Morgunblaðið - 01.10.1991, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1991
Morgunblaðið/Sverrir
Töfraflautan frumsýnd
Óperan Töfraflautan eftir Wolfgang Amadeus Mozart var frumsýnd í íslensku óperunni í gærkvöldi. Sýn-
ingunni var mjög vel tekið. Næturdrottngin (Yelda Kodalli) og Papaginó (Bergþór Pálsson) voru stjörnur
kvöldsins, að sögn Ragnars Bjömssonar tónlistargagnrýnanda Morgunblaðsins. Myndin var tekin baksviðs
fýrir sýningu þegar verið var að farða fyrstu, aðra og þriðju dömu, þær Signýju Sæmundsdóttur, Alinu
Dubik og Elínu Osk Óskardóttur. Christopher Renshaw leikstjóri fylgist með.
Orð ráðherra jafngilda
því að ekki verði samið
- segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, segir yfirlýsingu fjármálaráðherra í Morgunblaðinu á sunnudag
um að almennar launahækkanir komi ekki til á nsesta ári jafngilda því
að engir samningar verði gerðir. „Yfirlýsing um að það eigi ekki að
semja um neitt jafngildir því að menn sjá enga ástæðu til að setjast
að samningaborði. Til hvers er að ganga til samninga um ekki neitt?“
sagði Ögmundur.
þjóðarsáttarsamningunum svoköll-
uðu, að nú yrði fyrir alvöru reynt
að taka til hendinni með það fyrir
augum að auka kaupmátt kauptaxt-
ans. Ef menn ætla að hlaupa frá
verkinu með þessum hætti þá lofar
það ekki góðu. Fólk mun aldrei sætta
sig við þettá og ætlar að fá bót á
sínum kjörum. Ég held ennþá í þá
von að þetta sé eitthvert sambands-
leysi sem hægt sé að leiðrétta við
samningaborð. Ef svo er ekki þá er
verið að knýja fólk til að hyggja að
öðrum ráðum til ná fram bættum
kjörum,“ sagði Ögmundur ennfrem-
Hann sagði að það væri hollast
að menn færu að taka á þessum
málum af einhveiju raunsæi. Það
yrði ekki gengið til samninga nema
til að laga kaupmáttinn og það yrði
ekki gert nema með því að hækka
kaupið umfram verðiagsþróun.
„Fjármálaráðherra talar um að þjóð-
in eigi að deila með sér byrðunum
og ég tek undir það. Hins vegar eru
það ekki réttlátt skipti ef menn ætla
að deila byrðunum þannig að rýra
kjör þeirra sem hafa mestar byrðar
fyrir og þyngstar bera klyfjamar.
Eg hefði haldið að ef menn meintu
eitthvað með því að „deila byrðun-
um“ þá fæli það í sér að færa byrð-
ar til og það eigum við að gera í
þessum samningum."
Ögmundur sagði að yfirlýsing um
að það ætti ekki að semja um neitt
og að við blasti kjararýrnun bæri
vott um mikið óraunsæi. Ef fulltrúum
ríkisstjórnar og atvinnurekenda væri
alvara með þessu þá væri þetta full-
komið ábyrgðarleysi í ofanálag gagn-
vart því fóiki sem væri á lægstu laun-
unum. „Þar að auki stríðir þetta
gegn þeirri hugsun sem bjó að baki
Tveir útvarpsráðsmenn segja af sér:
Gert til að mótmæla embættis-
veitingu menntamálaráðherra
-segir Magnús Erlendsson
TVEIR sjálfstæðismenn sögðu
sig í gær úr útvarpsráði í mót-
mælaskyni við skipun i embætti
útvarpsstjóra. Magnús Erlends-
son tilkynnti forseta Alþingis og
menntamálaráðherra úrsögn
sína skriflega en ráðherra hafði
óskað eftir að hann tæki að sér
formennsku í stað Ingu Jónu
Þórðardóttur, sem sagði af sér
í siðasta mánuði. Þá sagði Frið-
rik Friðriksson sig einnig úr út-
varpsráði í gær en hann hafði
tekið sæti aðalmanns í ráðinu í
stað Ingu Jónu.
„Þetta er gert til að mótmæla
þeirri gjörð Olafs G. Einarssonar
menntamálaráðherra að ganga
framhjá Ingu Jónu Þórðardóttur
við skipun í embætti útvarpsstjóra.
Hún starfaði í útvarpsráði í átta
ár, þar af sjö ár sem formaður, og
gegndi því starfi með mikilli prýði
og gjörþekkti alla innviði Ríkisút-
varpsins. Ólafur ákvað hins vegar
að skipa mann í embættið sem rétt
hefur komið inn fyrir þröskuld
þessarar stóru stofnunar," sagði
Magnús í samtali við Morgunblaðið.
Friðrik Friðriksson sagðist í
samtali við Morgunblaðið ekki hafa
áhuga á að starfa lengur í útvarps-
ráði eins og haldið hafí verið á
málum að undanförnu.
Afsagnarbréf Magnúsar er svo-
hljóðandi: „Menntamálaráðherra
hefur óskað að skipa mig formann
útvarpsráðs. Ég hef ekki áhuga á
því embætti við þær aðstæður sem
upp eru komnar í yfírstjóm Ríkisút-
varpsins. Nýr útvarpsstjóri tekur
við störfum á morgun, 1. október.
Vegna þeirrar embættisveitingar
ráðherrans hef ég í dag sagt mig
úr útvarpsráði."
Magnús hefur setið í útvarpsráði
frá árinu 1983, í fyrstu sem vara-
maður en aðalmaður var hann frá
árinu 1985.
Varamenn Magnúsar og Friðriks
eru Halldóra Rafnar og séra Hjálm-
ar Jónsson sem munu væntanlega
taka sæti þeirra í ráðinu þar til
Alþingi hefur kosið nýja aðalmenn,
að sögn Guðna Guðmundssonar
sem nú gegnir formennsku í ráðinu
í stað Ingu Jónu.
Ekki náðist tal af Ólafí G. Ein-
arssyni menntamálaráðherra
vegna þessa máls í gær.
Misþyrmdu og
rændu fimm-
tugan mann
ÞRÍR menn réðust á tæplega
fimmtugan mann í anddyri fjölbýl-
ishúss við Æsufell aðfaranótt
sunnudagsins. Arásarmennirnir
veittu manninum fyrirsát í and-
dyrinu og veittust harkalega að
honum. Maðurinn var fluttur slas-
aður á slysadeild, og er talið að
hann hafi nef- og rifbeinsbrotnað.
Árásarmennimir stálu af mannin-
um 22 þúsund krónum og er þeirra
nú leitað af lögreglunni. Þeir voru
allir klæddir svörtum leðuijökkum,
einn fremur hávaxinn, ljóshærður
með sítt hár. Annar var fremur smá-
vaxinn. Maðurinn hafði fyrr um
kvöldið verið á skemmtistaðnum
Keisaranum og telur lögreglan ekki
ólíklegt að viðvera hans þar geti leitt
til einhverra upplýsinga í málinu.
Að sögn Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins, sem fer með rannsókn málsins,
er ekki vitað hveijir voru að verki.
Skólamálaráð Reykjavíkur:
Nefnd kanni einka-
væðingn grunnskóla
Skólamálaráð Reykjavíkur samþykkti á fundi í gær tillögu form-
annsins, Árna Sigfússonar, um að setja á laggirnar nefnd til að
kanna hvort unnt sé að gera breytingar á rekstri grunnskóla borgar-
innar er leiði til aukinnar hagkvæmni og bæti gæði menntunar og
skólastarfs. Meðal annars verði kannað hvort æskilegt sé að fela
einstaklingum eða félögum rekstur eins eða fleiri grunnskóla sem
borgaryfirvöld annast nú.
Einnig verði athugað hvaða kost-
ir fylgi því að efla fjárhagslegt og
stjórnunarlegt sjálfstæði skólanna
miðað við núverandi opinbert for-
ræði.
Þá á nefndin að gera tillögur um
hvemig borgaryfirvöld eigi að
styrkja einkaskóla á grunnskóla-
stigi, sem leita eftir stuðningi, svo
samræmis sé gætt.
í nefndinni sitja Guðmundur
Magnússon sagnfræðingur, sem
verður formaður, Margrét Theó-
dórsdóttir varaformaður Skóla-
málaráðs, Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi, Ellert Borgar Garð-
arsson skólastjóri og Helgi Ámason
kennari.
íslensk kona flýr frá Kinshasa í Zaire með börn sín:
Byssuskot kváðu við og öllu
var stolið eða það eyðilagt
KAREN Karlsdóttir Samji var í
Kinshasa i Zaire þegar ófriður
braust þar út i síðustu viku og
hermenn og borgarar gengu
berserksgang. Hún er gift
Kanadamanninum Minaz Samji
og hafa þau búið í Kinshasa í
sjö og hálft ár og eiga tvö böm,
fimm og fjögurra ára. Karen er
vanfær að sínu þriðja barni og
kom hún hingað til lands sl.
sunnudag eftir erfitt þriggja
sólarhringa ferðalag með börn-
um sínum tveimur. Eiginmaður
hennar er enn í Kinshasa.
Karen og eiginmaður hennar
eiga lyfjaverksmiðju í Kinshasa og
hafa 80 manns í vinnu. Hún sagði
í samtali við Morgunblaðið að fjöl-
skyldan hefði ekki vogað sér út á
götur Kinshasa af hættu við að
verða fyrir árás og ráðist var inn
á heimili vinafólks þeirra og það
hrakið allslaust út á götu meðan
hermenn og borgarar stálu öllu
steini léttara og eyðilögðu það sem
ekki var hægt að hafa á brott með
sér.
„Það tók sinn tíma að átta sig
á því sem var að gerast. Við höfð-
um búist við einhveijum ófriði en
engu í líkingu við það sem gerðist.
Það hafa verið smáóeirðir frá því
í mars en það bjóst enginn við
þessu á þessum tíma,“ sagði Karen.
Morgunblaðið/Sverrir
Karen Karlsdóttir Samji
Hún sagði að í byijun síðustu
viku hefði enginn vogað sér út á
götur. Byssuskot hefðu kveðið við
og fjölskyldan hefði ekkert sofið í
2-3 nætur þar sem hún gat átt von
á því á hverri stundu að það yrði
ráðist inn á heimilið. Fólkið hefði
ráðist inn í mörg hús og hefðu þau
þekkt margar fjölskyldur sem voru
skildar eftir úti á götu á náttfötun-
um með böm. „Það var allt tekið
úr húsunum, klósettskálar, vaskar
og ljósaperur. Annaðhvort var
þetta skemmt'eða því stolið. Það
voru hermennimir sem byijuðu en
síðan bættist fólkið við. Hermenn-
imir byijuðu til að mótmæla lágum
launum, en meðalmánaðarlaun eru
80-100 bandaríkjadalir [4.800-
6.000 íslenskar kr.]. Það hefur al-
gjör eyðilegging orðið á öllu í Kins-
hasa, viðskiptum, innflutningsfyr-
irtækjum og áhrifin verða matar-
skortur og atvinnuleysi," sagði
Karen.
Hún lagði af stað með börn sín
til Brazzaville í Kongó sl. fímmtu-
dag en þar var enginn viðbúnaður
vegna flóttamannastraums frá
Zaire. Þar dvöldust þau í einn sólar-
hring í búðum sem kirkjusamtök
komu upp og sváfu á steingólfí. Á
föstudagskvöld fengu þau flugfar
til Parísar og þaðan til Kaup-
mannahafnar og komu loks til Is-
lands á sunnudag._„Ég ætlaði hvort
eð er að koma til íslands í desemb-
er til að eiga barnið. Ég býst við
manninum mínum í desember og
þá getum við farið að hugsa um
framtíðina. Zaire er alltaf í framtíð-
armyndinni og við höfum byggt
upp okkar fyrirtæki þar. Afríka er
þannig að hún dregur mann alltaf
til baka,“ sagði Karen.