Morgunblaðið - 13.12.1990, Qupperneq 83
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
83
ÍÞR&mR
FOLX
■ HAFSTEINN Bragason,
hornamaðurinn knái úr Stjörnunni,
lék ekki með liði sínu gegn Fram
í gær. Hann meiddist í hné á móti
Selfyssingum á laugardaginn og
fór í aðgerð á Borgarspítalanum
í gær. í ljós kom áð það hafði togn-
að á krossböndum. Hann má ekki
byija að æfa fyrr en í fyrsta lagi
eftir áramót.
■ ANDRI V. Sigurðsson, Fram-
ari, fékk högg í andlitið er hann
stóð í vörn Framara í gær og missti
við það tönn.
■ VALUR vann Stjörnuna,
41:18, í keppni B-liða í Garðabæ
í gærkvöldi.
■ PETER Reid, nýráðinn þjálfari
Manchester City, hefur ráðið Sam
Ellis, þjálfara 3. deildarliðs Bury,
sem aðstoðarmann sinn hjá City.
Mike Walles tekur
FráBob við af Ellis hjá
Hennessy Bury.
ÍEnglandi | RRIGHTON,
sem leikur í 2. deild,
borgaði 150 þúsund pund fyrir
finnska landsliðsmanninn, Ari
Hakanien, í gær. Hakanien lék
áður með finnska liðinu Turku.
■ BRIAN Kilcline, sem hefur
verið fyrirliði Coventry, hefur verið
settur á sölulista hjá félaginu.
Terry Butcher, þjálfari og leik-
maður Coventry, segist ekki hafa
pláss fyrir Kilcline í liðinu þar sem
hann hefur íjóra miðverði í hópnum.
■ JOHN Harkes, bandaríski
landsliðsmaðurinn í liði Sheffield
Wednesday, var hetja liðsins í gær
er liðið bar sigurorð af Derby í 4.
umferð deildarbikarsins. Hann
gerði fyrra mark liðsins í 2:1 sigri
með þrumuskoti af 30 metra færi.
Hann lagði svo upp síðara markið
fyrir Paul Williams en Gary
Micklewhite minnkaði muninn fyr-
ir Derby.
■ BARNET, sem leikur utan
deilda í Englandi, komst í þriðju
umferð ensku bikarkeppninnar í
fimmta sinn er liðið vann Nort-
hampton.
■ ÓSKAR Ármannsson lék að
nýju með FH eftir langt hlé vegna
meiðsla. Hann var lengi í gang en
gerði þó fjögur mikilvæg mörg er
FH sigraði KR.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD
Klaufaskapur
hjá KR-ingum
KR-INGAR voru miklir klaufar gegn FH-ingum í gærkvöldi. Þegar
tíu mínútur voru til leiksloka höfðu þeirtveggja marka forskot,
19:17. Næsta mark lét á sér standa en FH-ingar gerðu þrjú íröð
og komust yfir. Klaufaskapur KR-inga hélt svo áfram síðustu
mínúturnar og FH-ingar tryggðu sér sigur með yfirveguðum sókn-
arleik og skynsamlegri vörn.
Logi
Bergmann
Eiðsson
skrifar
Leikurinn var jafn allan tímann
og skemmtilegur en handbolt-
inn svosem ekki upp á marga fiska.
Sigurður Sveinsson var besti maður
KR, ákveðinn í
sókninni og sterkur
í vörninni. Konráð
átti góða kafla en
var full skotglaður.
Það sama má segja um Pál Olafs-
son sem skaut jafnvel stundum
áður en hann greip boltann. Leifur
Dagfinnsson meiddist snemma í
leiknum og var það ekki til að
bæta stöðuna en hann varði vel á
fyrstu mínútunum.
Bergsveinn var bestur í liði FH
og varði mjög vel, einkum í lokin.
Guðjón átti einnig góðan sprett á
síðustu mínútunum en lengst af var
sóknarleikur liðsins ákaflega
þreytulegur. FH-ingar sýndu þó
hvað í þeim býr er þeir unnu upp
forskot KR-inga en að öðru leyti
var ekki mikill meistarabragur á
þeim.
Sveif lukennt í Garðabæ
Framarar voru mjög frískir í
byijun leiks og skoruðu þrjú
fyrstu mörkin. Síðan fór allt í bak-
lás hjá liðinu næstu 15 mínúturnar
þar sem ekkert
Frosti gekk. Stjarnan
Eiðsson skoraði sjö mörk í
I n ar röð á sama tíma án
svars frá Fram.
Staðan í hálfleik var 11:8. í síðari
bálfleik jók Stjarnan muninn, en
Pram minnkaði bilið á síðustu tíu
úiínútunum, léku þá með „indjána"
> vörninni og gafst það vel en kom
full seint. Stjarnan sigraði, 23:20.
Garðbæingar voru langt frá því
að vera sannfærandi, varnleikurinn
var þó sterkasta hlið þeirra mestan
hluta leiksins. Axel Björnsson og
Sigurður Bjarnason voru bestir og
Magnús átti ágæta spretti. Brynjar
varði þokkalega í markinu. Framlið-
ið var mjög sveiflukennt í þessum
leik. Varnarleikurinn var slakur allt
þar til í lokin. Það eru nokkrir ung-
ir og efnilegir leikmenn í liðinu, en
þeir eiga langt í land enn. Þeir
gerðu sig seka um byijendamistök
alltof oft. Gunnar Andrésson og
Karl Karlsson áttu ágætan leik og
eins markverðirnir, Guðmundur og
Þór.
Herbragð Viggós heppnaðist
Háukar unnu Gróttu, 30:25, í
gærkvöldi. Sigurinn var ör-
uggur og hefði í raun átt að vera
stærri, því heimamenn náðu 10
marka mun í seinni
Hörður hálfleik, en kæru-
Magnússon leysi leikmanna
skrifar undir lokin kom í
veg fyrir stærri sig-
ur. Haukar byijuðu illa og Grótta
komst í 6:3. Þá brugðu heimamenn
á það ráð að taka Halldór Ingólfs-
son og Stefán Arnarson, aðalmenn
Gróttu, úr umferð. Þetta herbragð
Viggós Sigurðssonar, þjálfara,
tókst fullkomlega og næstu sjö
mörk komu frá Haukum.
Petr Baumruk var sem fyrr í
sérflokki og spilaði leikmenn Hauka
óspart uppi. Óskar Sigurðsson,
hornamaður, naut þess sérstaklega
og hreinlega blómstraði í vinstra
horninu. Gróttuliðið var úrræðalítið
og oft hreint pínlegt að horfa upp
á sóknir þess. Leikaðferð Hauka
að taka tvo úr umferð kom því
greinilega í opnma skjöldu.
Valdimar og Jakob
hetjur Valsmanna
Hornamenn Vals og landsliðs-
ins, Valdimai- Grímsson og
Jakob Sigurðsson, sáu um að af-
greiða KA-menn á Akureyri í gær-
kvöldi. Þeir skoruðu
samtals 19 mörk af
28 mörkum Vals í
jöfnum og spenn-
andi leik. Lokastað-
an var 25:28 Valsmönnum í hag.
Valsmenn tóku forystu strax í
upphafi og voru með frumkvæðið
allan leikinn þó svo að KA næði
að jafna nokkrum sinnum með mik-
illi baráttu. Það var þó ekki fyrr en
á síðustu mínútu að Valsmenn
gerðu út um leikinn með tveimur
mörkum.
Anton
Benjamínsson
skrifar
Það sem háir KA-mönnum er h'til
breidd og þurftu þeir að keyra á
sömu leikmönnum allan tímann og
er það erfitt í jöfnum leik sem þess-
um. Vonin um að komast í úrslita-
keppni, þeirra sex efstu, minnkaði
mikið við þetta tap og greinilegt
að liðið má ekki við því að tapa
heimaleikjum. Guðmundur Guð-
mundsson var besti leikmaður KA.
Hann átti stórleik og skoraði 8
mörk af línunni, en það dugði þó
ekki til.
Valdimar og Jakob voru allt í
öllu hjá Val. Valsmenn eru í öðru
Morgunblaðið/Júlíus
Stefán Kristjánsson FH-ingur
gnæfír hér yfir tvo varnarmenn KR
og hleypir af. Hann skoraði 5 mörk í
leiknum, sem FH vann, 24:22.
sæti sem áður og virðast halda því
sæti nokkuð örugglega því langt er
í næstu lið.
Úrslit og staðan / Bls. 81
Úrslitakeppnin:
Víkingar með 1161111»
leiki í Hafnarfirði?
Það getur farið svo að Víking-
ar óski eftir því við FH-inga
að þeir fái að leika heimaleiki sína
i úrslitakeppni 1. deildarkeppninn-
ar í íþróttahúsinu i Kaplakrika.
Sex fyrstu umferðimar í úrslita-
keppninni geta farið frám i Laug-
ardalshöllinni, en síðan hefst sjáv-
arútvegssýning í Höllinni.
Það verður til þess að liðin sem
leika heimaleiki sína í Laugardals-
höllinni verða að færa leiki sína
í Seljaskóla. Félögin eru Víking-
ur, KR og Fram.
„Það kemur ekki til að við leik-
um heimaleiki okkar í Seljaskóla.
Við vonum að nýja íþróttahúsið í
Breiðholti verði tilbúið þegar
Laugardalshöllin vei-ður lokuð.
Við munurn þá leika heimaleiki
okkar þar. Ef ekki þá munum við
ræða við FH-inga til að kanna
hvort við fáum inni í Kaplakrika,“
sagði Kristján Sigmundsson,
formaður handknattleiksdeildar
Víkings.