Morgunblaðið - 13.12.1990, Side 84
FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1990
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
Stórager ðismálið:
18 og 20 ára fang-
elsi fyrir morð
að yfirlögðu ráði
SAKADÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Guðmund Helga Svav-
arsson, 28 ára, til 20 ára fangelsisvistar, og Snorra Snorrason, 34
ára, til 18 ára fangelsisvistar, fyrir að hafa orðið Þorsteini Guðna-
syni, bensínafgreiðslumanni á bensínstöð Esso við Stóragerði, að
bana 25. apríl síðastliðinn; rænt rúmum 540 þúsund krónum i pening-
um og tékkum úr peningaskáp bensínstöðvarinnar og horfið á brott
í bíl Þorsteins heitins. Guðmundur Helgi var einnig sakfelldur fyrir
að hafa keypt erlendis og fiutt til landsins allt að 1.000 skammta
af LSD.
í niðurstöðum sakadómaranna
Péturs Guðgeirssonar, Helga I.
65% andvíg
innflutningi
búvara
TÆPLEGA 65% þjóðarinnar eru
andvíg innflutningi á sambærileg-
um búvörum og framleiddar eru
bér á landi, um 31% eru því fylgj-
andi og um 5% eru hlutlaus eða
óviss, samkvæmt niðurstöðum
þjóðmálakönnunar sem Félagsv-
ísindastofnun vann fyrir markaðs-
nefnd landbúnaðarins.
Samkvæmt könnuninni eru um
45% íslendinga neikvæð gagnvart
stefnu stjórnvalda í landbúnaðarmál-
um, en 23% eru jákvæð og 33% hlut-
laus eða óviss í afstöðu sinni.
Sjá frétt á bls. 49.
Jónssonar og Hjartar 0. Aðalsteins-
sonar segír að telja verði sannað
að það hafi vakað fyrir mönnunum
báðum, þegar þeir lögðu af stað í
ránsförina, að ráða Þorsteini bana.
Dómurinn telur að báðir mannanna
eigi jafna og fulla sök á dauða hans.
Við ákvörðun refsingar er litið til
þess að árásin á Þorstein var hrotta-
fengin og undirbúin.
Frá refsingu mannanna dregst
gæsluvarðhald sem þeir hafa sætt
í um það bil 7 mánuði. Dómurinn
sætir sjálfkrafa áfrýjun til Hæsta-
réttar þar sem dæmd er þyngri en
fimm ára fangelsisvist. Þetta mun
vera þyngsti dómur í sakamáli hér-
lendis frá því að tveir sakborninga
í Geirfinnsmáli voru dæmdir í
lífstíðarfangelsi í sakadómi árið
1979 en sá dómur var mildaður í
Hæstarétti árið 1980 í 16 og 17
ára fangelsi.
!V:,. .
Morgunblaðið/Sverrir
Endurfundir á heimili foreldra Gisla í gærkvöldi. F.v.: Þorbjörg Gísladóttir, Gísli Sigurðsson, Birna
Hjaltadóttir, Halldór Gíslason, Hjalti Gíslason og foreldrar Gísla, Sigurður Helgason og Þorbjörg
Hjaltadóttir.
Loksins heima
GÍSLI Sigurðsson Iæknir kom til landsins í gær frá London ásamt
Birnu Hjaltadóttur, eiginkonu sinni, sem fór til rnóts við mann
sinn þegar honum var veitt heimild til að yfirgefa Irak. Fagnaðar-
fundir urðu í fiugstöðinni þegar börn Gísla, foreldrar og fjöldi
ættingja fögnuðu honum við heimkomuna eftir Iangan aðskilnað.
„Nú ætla ég að slappa af í
nokkra daga áður en ég fer að
hugsa nokkuð um framtíðina. Eg
fer alla vega ekki aftur til Mið-
austurlanda," sagði Gísli við
fréttamenn. Eftir endurfundina í
flugstöðinni hélt ijölskyldan á
heimili foreldra Gísla í Reykjavík
þar sem hún var saman komin í
gærkvöldi.
Þorbjörg Gísladóttir, móðir
Gísla, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að hún hefði lifað í mikilli
óvissu í þá fjóra mánuði sem Gísli
var innlyksa í Kúvæt og írak. „Ég
var alltaf óttaslegin og barst á
milli vonar og ótta. Það er yndis-
l_eg tilfinning að fá Gísla heim.
Ég þorði varla að gleðjast fyrr
en nú,“ sagði hún.
Börn Gísla, Hjalti, Þorbjörg og
Halldór, voru að vonum himinlif-
andi. „Það er æðislega gott að fá
pabba heim. Ég hef ekki séð hann
í fimm mánuði," sagði Þorbjörg.
Sjá „Fagnaðarfundir“ í
miðopnu.
DAGAR
TIL JÓLA
Bráðabirgðalögin á samninga BHMR:
Fjórir þingmenn Sjálfstæðis-
flokks sátu hjá í neðri deild
Ekki áfall fyrir forustn flokksins segir Þorsteinn Pálsson
FJÓRIR þingmenn Sjálfstæðis-
fiokksins sátu hjá þegar fyrstíi
grein staðfestingarfrumvarps
bráðabirgðalaga vegna kjara-
samninga BHMR og ríkisins var
borin undir atkvæði í neðri deild
Alþingis í gær. Þrír þessara þing-
manna sátu þingflokksfund Sjálf-
stæðisfiokksins fyrir tveimur vik-
um þar sem samþykkt var að
fiokkurinn greiddi atkvæði gegn
frumvarpinu. Þrír þingmenn
Sjálfstæðisfiokksins og tveir
stjórnarþingmenn voru fjarver-
andi við atkvæðagreiðsluna í gær.
Aðrir þingmenn Sjálfstæðis-
Sala á 95 oktana bensíni í stað 92 oktana:
Hækkar framfærslu-
vísitölu og þar með laim
FARI svo að 95 oktana bensín verði selt hér í stað 92 oktana, sem nú
er, hækkar bensínverð um 6 til 7 krónur lítrinn, að sögn Björns Frið-
finnssonar ráðuneytisstjóra í viðskiptaráðuneytinu. Þessu veldur hærra
heimsmarkaðsverð á 95 oktana bensíni. Þar seni 92 oktana bensínið
er inni í framfærsluvísitölunni munu slík skipti leiða til vísitöluhækkun-
ar og gætu þar með hækkað laun í landinu.
Björn sagði ekki vera einfalt mál
að skipta um bensíntegund, þar sem
95 oktana bensín kosti sama og 98
oktana súperbensín í útsölu. Hanri
sagði að einungis hluti þeirra sem
nú nota 92 oktana þurfi 95 oktana
bensín. „Ef þetta er gert strax þá
er verið að hækka kostnaðinn um
6-7 krónur lítrann fyrir alla hina sem
þurfa ekki slíkt bensín. Ekki þannig
að það sé ráðuneytisins að hafa vit
fyrir mönnum, en það er þjóðarsátt
sj' gangi og ástæðulaust að hækka
kostnaðinn," sagði hann. Björn benti
á að hægt væri að fara hægar í sak-
irnar og bjóða 95 oktana bensín sem
valkost að minnsta kosti næsta ár.
Fram hefur komið að miðað við
óbreytta viðskiptasamninga íslend-
inga og Sovétmanna geta olíufélögin
ekki boðið 95 oktana bensín í stað
92 oktana, þar sem þau væru skuld-
bundin að kaupa ákveðið magn af
Sovétmönnum. Fari svo að samning-
ar um bensínkaup verði ekki gerðir
við Sovétmenn nú, segir Björn að
olíufélögin séu ekki bundin að þessu
leyti lengur.
Sjá Af innlcndum vettvangi í
miðopnu: „Sovétmenn ...“
flokksins greiddu atkvæði gegn
frumvarpinu, sem og allir þing-
menn Kvennalista og einn stjórn-
arþingmaður. Frumvarpið var
samþykkt með 19 atkvæðum gegn
12 en 6 sátu hjá.
Þeir sjálfstæðisþingmenn sem sátu
hjá voru Eggert Haukdal, Friðjón
Þórðarson, Matthías Bjarnason og
Ingi Björn Albertsson. Fjarverandi
voru Birgir Isleifur Gunnarsson,
Matthías A. Mathiesen og Ragnhild-
ur Helgadóttir, en þau voru ekki á
landinu. Þeir Eggert, Matthías og
Ingi Björn gerðu allir grein fyrir at-
kvæði sínu og gagnrýndu harðlega
ríkisstjórnina, kjarasamningana við
BHMR og setningu bráðabirgðalag-
anna en sögðust samt ekki telja ráð-
legt að greiða atkvæði gegn bráða-
birgðalögunum úr því sem komið
væri.
Eftir þingflokksfund Sjálfstæðis-
flokksins, 28. nóvember sl., lýstu
Þorsteinn Pálsson formaður flokks-
ins og Ólafur G. Einarsson formaður
þingflokksins því yfir, að samþykkt
hefði verið einróma að greiða at-
kvæði gegn bráðabirgðalögunum.
Fimm þingmenn voru íjarverandi á
fundinum, og var Ingi Björn Alberts-
son þeirra á meðal.
Þegar Þorsteinn Pálsson var
spurður hvort það væri ekki áfall
fyrir forustu Sjálfstæðisflokksins, að
þrátt fyrir yfirlýsingar hennar hefðu
fjórir þingmenn flokksins setið hjá,
svaraði hann að aðeins hefði verið
skýrt frá því hvað samþykkt var á
þingflokksfundi og þessi niðurstaða
breytti engu um það. „Þetta er ekki
áfall fyrir okkur. Ef einhveijir skipta
um skoðun er það í mesta lagi áfall
fyrir þá,“ sagði Þorsteinn.
Þegar Þorsteinn var spurður hvort.
túlka mætti þetta sem klofning í
þingflokknum, sagði hann það hafa
komið mjög glöggt fram, að efnisleg
andstaða þingflokksins væri mjög
hörð, og þar væri ekki minnsti mun-
ur á afstöðu manna. „Nokkrir þing-
menn kusu að sýna þessa andstöðu
með því að láta ríkisstjórnina sitja
eina uppi með ábyrgðina við hjásetu.
Kjarni málsins er sá að okkar mál-
flutningur er að komast í gegn og
það stendur uppúr hinni almennu
umræðu að þetta eru tvö aðskilin
mál og það er ekki farsælt til lang-
frama að ætla að byggja efnahagsað-
gerðir á vinnubrögðum sem stríða
gegn lögum, rétti og almennum siða-
reglum."
Geir Gunnarsson þingmaður Al-
þýðubandalagsins greiddi atkvæði
gegn frumvarpinu, en Hjörleifur
Guttormsson þingmaður sama flokks
sat hjá. Stefán Valgeirsson, þing-
maður Samtaka um jafnrétti og fé-
lagshyggju, sat einnig hjá við at-
kvæðagreiðsluna og sagðist ekki
geta borið ábyrgð á kosningum í
vetur þótt hann teldi bráðabirgðalög-
in bijóta í bága við stjórnarskrána.
Sjá umræður á Alþingi bls. 46.
/