Morgunblaðið - 13.12.1990, Síða 70
MÖRGtJNBLÁÐIÐ FIMMTÚDÁGUR íi: bEÍáÉMÉ'ÉR 1990'
7Ó
ÞóreyKr. O. Böðvars
dóttir - Minning
Seinnabindið
erkomið út
MYLLUKOBBI, forlag
Skemmuvegur6L, 200Kópavogur
SÍMI: 91‘747 99
Fædd 4. júlí 1904
Dáin 5. desember 1990
Nú þegar elsku amma hverfur á
braut, langar mig að minnast henn-
ar með nokkrum orðum.
Eg man eftir mér hjá ömmu og
afa í Steinnesi á Kópaskeri. Þangað
fór ég fyrst tveggja ára að aldri til
stuttrar dvalar, en foreldrar mínir
voru erlendis. Upp frá því urðum
við nöfnur miklir mátar. Ég var
elsta barnabarnið og naut þess þá
og ætíð síðan. Frá þessum árum
er mér minriisstætt, hvað hálsakotið
á ömmu var mjúkt og hversu nota-
legt var að skríða upp í holuna
hennar enda átti amma þá stærstu
og bestu sæn& sem ég hef nokkurn
tíma séð. Vargóð sæng og fallegt
sængurver eitt af því sem hún hafði
mætur á alla tíð.
Ég var sex ára, er amma og afi
fluttu suður og var þá ekki ónýtt
að geta trítlað til ömmu með „Gagn
og gaman“, þar sem hún kenndi
mér að stauta. Létum við það heita
svo, að ég væri í tímakennslu. Síðan
liðu árin og á milli okkar ömmu var
alltaf mjög náið og sterkt samband,
þó oft væri langt á milli funda, og
umburðarlyndi gagnvart hvorri
annarri mikið.
I dag er mér efst í huga þakk-
læti fyrir að hafa borið gæfu til
þess að fá að kveðja hana þó hvor-
ug okkar vissi að þetta yrði okkar
síðasti fundur. Hún var glöð þennan
eftirmiðdag. Jólagardínurnar voru
komnar upp og aðventuljósið í
gluggann. Ég hafði orð á því hvað
hún liti vel út, og nú væri hún sjáan-
lega farin að jafna sig eftir áfallið
í sumar. Já, hún samsinnti því, að
hún liti vel út að utan, en væri
mjög máttfarin ennþá. Við töldum
það eðlilegt, þar sem hún væri nú
ekkert unglamb iengur. En þar sem
við sátum þarna við eldhúsborðið,
Tilkynning um útboö markaösveröbréfa.
Hlutabréf
í íslenska
hlutabréfasjóðnum hf.
Heildarnafnverö 50 milljónir króna.
Sölugengi 13. des. 1990; 1.08
Stæröir hluta að lágmarki kr. 10.000,- að nafnverði.
Útboðslýsing liggur frammi hjá Landsbréfum h.f. og
útibúum Landsbanka íslands, þ.m.t. Samvinnubankanum, um land allt.
Nánari upplýsingar veita Landsbréf h.f.
LANDSBRI:F H.F.
Landsbankinn stendur meö okkur
Suðuriandsbraut 24,108 Reykjavík, sími 91-606080
Löggilt veröbréfafyrirtæki. Aöili að Verðbréfaþingi islands.
£0
O ÍSLENSKI
S HLUTABREFASJODIIRINN H. F.
fann ég, að það var mikill hugur í
henni. HúnJiafði á orði, að líklega
myndi hún ekki baka mikið fyrir
þessi jól, en hafragijónaspænina
góðu ætlaði hún að reyna að baka.
Og þá segir hún allt í einu. „Heyrðu
Þórey mín, eru þeir ekki alltaf full
þykkir hjá þér?“ Jú, ég samsinnti
því, allavega ekki eins fallegir og
hjá henni. „Já, þú skalt bæta einni
matskeið af ijóma í uppskriftina."
Þetta fannst mér lýsa ömmu svo
vel, því allt sem hún gerði, gerði
hún af heilum hug, einskærri vand-
virkni og smekkvísi. Svo nú baka
ég faliega hafragijónaspæni fyrir
þessi jól ömmu til heiðurs.
Amma lagði alltaf sálu sína í það
sem hún gerði. Nú þegar blessuð
jólin nálgast, get ég ekki látið hjá
líða að nefna jólapakkana hennar,
sem ég man svo vel eftir. Ekki fyr-
ir að þeir væru svo stórir og mikl-
ir, heldur fyrir hversu notalega og
eiskulega var frá þeim gengið og
verður mér alltaf minnisstætt hvað
þeir voru fagurlega skreyttir.
Ég er þakklát skaparanum fyrir
að leyfa ömmu að sofna undir
sænginni sinni heima, því ég veit,
að það var henni mikiis virði.
Nú þegar amma hverfur á braut
á annað og væntanlega æðra til-
verustig, veit ég, að hún mun sinna
þeim verkefnum sem við höfðum
svo oft rætt um.
Elsku afi, ég veit að þú átt um
sárt að binda, og bið guð almáttug-
an að styrkja þig.
Þórey Björnsdóttir
Mig langar að þakka ömmu
minni samfylgdina. Nú hefur hún
fengið hvíld.
Þegar ég var lítil var gott að
koma til ömmu og afa á Hraunteig-
inn þegar mamma fór í vinnuna.
Þar var hlýja og öryggi og það var
næstum því jafn öruggt að einhvers
staðar væru til kleinur í boxi.
Eftir að ég eltist var jafngott að
koma til ömmu og afa og áður og
þá fór maður að kynnast og skilja
betur persónurnar sem voru á bak
við þessa föstu og öruggu punkta
í barnstilverunni.
Hún amma mín hefur lifað mikl-
★ GBC-lnnbinding
Fjórar mismunandi
gerðir af efnl og tækjum
til innblndingar
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 9 -105 Reykjavík
Símar 624631 / 624699
snyrtivörur
Opnum í dag
vOTAK
verslun
á Laugavegi 32, sími 62 64 80
Nectar býöur heilan heim af snyrtivörum,
og ilmefnum unnum úr náttúrunni.
Vörumar innihalda allar olíur, kjam"
beint ú
vörUr eru unm trerjisveex
viöhafðar tilrau
á dýrum viö framleiÓslú þéir
ar breytingar, bæði á lífsháttum og
hugmyndum en samt fylgdist hún
betur með en margir þeir sem yngri
eru. Hún kunni. að meta og notfæra
sér tækni og þægindi nútímans, sem
henni fundust þó síður en svo sjálf-
sögð og notaði tímann vel sem spar-
aðist. Vitni um það ber öll handa-
vinnan hennar.
Henni fannst kvenréttindabarátt-
an mjög áhugaverð en þótt henni
fyndist stundum svolítið geyst farið
studdi hún jafnréttishugmyndir
heilshugar.
Af viðhorfum ömmu til lífsins
geta margir lært. Henni þóttu gæði
lífsins ekki sjálfsögð og heldur
fannst henni nú skynsamlegra að
njóta þess sem hún hafði og leyfa
öðrum að njóta þess með sér en að
kalla sífellt á meira.
Með þetta í huga viljum við
mamma þakka henni.
Elsku afi, innilegustu samúðar-
kveðjur frá okkur.
Helga Sigríður
Þórey Kristín Ólína Böðvarsdóttir
fæddist á Hrafnseyri við Arnarfjörð
4. júlí 1904 og hét fullu nafni Þó-
rey Kristín Ólína, heitin eftir föð-
urömmu sinni, seinni konu Bjarna
Þórðarsonar bónda á Reykhólum í
A-Barðastrandarsýslu. Foreldrar
Þóreyjar voru Böðvar Bjamason
prestur á Hrafnseyri og fyrri kona
hans Ragnhildur Teitsdóttir.
Faðir Böðvars var Bjarni Þórðar-
son bóndi á Reykhólum í Barða-
RAYMOND WEIL
GENEVE
LE TEMPS CRÉATEUR
FIDELIO
Sígild hönnun, handunnið,
með 18 K. gullhúð, vatnsþétt.
Einnig til í dömustærð með
eða án steina.
Verð frá kr. 69.000,-.
T
GARÐAR ÓLAFSSON
Úrsmiður, Lækjartorgi, sími: 10081