Morgunblaðið - 04.06.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJURDAGUR 4. JÚNÍ 1991
23
Ljósmynd/Guðrún Þórðardóttir
Kápa landsins víða naumt skorin ... Upp úr standa holdgrönn fjöll
og flakandi moldir.
Fegrum og bætum
landið með UFMÍ
um. Reist hafa verið hús, byggðar
brýr, lagðir göngustígar til að
hrúðra yfir sárin sem of mikill
átroðningur manna hefur valdið.
Unhverfið er orðið manngert. Tor-
færubílum fjölgar. Óbyggðakyrrð
spillt með hávaðamengun.
Sumarið góða fyrir rúmum ald:
aríjórðungi. Gróska og vöxtur. í
ánni hraður og ógnandi, í gróðrin-
um hægur og þróttmikill í öllum
litum og litbrigðum. Ljósgræn var
mörkin þegar orðin um hvítasunnu.
Hef ég nokkru sinni séð blárri
umfeðming en í hlaðvarpanum
okkar sumarið það? Eða önnur eins
kynstur af hrútabeijum? Snemma
í ágúst voru þau orðin þroskuð
víða um Mörkina. Rauð svo rauð.
Og jöklar á þrjá vegu.
Og ávallt var lækurinn okkar í
Langadal samur. Tær var hann,
djúpur og kaldur. Hann gaf okkur
vatn til drykkja og til þvotta og í
honum geymdum við matinn okk-
ar. Einu sinni í viku fengum við
mjólk í brúsa frá Stóru-Mörk og
geymdum hana í læknum. Aldrei
súrnaði hún í sumarhitanum. Ég
man að eitt sinn á laugardegi var
ég að gefa krökkum síðustu sopana
af vikugamalli mjólk þegar rúturn-
ar voru að koma í augsýn suður á
Stakkholtinu. Svalandi lækur. í
honum lauguðum við fætur okkar
eftir heitan og strangan göngudag.
Blátær lækur sem aldrei bregst,
streymir sleitulaust og án enda.
Flæðir fram á gráan aurinn, hverf-
ur í kolmórautt fljótið til að deyja
í hafið. Til að rísa aftur upp til
jöklanna.
Við lækinn
Þögull og hlutlaus ég horfi
á börnin mín fleyta blómum á læknum
grunlaus með öllu um þann geig
sem runninn er þeim í rætur
og hríslast að lokum um hveija taug
uns þeim er kastað á strauminn
Höfundur hefur starfað sem
skálavörður í Þórsmörk.
eftir Kristínu
Einarsdóttur
í könnun sem gerð var nýlega á
vegurn Félagsvísindastofnunar Há-
skóla íslands kom fram að flestir
þeirra sem tóku þátt í könnuninni
töldu að mesta áherslu ætti að
leggja á umhverfisvernd þegar
spurt var um æskileg verkefni ríkis-
stjórnarinnar. Þessi niðurstaða kom
mér í raun ekkert á óvart því að
undanfarið hef ég orðið vör við
aukinn áhuga fólks á umhverfi sínu
og verndun þess. Á þetta sérstak-
lega við um ungt fólk og þá sem
komnir eru á efri ár. Fólk er smám
saman að gera sér grein fyrir að
eyðing og spilling náttúrunnar
stefnir öllu lífi á jörðinni í hættu.
Flestar þjóðir eiga við vandamál
að stríða á sviði umhverfismála.
Islendingar eru þar engin undan-
tekning. Landeyðing hefur verið og
er enn gífurlegt vandamál hér á
landi og mengun er orðin vandamál
víða um land, ekki síst hér á höfuð-
borgarsvæðinu. Sem betur fer eru
fleiri og fleiri að gera sér grein
fyrir að snúa verður við blaðinu og
gera stórátak í umhverfismálum.
Til þess.að það sé hægt verða flest-
ir að leggja saman.
Ungmennafélögin mikilvæg
Ungmennafélögin í landinu hafa
haft mikilvægu félagslegu og
menningarlegu hlutverki að gegna.
Þótt mest hafi borið á starfi þeirra
að íþróttamálum hin síðari ár hafa
þau einnig látið sig varða önnur
mikilvæg mál, nú upp á síðkastið
m.a. Umhverfismál.
Sumarið 1989 gekkst UMFÍ fyr-
ir hreinsunarátaki meðfram vegum
landsins. Notkun einnota umbúða
hefur stóraukist á undanförnum
árum. Einn neikvæðasti fylgifiskur
þess er að fólk fleygir umbúðunum
sem rusli út í náttúruna án þess
að hugsa um náttúruspjöll og þá
fyrirhöfn og þann kostnað sem
hreinsun hefur í för með sér. Þetta
átak UMFÍ hafði mikil og góð áhrif.
Fósturbörn
Nú hefur UMFÍ ákveðið að ráð-
ast í nýtt umhverfisverkefni sem
er víðtækara hinu fyrra. Verkefnið
kallast fósturbörn. Gert er ráð fyrir
að öll ungmennafélögin í landinu,
245 að tölu, taki að sér ákveðið
verkefni. Það getur falist í að
hreinsa fjöru reglulega, tína rusl
meðfram vegarkafla, græða upp
land, gi’óðursetja í ákveðin land-
svæði, hefta fok eða annað það sem
brýnt er á hverjum stað og kemur
landinu til góða. Verkefnið hefst
helgina 8.-9. júní. Ég vona að sú
vinna verði til þess að bæta um-
gengni fólks við landið.
Lofsvert framtak
Til að forða manninum frá því
að þurrausa auðlindir jarðar og
eyðileggja það umhverfi sem hann
lifir í er brýnt að auka þekkingu
og skilning á náttúrunni. Þátttaka
í umhverfisverkefni UMFÍ er ekki
aðeins til hagsbóta fyrir landið í
skamman tíma heldur eykur hún
skilning og þekkingu á náttúrunni
og verður fólki til ánægju. Fræðsla
um umhverfismál er mikilvægur lið-
ur í að opna augu fólks fyrir þeim
verðmætum sem náttúran hefur að
geyma. Þetta framtak UMFÍ ætti
líka að geta orðið öðrum til eftir-
breytni.
Það er okkar skylda að ganga
um lanclið af virðingu og nær-
gætni. Á hátíðarstundum er gjarn-
an sagt að við viljum að komandi
kynslóðir erfi landið í betra ástandi
en við tókum við því. Nú gefst öllum
tækifæri til að sýna í verki að þeir
séu tilbúnir að leggja sitt lóð á vog-
arskálarnar.
Látum ekki staðar numið
Mikilvægt er að uppgræðsla og
fegrun landsins verði stöðugt á
Kristín Einarsdóttir
„Þátttaka í umhverfis-
verkefni UMFÍ er ekki
aðeins til hagsbóta fýr-
ir landið í skamman
tíma heldur eykur hún
skilning og þekkingu á
náttúrunni og verður
fólki til ánægju.“
dagskrá en ekki bara átök öðru
hvoru. UMFÍ gerir ráð fyrir að
umhverfisverkefnið standi í þijú ár.
Að þeim tíma loknum er ég þess
fullviss að þeir sem eru þátttakend-
ur verða tilbúnir að halda áfram á
sömu braut.
Tökum þátt í því með UMFÍ að
bæta og fegra landið. Látum ekki
staðar numið, en höldum áfram að
leggja umhverfismálum lið í öllu
okkar daglega lífi. Við höfum ekki
fengið jörðina án skuldbindinga frá
forfeðrum okkar heldur aðeins sem
dvalarstað til að bæta hana fyrir
börn okkar og allt sem lifir.
Höfundur er þingmaður
Kvennalistans í Reykjavík.
Nú stígum við stórt skref í þá átt að bæta þjónustu við
Tilboðsverð í tilefni af opnuninni:
viðskiptavini okkar og opnum verslanir
KODAK S-IOO Á HUNDRAÐ KRÓNUR!
í HÓLAGARÐI í BREIÐHOLTI Tíunda hverjum viðskiptavini í nýju verslununum býðst á
og að LAUGAVEGI 178. næstu dögum að kaupa KODAK S-100 myndavélar á 100 krónur.
Þar færðu filmurnar framkallaðar, allar
nauðsynlegar Ijósmyndavörur og
góð ráð hjá reyndu starfsfólki.
Aðrir heppnir viðskiptavinir fá
sundbolta eða dúnmjúkt litakríli í kaupbæti.
Verslanir Hans Petersen eru nú orðnar sjö talsins.
HANS PETÉRSEN HF