Morgunblaðið - 19.11.1991, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1991
800 tonn af síld í einu kasti
SVO virðist sem síldin og loðnan séu loks farnar að gefa sig. Há-
berg GK fékk um 800 tonn í einu kasti milli Hrollaugseyja og Tví-
skerja síðastliðið sunnudagskvöld. Þá urðu bátar varir við loðnu á
sama tíma austan við Kolbeinsey og fékk Súlan EA um 200 tonn.
Þorsteinn Símonarson, stýrimað-
ur á Hábergi GK, sagði að 800 tonn
hefðu fengist í einu kasti og hefðu
þeir fyllt skipið, eða 600 tonn, en
síðan hefðu aðrir bátar notið góðs
af. Er aflaverðmætið rúmar 3 millj-
Bjöm sagði að bærinn hefði einnig
gert upp fjármál veitnanna við ríkið.
Rekstur bæjarins hefði auk þess
gengið vel á árinu. „Síðustu tvö árin
hefur ekki verið byijað á neinum
nýjum framkvæmdum og því er af-
koman ágæt á þessu ári. Bærinn
hefur 40-50 millj. á ári til fram-
ónir króna. „Síldin var þama milli
Hrollaugseyja og Tvískeija,” sagði
hann. „Þetta er sæmileg síld. Það
fara um 100 tonn í flökun og það
sem eftir er í bræðslu. Vonandi er
eitthvað að glæðast. Við sáum mik-
kvæmda,” sagði hann.
Bæjarstjóm Siglufjarðar hefur
samþykkt þriggja ára framkvæmda-
og fjárhagsáætlun. Þá hefur hún
falið bæjarstjóra að selja hlut bæjar-
ins í Þormóði ramma hf. sem er um
2 millj. kr. að nafnvirði.
ið af síld og töluvert er um lóðriing-
ar en hún gaf sig ekki þarna í
Hornarfjarðardjúpinu. Það sem
kom upp var smásíld, en útlitið er
bjart ef þessar lóðningar koma upp
að landinu. Enn sem komið er ligg-
ur hún djúpt og gefur sig helst í
myrkri.” Á sömu slóðum fengu tvö
önnur skip þokkalegt kast, Keflvík-
ingur KE og Sighvatur Bjarnason
VE.
Bjarni Bjarnason, skipsstjóri á
loðnuskipinu Súlunni EA, sagði að
loðnan hefði gert vart við sig og
hefðu þeir fengið um 200 tonn aust-
ur af Kolbeinsey. Þar eru þrír aðrir
bátar og hafa þeir allir fengið ein-
hvern afla. „Hér er blíðuveður og
við bíðum eftir kvöldinu,” sagði
hann. „Við náum ekki í hana þegar
bjart er, hún liggur svo djúpt en
kemur upp í myrkri. Þetta er mjög
stór og falleg loðna sem við höfum
fengið. Þetta er aðeins að skána
og auðvitað verðum við brosmildari
þegar við sjáum eitthvað af loðnu
eftir að vera búnir að eyða ómældri
vinnu við að reyna að finna þessi
kvikindi. Við erum búnir að rangla
hér um sjóinn í hálfan mánuð núna
og var farið að taka á taugarnar.”
Siglufjarðarbær:
Sala Rafveitunnar bætti
skuldastöðuna um 450 millj.
BJORN Valdimarsson, bæjarstjóri á Siglufirði, segir að meginskýring-
in á að hreinar skuldir bæjarsjóðs og fyrirtækja bæjarins hafi lækkað
um 575 milljónir króna á árinu sé sala bæjarins á Rafveitu Siglufjarð-
ar til Rafmagnsvcitna ríkisins í apríl eða sem næmi um 450 millj. kr.
VEÐUR
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sighvatur Bjarnason VE var meðal þeirra fyrstu til að landa síld í
Vestmannaeyjum í gær, eftir að síldin gaf sig milli Hrollaugseyja
og Tvískerja.
ÍDAGkl. 12.00
Heimild: Vefturstofa islands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 I gær)
VEÐURHORFUR íDAG, 18. NÓVEMBER
YFIRLIT: Yfir Bretlandseyjum er víðáttumikil 994 mb lægð á leið
suðaustur og 1.029 mb hæðarhryggur yfir íslandi þokast austur.
Yfir Nýfundnalandi er allmikil 989 mb lægð á leið norðaustur.
SPÁ: Suðvestan- og vestanlands þykknar smám saman upp með
vaxandi austan- og suðaustanátt, búast má við smáéljum á annesj-
um framan af degi en snjómuggu eða slyddu undir kvöld. Norðan-
lands og austan verður fremur hæg suðvestlæg átt og bjart veður
mestan hluta dagsins, einnig á Suðausturlandi framan af degi en
þar þykknar upp með suðaustanátt síðdegis. Smám saman dregur
úr frosti, fyrst vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFU.R Á MIÐVIKUDAG: Austlæg átt og síðar norðaustlæg.
Úrkoma víða um land, líklega snjókoma og frost um landið norðan-
vert en slydda eða rigning og frostlaust í bili sunnanlands.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Vaxandi norðan- og norðaustanátt og
kólnandi, frost um allt land þegar líður á daginn. Éljagangur um
landið norðanvert en styttir upp sunnanlands.
Svarsfmi Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík hiti +9 ^5 veður skýjað skýjað
Bergen 2 skýjað
Helsinkl 0 snjókoma
Kaupmannahöfn 4 alskýjað
Narssarssuaq 2 skýjað
Nuuk +4 logn og heiðskfrt
Ósló +11 lágþokublettir
Stokkhólmur 2 rigning
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 19 heiðskírt
Amsterdam 7 súid á sið. klst.
Barcelona 17 skýjað
Berlfn 5 skýjað
Chicago vantar
Feneyjar 11 hálfskýjað
Frankfurt 5 alskýjað
Glasgow 6 skýjað
Hamborg 3 skýjað
London 13 skýjað
Los Angeles 12 léttskýjað
Lúxemborg 6 súld
Madríd 14 þokumóöa
Malaga 21 iéttskýjað
Mallorca 20 léttskýjað
Montreal +5 léttskýjað
NewYork 3 heiðskirt
Orlando vantar
Paris 12 skýjað
Madeira 20 skýjað
Róm 15 léttskýjað
Vin 7 léttskýjað
Washington 0 hálfskýjað
Winnipeg 1 súld
Ríkisskipum boðin
lóð við Sundahöfn
Ekki reiðubúnir til nýrra fjárfestinga,
segir Halldór Blöndal samgönguráðherra
SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ hefur átt viðræður við starfsmenn Rikis-
skipa, Eimskips, Samskipa og fleiri aðila sem hafa lýst áhuga á kaup-
um á Skipaútgerð rikisins. Skipaútgerðin missir á næsta ári skemmu
sína á Grófarbryggju ef nýtt skipulag vegna Geirsgötu verður sam-
þykkt og sagði Halldór að þar með ykist kostnaður ríkisins enn af
skipaútgerðinni. Ríkisstjórnin sé ekki tilbúin til að standa undir honum.
„Á næsta ári stöndum við frammi
fyrir því að missa vöruskemmuna
og því fylgja miklar og nýjar fjárfest-
ingum ef þessu á að halda í sama
horfi og við erum ekki reiðubúnir
til þess. Reykjavíkurborg hefur boð-
ið fram aðra lóð inn við Sundahöfn
í staðinn,” sagði Halldór.
„Ráðuneytið er opið fýrir öllum
hugmyndum. Starfsmennimir óska
eftir að stofna hlutafélag og þeir eru
kunnugastir fyrirtækinu. Þeirra mál
er samt ekki komið það langt að
hægt sé að tala um það öðruvísi en
þannig að ég sé opinn fyrir öllum
slíkum hugmyndum,” sagði Halldór.
Hann sagði ljóst að ekki væri
Þjóðviljinn:
Sótt um leng-
ingu greiðslu-
stöðvunar
GREIÐSLUSTÖÐVUN Þjóðvilj-
ans, sem hefur staðið yfir í þrjá
mánuði, rennur út í dag en for-
ráðamenn útgáfunnar hafa sótt
um að fá hana framlengda. Að
sögn Árna Þ. Sigurðssonar, rit-
stjórnarfulltrúa Þjóðviljans, _ er
úrskurðar að vænta í dag. Árni
sagði að ef greiðslustöðvun feng-
ist ekki framlengd yrði reynt að
semja við lánardrottna um áfram-
haldandi útgáfu þar til séð verður
hvort tekst að stofna nýtt dagblað
en eigendur Þjóðviljans eru meðal
aðstandenda Nýmælis, sem vinnur
að útgáfu nýs blaðs á fyrri hluta
næsta árs.
Áskrifendasöfnun blaðsins var
stöðvuð þegar þegar Nýmæli var
stofnað en þá höfðu safnast um
1.500 nýir áskrifendur að Þjóðvilj-
anum. Árni sagðist ekki eiga von á
að áskrifendasöfnuninni yrði haldið
áfram. Hann sagði að reynt yrði að
tryggja útgáfu Þjóðviljans fram að
áramótum. „Ef útgáfa nýs blaðs
dregst fram í febrúar eða mars má
búast við að við reynum að þrauka
eitthvað lengur,” sagði hann._
hægt að halda áfram þessum halla-
rekstri eins og staðan væri í þjóðfé-
laginu en á hinn bóginn væri ákveð-
in þjónustuþörf sem yrði að halda
uppi með strandsiglingum. „Halla-
reksturinn er rúmlega 300 milljónir
kr. á ári miðað við tíu ár. Það sem
ég hef í huga er að tryggja þjónustu
með ströndinni, en ríkið stendur
auðvitað ekki undir Færeyjasigling-
unum,” sagði Halldór.
Hann sagði að ef einhveijir hefðu
hug á að taka við rekstri Ríkisskipa
yrðu þeir að sýna rekstraráætlun og
hvernig þeir hugsi sér að standa að
rekstrinum.
Magnús Ingi Halldórsson.
Maðurinn sem
lést á Breiða- ,
dalsheiði
MAÐURINN sem lést við ’störf í
sín á Breiðadalsheiði síðastliðinn
fimmtudag hét Magnús Ingi Hall-
dórsson.
Magnús var fæddur 1955 og var
til heimilis að Brautarholti 12,
Isafirði. Hann lætur eftir sig eigin-
lconu og þtjú bðm.