Morgunblaðið - 01.10.1991, Page 35
35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1991
Karpov er komínn
með vinningsforskot
___________Skák_______________
Margeir Pétursson
MEÐ AFAR sannfærandi sigr-
um er Anatólí Karpov kominn
með fimm vinninga af sex
mögulegum og hefur heilum
vinningi meira en næstu menn,
þeir Vasílí ívantsjúk og
Ljubomir Ljubojevic, sem báðir
hafa þó sýnt frábæra tafl-
mennsku á köflum. Um helgina
Iagði hann þá Jóhann Hjartar-
son og Khalifman að velli.
Karpov hefur unnið alla sigra
sína með hvítu mönnunum og
teflt af stórkostlegri snilld og
vélrænni nákvæmni. Hann hef-
ur eiiigöngu lent í vörn í einni
skák gegn Alexander Beljavskí,
en biðskák þeirra úr fjórðu
umferð hélt hann auðveldlega
í gærkvöldi.
Það eru einmitt slíkir yfirburðir
í rólegri stöðubaráttu sem er aðal
Karpovs, fram að þessu hefur
andstæðingum hans ekki tekist
að hagga honum. Búast má við
að það sem eftir er mótsins muni
andstæðingar hans freista þess
að veijast með gagnsóknum en
síður feta í fótspor þeirra Salovs
og Khalifmans sem reyndu að
jafna taflið með rólegum og hefð-
bundum aðferðum.
Eftir fremur rólega byrjun á
mótinu þar sem margir keppendur
virtust vera að þreifa fyrir sér
hefur heldur betur færst líf í tu-
skurnar, í umferðunum á laugar-
dag og sunnudag unnust níu
skákir af sextán sem verður að
teljast mjög gott í svo öflugu móti.
Jóhann Hjartarson átti erfiða
daga um helgina gegn þeim
Karpov og Timman, sem einmitt
tefldu í fyrra um áskorunarréttinn
á Kasparov. í báðum skákunum
lenti Jóhann í erfiðleikum eftir
byrjunina, en átti sfðan mjög góða
kaiía í báðum skákunum. Það
dugði ekki til að slá Karpov út
af laginu, en gegn Timman stóð
Jóhann mun betur um tíma, þótt
skákinni lyktaði með jafntefli.
Heildarstaðan eftir 6
umferðir:
1. Karpov 5 v.
2. -3. Ljubojevic og ívantsjúk 4 v.
4.-6. Nikolic, Chandler og Seiraw-
an 3 xh v.
7.-8. Salov og Khalifman 3 v.
9.-13. Beljavskí, Ehlvest, Anders-
son, Speelman og Portisch 2Vi v.
14.-16. Jóhann, Timman og Gúlko
2 v.
Spennandi vika fer í hönd
Sjöunda umferð heimsbikar-
mótsins verður tefld í dag og þá
mætir Karpov Gúlko með svörtu.
Fram að þessu hefur Karpov ein-
göngu unnið á hvítt, en þar sem
taflmennska Gúlko hefur ekki
verið sérlega sannfærandi má
ætla að hann reyni að notfæra
sér það. í dag hefur Jóhann svart
gegn Khalifman, en aðrar sérlega
athyglisverðar skákir eru
Ljubojevic-Beljavskí og Ivant-
sjúk-Salov. Þótt þeir Beljavskí og
Salov hafi svart þurfa þeir nauð-
synlega á vinningi að halda gegn
þeim tveimur sem deila öðru sæt-
inu, til að geta blandað sér í topp-
baráttuna. Aðrar skákir-eru And-
ersson—Portisch, Seirawan—Spe-
elman, Nikolic—Chandler og Tim-
man—Ehlvest.
í næstu umferðum mætir
Karpov síðan helstu keppinautum
sínum um efsta sætið. Á morgun
hefur hann hvítt gegn Ljubojevic
og verður þá fróðlegt að sjá hvort
Júgóslavinn, sem teflt hefur leik-
andi létt, nær að stöðva sigur-
göngu Karpovs með hvítu mönn-
unum. í níundu umferðinni á
fimmtudaginn mætir Karpov
síðan ívantsjúk og hefur svart.
Síðast þegar þeir mættust í Linar-
es í febrúar sigraði ívantsjúk með
hvítu og hann hefur vafalaust
fullan hug á að leika sama leikinn
nú.
Afleikir settu mark sitt á
fimmtu umferðina
Viðureign Karpovs og Jóhanns
í fimmtu umferðinni á laugardag-
inn olli nokkrum vonbrigðum. Jó-
hanni tókst að koma heimsmeist-
aranum fyrrverandi á óvart í byrj-
uninni, en þegar Karpov breytti
út af fyrri skákum í Ragozin-
afbrigði drottningarbragðsins
veikti Jóhann kóngsstöðu sína al-
gerlega að óþörfu. Karpov fékk
þannig upp í hendurnar mjög
þægilega stöðu og þrátt fyrir
skemmtilegar gagnsóknartilraun-
ir Jóhanns sem vöktu vonir 1
bijóstum áhorfenda var sigur
hans aldrei í verulegri hættu.
Annars var fimmta umferðin
sú skemmtilegasta til þessa, þegar
eftir þriggja tíma taflmennsku
höfðu tveir skákmannanna leikið
Ijótum afleikjum. Lajos Portisch
sem daginn áður hafði afgreitt
Gúlko mjög sannfærandi lenti í
heldur lakari stöðu gegn
Ljubojevic:
Svart: Lajos Portisch
Hvítt: Ljubomir Ljubojevic
Sem sjá má er svartur í nokkr-
um vandræðum því það tekur
marga leiki að koma Hh7 í spilið
og hvítur hótar framrásinni d4-
d5. Svartur ætti þó góða mögu-
leika á að veijast eftir 27. — Kf8
28. d4 — Rc7. Portisch hugðist
hins vejfar leysa vandamál sín
með skjótvirkari hætti:
27. - f6?? 28. Rxa6! - fxe5
Svartur hefur tapað því peði
sem hann mátti allra sízt missa,
því eftir 28. — Bxa6 29. Hc6 vinn-
ur hvítur manninn til baka. Eftir-
leikurinn er Júgóslavanum auð-
veldur.
29. Rc5 - Rxc5 30. Hxc5 - Ba6
31. Hxe5 - Hf7 32. Bc5 - Hf5
33. Hde2 - Hxe5 34. Hxe5 -
Kf7 35. d4 - e6 36. He3 - Hd5
37. b4 - Hf5 38. Bd6 - Hd5
39. Hf3+ - Ke8 40. Hf8+ -
Kd7 41. Be5 og Portisch gafst
upp.
Ulf Andersson Jiefur ekki enn
náð sér á strik. Á laugardaginn
lék hann athyglisverðasta afleik
mótsins gegn einum nýliðanna í
heimsbikarkeppninni, Englend-
ingnum Murray Chandler, sem
hefur komist vel frá upphafinu
þrátt fyrir tapið gegn ívantsjúk.
Svart: Murray Chandler
Eins og svo oftþ skákum Svíans
byijaði skákin með miklum þreif-
ingum á báða bóga. Allt miðtaflið
hafði háð Andersson að drottning
hans átti fáa reiti á miðborðinu
og hann varð sífellt að gæta þess
að hún lokaðist ekki inni. Miðað
við þetta er næsti leikur hans
óafsakanlega lélegur: Með honum
kviksetur hann sína eigin drottn-
ingu
26. Re3?? - f5 27. Rxf5 - gxf5
28. De3 og þar sem það hefur
kostað mann að losa drottninguna
úr prísundinni er hvíta staðan
gertöpuð, þótt Andersson hafi
reyndar þæft hana lengi áfram
og jafnvel sett skákina í bið áður
en hann gafst upp. í staðinn fyrir
hinn ótrúlega riddaraleik, gat
hvítur einfaldlega leikið 26. Bxe5,
þótt svartur standi auðvitað sízt
lakar að vígi.
Eftir fjögur gætileg jafntefli í
röð náði annar nýliði, Álexander
Khalifman, fæddur og uppalinn í
Leningrad en nú búsettur í
Frankfurt, að sýna hvað í honum
býr. Hann lagði sjálfan Beljavskí
að velli í uppáhaldsbyijun hins
margfalda Sovétmeistara, lokaða
afbrigði spánska leiksins.
Hinn geðþekki Boris Gúlko sem
lét ekki áratugar baráttu við
sovézka kerfið bijóta sig niður fór
afar illa af stað og í fimmtu um-
ferðinn var sem Valerí Salov van-
mæti hann. En þótt Gúlko hafi
átt sitt slakasta ár frá því hann
kom til Vesturlanda árið 1987
hefur enginn efni á að vanmeta
hann og hann sigraði með glæsi-
legum tilþrifum.
Jan Timman jafnaði taflið auð-
veldlega gegn Nikolic og snemma
var samið jafntefli. Slíkt er ekki
hollenska baráttujaxlinum að
skapi, en eftir afar slæma byijun
er hann ekki í aðstöðu til að taka
mikla áhættu. Margir héldu að
ívantsjúk væri kominn í gang eft-
ir sigurinn á Chandler, en honum
hugkvæmdust engin ráð til að ná
sóknarfærum gegn traustri tafl-
mennsku Speelmans og var samið
jafntefli eftir 27 leiki. Seirawan
tefldi ekki nægilega frumlega
gegrt Grúnfeldsvörn Ehlvests og
mátti sætta sig við fremur barátt-
ulítið jafntefli í 28 leikjum.
Ótrúlegur léttleiki Karpovs
Karpov jók forystu sína í sjöttu
umferðinni á sunnudaginn er
hann vann ótrúlega auðveldan
sigur & Alexander Khalifman.
Hann náði betri stöðu með lag-
legri biskupstilfærslu og skipti
sfðan upp í mjög vænlegt enda-
tafl. Khalifman stytti síðan þján-
ingar sínar með herfílegum afleik.
Sjötta umferðin var ekki síður
æsispennandi en sú fimmta. Þeir
Ehlvest og Nikolic, sem báðir
höfðu gert jafntefli í öllum skák-
um sínum, tefldu inn'byrðis hvasst
afbrigði af franskrí vörn og sigr-
aði Júgóslavinn með svörtu eftir
mistök Ehlvests í miðtaflinu.
Gúlko reyndi að skipta upp sem
mestu liði í byrjuninni gegn
Beljavskí, en framhaldið tefldi
hann veikt og Rússinn sterki inn-
byrti sinn fyrsta sigur. Portisch
var greinilega sáttur með jafn-
tefli _með hvítu gegn ívantsjúk,
en Úkraínumaðurinn ungi jók
stöðugt frumkvæði sitt og vann
afar sannfærandi sigur. Öfugt við
Karpov hefur ívantsjúk aðeins
unnið með svörtu, en með hvítu
hefur hann verið mjög stirður og
leyft andstæðingum sínum að
jafna taflið fremur auðveldlega.
Jafnteflisskákirnar voru einnig
spennandi. Eina ferðina enn lenti
Andersson í krappri vörn, í þetta
sinn gegn Speelman, en hann fann
laglega leið fil að komast út í
endatafl sem var dautt jafntefli.
Ljubojevic tók á sig fremur gleði-
snautt endatafl strax í byijuninni
gegn Salov, og lenti í vörn, en
leysti vandamál sín laglega. Það
er greinilegt að Júgóslavinn er til
alls vís á mótinu. Byijanaval hans
á svart virðist þó tæplega henta
svo hvössum skákmanni. Seiraw-
an tefldi franska vörn eins og
Nikolic og jafnaði taflið auðveld-
lega með svörtu gegn Murray
Chandler, sem varð að tefla ná-
kvæmt í endatafli til að tryggja
sér jafntefli.
Skemmtilegasta jafnteflisskák-
in var þó óumdeilanlega viðureign
Jóhanns og Timman. Hollending-
urinn tók á sig mjög þrönga stöðu
í upphafi taflsins, en Jóhann eyddi
miklum tíma auk þess sem hann
var seinn að koma mönnum sínum
í spilið. Timman lét af hendi peð
fyrir skemmtilega stöðu en þá tók
Jóhann að tefla hratt og mjög vel
og eftir að Timman gerði þau
mistök að loka taflinu var ekki
að sjá að hann hefði neinar bætur
fyrir peðið. En eftir erfiðleikana
í byrjun skákarinnar virtist svo
sem Jóhann væri alveg sáttur við
jafntefli í skákinni, hann virtist
vanmeta ágæta stöðu sína og
stýrði taflinu svo að segja beint
í jafnteflishöfn.
Hvítt: Anatólí Karpov
Svart: Alexander Khalifman
Drottningarindversk vörn
1. d4 - Rf6 2. c4 - e6 3. RT3
— b6 4. g3 — Ba6
Ein hugmynda hins fijóa snill-
ings Arons Nimzowitschs og vin-
sælli leikur á meðal stórmeistara
en hið „eðlilega" 4. — Bb7 sem
Salov lék gegn Karpov.
5. b3 - Bb4+ 6. Bd2 - Be7 7.
Bg2 - c6 8. Bc3 - d5 9. Rbd2
Karpov hefur löngum haft mik-
ið dálæti á leiknum 9. Re5, sem
svartur svarar bezt með 9. —
Rfd7. M.a. vegna uppáhalds hans
á því framhaldi hefur það verið
gríðarlega mikið rannsakað og
liggur við að segja megi að það
sé orðið fræðilegt jafntefli! Karpov
sér sig því knúinn til að breyta
út af.
9. - Rbd7 10. 0-0 - 0-0 11. Hel
— c5 12. e4 — dxc4!?
Hér þykir 12. — dxe4 leiða til
jafnrar stöðu. Þannig tefldi
ívantsjúk gegn Kasparov í Tiíburg
1989 og tapaði, en ekki var þó
hægt að kenna byijuninni um það.
Salov svaraði nú 12. — dxc4
með 13. bxc4 gegn Helga Ólafs-
syni í Wijk aan Zee í janúar, en
eftir 13. — cxd4 14. Rxd4 — Re5
15. Rxe6 — fxe6 16. Bxe5 — Bc5
hafði svartur góðar bætur fyrir
peð og skákinni lauk um síðir með
jafntefli.
13. Rxc4 - Bb7 14. Dd3!
Hér breytir Karpov út af fyrri
skákum. Þetta er mun vænlegra
en 14. e5?! - Rd5 15. Bb2 - b5!
16. Rd6 — Bxd6 17. exd6 — c4,
sem olli svarti engum erfíðleikum
í skák stórmeistaranna Ftacnik
og Lerner í Amsterdam 1988.
14. — cxd4 15. Rxd4 — Rc5
Hér var líklega skynsamlegra
að leika strax 15. — a6.
16. Dc2 - a6 17. Hadl - Dc7
18. Bd2!
Hinn fyrsti af þremur hárná-
kvæmum biskupsleikjum, sem all-
ir hafa hótun í för með sér og
hindra svartan í að leika hrókum
sínum á miðborðið.
18. - Rcd7 19. Bf4! - Dco 20.
Bcl! - Dc7 21. e5 - Rd5
Vegna þess að svörtum hefur
ekki unnist tími til að koma hrók-
um sínum í spilið getur Karpov
nú skipt upp á drottningum og
haldið miklum þrýstingi á svörtu
stöðuna í framhaldinu.
22. Re3! - Dxc2 23. Rdxc2 -
Hac8
Eftir 23. — Rxe3? 24. Rxe3 —
Bxg2 25. Hxd7 - Bb4 26. Rxg2!
— Bxel 27. Rxel hefur hvítur
unnið tvo menn fyrir hrók.
24. Bxd5 — exd5
Hér þótti mörgum sem næsti
leikur Karpovs myndi létta á
svörtu stöðunni og bjuggust við
25. Bb2, sem er greinilega þægi-
legt tafl á hvítt. En Karpov hefur
þegar séð að í endataflinu sem
nú fer í hönd nær hann að tvö-
falda hróka sína á sjöundu línunni
og fá stórhættuleg færi.
25. Rxd5 - Bxd5 26. Hxd5 -
Hxc2 27. Hxd7 - Bb4 28. Hedl
- Hxa2 29. Be3 - Bc5
Khalifman freistar eðlilega
gæfunnar í hróksendatafli. 29. —
b5 30. Bd4, eða 30. Hcl! lítur
ekki vel út, en hins vegar á svart-
ur möguleika á að veijast eftir
30. Ha7?! - Bc3!
30. Bxc5 - bxc5 31. Hc7 - Ha3?
Afskaplega ljótur afleikur sem
léttir Karpov verkið. Eftir 31. —
Hb2 getur hvítur ekki Jeikið 32.
e6 vegna 32. — fxe6 33. Hdd7 —
Hfxf2! og svartur heldur jafntefli.
Svartur heldur einnig sínu eftir
32. Hdd7 - Hxb3! 33. e6 - Hbl+
34. Kg2 - Hel! 35. exf7+ (35.
e7 - Hd8 36. Hd8 - Hlxe7!) -
Kh8 og síðan 36. — g6 og Kg7.
Hvítur leikur hins vegar 32.
Hd3! og hróksendataflið með peði
minna og óvirka stöðu verður
harla vonlítið á svart. En þarna
er einmitt komin skýringin á af-
leik Khalifmans. Ef hvítur svarar
31. — Ha3? með 32. Hd3? á svart-
ur mjög góðar jafnteflislíkur eftir
32. - a5 33. Hxc5 - a4.
32. e6! - fxe6 33. Hdd7 og
Khalifman gafst upp.
Af skákum Karpovs við þá
Salov og Khalifman að dæma
hefur hann upp á síðkastið rann-
sakað 4. g3 afbrigðið gegn drottn-
ingarindverskri vörn mjög gaum-
gæfilega og verður fróðlegt að sjá
hvort fleiri keppendur leggja í að
leyfa honum að beita því.
Reyndar er merkilegt að þetta
afbrigði hefur orð á sér fyrir að
vera hálfryðgað jafnteflisvopn, en
það veldur hver á heldur, í hönd-
um Karpov er egg þess hárbeitt.