. 30. 7.D
ÞOTU ELDSN E YTI 500 " 'JS
:: \
r\
]
375 V
325
250 307/ 303
5.0 12. 19. 26. 2.N 9. 16. 23. 30. 7.D
að hún njóti sín eftir sem áður.
Innangengt skal vera úr kirkju í
safnaðarheimili. Vegna afnota tón-
listarskólans af sal safnaðarheimil-
isins skal vera innangengt með
hljóðfæri milli skóla og salar.“
Fram kemur að heildarstærð
safnaðarheimilisins miðast við 840
fermetra og stærð tónlistarskólans
við 1.372 fermetra auk tengirýma.
Þá segir að í mati dómnefndar vegi
þungt tillitssemi við Hafnarfjarðar-
kirkju og umhverfi hennar, form
bygginganna frá sjónarmiði bygg-
ingarlistar og skipulags, hvernig
vistarverur gegna hlutverki sínu og
byggingarkostnaður.
I umsögn dómnefndar um verð-
launatillöguna kemur fram að um
þrjár afmarkaðar byggingar sé að
ræða er tengjast þverskipi kirkjunn-
ar með glergangi. Byggingarnar
eru sunnan við kirkjuna með greið-
um göngutengslum við Hamarinn.
„Stærð og hlutföll bygginganna svo
og’ efnis- og litaval gera það að
verkum að þær mynda mjög sann-
færandi heild ásamt kirkjunni sem
nýtur sín afar vel.“ Þá segir og að
skipulag safnaðarheimilisins og
skólans sé vel af hendi leyst.
Dómnefndin lagði til að þrjár til-
lögur að auki yrðu keyptar fyrir
Arkitektarnir Sigríður Magnúsdóttir og Hans Olav Andersen.
Líkan að verðlaunatillögunni.
kr. 175 þús. hver. Var það tillaga
þeirra Elínar Kjartansdóttur arki-
tekts, Haraldar Arnar Jónssonar
arkitekts og Helgu Benediktsdóttur
arkitekts, tillaga Gunnlaugs Stef-
áns Baldurssonar arkitekts og til-
laga þeirra Pálmars Kristmunds-
sonar arkitekts og Bjöms Skapta-
sonar arkitekts.
Dómnefndina skipuðu Helgi Haf-
Var Kasparov of fljót-
ur að bjóða jafntefli?
Skák
Karl Þorsteins
ANATOLY Karpov og Garrí
Kasparov sömdu um jafntefli í
19. einvigisskákinni um heims-
meistaratitilinn eftir 39 leiki í
gær. Kasparov bauð jafnteflið
sem Karpov þáði umsvifalaust.
Jafnteflisboðið kom skáksér-
fræðingum í Lyon í opna
skjöldu, sem álitu stöðu heims-
meistarans sigurvænlega eftir
snjalla peðsfórn skömmu áður.
Máske hefur Kasparov ekki
viljað tefla í tvísýnu því með
hverju jafntefli færist hann nær
heimsmeistaratitlinum. Staðan
í einvíginu er nú tíu vinningar
gegn níu Kasparov i vil og hon-
um nægir að halda jöfnu í ein-
víginu, sem er tuttugu og fjórar
skákir til þess að halda krún-
unni.
Karpov var í vígahug í viður-
eigninni í gær. Hann stýrði hvítu
mönnunum og tefldi byijunina
hvassar en hans er vandi. Heims-
meistarinn beitti kóngindverskri
vörn og fyrstu sjö leikirnir í skák-
inni hafa margsinnis áður sést í
einvíginu. I framhaldinu teygði
baráttan anga sína yfir allt skák-
borðið. Miðborðspeðunum ýtti
Karpov ótrauður áfram og hóf að
því loknu sókn á drottningar-
væng. Við það lét hann ekki stað-
ar numið. Peðunum á kóngsvæng
lék hann fram og skeytti engu
um öryggi kóngsins sem stóð
óhreyfður á upphafsreit. Heims-
meistarinn kann vel til verka í
.slíkum stöðum. Án þess að taka
mikla áhættu, þá virkjaði hann
liðsafla sinn á skemmtilegan hátt.
Hann kom svartreita biskup
sínum fyrir á ákjósanlegum reit
áður en hann stöðvaði frekari
framrás. Eftir tuttugu og fimm
leiki var komin fremur sjaldséð
sjón í viðureignum þeirra þar sem
peðafylkingamar stóðu hvor and-
spænis annarri. Með snjallri peðs-
fórn sölsaði Kasparov undir sig
frumkvæðið uns hann skyndilega
bauð jafntefli í darraðardansinum
fyrir tímamörkin.
Karpov þarf nú 3,5 vinninga í
síðustu fimm einvígisskákunum
til þess að endurheimta heims-
meistaratitilinn, sem hann glataði
árið 1985. Tuttugasta einvígis-
skákin verður tefld á laugardag-
inn og þá stýrir Kasparov hvítu
mönnunum.
Hvítt: Anatoly Karpov
Svart: Garrí Kasparov
Kóngindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 — g6 3. Rc3
- Bg7 4. e4 - d6 5. Rf3 - 0-0
6. Be2 - e5 7. Be3 - c6!?
Kasparov er aldeilis ekki að
glíma við afbrigðið í fyrsta skipti
í einvíginu. Áður hefur hann leik-
ið 7. - De7, 7. — Ra6 og 7. —'
exd4 í þessari stöðu í einvíginu.
Það er athyglisvert að hann hefur
sneitt framhjá algengustu leikjun-
um í stöðunni þ.e. 7. — Rg4 og
7. — h6 sem enski stórmeistarinn
Nunn hefur dálæti á. Karpov vel-
ur beittasta framhaldið.
8. d5 - Rg4 9. Bg5 - f6 10.
Bh4 - Ra6 11. Rd2 - Rh6 12.
a3 - Rf7
Gegn minni spámönnum hefði
Kasparov vafalaust kosið að leika
12. - g5 13. Bg3 - f5 14. exf5
— Bxf5. Slík taflmennska er vart
hentug gegn Karpov því hvítur
hefur frumkvæðið eftir 15. Rde4!
Þess í stað leitast hann við að
virkja svartreita biskupinn.
13. f3 - Bh6 14. Bf2 - f5 15.
Dc2 - Bd7 16. b4 - c5 17. Hbl
- b6 18. Rfl - Bf4!
Skemmtilegur leikur. Nú væri
18. Re3 svarað með 18. — Dg5
19. h4 — Dh6 með gríðarlega flók-
inni stöðu.
19. g3 - Bh6 20. h4 - Rc7
Kasparov er því viðbúinn að
sVara 21. Re3 með f4!. Hvítur
kemst ekkert áleiðis á drottning-
arvæng og því ákveður Karpov
að leita færa á kóngsvæng.
21. g4!? - fxg4 22. fxg4 - Bf4!
23. Re3 - Re8 24. Rcdl
Það kom til greina að ieika 24.
g5!? með Rg4 í huga. Karpov er
sjálfum sér samkvæmur þrátt fyr-
ir eldmóðinn í upphafi taflsins.
Hann kýs að hafa Iiðsmenn sína
valdaða áður en hann ræðst til
atlögu. Kasparov kemur í veg
fyrir þettá með næsta leik sínum.
24. - h6! 25. h5 - g5 26. Hgl
- Rf6 27. Hg2 - Dc8 28. Kfl
- Rd8
Svartur hefur betri stöðu.
Framganga hvítu peðanna hefur
verið stöðvuð og.á meðan svartur
getur bætt stöðu liðsmanna sinna
er hlutskipti hvíts að veijast.
29. Kgl - Rb7 30. Khl - cxb4
31. axb4 - a5! 32. Rf5 - Bxf5
33. exf5 - axb4 34. Hxb4 -
Rc5! 35. Hxb6 - Rce4 36. Hc6
- Db7 37. Bel - Hal 38. Bf3
- Rc5 39. Bc3 - Hcl
Kasparov bauð jafntefli um ieið
og hann lék þessum leik sem
Karpov þáði að bragði.
1
Morgnnblaðið/Sverrir
liðason arkitekt og Vilhjálmur
Hjálmarsson arkitekt frá Arkitekta-
félagi íslands, Sveinn Guðbjartsson
forstjóri Sólvangs, formaður sókn-
arnefndar Hafnarfjarðarkirkju, og
fyrir bæjarstjóm Hafnarfjarðar
voru Sigurður Einarsson arkitekt
og Sigþór Jóhannesson verkfræð-
ingur, formaður dómnefndar. Ritari
var Þór Gíslason tæknifræðingur.
éi