Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 53
MORGUNBLA0IÐ FIMMTUÐAGUR 18'. 0ESEMBER 1990
53co
Upplýsingarit og ferða-
handbók um Island
eftir Jóhann
Sigurjónsson
Nýlega kom út hér í London
bókin Iceland, the Travellers Gu-
ide. Höfundur bókarinnaj' er Tony
Escritt, sem er mörgum íslending-
um kunnur, og er þetta önnur bók-
in um ísland sem hann sendir frá
sér. Sú fyrri kom út 1985 og var
hún fyrst og fremst ætluð þeim
fjölda breskra hópa er til íslands
fara í rannsóknarferðir, sú bók er
nú nánast uppseld.
Þessi nýja bók er meira en tvö-
falt stærri en sú eldri og hefur
höfundur sennilega ætlað að slá
tvær flugur í einu höggi; endur-
skoða og endurútgefa fyrri bók
sína, en jafnframt ná til stærri
hóps þeirra ferðamanna sem hafa
hug á íslandsferðum.
Bókin er á fimmta hundrað síður
og henni fylgir kort af íslandi frá
Landmælingum íslands í kvarðan-
um 1:1 000 000. Frú Vigdís Finn-
bogadóttir skrifar formála að bók-
inni. Allmargar myndir prýða bók-
ina eru þær vel gerðar og raðað
saman í þemu á sérlega skemmti-
legan hátt.
Mér þykir nokkuð ljóst af stað-
arlýsingum og leiðarlýsingum að
höfundur hefur farið þar um sjálf-
ur og numið landið af tilfinningu,
enda fara nú ferðir hans til íslands
að nálgast hundraðið.
Mjög mikil vinna er lögð í að
teikna kort af öllum þéttbýlisstöð-
um á íslandi. Kortin eru einföld
og auðskilin og sýna leiðir að og
frá viðkomandi stöðum og hvar
helstu þjónustufyrirtæki og opin-
berar stofnanir eru staðsettar.
„ Að mínu mati er þarna
á ferðinni eitt besta
upplýsingarit og ferða-
handbók um Island sem
komið hefur út á seinni
árum.“
Ótrúlega fáar auglýsingar eru í
bókinni miðað vð stærð hennar og
vekur það nokkra undrun að bók,
sem ætlað er að koma út í 8.000
eintökum og verður mikið lesin,
a.m.k. af breskum og öðrum en-
skumælandi ferðalöngum til ís-
lands, skuli ekki, sem auglýsinga-
miðill, hofða meira til fyrirtækja í
ferðaþjónustu, en vera má að ekki
hafi verið leitað til þeirra. Á hinn
bóginn er fjöldi þjónustufyrirtækja
og gististaða nefndur í texta bók-
arinnar og bæt.ir það að nokkru úr.
Það sem helst má finna að þess-
ari bók er annars vegar prentfræði-
legar villur, þar sem t.d. vantar
skýringartexta með kortum og
hins vegar íslenski textinn. Nú á
tímum tölvunnar, þar sem hægt
er að setja og prenta nánast hvaða
tungumál sem er, ætti að vera
auðvelt að skrifa þ og ð. Einnig
eru íslensk orð víða rangt rituð og
rangbeygð, þó það komi sjaldan
fyrir með staðarnöfn. Það verður
líklega seint hægt að kenna útlend-
ingum „ástkæra ylhýra“ til fulls.
Að mínu mati er þarna á ferð-
inni eitt besta upplýsingarit og
ferðahandbók um Island sem kom-
ið hefur út. á seinni árum og kjörin
gjöf íslendinga til enskumælandi
vina og kunningja. Iceland Review
mun sjá um dreifíngu bókarinnar
á íslandi og verður sjálfsagt hægt
að fá hana keypta i flestum stærri
bókaverslunum.
Höfundur er menntaskólakennari.
Fallegir hlutir gefa lífinu gildi
Það á einnig við um penna. Sumir misskilja þá en við ætlumst til þess að skrifað sé með
þeim.
Parker Duofold kúlupenninn hér að neðan er vissulega fallegur, enda hefur ekkert verið til
sparað. Hitt er þó mikilvægara að hann er mjög vandaður.
Parker Duofold dansar um blaðið með jöfnu flæði af bleki. Það er hrein unun að skrifa
með Parker Duofold.
Parker Duofold fæst hjá eftirtöldum söluaðilum.
Ý PARKER
REYKJAVÍK
Penninn, Hallarmúla
Mál og menning, Síðumúla
Eymundsson, Mjódd
Penninn, Kringlunni
Griffill, Síðumúla
Mál og menning, Laugavegi
Eymundsson, við Hlemm
Penninn, Austurstræti
KÓPAVOGUR
Bókaverslunin Veda
HAFNARFJÖRÐUR
Bókabúð Olivers Steins
KEFLAVÍK
Bókabúð Keflavíkur
ÍSAFJÖRÐUR
Bókaverslun Jónasar
Tómassonar
AKUREYRI
Bókaverslun Jónasar
Jóhannssonar
Tölvutæki - Bókval
KIMNI
OG SKOP
[ NÝJA TESTAMENTINU |
Jakob Jónsson
Kímnf og skop
i Nýja testamentfnu
Jakob Jónsson
íslensk þýöing á
doktorsriti. Könnuð
ný viðhorf í túlkun og
boðskap Krists.
ÞÖGNIN
ER EINS OG
ÞANINN
STRENGUR
Páll Valsson
STUDIA ISLANDICA
pAll valsson
ÞÖGNIN ER EINS OG
ÞANINN STRENGUR
BKYKJAVtK IM
Þróun og samfella í
skáldskap Snorra
Hjartarsonar. Studia
Islandica 48.
SIÐASKIPTIN
Durant
WUI Durant
SIÐASKIPTIN
2. bindi. Saga
evrópskrar menningar |
1300-1564. Tímabil
mikilla straumhvarfa.
Þýðandi: Björn Jóns-
son, skólastjóri.
Bökaúfgófa
/V1ENNING4RSJÓÐS)
SKÁLHOLTSSTlG 7 • REYKJAVlK
SÍMI 6218 22