Morgunblaðið - 01.10.1991, Qupperneq 39
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1991
39
Þeir félagar hyggjast leggja að fótum sér eða hesta sinna 15.000
kílómetra, Paul Rask til vinstri ásamt félaga sínum Steen Gees
Christiansen.
ur mánuðum. Á þessum slóðum
er mikið fannfergi og vetrarríki svo
óvíst er hvort við getum ferðast á
þeim tíma.
Tveir hestanna munu bera
klyfjatöskur og verður farangurinn
allt að 40 kíló á hvorum. Hver
hestur mun bera töskur einn dag
í senn og hinir fjórir þá notaðrr til
reiðar þann daginn. „Við megum
búast við að þurfa að taka fóður
með okkur sumar dagleiðanna og
gerum þá ráð fyrir að hvor hestur
geti tekið 20 kíló af fóðri eða alls
40 kíló,“ útskyrir Paul.
Aðspurður um hvort einhver
muni fylgja þeim eftir á bíl eða
öðru vélknúnu farartæki sagði
hann að ekki yrði um slíkt að ræða.
„Ekki nema einhver af heima-
mönnum hvetju sinni muni fylgja
okkur eftir stuttar leiðir. Við erum
að vinna að því að komast í sam-
band við einhveija aðila á leiðinni
t.d. forsvarsmenn hestaklúbba eða
bæjaryfirvalda og boða komu okk-
ar en það gengur illa. Við höfum
skrifað ótal bréf til að reyna að
komast i samband við fólk í þeim
löndum sem við förum um. Þá
höfum við notfært okkur dönsku
utanríkisþjónustuna og sendiráðin.
Það gefur betri árangur. Það er
mikill munur á því hvort það er
danska utanríkisþjónustan eða ein-
hver Paul Rask frá Danmörku sem
biður um fyrirgreiðslu," segir Paul
og kímir.
Paul mun kaupa í það minnsta
tvo hesta á næstu dögum til ferðar-
innar en hann segir að þeir verði
að vera minnst eitt og hálft ár á
meginlandinu áður en lagt verði
upp og sé hann því á síðasta snún-
ing að flytja hesta utan. Fyrir ári
keypti hann einn hest á Skarði í
Landssveit sem hann ætlaði í ferð-
ina. Telur Paul hann að öllu leyti
vel fallinn til ferðarinnar að því
undanskildu að efasemdir séu um
hvort hófarnir séu nógu góðir.
„Við verðum að jáma hestana mjög
oft og því þarf hófveggurinn að
vera sterkur og góður vöxtur í
honum. Einnig þarf botn hófanna
að vera vel hvelfdur," segir Paul.
Hesturinn sem hér um ræðir
heitir Blakkur, fæddur í Einarsnesi
í Borgarfirði, undan Sörla 653 frá
Sauðárkróki og Perlu frá Einars-
stöðum, undan Leikni 875 frá
Svignaskarði. Annar hestur sem
ákveðið hefur verið að muni fara
í ferðina heitir Hrímnir og er hann
fæddur í Eriksholm í Danmörku
undan Ljúfi 726 frá Svignaskarði.
Sá tími sem er til stefnu verður
notaður til að þjálfa hestana og
undirbúa á sem bestan hátt. Sér-
stakri þjálfunaráætlun sem gerð
var í samráði við vísndamennina
sem framkvæma munu rannsóknir
á hestunum verður fylgt fram að
brottför.
í lokin var Paul Rask spurður
hvort hann óttaðist ekki að kastist
í kekki milli þeirra ferðafélaga, að
ferðast saman í nánu samneyti í
eitt og hálft ár?
„Ég hef ekki trú á því af því
það er okkur báðum mikið kapps-
mál að komast til Kína. Sláist eitt-
hvað upp á vinskapinn getur annar
okkar þá bara riðið örlítið á undan
þar til við jöfnum okkur. Þar fyrir
utan hittum við væntanlega fjölda
manns í ferðinni sem gefur okkur
tækifæri á að hvíla okkur hvor á
öðrum,“ segir Paul og með þeim
orðum var hann svo að segja rok-
inn á fjall með Land- og Holtmönn-
um á Landmannaafrétt en þetta
er í annað sinn sem hann heiðrar
þá með nærveru sinni.
niðurgreiðslum. „Hefði þessi leið
verið farin hefði ekki þurft að fara
skattahækkunarleiðina, né að ráð-
ast á verlferðarkerfi, sem jafn-
aðarmenn hafa byggt upp á und-
angengum áratugum. FUJ í
Reylyavík krefst þess af þing-
mönnum og ráðherrum Alþýðu-
flokksins að framfylgja boðaðri
stefnu sinni í landbúnaðarmálum
og bæta þannig kjör almennings
eins og lofað var fyrir kosningar,“
segir i ályktuninni.
■ ÁHftlPA- RÍKT g\
ESTER Q-vitomin
med calclum Vitamin- og mineralpræparat c~
VÍTAMÍN MED KALKl
BIO-SELEN UMB.SÍMI: 76610
Gustavsberg
Veljið aðeins það besta
— veljið heildarlausn
frá Gustavsberg
í baðherbergið
uJ Gustavsberq
Fæstíhelstu
Varði doktorsrit-
gerð í stærðfræði
GÍSLI Másson varði doktorsrit-
gerð í stærðfræði við Massac-
husetts Institute of Technology
í Cambridge í Bandaríkjunum
17. maí síðastliðinn. Hann er
fæddur 18. september 1961,
lauk stúdentsprófi frá MR 1981
og BS-prófi í stærðfræði frá
Háskóla íslands 1985.
Doktorsritgerðin nefnist „Rings
of Differential Opérators and Étale
Homomorphisms". í ritgerðinni eru
diffurvirkjabaugar á algebrulegum
víðernum með sérstöðupunktum
kannaðir og til þess einkum notað-
ar svokallaðar étale-mótanir. Sýnt
er fram á hvemig íðul í diffur-
virkjabaugum tengjast étale-þakn-
ingum víðerna og eru þær niður-
stöður m.a. notaðar til að alhæfa
setningar sem áður voru einungis
þekktar í einni vídd.
Gísli Másson er kvæntur Freyju
Hreinsdóttur stærðfræðingi og
eiga þau einn son, Nökkva. Þau
verða búsett í Svíþjóð næstu árin.
Dr. Gísli Másson.
- Gísli er sonur hjónanna Sigrúnar
Gísladóttur og Jóhanns Más Mar-
íussonar sem búsett eru í Reykja-
vík.
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
I SÍMI: 62 84 50
Q'tóan daginn!
SAMEINAÐ KEX!
Nýlega keypti breska
fyrirtækið United Biscuits, sem
m.a. framleiðir Mc'Vities-kex, dönsku
kexverksmiðjuna Oxford. í framhaldi af
því verða breytingar á sölumálum Oxford á
íslandi; Bergdal hf. heildverslun, Skútuvogi 12,
tekur við e i n k a s ö 1 u u m b o ð i og dreifingu Oxford-
kexins frá og með 1. október að telja.
í tilefni af því bjóðum við söiuaðila Oxford á
íslandi velkomna til viðskipta við Bergdal hf.,
fullvissir um að sameiningin muni verða
þeim til hagræðis við innkaupin.
Einkasölu- og dre i f i ngaraði 1 i Oxford og
McVitie's á íslandi:
BERGDAL HF.
Skútuvogi 12, sími 91-680888, f a X' 9 1- 6 807 4 7