Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 66
NEYTENDMAL
66
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
Próf og prófstreita
Hvernig yfirvinna má prófkvíða
Próf eru framundan í mörgum skólum víða um land. Prófum fylg-
ir mikið álag fyrir nemendur, þeim er ætlað að geta staðið skil á
námsefni því sem kennt hefur verið á kennslutímabilinu, á skömmum
próftíma. Skólar leggja mikið upp úr þessum prófum, þó getur próf-
gerð verið mjög misjöfn og virðist oft skorta þar samræmingu.
Nemendur geta átt von á að fá krossapróf í einni námsgrein, sam-
hangandi spurningar í annarri, eða eina spurningu með ótal óskil-
greindum atriðum í þriðju námsgreininni o.s.frv. Otti við prófin og
hið óvænta getur valdið mikilli streitu hjá nemendum.
Hvernig er hægt að takast á við
prófstreitu, yfírvinna hana eða hafa
hemil á henni? Þessar spurningar
og fleiri voru lagðar fyrir Astu Kr.
Ragnarsdóttur og Auði Gunnars-
dóttur námsráðgjafa við Háskóla
íslands.
Orsakir prófstreitu
— Hveijar eru algengustu orsak-
ir prófstreitu?
„Prófstreita er oft fylgikvilli
prófa,“ sagði Ásta. „Fólk vill ná sem
bestum árangri, en óttast að geta
ekki gert prófunum eins góð skil
og það vildi. Óttinn við að mistak-
ast getur valdið prófstreitu og leitt
til prófkvíða." Ásta sagði að streita
fylgdi einnig oft fólki sem hefði sig
ekki í að sinna námi sínu og hefði
dregist aftur úr. Þama gæti verið
um að ræða streitu sem ekki tengd-
ist náminu. Ástæður geta verið fjöl-
margar; kerfið, heimilisástæður eða
aðrar ástæður. Fyrir þessa nemend-
ur er prófíð ógnun, þar sem þeir
vissu að námið hefði ekki verið
stundáð sem skyldi.
Munur á prófstreitu og
prófkvíða
Auður sagði að nauðsynlegt væri
að gera greinarmun á prófstreitu
og prófkvíða. Lágmarks streita er
nauðsynleg til að ná góðri einbeit-
ingu og árangri. Aftur á móti hefur
prófkvíði verulega truflandi áhrif í
prófum og hamlar getu nemandans.
„Prófkvíðnir nemendur eru þeir
sem lokast í prófum, eða hræðast
svo próf að þeir fresta þeim, ef
þess er einhver kostur." sagði Auð-
ur. „Fólk gerir sér ekki alltaf grein
fyrir því hvenær þessi kvíði byijar,
en hann á sér aðdraganda. Próf-
kvíði hefst oft löngu áður en
próftímabilið byijar.
Helstu merki þess að um próf-
kvíða sé að ræða eru t.d. miklir
einbeitingarerfiðleikar, vanlíðan við
lestur námsefnis og frestun verk-
efna. Ástæður prófkvíða geta verið
margvíslegar en venjulega hefur
hann þróast smátt og smátt.
Prófkvíðnir nemendur eru oft mjög
duglegir nemendur sem gera kröfur
en oft óraunhæfar, sem setur þá
undir álag.“
Breyttar aðstæður geta valdið
prófkvíða
„Prófkvíði getur emnig komið
vegna breytinga á aðstæðum, eins
og við að fara á milli skólastiga,
frá grunnskóla í menntaskóla, eða
fjölbraut og menntaskóla í há-
skóla,“ sagði Ásta. Námskröfur
verða meiri á hærra skólastigi, sér-
staklega ti! að byija með. Það skipt-
ir máli að geta náð tökum á ástand-
inu ef streitan er farin að hafa trufl-
andi áhrif á námið. Nemendur þurfa
gjaman að tileinka sér alveg ný
vinnubrögð þegar komið er í há-
skólanám. Skorpuvinna dugar illa
í háskólanámi. Nemendur finna að
þeir ráða varla við námið með
slíkum vinnubrögðum, sem getur
ýtt undir frekari streitu og leitt til
prófkvíða. Þegar nemendur koma í
einstaklingsráðgjöf eða á námskeið,
þá er reynt að hjálpa þeim við að
fínna út, hvað valdi streitunni.
Slæm vinnubrögð eru einn þáttur-
inn.“
Prófkvíði er kreppuástand
„í prófKvíða koma fram einkenni
sem líkjast einkennum streitu en
eru viðvarandi," sagði Ásta. „Nem-
andanum tekst ekki að ráða niður-
lögum á þeim. Þetta eru m.a. ýmis
líkamleg spennueinkenni; óþægindi
í maga, ógleði, höfuðverkur o.fl.“
Auður sagði að viðvarandi ein-
kenni kæmu einnig fram í hegðun
og hugsun við prófkvíða. Nemand-
inn víkur sér undan óþægilegum
aðstæðum sem vekja vanlíðan svo
sem próflestri eða prófum. „Hugsun
er til allra hluta fyrst,“ sagði Auð-
ur. „I kvíða þá bjagast hugsun
manna. Við verðum einfaldari og
sjálflægnari. Við eigum erfitt með
að beita skynsemi okkar, dóm-
greindin slævist. Fram koma hugs-
anir sem eiga við lítil rök að styðj-
ast, en hafa mikil áhrif á líðan og
viðbrögð einstaklingsins. Hugsanir
eins og ótti við að komast ekki yfír
efnið verða áleitnar, efí um náms-
hæfni, ótti við að falla o.s.frv. Þeg-
ar við síðan könnum þessar hugsan-
ir betur, eiga þær sjaldnast við
mikil rök að styðjast, og það sem
meira er, þær draga frekar úr nem-
andanum og eru lítt uppbyggjandi."
JODYNUR II
BOKAFORLRGSBOy'
Hestar og mannlíf í
A ustur-Skaftafellssýslu
Egill Jónsson bjó til prentunar
Árið 1988 kom út fyrsta bindi að rit-
verkinu Jódynur, sem hlaut mjög
góðar viðtökur og staðfestir það
hinn almenna áhuga fyrir meiri
kynnum á þessum landshluta.
Hestar, menn og svaðilfarir voru
hluti af daglega lífinu og um það
vllja menn fræðast. Sagt er frá
Hólahestunum, ræktun homfirskra
hrossa, Fornustekkahrossunum,
hestum og fólki í Árnanesi, Mýra-
WMM.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Auður Gunnarsdóttir og Ásta Ragnarsdóttir námsráðgjafar. —
Prófkvíði hefst oft löngu áður en próftímabilið hefst. Það skiptir
sköpum að geta náð tökum á ástandinu áður en streitan er farin
að hafa truflandi áhrif á námið.
Ásta sagði að þessi hópur hefði
einnig tilhneiginu til að líta á mis-
tök sem síðasta tækifærið í lífínu.
Heimurinn virðist beinlínis ætla að
farast verði árangur ekki eins og
stefnt er að, og ýti það enn frekar
undir streituástand.
Hvernig á nemandi, kvíðinn í
prófí, að bregðast við?
— Hvað gerir nemandi sem
staddur er í prófi og fyllist kvíða?
Hann sér spurningu fyrir framah
sig sem hann veit að hann áður
vissi svar við. Hann frýs, blóðrásin
hægir á sér, blóðið virðist ekki ná
til heilans. Hann getur ekki fram-
kallað svarið. Hvað getur hann
gert?
Auður lagði áherslu á fyrirbyggj-
andi aðgerðir: „Ef nemandi upplifír
að fijósa í prófí, og hefur ekki tam-
ið sér að vinna úr slíkum málum
áður, getur verið erfítt fyrir hann
að bregðast við slíkum aðstæðum.
En viti hann hvemig bregðast 'a
við á réttan hátt, getur ástandið
varað skemur og hann nær fljótar
tökum á ástandinu. Nemandinn
þarf að kunna að slaka á, staldra
við augnablik, og ná úr sér þessari
spennu. Hann þarf að geta beitt
vitsmunum sínum og dómgreind og
náð tökum á hugsunum sínum á
ný.“
Leiðbeiningar um
fyrirbyggjandi aðgerðir
„Við höfum leiðbeint nemendum
okkar hér í sambandi við prófin,“
sagði Ásta. „Leiðbeiningarnar fel-
ast í því að hjálpa þeim að fínna
leið til siökunar t.d. með því æfa
slökun eða líkamshreyfíngu sem
kallar fram slökun, þannig að nem-
endur þekki hvað það er að slaka
á og geti yfírunnið líkamleg ein-
kenni prófkvíða. Leiðbeiningar fel-
ast einnig í andlegum æfíngum sem
gerir nemandanum auðveldara að
takast á við kvíðann.
Námsráðgjafar við Háskólann
hafa í gegnum árin getað brugðist
við á próftíma, þegar um hefur
verið að ræða prófkvíðna einstakl-
inga sem ekki hafa náð tökum á
ástandi sínu, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir. Ásta sagði að í þeim tilfell-
um væri fengið leyfí hjá prófstjóra
til að vera til staðar á ákveðnum
tímum fyrir utan prófstofu. Það
getur skipt sköpum fyrir nemanda
að vita að hann getur farið úr próf-
stofu stutta stund og tjáð sig um
líðan sína. Það snertir þó ekki fag-
lega þætti prófsins. Hér hafa allar
deildir samþykkt slíkar beiðnir, en
þær þurfa samþykki kennara og
prófstjóra og er gengið frá slíkum
beiðnum viku fyrir prófið. „Þetta
fyrirkomulag hefur verið viður-
kennt síðan námsráðgjöf var tekin
upp hér við Háskólann," sagði Ásta.
Fjölskyldan getur hjálpað
Ásta sagði að komið hefði fram
í umræðu um grunnskóla og fram-
haldskóla, samskiptaörðugleikar
próftaka og fjölskyldu hans. „í því
Morgunblaðið/Þorkell
Dagsbrúnarfélagar á barattufundinum á Hótel Borg á sunnudag.
Mótframboðið í Dagsbrún:
50 manns á bar-
áttufundinum
BARÁTTUFUNDUR mótfram-
boðsins innan Dagsbrúnar fór
fram á Hótel Borg á sunnudag.
Um 50 manns komu á fundinn
og sagði Jóhannes Sigursveins-
son, varaformaður framboðslist-
ans, að sá fjöldi væri svipaður
og kæmi yfirleitt á félagsfundi.
Jóhannes sagði að á fundinum
hefðu nokkrir gengið til liðs við
framboðið sem fengur væri í.
„Þeirra á meðal var Páll Valdimars-
son, fyrverandi stjórnarmaður í
Dagsbrún, sem mun taka sæti í tíu
manna stjórn,“ sagði hann.
Jóhannes sagði að lítið vantaði á
að framboðshópnum tækist að
safna 120 nöfnum á lista aðal-
manna framboðsins, sem nauðsyn-
legt væri samkvæmt lögum félags-
ins, Sagði hann að frambjóðendur
hefðu-undanfarið heimsótt vinnu-
staði til að kynna framboðið. Þá
væri brýnt að fá aðgang að félaga-
skrá Dagsbrúnar til að bera saman
við nöfn listans en stjórnendur
Dagsbrúnar hafa ekki veitt heimild
til þess enn. Dagsetning kosning-
anna hefur ekki verið ákveðin en
er búist við að þær fari fram í lok
janúar.