Morgunblaðið - 29.11.1991, Page 17

Morgunblaðið - 29.11.1991, Page 17
ÍSLENSKA AUCLÝSINCASTOFAN HF. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991 17 F SVIDHQRF rnitt LÍFSVIDHORF mitt Nöfn þeirra og andlit þekkja allir. Þau eru þekkt og áhrifamikil. Þó vitum við fátt um þau og þann jarðveg sem þau eru sprottin úr, þá lífsreynslu sem sett hefur mark sitt á þau. í bókinni Lífsviðhorf mitt segja átta þekktir íslendingar frá reynslu sinni, skoðunum og áhrifavöldum; staldra við, líta um öxl og rekja sporin sem þeir hafa stigið og arfinn sem þeir hlutu í veganesti. í bókinni skrifar Guðjón Arngrímsson um Guðiaug Þorvaldsson; Jóhanna Kiistjóns- dóttir um Guðrúnu Agnarsdóttur; Jónína Michaelsdóttir um Hörð Sigurgestsson; Sigmundur Ernir Rúnarsson um Jónas Kristjánsson; Helgi Már Arthursson um Markús Örn Antonsson; Atli Magnússon um Steingrím Hermannsson; Einar Kára- son um Thor Vilhjálmsson; og Illugi Jökulsson um Ögmund Jónasson. Með sverðið í annarri hendi og plógiiui í hinni Jónas frá Hriílu var dáður og hataður, dýrkaður og dæmdur, brautryðjandi og afturhaldsmað- ur, stór í sniðum og ógleyman- legur öllum sem honum kynnt- ust; maður sem markaði dýpri spor í sögu þjóðar sinnar en flestir samtíðarmenn. Hér rekur Guðjón FYiðriksson mótunarsögu Jónasar á lifandi og gagnrýninn hátt, segir frá þroskaárum Jónasar, áhrifavöldum í lífi hans og afskiptum hans af stjórnmálum og þjóðmálum á umbrotatímum og sýnir hvernig Jónas þjálfaðist í þeirri list að stýra samherjum og andstæðing- um á taílborði mannlífsins. Bókin varpar leiftr- andi ljósi á líf Jónasar frá Hriílu, hæfileika hans og bresti. Hér er dregin upp sönn mynd af umdeildum athafnamanni, sem ætíð barðist af eldmóði f'yrir því sem honum þótti horfa til framfara, en sást ekki alltaf fýrir. IÐUNN RINASFRAIIRIIUl

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.