Morgunblaðið - 01.10.1991, Page 56

Morgunblaðið - 01.10.1991, Page 56
Fjármálaráðuneytið: Utboð á olíuviðskiptum ríkisins í undirbúningi •FORVEXTIR ríkisvíxla lækka í dag um 0,5-1,5% þannig að vextir víxla til 45-60 daga verða 15,5% og 60-120 daga 15%. Þetta jafn- gildir ársávöxtun frá 16,41-17%. í frétt frá Lánasýslu ríkisins segir að forvextir ríkisvíxla hafi síðast lækkað 25. september um 1,5% þannig að vaxtalækkunin sé samtals orðin 2-3%. Lækkunin sé tilkomin vegna minnkandi verðbólgu og lækk- unar á útlánsvöxtum banka og spari- sjóða. Raunvextir miðað við verð- fjkólguhorfur séu hins vegar enn háir - og hljóti að vera það meðan fjárþörf ríkissjóðs sé jafnmikil og nú. Þá segir: „Vaxtalækkunin á ríkisvíxlum er nokkru meiri en lækk- un útlánsvaxta bankanna en hún er ákveðin í trausti þess að frekari lækkanir fylgi í kjölfarið." Fjármálaráðuneytið áformar að bjóða út kaup á olíuvörum fyrir ríkisstofnanir og fyrirtæki og hefur Innkaupastofnun ríkis- ins verið falið að vinna gögn til útboðs sem á að geta fara fram fljótlega. Að sögn Magnúsar Péturssonar ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu tekur út- boðið til fjölmargra aðila á borð við ríkisverksmiðjur, Hafrann- sóknastofnun og Landhelgis- gæsluna. Um er að ræða m.a. kaup á bensíni fyrir um 1.000 ríkisbifreiðir, 5-6 millj. lítra af gasolíu og 12-14 þúsund tonn af svartolíu. Sagði Magnús að þessi olíukaup ríkisins hlypu á nokkur hundruð millj. kr. á hveiju ári. Magnús sagði að ríkið hefði reynt útboð árið 1987 en olíufélög- in hefðu svarað því sameiginlega þar sem fram kom að félögin gætu hvorki né mættu veita stofn- unum ríkisins sérstakan afslátt og sæju sér því ekki fært að senda ríkinu tilboð í olíukaupin. „Með tilliti til þéss að olíuvið- skiptin verða gefín fijáls um ára- mótin finnst okkur sjálfsagt að olíufélögin fái tækifæri til að keppa í þessum vörum,“ sagði Magnús. Hann sagðist vænta þess að ríkið næði fram verulegum sparnaði í þessum viðskiptum ef samkeppni yrði á milli félaganna um þau. Ríkisfyrirtækin hafa ekki haft með sér samræmd olíuinnkaup en hafa samið við olíufélögin hvert fyrir sig. „Við teljum að það sé full ástæða til að taka þetta upp núna og það er í anda þeirrar stefnu sem rekin er að félögin keppi um þessi viðskipti,“ sagði Magnús. J Tilboði Granda í Hraðfrystihús Stokkseyrar hafnað: Grandi bauð 78 milljónir í 77% hlut Hlutafjársjóðs BYGGÐASTOFNUN hefur hafnað tilboði Granda hf. í 77% eignar- hlut Hlutafjársjóðs í Hraðfrystihúsi Stokkseyrar. I tilboði Granda fólst að 78 milljónir króna væru borgaðar fyrir eignarhlutinn, áhvílandi skuldir að upphæð 350 milljónir króna væru yfirteknar og öðrum hluthöfum boðið upp á að þeirra eign væri keypt á sama verði og eign Hlutafjársjóðs. Alls má því segja að tilboð Granda í heild hafi numið 454 milljónum króna. Guðmundur Malmquist forstjóri Granda hf. segir að í sjálfu sér Byggðastofnunar segir ástæður þess að tilboði Granda var hafnað einkum þær að uppgjör reikinga fyrir fyrstu átta mánuði þessa árs hefðu ekki legið fyrir og því staða hraðfrystihússins óljós, nauða- samningum við lánardrottna ekki lokið og heimamenn aftur farnir af stað með athugun á sameiningu fyrirtækisins við Meitilinn og Gletting sem uppúr slitnaði fyrr í sumar. Brynjólfur Bjarnason forstjóri geti hann ekki tjáð sig um þessa niðurstöðu Byggðastofnunar að öðru leyti en því að þar hafi fag- leg vinnubrögð væntanlega ráðið ferðinni. „Stjórn Byggðastofn- unnar telur væntanlega að hún geti fengið betra verð fyrir eignar- hlut Hiutafjársjóðs og hefur vænt- anlega tekið tillit til áforma okkar um atvinnu á Stokkseyri sem til- boð okkar fól í sér,“ segir Brynj- ólfur. í máli hans kemur einnig fram að Grandi hafi sett þak á yfirtöku skulda við 350 milljónir króna þar sem ekkert uppgjör hafi legið fyrir hjá hraðfrystihús- inu á þessu ári, hið síðasta lá fyr- ir 31. desember 1990. „Hvað okk- ur varðar er þetta nú afgreitt mál,“ segir Brynjólfur. Ákvörðun Byggðastofnunar var tekin á fundi stjórnar í gær- morgun og var þetta eina málið sem afgreitt var á þeim fundi en öðrum málum frestað fram í næstu viku. Stefán Runólfsson framkvæmdastjóri Hraðfrysti- húss Stokkseyrar segir að nauða- samningum hafi formlega lokið í gærdag og að uppgjör fyrir fyrstu átta mánuði þessa árs muni liggja fyrir í þessari viku þar sem það beið niðurstöðu úr nauðasamning- Sigfús Jónsson stjórnarformað- ur Hraðfrystihúss Stokkseyrar segir að sameiningarviðræður frystihúsa á svæðinu séu í bið- stöðu meðan beðið er ákvarðana um framtíð Meitilsins. Hraðfrysti- hús Stokkseyrar og Glettingur eru tilbúin til að sameinast og hafa átt í viðræðum um það og Bakka- fískur á Eyrarbakka hefur lýst áhuga á að koma inn í það dæmi. „En það er ekkert hægt að halda áfram með sameiningaviðræður fyrr en framtíð Meitilisins liggur fyrir,“ segir Sigfús. Hvað varðar stöðu Hraðftystihúss Stokkseyrar segir hann að nettóskuldir fyrir- tækisins séu nú um 350 milljónir króna þannig að það standi nokk- uð vel miðað við önnur frystihús á svæðinu. Tveir slösuð- ust í bílveltu Selfossi. TVEIR ungir piltar slösuðust er bíll með fimm unglingum valt á V Biskupstungnabraut undir Ing- ólfsfjalli aðfaranótt sunnudags. Unga fólkið var að koma af dans- leik í Aratungu. Ökumaðurinn sofn- aði undir stýri og bifreiðin fór útaf veginum og valt niður. nokkuð háan vegkant þar sem hún stöðvaðist á hvolfi. Ökumaðurinn og einn þriggja í aftursæti köstuðust út og meiddust mest. Þeir voru hvorugir í bílbelti. Annar höfuðkúpubrotnaði en hinn hlaut höfuðhögg og skarst í andliti. Hin þrjú hlutu minniháttar meiðsl. — Sig. Jóns. Féll af bifhjóli ÖKUMAÐUR bifhjóls missti vald á hjóli sínu á miklum hraða á Reykjanesbraut við Hnoðraholts- veg í Garðabæ í gærkvöldi. Hann mun hafa sloppið við bein- brot og alvarleg meiðsli en hjólið er mikið skemmt, að sögn lögreglu, sem mældi hjól piltsins á 108 km. hraða skömmu fyrir óhappið. Fundarsalur efri deildar verður setustofa Morgunblaðið/Þorkell Alþingi kemur saman í dag og mun eftirleiðis starfá í einni málstofu. Að undanförnu hefur verið unnið að breytingum á húsnæði þingsins. I fundarsal efri deildar verður setustofa þingmanna. Vel var vandað til verka þegar þinghúsið var byggt. Undir nokkrum lögum af gólfefn- um hefur komið í ljós gólf úr kjörviði sem nú hefur verið lagfært. Sjá frétt á bls. 4. Vextir ríkis víxla lækka um 0,5-1,5%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.