Morgunblaðið - 01.10.1991, Blaðsíða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1991
Vestfirðir:
Spáð ágætri rjúpnaveiði
Húsavík:
Gunnar Eyjólfsson afliendir forseta íslands, frú Vigdísi Finnboga-
dóttur, fyrsta styrktarpinnann.
Styrktarpinni
skáta afhentur
BANDALAG íslenskra skáta er þessa dagana að senda fjölda
fyrrverandi og núverandi eldri skáta og velunnara skátahreyfing-
arinnar sérstakt barmmerki úr málmi, Styrktarpinna skáta 1991.
í þessu tilefni afhenti skáta-
höfðinjgi, Gunnar Eyjólfsson, for-
seta Islands, Vigdísi Finnboga-
dóttur, fyrsta barmmerkið, en for-
seti Islands er verndari íslensku
skátahreyfingarinnar.
Lengi hefur staðið til innan
skátahreyfingarinnar að koma
upp hópi „gamalla" og eldri skáta
og velunnara þeirra og hefur nú
verið unninn vísir að skrá yfir
einstaklinga sem í hópnum ættu
heima. Hópurinn sem hér um
ræðir og verður í framtíðinni einn
helsti bakhjarl skátahreyfingar-
innar hefur fengið nafnið Styrkt-
arsveit BÍS, Eitt sinn skátar -
ávallt skátar, en ekki verður um
neitt formlegt starf að ræða hjá
honum.
Á næsta ári verður skátahreyf-
ingin á íslandi 80 ára og frá upp-
hafi hafa tugir þúsunda ung-
menna kynnst skátahreyfingunni
í lengri eða skemmri tíma og eiga
þaðan ljúfar minningar. Með
Styrktarpinnanum myndast
tengslin aftur þó óformleg séu og
stefnt er að því að nýr pinni verði
útbúinn á hveiju ári og sendur
gömlum skátum.
Mjög erfitt reyndist að safna
saman upplýsingum um eldri fé-
laga þar sem ekki hefur varðveist
mikið af gömlum skrám og gögn-
um. En haldið verður áfram að
fullkomna skrána og eru eldri
skátar sem ekki fá pinnann
sendan nú vinsamlegast beðnir
að hafa samband við skrifstofu
Bandalags íslenskra skáta.
Styrktarpinnann fá menn að gjöf
og eru allir hvattir til að bera
hann, en jafnframt fá menn
sendan gíróseðil sem er fijálst
framlag styrktarfélaga skáta.
(Fréttatilkynning)
Bíldudal.
Rjúpnaveiðitímabilið náigast
óðum og eru ijúpnaskyttur nú
þegar farnar að skipuleggja
fyrstu veiðiferðirnar þann 15.
október, en þá hefst veiðitímabil-
ið, og lýkur því 22. desember.
Menn spá ágætri veiði í vetur og
hafa gangnamenn séð talsvert
af ijúpum síðustu daga og vikur.
Það er verulegur munur á milli
haustanna í fyrra og núna. Lítið
sást af ijúpu í göngum í fyrra en
j^ú horfir öðruvísi við. Ljóst er að
allar kringumstæður hvað varp og
uppkomu unga snertir var mjög
gott í sumar. Beijaspretta hefur
verið með eindæmum góð og hjálp-
ar jiað mikið til.
I samtali við Indriða Aðalsteins-
son bónda og ijúpnaskyttu á Skjald-
fönn í ísafjarðardjúpi, sagðist hann
vera sæmilega vongóður með kom-
andi ijúpnavertíð. Indriði veiddi
Morgunblaðid/Kó'oert Schmidt
Indriði Aðalsteinsson bóndi og
rjúpnaskytta á Skjaldfönn í ísa-
fjarðardjúpi er sammála mönn-
um fyrir vestan að meira verði
af ijúpu í ár en í fyrra.
aðeins 100 ijúpur í fyrra og er það
að hans sögn lélegasta ijúpnaveiði
sem hann man eftir. „Jú, ég er
sæmilega vongóður á þetta núna,
eftir gott sumar hvað viðkomu
stofnsins áhrærir. En ég get ekki
ímyndað mér að þetta verði neitt
verulegt veiðiár, það var það lágt
á henni risið í fyrra. Mér sýnist að
ungarnir séu ákaflega þroskalegir
núna og það er t.d. ekki mikill
munur á fullorðnum fugli og ung-
fugli á þessum tíma,“ sagði Indriði
í samtali við Morgunblaðið.
Menn hér vestra láta hrakspár
fuglafræðinga um ijúpnastofninn
sem vind um eyru þjóta og eru í
þess stað bjartsýnir á komandi
ijúpnavertíð. Annars eru ijúpna-
skyttur farnar að lækka verulega á
sér risið og gera sig ánægða með
fáeinar ijúpur í ferð.
R. Schmidt.
Vilja friða ijúpustofninn
Húsavík.
STOFNFUNDUR félagsskapar
um verndun rjúpnastofnsins var
haldinn á Húsavík siðastliðið
miðvikudagskvöld og sátu fund-
inn um 70 manns og gerðust 42
stofnfélagar. Félagið hlaut nafn-
ið Rjúpnaverndarfélagið og er
félagssvæðið afmarkað við Norð-
urland eystra. Undanfarin ár
hafa menn orðið þess varir að
rjúpunni hefur verið að fækka
og þá sérstaklega á þessu sumri
eiida samkvæmt kenningunni um
10 ára sveiflur á hún nú að vera
í lágmarki á þessu ári.
Aðalhvatamenn að félagsstofn-
uninni voru Atli Vigfússon, Laxa-
mýri, og Héðinn Ólafsson, Fjöllum
í Kelduhverfi, auk fleira áhuga-
fólks. Fundinn sátu bæði friðarsinn-
ar og skotveiðimenn og skiptust
þeir á skoðunum og ræddu málin
málefnalega, þótt sitt sýndist hveij-
um. Friðarsinnar vilja algjöra friðun
til rannsókna en skotveiðimenn
töldu friðunina ekki nauðsynlega,
en voru hvetjandi þess að rannsókn-
ir færu fram.
Skotveiðimenn töldu að veiði
þeirra hefði lítil áhrif á stofninn og
bentu á að fleiri vargar væru þar
í véum og nefndu tófuna, minkinn,
fálkann og fleiri fugla. En friðunar-
sinnar töldu að skotveiðin hefði
töluverð áhrif og einkennilegt væri
ef ekki væri hægt að ofveiða ijúpna-
stofninn eins og aðra stofna dýra-
ríkisins. Einnig bentu þeir á að
tæknin við ijúpnaveiðar væri mikið
að breytast og menn eltu nú ijúp-
una á fjallajeppum,' fjórhjólum, vél-
sleðum og sumir notuðu það sem
kalla mætti hríðskotabyssur, með
allt að 11 skotum og skytu upp
heila hópa, sem ekki væri hægt
með einskota byssum.
Fundurinn samþykkti tvær
áskoranir til Alþingis. Sú fyrri var
þess efnis að Alþingi samþykkti
algjöra friðun ijúpunnar til næstu
aldamóta þar sem hún væri nú í
algjörri útrýmingarhættu og hin var
um að Alþingi hlutaðist til um að
hafðar yrður rannsóknir á ijúpna-
stofninum, þar sem mikil þörf væri
á vitneskju um lifnaðarhætti ijúp-
unnar og tekið verði mið af niður-
stöðum þeirra athugunar í framtíð-
inni.
Stjórn hins nýja félags skipa
bændurnir Atli Vigfússon, Laxa-
mýri, Tryggvi Stefánsson, Hall-
grímsstöðum, og Indriði Ketilsson,
Ytra-Fjalli.
Kríuvinafélagið, sem hér hefur
verið starfandi undanfarið, sýndi
samstöðu sína með hinu nýja félagi
með því að veita fundarmönnum
kaffí. . .
- Frettaritan
Héraðsfundur Þingeyjarprófastsdæmis:
Alyktað um Vestmannsvatii
Frá stofnfundi félagsskapar um verndun rjúpnastofnsins, frá vinstri:
Héðinn Ólafsson, Atli Vigfússon og Indriði Ketilsson.
Umhverfisvæn
efni
leggðu þitt af mörkum
til umhverfisvemdar l
Þvottaefni seni eru
ekki nf^ fosfati.''^'
95°
Brinr Brim
Mýkingarefi ^ ***#*
FRIGG^
as
Húsavík.
HÉRAÐSFUNDUR Þingeyjar-
prófastsdæmis var nýlega haldinn.
Prófastur, sr. Erni Friðriksson á
Skútustöðum, setti fundinn og
stjórnaði honum. Héraðsfundur-
inn var haldinn í Sumarbúðunum
við Vestmannsvatn en aðalefni
hans var cinmitt að ræða um fram-
tíð Sumarbúðanna.
Heiðursgestir fundarins voru
herra Pétur Sigurgeirsson biskup og
kona hans frú Sólveig Ásgeirsdóttir,
en Pétur biskup og sr. Sigurður
Guðmundsson vígslubiskup voru
frumkvöðiar að því að reistar yrðu
við Vestmannsvatn sumarbúðir á
vegum Æskulýðssambands kirkj-
unnar í Hólastifti fyrir hartnær 30
árum.
Um stöðu og framtíð sumarbúð-
anna ræddu hr. Pétur, séra Jón Helgi
Þórarinsson, prestur á Dalvík og
núverandi formaður ÆSK, sr. Jón
Ragnarsson deildarstjóri í fræðslu-
deild þjóðkirkjunnar, en þeir voru
sérstakir gestir fundarins. Einnig
ræddu málið sr. Pétur Þórarinsson
sem lengi var sumarbúðastjóri, og
nú hefur tekið við Laufásprestakalli,
og séra Kristján Valur Ingólfsson,
Grenjaðarstað, núverandi formaður
Sumarbúðanefndar. I máli allra kom
fram mikill áhugi á enn frekari efl-
ingu staðarins. Hitaveita hefur verið
lögð á staðinn sem gjörbreytir allri
starfsaðstöðu, og gerir búðunum
kleift að starfa allt árið. Héraðsstjóri
Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófasts-
dæmis auk kristnisjóðs greiddu allan
kostnað við hitaveituna.
Fyrirhuguð eru á komandi vetri
námskeið með fermingarbörnum og
einnig ýmis námskeið fyrir fullorðna.
Fundurinn samþykkti tillögur frá
Stefáni Skaftasyni um að kjósa
Morgunbiaðið/Silli
Biskupshjónin fyrir miðju, prestshjónin á Laufási og sr. Magnús
prestur í Ljósavatnsprestakalli.
þriggja manna nefnd til að gera til-
lögur að framtíðarstarfsgrundvelli
búðanna og skipa þá nefnd sr. Pétur
Þórarinsson, Stefán Skaptason og
Sig. Pétur Björnsson.
I tengslum við kosningar nýs full-
trúa í stað sr. Bolla Gústavssonar
vígslubiskups í nefnd sem starfað
hefur til undirbúnings kristnitökuaf-
mælinu, tók héraðsfundurinn einnig
til umfjöllunar fyrirhugaða byggingu
kirkju á Ljósavatni, sem verði um
leið minningakirkja um þann atburð
þegar Þorgeir Ljósvetningagoði heim
kominn af alþingi varpaði húsgoðum
sínum í Goðafoss. í þessu sambandi
samþykkti fundurinn eftirgreinda
áskorun:
„Héraðsfundurinn fagnar því að
hugmyndir, um byggingu kirkju á
hinum fornhelga stað Ljósavatni í
Þingeyjarprófastsdæmi eru þegar
komnar til framkvæmda af hálfu
sóknarnefndar Ljósavatnssóknar.
Héraðsfundurinn skorar á hið háa
Alþingi að taka nú þegar á næsta
þingi málefni kirkjubyggingarinnar
til umræðu og veita til þess verkefn-
is fjárframlögum á næstu árum, er
þessum helgidómi eru samboðin.
Héraðsfundurinn leggur á það
áherslu að ný kirkja að Ljósavatni
er jafnframt því að vera sóknar-
kirkja Ljsoavatnssóknar helgidómur
þjóðarinnar allrar, sem helgar minn-
ingu kristnitökunnar, þess atburðar
sem hæst rís í þjóðarsögunni."
Mörg önnur mál komu til umfjöll-
unar þótt þeirra sé ekki getið hér.
í prófastsdæminu eru nú 8 prestar
starfandi og hefur fækkað um einn
með því að Staðarfells- og Hálspres-
taköll hafa verið sameinuð í nýtt
Ljósavatnsprestakall og í þessum 8
prestaköllum eru alls 22 sóknir.
Héraðsfundurinn var mjög vel
sóttur og voru fulltrúar frá flestum
sóknum auk allra prestanna. Fundin-
um lauk með biskupsmessu í Gren-
jaðarstaðarkirkju, þar sem sr. Pétur
Þórarinsson predikaði.
- Fréttaritari