Morgunblaðið - 13.12.1990, Side 80
80
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
i
0 a Elecírolux
% Constructor
TENNIS / RISABIKARINN
KERFI SEM VEX
MEÐ ÞÉR!
Stærð: H210 B30 L100
★ í bílskúrinn.
★ í geymsluna.
★ Á vinnustaðinn.
★ Á lagerinn.
Inaúsf
Borgartúni 26,
sími 62 22 62.
Chang sló Edberg úl
MICHAEL Chang kom mjög á
óvart er hann sigraði Stefan
Edberg ífyrstu umferð Risabik-
arsins í Miinchen. Sextán
bestu tennisleikarar heims
mæta til leiks og berjast um
tvær milljónir dollara. Edberg,
sem er efstur á heimslistanum,
var talinn öruggur a.m.k. í und-
anúrslit en Chang, sem er 17.
á sama lista, afgreiddi hann
strax í fyrstu umferð.
Sigur Changs var nokkuð sann-
færandi. Hann vann fyrstu lot-
una 6:4 en Edberg svaraði í næstu
með 4:6.1 síðustu lotunni náði hann
svo að fylgja góðri byijun eftir og
sigra 7:5.
„Það er frábært að ná svona leik
og sigurinn gefur mér aukið sjálfs-
traust. Hver sigur á móti sem þessu
sýnir að ég get staðið í þeim stóru,“
sagði Chang, sem mætir Henri Lec-
onte í næstu umferð. Leconte sigr-
aði Thomas Muster nokkuð óvænt.
Pete Sampras, sem sigraði óvænt
á bandaríska meistaramótinu, byrj-
aði mjög illa gegn Andrej Cherk-
asov. Sampras, sem hefur verið
meiddur, tapaði fyrstu lotunni 5:7
en vann tvær næstu 6:2 og 7:5.
Önnur úrslit voru nokkuð eðileg:
Goran Ivanisevic sigraði Kevin
Curren og Brad Gilbert vann Jonas
Svensson.
Kr. 3.960
Eigum margar gerðir af tvíhjólum með hjálpar-
dekkjum og ævintýralegum þríhjólum í ymsum
útfærslum fyrir börn á öllum aldri.
Sterk vönduð hjól - öll sérstaklega ódýr.
GAP
G.Á. Pétursson hf
Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80
Michael Chang sigraði Stefan Edberg í fyrstu umferð Risabikarsins.
TENNIS
FOLK
■ TVEIR leikmenn Grimsby
Town voru sendir af velli í leik liðs-
ins gegn Darlington í ensku bikar-
keppninni í knattspyrnu í fyrra-
kvöld. Þeir slógust af mikilli hörku
og forráðamenn liðsins urðu að
ganga á milli. Það broslega við
þetta var að leikmenn Darlington
komu hvergi nærri og fylgdust að-
eins með er dómarinn gaf þeim
rauða spjaldið. Darlington sigraði
í leiknum 3:1.
M JACK Nicklaus, einn frægasti
kylfmgur heims, hefur í Hyggju að
sleppa opna bandaríska og opna
breska meistaramótinu á næsta
ári. Hann er 51 árs og segist ætla
að keppa á meistaramóti öldunga
og fjórum öðrum mótum, þar á
meðal bandaríska meistaramótinu
(Masters). „Áður fyrr var golfið
ailtaf í fyrsta sæti, fjölskyldan í
öðru og vinnan í þriðja sæti. Nú
skiptir fjölskyidan mestu máli en
svo kemur vinnan og loks golfið,"
sagði Nicklaus sem vinnur m.a. við
það að hanna golfvelli.
■ MARADONA var ekki ýkja
kátur um helgina er hann var tek-
inn úr liði Napólí fyrir leik liðsins
gegn Atalanta. Hann mætti ekki á
æfingu í vikunni og Alberto Big-
on, þjálfari Napólí, ákvað að taka
hann úr liðinu. Maradona segir, í
grein sem hann ritar í blaðið Roma
sem kemur út í Napólí, að mú sé
Bigon loks búinn að tapa glórunni
og sér sé ekki lengur vært hjá
Napólí með annan eins ruglukoll
sem þjálfara.
„Borg virðist eins góður
og þegar hann hætti“
sagði Jonas Svensson, sem æfði
með Björn Borg í Mílanó
Björn Borg, sem sigraði fimm
sinnum á Wimbledonmótinu
fræga, hefur æft mjög vel að und-
anförnu. Hann hefur lýst því yfir
að hann ætli sér að mæta til leiks
á næsta ári og sýna og sanna að
hann hefur engu gleymt.
Sænski tenniskappinn Jonas
Svensson æfði með Borg í Mílanó
fyrir þremur vikum og segir að
frammistaða Borgs hafí komið sér
mjög á óvart. „Hann lék mjög vel
og virtist eins góður og þegar hann
hætti fyrir átta árum. Það kom mér
mjög á óvart í hversu góðri æfingu
HANDBOLTI
FH-ingar
eiga metið
FH-ingar hafa sigrað í flestum
leikjum í röð í 1. deildinni í
handknattleik en ekki Víkingar eins
og sagt var í blaðinu í gær. Keppn-
istímabilið 1983-84 sigruðu FH-
ingar í öllum 14 leikjum sínum í
undankeppninni. Við þetta bættust
svo sigrar í fyrstu 11 leikjunum í
úrslitakeppninni en þeim síðasta,
sem var gegn Víkingi, tapaði liðið
og hafði þá fyrir löngu tryggt sér
titilinn. Þá voru í liðinu leikmenn á
borð við Kristján Arason og Atla
Hilmarsson, auk Þorgils Óttars
Mathiesen, sem nú þjálfar FH-inga.
Víkingar hafa sigrað í 19 leikjum
í röð og vantar því enn sex leiki til
að jafna met FH.
hann er,“ sagði Svensson eftir að
hann hafði tapaði fyrir Bandaríkja-
manninum Brad Gilbert í fyrstu
umferð í Risabikarnum í Miinchen
í gær.
Borg, sem er 34 ára, hefur ekki
gefið það út enn hvenær hann ætli
að keppa, en það verður á næsta
ári. „Það er erfítt að segja til um
það, eftir aðeins nokkrar æfingar,
hvort hann nær að sigra í keppni
aftur. Allt sem ég get sagt er að
hann er í góðri æfíngu og það seg-
ir margt. Hann leggur mikið á sig
til að ná settu marki,“ sagði Svens-
son.
Björn Borg hefur engu gleymt.
FOTBOLTI / 16ARA LANDSLIÐIÐ
Ær
Keppir í Israel
um áramótin
Íslenska drengjalandsliðið í
knattspyrnu (u-16) tekur þátt
í alþjóðlegu móti í ísrael um ára-
mótin. Piltalandsliðið hefur verið
með í keppninni undanfarin þijú
ár, en drengjaliðið er að undirbúa
sig fyrir úrslitakeppni Evrópu-
mótsins, sem verður í Sviss í
maí, og því var ákveðið að það
færi til ísrael að þessu sinni.
ísland verður í B-riðli ásamt
Tyrklandi, Póllandi og Portúgal,
en í A-riðli leika ísrael, Svíþjóð,
Kýpur og Rúmenía. Hópurinn fer
héðan 26. desember og daginn
eftir hefst riðlakeppnin. Á gaml-
ársdag verður leikið um sæti, en
úrslitaleikurinn verður 2. janúar.
Þjálfarar liðsins eru Kristinn
Björnsson og Þórður Lárusson og
hafa þeir verið með æfingar und-
anfarnar vikur.