Morgunblaðið - 04.06.1991, Side 37
MORGUNBIAÐlÐ-VIÐánPnÆÉébróllr WUDJUDAgUR 4. JÚNÍ 1991
‘aí‘
37
VELTUAUKIMIIMG — Veltuaukning Daimler Benz var 6%
fyrstu fjóra mánuði ársins. Þrátt fyrir það er verið að grípa til spam-
aðaraðgerða hjá fyrirtækinu.
Bílaiðnaður
Daimler Benz grípur til
sparnaðarráðstafana
Leita út fyrir landsteinana eftir smíðaefni
Daimler Benz, steersta fyrirtæki Þýzkalands, hyggst leita í auknum
mæli út fyrir landsteinana eftir smíðaefni í Mercedes-bíla sína til að
draga úr áhrifum sí hækkandi launakostnaðar og samdrætti tekna.
Harðnandi samkeppni á alþjóða-
markaði fyrir bíla í hágæðaflokki,
sveiflur á gengi dollars, og nú síðast
7% launahækkun hjá starfsmönnum
verkfræðideilda Daimler Benz sam-
steypunnar valda því að stjörnendur
neyðast til að grípa til þessara sparn-
aðarráðstafana.
Það var Edzard Reyter stjómar-
formaður fyrirtaékisins sem tilkynnti
þessa ákvörðun um leið og hann
skýrði frá áætlunum um sparnaðar-
aðgerðir, sem eiga í áföngum að
lækka árlegan kostnað samsteyp-
unnar um 4 milljarða marka (rúm-
lega 140 milljarða króna) á næstu
ijórum árum. Sagði formaðurinn að
erfitt hafi reynzt að samrýma rekst-
ur bíla-, flugvéla- og rafeindadeilda
samsteypunnar, og þyrfti að ráða á
því bót.
Tveir þriðju heildarsölunnar og
rúmlega þrír fjórðu hagnaðar Daiml-
er Benz koma frá Mercedes bíla-
smiðjunum, og eru Mercedes bílar
taldir tákn hágæða og verkkunnáttu.
En Reuter stjómarformaður sagði
á blaðamannafundi um rekstrar-
reikninga samsteypunnar fyrir árið
1990 að nú mætti finna sömu gæða-
kosti í bílum smíðuðum í öðrum lönd-
um þar sem smíðakostnaðurinn er
lægri á hverja einingu.
Aðeins 11% af öllum bifreiðahlut-
um sem fara í smíði Mercedes bíla
koma erlendis frá, en þetta hlutfall
á eftir að hækka verulega þar sem
hagstæðara er að kaupa fleiri hluti
erlendis á lægra verði en í Þýzka-
landi.
Fækkun starfsfólks
A síðasta starfsári, sem lauk 31.
marz, fjölgaði starfsfólki hjá Daimler
Benz um 10.000, og er nú í athugun
að fækka á ný í sparnaðarskyni.
Nefndi Reuter sérstaklega í því sam-
bandi að verið væri að kanna mögu-
leika á að loka skrifstofuvéladeild
AEG, eða taka upp samvinnu við
einhvern keppinautanna á markaðn-
um. AEG smíðar Olympia skrifstofu-
vélar, og hefur sú deild verið rekin
með tapi að undanförnu.
Þótt verið sé að grfpa til sparn-
aðaraðgerða varð 6% aukning á veltu
Daimler Benz fyrstu fjóra mánuði
þessa árs, og nam hún nú nærri 27
milljörðum marka (um 954 milljörð-
um króna). Þá er reiknað með að
ársveltan aukist um 10%, úr 85,5
milljörðum marka árið 1990 í um
94 milljarða í ár.
Heimild: Tlie Guardian.
Fjármál
Nígerískum gylli-
boðum rignir yfir
norræn fyrirtæki
ISLENSK fyrirtæki eru ekki þau einu sem undanfarið hafa feng-
ið gylliboð frá nigerískum aðilum sem lofa gulli og grænum skóg-
um fyrir afnot af bankareikningum viðkomandi fyrirtækja. Fyrir
stuttu var greint frá því hér í viðskiptablaðinu að Rafagnatækni
sf. hefði borist slíkt tilboð þar sem í boði var þóknum upp á 250
milljónir íslenskra króna fyrir afnot á bankareikningi til að geyma
á rúman milljarð íslenskra króna í nokkurn tíma. I danska blað-
inu Börsen var nýlega greint frá því að fyrirtæki á Norðurlöndum
hefðu fengið slík tilboð í hrönnum frá Nígeríu.
í Börsen er vitnað í starfsmann að vera auð að öðru leyti, og stimpl-
danska útflutningsráðsins sem seg-
ir að bréf, lík því sem Rafagna-
tækni fékk, hafi flætt yfir Norður-
lönd undanfarna mánuði. Bréfin
koma öll frá Nígeríu og eru lík að
upplagi. Munurinn felst í upphæð-
inni sem farið er fram á að fá að
millifæra, ástæðum sem gefnar eru
fyrir millifærslunni og þóknuninni.
Hún skiptir þó alltaf hundruðum
milljóna íslenskra króna, enda er
hún yfirleitt 25-35% af heildarupp-
hæðinni.
Auk þess sem beðið er um núm-
'er á bankareikningi fyrirtækja, er
farið fram á undirskrifuð eintök
af vörureikningsskjölum sem þurfa
uð skjöl með fangamarki viðkom-
andi fyrirtækis — einnig auð að
öðru leyti. Bréfin eru vel uppsett
og ástæðurnar sem gefnar eru fyr-
ir beiðninni trúverðugar.
Skv. því sem í Börsen er haft
eftir lögreglunni í Svíþjóð, hafa
nokkur þarlend fyrirtæki slegið til
í þeirri barnalegu trú að þarna
væri um auðfenginn gróða að ræða.
Því væri full ástæða til að vara
menn við. Sum fyrirtæki hefðu
jafnvel greitt 10% í skatt til níger-
ískra yfirvalda af þeirri upphæð
sem þau áttu seinna að fá í þókn-
un. Varla þarf að taka fram að sú
þóknun hefur látið standa á sér.
^x4jl~*SUMARTILBOÐ
Yið bjóðum þig velkominn í nýja verslun okkar
í Borgartúni 26, Reykjavík
og verslun Rafha í Hafnarfirði.
’ ZANUSSI uppþvottavélar eru til í tveimur gerðum ZW 106 m/ 4 valk. og ID-5020 til innb. m/7 valkerfum. Báðarf. borðb. fyrir 12. Hljóðlátar-einfalaar í notk- un. rí
Verð frá kr. 60.640,- a /
— Tilboðkr. 56.728,- —-—j /
Gufugleyparfrá ZANUSSI,
CASTOR, FUTURUM og KUP-
PHRSBUSCH eru fyrir útblástur
eða gegnum kolsiu.
Verð frá kr. 9.594,-
Tilboð kr. 8.786,-
RAFHA, BEHA og KUPPERS-
BUSCH eldavélareru með
blæstri eða án blásturs. Með
glerborði og blæstri. 4 hellurog
góður ofn. 2ja ára ábyrgð é RAF-
HA vélinni - frí uppsetning.
Verð frá kr. 44.983,-
Tilboð Rafhavél
kr. 45.109,-
Um er að raeða mjög margar
gerðir af helluborðum: Glerhellu-
borð m/halogen, helluborð 2
gas/2 rafm. eða 4 rafm. hellur
með eða án rofa.
Verð frá kr. 21.655,-
ZANUSSI og KUPPERBUSCH
steikar/bökunarofnar í fjölbreyttu
úrvali og litum. Með eða án
blæstri - m/grillmótor m/kjöthita-
mæli - m/kataliskum hreinsibún-
aði og fl.
Verð frá kr. 34.038,-
ZANUSSI örbylgjuofnar í stærð-
um 18 og 23 Itr. Ljós íofni, bylgju-
dreifir, gefur frá sér hljóðmerki.
23 Itr. verð kr. 28.122,-
Tilboð kr. 26.308
f
13==
1Í0&
Bjóðum upp á 5 gerðir þvotta-
véla. 700-800-1000-1100
sn./mín. Með/án valrofa á hita-
sparnaðarrofa. Hraðvél, sem
sparar orku, sápu og tima.
Þvottavél með þurrkara og raka-
þéttingu. 3ja ára ábyrgð - upp-
setning.
Verð frá kr. 54.512,-
Tilboð kr. 49.922,-
Þurrkarar 3 gerðir hefðbundnir,
með rakaskynjaráeða með raka-
þéttingu (barki óþarfur). Hentar
ofan á þvottavélina.
Verð frá kr. 30.786,-
Tilboð kr. 28.194,-
7 gerðir kæliskápa: 85, 106, 124,
185 sm hæð. Með eða án frysti-
hólfi. Sjálfv. afhríming. Hægtað
snúa hurðum. Eyðslugrannir -
hljóðlátir.
Verðfrá kr. 29.727,-
Bjóðum upp á 9 gerðir kæli/frysti-
skápa. Mjög margir stærðar-
möguleikar: Hæð 122, 142, 175
og 185sm. Frystir alltaf 4stjörnu.
Sjónersögu rikari. Fjarlægjum
gamla skápinn.
Verð frá kr. 42.229,-
Tilboð kr. 44.063,-
Tilboð kr. 49.420,-
Frystiskápar: 50, 125, 200 og
250 Itr. Lokaðir með plastlokum
- eyðslugrannir - 4 stjörnur.
Verð frá kr. 30.903,-
ZANUSSI frystikistur 270 og 396
Itr. Dönskgæðavara. Mikilfrysti-
geta. Ljós í loki. Læsing.
4 stjörnur.
Verðkr. 41.060,-
Verð kr. 49.276,-
Verð er miðað við staðgreiðslu.
Tilboðið stendur út mánuðinn.
Okkarfrábæru greiðslukjör!
Útborgun aðeins 25% og eftirstöðvar á allt að 12 mánuðum.
Opið sem hér segir: Virka daga til kl. 18.00.
VERSLUNIN RAFHA, HAFNARFIRÐI. SÍMI 50022 - LÆKJARGÖTU 22
VERSLUN RAFHA, REYKJAVÍK, SÍMI 620100 - BORGARTÚNI 26
LOTi0ttH ib
Metsölublað á hverjum degi!
wi “ »fBoasif ®g tai'?
Ibúóar- oq sumarhús bygoð al trau.tum aðUum. s G Einm^hus hfi
Leitaðu upplysmga og faðu sendan bækhng. Selfossi, sím?98-22277