Morgunblaðið - 01.10.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 01.10.1991, Blaðsíða 25
MQRQVtyBLAÐIÐ ÞRIÐJUDApUR 1., OKTÓBER. 1991 25 Kosið í Bremen í Þýskalandi: SPD tapar fylgi en CDU bætir við sig Bonn. Reuter. 1 FLOKKUR jafnaðarmanna (SPD) tapaði miklu fylgi í kosningum í sambandslandinu Bremen í Þýskalandi á sunnudag. Jafnaðarmenn, sem hlutu 50,5% atkvæða í kosningum fyrir fjórum árum og hafa verið með hreinan meirihluta í Bremen í tvo áratugi, fengu nú ein- ungis 38,9% atkvæða. Kristilegi demókrataflokkurinn (CDU), flokkur Helmuts Kohls kanslara, vann hins vegar verulega á. Kristilegir demókratar fengu 31,2% atkvæða í kosningunum sem er aukning um átta prósent frá því í síðustu kosningum. Fögnuðu krist- ilegir þessu ákaft enda hafa þeir tapað kosningum í tveimur sam- bandslöndum það sem af er árinu. Ekki er enn ljóst hvernig ríkis- stjórn Bremen mun líta út næstu ijögur árin en talið er líklegt að jafnaðarmenn muni leita eftir sam- starfi við fijálsa demókrata, sem fengu svjpað fylgi og í síðustu kosn- ingum eða 10,1%, og græningja, sem juku fylgi sitt lítillega og hlutu 11,2%. Þá er sá möguleiki einnig fyrir hendi að stóru flokkarnir tveir, SPD og CDU, taki upp samstarf. Það vakti mikla athygli að öfga- flokkur til hægri Deutsche Volks- union (DVU) hlaut 5,5% atkvæða í kosningunum á sunnudag. Albert prins undirbýr Ólympíuþátttöku Albert Mónakóprins (t.h.) býst til þess ásamt félaga sínum að ýta af stað tveggja manna bobsleða á alþjóðlegu móti í heimlandi hans á sunnudag. Þeir búa sig nú af kostgæfni undir þátttöku á Vetra- rólympíuleikunum í Albertville í Frakklandi í febrúar nk. Svíþjóð: Kona í fyrsta sinn forsetiþingsins Stokkhólmi. Frá Erik Lidén, fréttaritara Morgunblaðsins. INGEGERD Troedsson, einn af þingmönnum Hægriflokksins, var í gær valin til að gegna emb- ætti forseta sænska þingsins. Verður hún fyrsta konan í sögu Svíþjóðar sem fer með þetta embætti. Tekur hún við embætt- inu af jafnaðarmanninum Thage G. Peterson. Sænska þingið verður formlega sett í dag af Karli Gústaf Svíakon- ungi en þingsetningin mun taka skemmri tíma en venja er þar sem Carl Bildt, verðandi forsætisráð- herra, hefur enn ekki verið kjörinn af þinginu. Ekki er heldur búið að útnefna endanlega neina ráðherra og ekki liggur fyrir nein stefnuræða til að lesa upp í þinginu. Á meðan verið er að velja ráð- herraembætti er hart barist innan borgaralegu flokkanna og í við- skiptalífinu fyrir því að bjarga Svenska Dagbladet en halli á rekstri blaðsins var 112 milljónir sænskra króna fyrstu átta mánuði ársins. Hinn nýráðni framkvæmdastjóri blaðsins, Sven Höök, hefur þegar hafið endurreisnarstarfið og lofar því að með niðurskurði og fækkun starfsfólks verði reksturinn farinn að skila hagnaði eftir 2-3 ár. ■ HELSINKI - Sovéska sendi- ráðið í Finnlandi mun ekki hafa móttökuathöfn í ár þar sem októ- berbyltingarinnar í Sovétríkjunum 1917 verður minnst, en slík athöfn hefur verið árviss atburður í sendi- ráðinu. Að sögn sendiráðsstarfs- manns hefur öllum móttökuathöfn- um verið aflýst. „Við munum ekki halda 7. nóvember hátíðlegan vegna fjárhagslegra örðugleika. Utanrík- isráðuneyti Sovétríkjanna hefur ákveðið að fresta öllum veisluhöld- um. Við vitum ekki hvernig þessu verður háttað á næsta ári,“ sagði hann. Hinn 7. nóvember á þessu ári munu 74 ár verða liðin frá bylt- ingunni í Rússlandi, sem átti sér stað í október samkvæmt gamla tímatalinu þar í landi. Dagblað í Sovétríkjunum skýrði frá því í sept- ember að Mikhaíl Gorbatsjov Sov- étleiðtogi og Borís Jeltsín Rúss- landsforseti hefðu ákveðið að halda ekki hina árlegu hersýningu á Rauða torginu í ár. / "Eg skal kenna þér að elda!" NÁMSKEIÐ í AUSTURLENSKRI MATARGERÐ Ævintýraheimur austurlenskrar matargerðar er heillandi. Andblær austurlanda endurspeglast í matargerðinni; ljúffengri, litríkri og ilmsterkri. Ning De Jesus frá Filippseyjum hefur nú sett á laggirnar matreiðsluskóla í tengslum við Veitinga- og vöruhús Nings við Suðurlandsbraut. Á tveggja kvölda námskeiðum mun hann leiða áhugafólk í allan sannleika , um leyndardóma austurlenskrar matargerðar. Tvö námskeið verða haldin í hverri viku. Á mánudögum og miðvikudögum kl. 19.00 til 22.30 og þriðjudögum og fimmtudögum á sama tíma. Fyrsta námskeiðið hefst mánudaginn 14. okt. Fjöldi þátttakenda verður takmarkaður. Skráning fer fram í Veitinga- og vöruhúsi Nings að Suðurlandsbraut 6 (ekki í gegnum síma). Námskeiðsgjald er 8.500 kr. Greiðslukortaþjónusta. Allar nánari upplýsingar eru veittar á staðnum og í síma 67 98 99 Veitinga- og vöruhús Nings er í senn matsölustaður og verslun sem sérhœfir sig í austurlenskri matargerð. í veitahúsinu er jöfnum höndum boðið upp á tilbúna rétti og sérrétti sem tekur fáeinar mínútur að matreiða. Þú tekur matinn með þér heim í umhverfisvœnum öskjum eða neytir hans á staðnum. Þitt er valið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.