Morgunblaðið - 13.12.1990, Blaðsíða 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
67
sambandi má koma á framfæri leið-
beiningum til aðstandenda," sagði
Asta, „Allir vilja þeir barninu sínu
aðeins hið besta, en ætla sér alls
ekki að hindra það. Þegar viðkom-
andi (nemandinn) er á flótta og
getur ekki haft sig að verki, eru
aðstandendur oft ósáttir og þeir
segja e.t.v. sem svo: Þú sem ert að
fara í próf, hvað ert þú eiginlega
að gera? Síðan koma ásakanir sem
eru eðlileg viðbrögð: Komdu þér inn
í herbergi og hafðu þig að lestri.
Þetta getur valdið því að viðkom-
andi lokast jafnvel ennþá meira og
á enn erfiðara með að heija lestur-
inn.
Fjöiskyldan þarf að gera sér
grein fyrir því, að það eru streitu-
einkenni að hafa sig ekki að verki.
Vandamálið má nálgast á annan
hátt, eins og að spyrja um líðanina
og ræða við einstaklinginn um til-
finningahlið kvíðans og stappa í
hann stálinu á rólegum bjartsýnis-
nótum,“ sagði Ásta.
Kennarinn þarf að undirbúa
nemendur undir prófin
„Nauðsynlegt er einnig að kenn-
arar séu vakandi og undirbúi nem-
endur sína undir prófín," sagði
Auður. „Það þarf að ketma nemend-
um að taka próf og þau þarf að
leggja fyrir nemendur jafnt og þétt
á kennslutímabilinu. Ef námsefnið
liggur ljóst fyrir frá upphafi
kennslutímabilsins, verða prófin
ekki einhver „fallgryfja", heldur
verkefni sem nemendur geta leyst
úr og svarað.“
Samskipti kennara og
nemenda
— Nú kemur fyrir að kennarar
eiga það til að setja „gildrur“ í próf-
in, með því að bregða inn óvæntri
spurningu. Getur slíkt ekki valdið
streitu hjá nemanda í prófi?
„Jú,“ sagði Ásta. „í" gegnum
tíðina virðast samskipti nemenda
og kennara, sérstaklega á efri
skólastigum, hafa þróast í það að
nemandinn hefur farið að líta á
kennarann sem einskonar „óvildar-
mann“, ekki sem leiðbeinanda held-
ur einhvern sem ætlar að „hanka“
hann“.
Auður sagði að kennslufræði
prófa væri mikilvæg í þessu sam-
bandi. Samkvæmt kennslufræðun-
um er mikil. áhersla lögð á að prófa
í því sem á að mæla. Efni sem
annaðhvort hefur verið farið yfir í
fyrirlestrum eða sett fyrir, og áður
en til próftöku kemur þá liggi fyrir
hvaða efni nemandinn eigi að geta
gert skil á. „Prófið á ekki að vera
nemendum neitt óvænt,“ sagði hún.
Viðbrögð við falli á prófi
„í sambandi við viðbrögð fólks
við faili á prófi tel ég ákaflega
mikilvægt, og það getur varðað
sálarheill einstaklings, að honum
fínnist að gætt hafi verið réttlætis
við úrlausn prófsins," sagði Ásta.
„Að standast ekki próf er nokkuð
sem fólk er sjaldnast sátt við. Þeg-
ar einstaklingur hefur fallið á prófi,
verður að vinna með þá óánægju,
þannig að einstaklingurinn beri það
ekki með sér alla ævi, að hann
hafi verið ranglæti beittur. Við telj-
um að stór þáttur til lausnar sé að
nemendur geti séð úrlausnir prófs-
ins og farið yfir þær með kennaran-
um og heyrt frá honum hvað hann
vildi fá fram og hvernig hann mat
niðurstöðurnar. Við verðum vör við
að kennarar eru mjög á varðbergi
gagnvart þessum þætti.“ Stundum
tekst ekki til að fá kennara til þess
að ræða við nemendur um prófið,
nemendur fá aðeins að líta á prófúr-
lausnirnar án skýringa. Ásta sagði
að þessi tregða kennara. stafaði
ekki alltaf vinnuálagi þeirra, heldur
væri það eflaust gagnrýnisþáttu
rinn sem vægi þyngst.
Ráð til nemenda með
prófskjálfta
— Hvaða ráð gefið þið nemend-
um með prófskjálfta?
„Það sem getur hjálpað nemend-
um er að lesa prófið yfir, raða upp
spurningunum og byija á að svara
þeim spurningum sem þeir kunna
best, þá er strax komin ákveðin
von. Nemandinn lendir í tímahraki
ef hann eyðir tíma í spurningar sem
hann getur ekki svarað, og hefur
svo engan tíma fyrir þær spurning-
ar sem hann hefur svar við. En ef
sú staða kemur upp að nemandinn
lokast, þá er að beita þeim aðferðum
sem hann telur sjálfur að veiti hon-
um hugarró, með lærðri slökun,
dreifingu hugans, fara frá prófinu
augnablik, létta á kvíðanum með
því að tjá sig um hann o.s.frv.
Nemendur gera sitt besta á próf-
um, meira er ekki hægt að krefj-
ast, það eiga þeir sjálfir einnig að
hafa í huga,“ sögðu námsráðgjaf-
arnir Ásta og Auður að lokum.
Viðtal M. Þorv.
KX-T 2365 E - Kr. 10.849 stgr.
Skjásími sem sýnir klukku, símanúmer sem valið er,
tímalengd símtals.
Handfrjáls notkun — 28 hraðvalsminni — Endurhringir
sjálfkrafa 4 sinnum — Hægt að setja símanúmer í skamm-
tíma endurvalsminni — Hægt að geyma viðmælanda —
Tónval — Stillanleg hringing — Hægt að setja símanúmer
í minni á meðan talað er — Veggfesting.
Jólatilboð
KX-T 2386 BE - Kr. 9.980 stgr.
Sími með símsvara — Ljós í takkaborði — Útfarandi skila-
boð upp í Vi mín. — Hvert móttekið skilaboð getur verið
upp í IVi mín. — Hátalari — Lesa má inn eigin minnis-
atriði — Gefur til kynna að 15 skilaboð hafa verið lesin
inn — Hægt að ákveða hvort símsvarinn svari á 3 eða 5
hringingu — Tónval — 15 minni, þar af 3 númer fyrir
hraðval — Endurhringing — Hægt að geyma viðmælanda
— Stillanleg hringing — Hljóðstillir fyrir hátalara —
Veggfesting.
KX-T 2322 E / KX-T 2342 E
Kr. 5.680 stgr. Kr. 7.400 stgr.
KX-T 2342 E handfrjáls notkun — KX-T 2322 E hálf-
handfrjáls notkun — 26 númera minni, þar af 6 númer
fyrir hraðval — Endurhringing — Hægt er að setja síðast
valda númer í geymslu til endurhringingar, einnig er hægt
að setja símanúmer í skammtíma minni á meðan talað er.
— Tónval/púlsval - Hljóðstillir fyrir hátalara — 3 still-
ingar fyrir hringingu — Veggfesting.
HF
Laugavegi 170-174 Simi 695500
■o
X
i
M / TILEFNI af útgáfu íslensku
alfræðiorðabókarinnar efndi
Bókaútgáfan Örn og Örlygur til
getraunar meðal blaðalesenda um
væntanlegan útgáfudag bókarinn-
ar. Alls tóku um 1000 manns þátt
> getrauninni. Heitið var þrennum
verðlaunum, þ.e.a.s. þrem settum
af íslensku alfræðiorðabókinni; einu
til hvers vinningshafa. Nú hefur
verið dregið úr réttum svörum hjá
Borgarfógetanum í Reykjavík og
þesi nöfn voru dregin út: Ingi. R.
Björnsson, Hörpugötu 10,
Reykjavík. Sofie Markan, Geita-
stekk 7, Reykjavík. Svanheiður
Ingimarsdóttir, Miðtúni 22, Sel-
fossi.
■ VINNUSTOFA Þóru hefur
verið opnuð aftur eftir nokkurra
mánaða lokun, á Austurgötu 47 í
Hafnarfirði. Sem fyrr eru það
handunnar gjafavörur sem Vinnu-
stofa Þóru býður upp á, svo og er
teiknað eftir ljósmyndum ásamt
innrömmun í álramma. Nýjungar
eru þær að nú er hægt að fá Biblíu-
texta og bænir á gamaldags pappír.
■ FRÆÐSLUMIÐSTÖÐIN Æs-
ir mun standa fyrir þremur kvöld-
vökum fyrir jól og verður sú fyrsta
haldin í kvöld, fimmtudaginn 13.
des., kl. 20.30 í Brautarholti 8. Fjöl-
breyttur hópur fólks mun koma
fram á kvöldvökunum og leiða gest-
ina inn í andlegan reynsluheim sinn.
UNGLINGABOKIN IAR!
HALTU MÉR — SLEPPTU MÉR
— pottþétt unglingabók eftir
metsöluhöfundinn Eðvarð Ingólfsson
Spennandi unglingabók um Eddu og Hemma, 16 og
17 ára. Þau kynnast af tilviljun. Það verður ást við
fyrstu sýn — barn og sambúð... En lífið er ekki alltaf
dans á rósum. Þegar á reynir kemur í Ijós hve sam-
bandið er sterkt. Það verður ekki bæði sleppt og
haldið.
HALTU MÉR — SLEPPTU MÉR
— bókin sem unglingarnir biðja um !
Bækur Eðvarðs Ingólfssonar hafa verið söluhæstu unglingabæk-
urnar undanfarin ár. Bók hans, Sextán ára í sambúð. seldist
best allra bóka 1985. Eðvarö hlaut verðlaun Skólamálaráðs
Reykjavikur fyrir bestu frumsömdu barnabókina 1988. Meiriháttar
i stefnumót