Morgunblaðið - 29.11.1991, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 29.11.1991, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991 31 Landslagið 1991: Sönglagakepgni Is- lands á Hótel Islandi ÚT ER komin hjá Máli og menn- ingu skáldsagan íslenski draum- urinn eftir Guðmund Andra Thorsson. í kynningu útgefanda segir: „Höfundur kveður margar persónur til sögunnar sem gerist á mörgum sviðum og ólíkum tímum. Bók hans er þó öðru fremur saga um vináttu, ást og svik, allt skoðað í tengslum við hugmyndir íslendinga um sjálfa sig, íslenska drauminn. Er íslenski draumurinn frægð, frami og skjót- fenginn auður eða vinna, strit og þegnskylda í þágu fóstuijarðarinn- ar? Er það sjálfselska í öðru veldi eða metnaður fyrir hönd þjóðarinn- ar? Að sýna hugsjón sína með hvít- um kolli 17. júní undir rauðum fána í Keflavíkurgöngu eða í hlaupagalla í Reykjavíkurmaraþoni?” íslenski draumurinn er 200 bls. Ingibjörg Eyþórsdóttir gerði kápu, en bókin var unnin í Prentsmiðjunni Öddáhf............... Guðmundur Andri Thorsson Skáldsaga eftir Guo- mund Andra Thorsson ÍSLANDSDÆTUR Svipmyndir úr lífi íslenskra kvenna eftir Símon Jón Jóhannsson og Ragnhildi Vigfúsdóttur Glæsileg bók, prýdd 200 ljósmyndum, sem bregða upp lifandi svipmyndum úr lífi íslenskra kvenna í eina öld: Tímamót, helstu skemmtanir, gleðistundir, þjóðtrú og kerlirígabækur. Hvernig lifðu og hugsuðu mæður okkar, ömmur. og langömmur? Með 100 ljósmyndum af litbrigðum íslenska hestsins. Kári Amórsson, formaður L.H. ritar formála.Vönduð og fróðleg bók um hesta og hestamennsku og uppruna og eiginleika íslenska hestsins. Leiðbeint er um aldursgreiningu hrossa, gangtegundir, ásetu, taumhald, jámingar, reiðtygi, beislabúnað, hirðingu, fóðrun, sjúkdóma og meiðsli. Auk teiknaðra skýringamynda, er öllum helstu litbrigðum íslenska hestsins lýst með 100 ljósmyndum. NÝ ALÍSLENSK FYNDNI Magnús Óskarsson borgarlögmaður tók saman Nú mun þjóðin reka upp skellihlátur og skemmta sér vel yftr hinni nýju bók Magnúsar, rétt eins og hún gerði fyrir nokkrum árurn er fyrri bók hans um sama ethi kom út, en hún varð strax met- sölubók og er nú ófáanleg. Verð. 1.250.- ORN OG ^ ORLYGUR. Síbumúli 11- 1D8 Reykjavík - Sími: 684866 ÞJÓÐLÍF OG ÞJÓÐHÆTTIR eftir Guðmund L. Friðfinnsson, Egilsá Þór Magnússon þjóðminjavörður ritar fomtála. Höfundur er glöggskyggn á fólk og starfshætti fyrri tíðar og dregur upp skýra og áhrifamikla ntynd af þjóðlífi sem nútíminn hefur leyst af hólmi. Bókin er prýdd 300 ljósmyndum sem gera efnið ljóst og lifandi. Verð. 8.900.- HANDBÓK ÍSLENSKRA HESTAMANNA eftir Albert Jóhannsson í Skógum Eggert Norðdahl FLUGSAGA ÍSLANDS í STRÍÐI OG FRIÐI 1919 - 1945 Njörður Snæhólm ritar formála. Sagt frá fmm- herjum flugs á íslandi og í fyrsta sinni rakin saga þerflugs hér á landi og yfir hafinu í kring á ámm síðari heimsstyrjaldarinnar. LANDSLAGIÐ 1991, sönglagakeppni íslands, verður haldin á Hótel íslandi í kvöld, föstudagskvöld, en þá keppa tíu lög um titilinn Lands- lagið 1991. Keppnin verður í beinni útsendingu á Rás 2 og í Sjónvarpi. Landslagskeppnin er nú haldin í þriðja sinn, en í fyrsta sinn í sam- vinnu keppnishaldara og Sjónvarps- ins. Valin verða í keppninni athygl- isverðasta lagið, besta útsetningin, besti textinn, besti flytjandinn og landslagið 1991. Eins og áður sagði komust tíu lög í úrslit, lögin Dans- aðu við mig, eftir Þórð Guðmunds- son, Hafþór Guðmundsson og Aðal- stein Ásberg Sigurðsson, sem Eld- fuglinn flytur, Enginn eins og þú, eftir Hörð G. Ólafsson og Jónas Friðrik, sem Herramenn, Ruth Reg- inalds og Kristján Gíslason flytja, Ég aldrei þorði eftir Önnu Mjöll Ólafsdóttur, sem Anna Mjöll flytur sjálf, Ég vil dufla og daðra, eftir Ingva Þór Kormáksson og Pétur Eggerz, sem Edda Borg flytur, Hlustaðu, eftir Inga Gunnar Jó- hannson, sem Ruth Reginalds flyt- ur, Reykjavík eftir Ágúst Ragnars- son, sem Ágúst flytur sjálfur, Sigr- ún ríka, eftir Pálma J. Sigurhjartar- son, sem íslandsvinir og Kári Waage flytja, Svo lengi, eftir Ingva Þór Kormáksson og Pétur Eggerz, sem Sigríður Guðnadóttir flytur, Væng- brotin ást eftir Friðrik Karlsson, Birgi J. Birgisson og Eirík Hauks- son, sem Þúsund andlit og Sigrún Eva Ármannsdóttir flytja, og_ Það er ekki hægt annað, eftir Ómar Ragnarsson, sem Flautaþyrlarnir, Ómar, Þuríður Sigurðardóttir og fleiri flytja. Öll hafa lögin komið út á geisla- disk og kassettu, sem ps: músík gefur út, en aukalög eru sigurlögin frá 1989 og 1990. Til viðbótar við hina eiginlegu keppni koma fram ýmsir listamenn, þar á meðal Móeiður Júníusdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson, Eyjólfur Kristjánsson og Björn Jörundur Friðbjörnsson. Kynnar verða Magn- ús Einarsson, Margrét Blöndal og Sigurður Pétur Harðarson. Flytjendur og aðstandendur Landslagskeppninnar. Morgunblaðið/RAX Þú kemur ekki ab tómum kofunum... NÝR DACUR ... SÍA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.