Morgunblaðið - 29.11.1991, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1991
33
HLJOÐFÆRAHUS
96 's 600935
L M U ti
Kína:
Heimilt að
kæra emb-
ættismenn
Peking. Reuter.
UM þessar mundir rignir kærun-
um yfir kínverska embættismenn
en með nýjum lögum leyfist al-
menningi að leita úrskurðar dóm-
stóla uni hann ekki úrskurðum
þeirra. Sagði frá þessu í gær í
Kínverska dagblaðinu.
Lög þessa efnis tóku gildi í októb-
er fyrir ári og síðan hafa dómstólam-
ir haft í nógu að snúast. Á síðasta
ári voru kærurnar 18.300 en eru
13.500 það, sem af er þessu. Hafa
dómar gengið gegn embættismönn-
um í 2.800 málum en flest varða þau
framferði lögreglunnar eða skipu-
lagsyfirvöld. Sagði dagblaðið, að
kærum myndi vafalaust fjölga mikið
þegar fólk áttaði sig á þessum rétt-
indum sínum.
-----» ♦ ♦----
Kokou Koffígoh
steypt í Togo
Lome. Reuter.
HERMENN steyptu bráðabirgða-
sljórn Josephs Kokou Koffigoh,
forsætisráðherra í Vestur-Afr-
íkuríkinu Togo, í mannskæðu
valdaráni í gær og boðuðu bann
við starfsemi stjórnmálaflokka.
Talið var að hermennirnir væru
á bandi Gnassingbe Eyadema, sem
var einráður í landinu í 20 ár þar
til hann var gerður valdalaus að
mestu á þjóðfundi, sem efnt var til
í ágúst. Stjórn Koffigoh tók þá við
völdunum til bráðabirgða, eða þar
til efnt yrði til fijálsra kosninga.
Áður en hermennirnir létu tii skarar
skríða hafði bráðabirgðaþing lands-
ins bannað flokk Eyadema.
Morgunblaðið/Anna Bjarnadóttir
Karl Johannes Nepomuk Joseph
Friedrich Antonius Vratislav
Menaso 12. fursti frá Schwarzen-
berg, forsetaritari Tékkóslóvak-
íu.
1947. Fjölskyldan flutti til Austur-
ríkis í desember 1948 þegar Karl
var 11 ára. Hann erfði föðurbróður
sinn sem átti miklar eignir í Austur-
ríki og er milljónamæringur. Hann
var formaður Helsinki-mann-
réttindasamtakanna og barðist fyrir
réttindum Vaclavs Havels og ann-
arra andófsmanna á síðasta áratug.
Havel réð hann sem forsetaritara
og fól honum að skipuleggja og reka
forsetaskrifstofuna fyrir sig eftir að
hann varð forseti.
Schwarzenberg líkti efnahags-
ástandinu í Tékkóslóvakíu við
ástandið í Þýskalandi eftir stríð.
„Nema hvað Marshalláætlunin kom
Þjóðveijum til hjálpar, þekking og
mannafli voru fyrir hendi og verk-
smiðjurnar voru í rúst. Við stöndum
hins vegar frammi fyrir fjármagnss-
korti, mannafla sem hefur orðið fyr-
ir kommúnistaáróðri í fimmtíu ár -
þeir sem tóku síðast stúdentspróf
og hlutu menntun sem var ekki lituð
hugmyndafræði í Tékkóslóvakíu eru
komnir yfir sjötugt - og verksiniðj-
urnar standa en eru gamaldags og
löngu úr sér gengnar.” Hann sagði
að lífsgæðin í Tékkóslóvakíu fyrir
fimmtíu árum hefðu verið svipuð og
í Belgíu og Sviss á þeim tíma. „Við
erum nú eins og vanþróað land. Það
mun taka okkur 25 ár að ná Belgíu
í lífsgæðum,” sagði hann.
Forsetaritarinn spáði að Tékkó-
slóvakía yrði áfram eitt ríki og vildi
ekki gera of mikið úr sjálfstæðis-
hreyfingunni í Slóvakíu. Skoðarna-
kannanir sýna að aðeins 18% þjóð-
arinnar vilja að sambandsríkið verði
leyst upp. „Stjórnmálamennirnir
draga viðræður um nýja stjórnarskrá
og skiptingu valdsins á langinn til
að komast hjá umræðum og óvinsæl-
um ákvörðunum um efnahagsvand-
ann,” sagði hann. „Sumir einstakl-
ingar vekja einnig athygli á sér og
afla sér vinsælda með harðri þjóð-
ræknistefnu. Margir þeirra eru fyrr-
verandi kommúnistar og starfsmenn
öryggislögreglunnar. Það er kannski
skiljanlegt. Þessir menn þurfa að
finna sér eitthvað að gera.”
Schwarzenberg sagði að Evrópa
væri nú á tímum eins og lítið þorp
og það gengi ekki lengur að íbúar
eins hluta álfunnar lokuðu augunum
fyrir erfiðleikum íbúa annars hluta
hennar. „Ef skipið er ekki rétt hlað-
ið þá sekkur það,” sagði hann.
HLJÓMBORÐ:
Vinsælu KAWAI hljómboröin
meö óendanlegum möguleikum,
s.s. trommuheila, hljómagangi,
upptökuminni o.s.frv.
Verö frá kr. 5900,-
TROMMUSETT:
Vinsæl trommusett á borð við
Remo og Sonor.
Verö frá kr. 69000,-
Einnig úrval fylgihluta.
SENDUM f
PÓSTKRÖFU
KASSAGfTARAR:
Hágæöa Rodrigues og
Washburn kassagftarar og
mandolín. Margar stærðir og
gerðir við allra hæfi.
Verð frá kr. 13900,-
EFFEKTATÆKI:
Úrval D.O.D. effektatækja
frákr.3900,-
MAGNARAR:
Magnaramir sem kröfuhörðustu
hljómsveitimar nota. M.a.
Peavey og Fender.
Verð frá kr 14900,-
Lockerbie-málið:
Líbýiunenn neita að fram-
selja leyniþjónustumenn
RAFGfTARAR:
Allir helstu gftaramir: M.a.
Fender, Washburn og Blade.
Verð frá kr. 14900,-
TAKTMÆLAR:
Hinir viðurkenndu þýsku
Wittner taktmælar.
Verð frá kr. 2600,-
Washington. Reuter.
LÍBÝUMENN höfnuðu í gær þeirri kröfu stjórna Bandaríkjanna
og Bretlands, sem sett var fram á miðvikudag að Líbýumenn fram-
seldu tvo leyniþjónustumenn sem sakaðir eru um að hafa komið
sprengju um borð í júmbóþotu Pan Am-flugfélagsins sem sprakk
á flugi yfir bænum Lockerbie í Skotlandi í dessember 1988. Harð-
ar aðgerðir hafa verið boðaðar framselji Líbýumenn ekki mennina
og bendir ýmislegt til að þeir kunni að breyta afstöðu sinni.
Auk framsals leyniþjónustu-
mannanna kröfðust Bretar og
Bandaríkjamenn að Líbýumenn
borguðu fjölskyldum og aðstand-
endum þeirra 270, sem týndu lífi
af völdum sprengingarinnar,
skaðabætur.
Ennfremur kröfðust bandarísk
og bresk stjórnvöld þess að líbýsk
yfirvöld létu í té alla þá vitneskju
Friðarumleitanir í Kambodíu:
Fundað í Tælandi eft-
ir árásina á Sampan
Phnom Penh, Bangkok, Peking. Reuter.
SÁTTANEFND deiluaðila í Kambódíu mun koma saman í Tælandi
í stað Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu, eins og ráðgert hafði
verið. Var þess ákvörðun tekin eftir að ráðist var á Khieu Sampan,
leiðtoga Rauðu khmeranna, skömmu eftir að hann kom til borgarinn-
ar á miðvikudag. Þúsundir andstæðinga gengu nær að honum dauð-
um en hermenn komu Sampan til bjargar og hjálpuðu honum að
komast úr landi. Khieu Sampan er talin bera ábyrgð á ógnarverkum
Rauðu khmeranna eftir að þeir komust til valda 1975.
Hor Sothoun, yfirmaður upplýs-
ingadeildar kambódíska utanríkis-
ráðuneytisins, sagði í gær að líklega
myndi sáttanefndin koma saman í
tælensku borginni Pattaya 3. des-
ember nk. Ekki væri hægt að funda
í Kambódíu þar sem ekki væri
hægt að tryggja öryggi leiðtoga
Rauðu khmeranna í Phnom Penh.
Ellefu embættismenn Rauðu
khmeranna sögðu í Bangkok í gær
að árásin á Sampan væri hluti af
skipulagðri herferð á hendur þeim
en virtust hins vegar ekki vilja gera
of mikið úr atburðinum. „Þetta var
minniháttar atvik,” sagði háttsettur
leiðtogi Rauðu khmeranna, sem
ekki vildi láta nafn sitt koma fram,
við Reuíers-fréttastofuna þegar
hann kom til Bangkok í gær.
Kínversk stjórnvöld sögðust í
gær hafa „þungar áhyggjur” af
árásinni á leiðtoga Rauðu khmer-
anna og lýstu því yfir að ofbeldið
væri bakslag fyrir friðarumleitanir
í landinu. Kínveijar hafa verið með-
al helstu stuðningsmanna Rauðu
khmeranna á alþjóðavettvangi og
segja stjórnarerindrekar í Peking
þá eiga í erfiðleikum með að gera
upp hug sinn hvernig best sé að
bregðast við atvikinu. „Annars veg-
ar vilja þeir ekki styggja vini sína
í Rauðu khmerunum en hins vegar
vilja þeir ekki heldur glata stöðu
sinni sem miðlarar í friðarumleitun-
unum,” sagði einn vestrænn stjórn-
arerindreki.
um atburðinn sem þau byggju yfir.
Aukinheldur að þau lýstu yfir
ábyrgð sinni á gjörðum líbýsku
leyniþjónustumannanna tveggja.
Fyrr í mánuðinum ásökuðu
bandarísk og bresk stjórnvöld
formlega tvo líbýska leyniþjón-
ustumenn, Abdel Baset ali Mo-
hamed al-Megrahi og Al-Amin
Khalifa Fhimah, um að hafa kom-
ið sprengju fyrir í Pan Am-þotunni.
í fréttatilkynningu sem sendi-
nefnd Líbýu hjá Sameinuðu
þjóðunum sendi frá sér í gær seg-
ir að ekki verði gengið að kröfun-
um og að kröfugerð Breta og
Bandaríkjamanna sé hluti af sam-
ræmdri krossferð á hendur Líbýu.
Egypskur embættismaður sagði
hins vegar við Reuters-fréttastof-
una í gær að Muammar Gaddafi,
leiðtogi Líbýu, hefði átt leynilegan
þriggja klukkustunda fund með
Hosni Mubarak, forseta Egypta-
lands, í bænum Bour al-Árab,
skammt frá Alexandríu. Sagði
embættismaðurinn að umræðuefn-
ið hefði verið hvort Líbýumenn
ættu að framselja menninna. Emb-
ættismaðurinn vildi hins vegar
ekkert tjá sig um hver hefði verið
niðurstaða fundarins.
Gaddafi hafði fyrr um daginn
sagt í viðtali við ítölsku sjónvarps-
stöðina Telemontecarlo að ekki
væri hægt að framselja mennina
þar sem engir samningar væru í
gildi milli ríkjanna um slíkt. Hann
sagði ennfremur að ekki hefði ver-
ið hægt að hafa uppi á öðrum
manninum þar sem mjög margir
Líbýumenn bæru sama nafn en
hinum hefði verið sagt að „axla
ábyrgð ef hann væri sá sem við
væri átt”.
Líbýska fréttastofan JANA
skýrði í gær frá því að Ahmed
Taher al Zawi, sem er dómari sem
kannar ásakanimar á hendur Líbý-
umönnunum tveimur, hefði farið
þess á leit við Breta og Bandaríkja-
menn, að þeir létu honum í té þau
gögn þar sem sannanirnar um
aðild þeirra að ódæðisverkinu
koma fram.
Bandarískur embættismaður
sagði við Reuters-fréttastofuna í
gær að verið væri að íhuga ýmsar
aðgerðir gegn Líbýumönnum færu
þeir ekki að kröfum Breta og
Bandaríkjamanna. Meðal þess sem
rætt væri um væru umfangsmiklar
viðskiptaþvinganir, olíusölubann
og jafnvel beiting hervalds.
Talsmaður Roland Dumas,
utanríkisráðherra Frakklands,
sagði í gær að Frakkar myndu
rjúfa tengsl við Líbýu ef sannað
yrði að Líbýumenn hefðu staðið á
bak við Lockerbie-málið.
Gaddafi