Morgunblaðið - 21.12.1991, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Kl. 13.00 Kór Austurbæjarskóla syngur jólalög og jólasveinar koma
með góðgæti fyrir börnin.
Kl. 14.00 Jólasveinninn kemur í kerru sinni með gjafir.
Kl. 15.00 Kór Seiásskóla.
KL. 9-23
,
Kl. 13.30 Jólasveinninn gjöfuli á ferð í kerru sinni með gjafir.
Kl. 14.00 Jólasveinar á ferð og flugi um allan Laugaveg.
Kl. 15.00 Kór Austurbæjarskóla.
Kl. 20.00 Sjö manna blásarasveit flytur jólalög og m.fl.
hin eina sanna jólastemning
Jólasveinninn okkar verður á ferdinni
alla helgina
■vi. 13.00 Bankakór Landsbanka íslands.
Kl. 13.30 Jólasveinninn kemur í kerru sinni með gjafir handa börnunum.
Kl. 14.00 Jólasveinar bregða á leik.
Kl. 16.00 Söngvarar frá Óperusmiðjunni syngja.
Kl. 20.00 7 manna blásarasveit leikur.
Veitingastaðir við
Laugaveg bjóða
upp á notalegheit
leð léttun réttum
og drykkjum
Laugaveyssamtökin hafa ákveðið
eftirfarandi opnunartíma verslana á
Laugaveginum í desember:
Laugardaginn 21.des. kl. 10-22
22. des.
23. des.
24. des.
28. des.
30. des.
kl. 13-18
kl. 9-23
kl. 9-12
kl.10-16
kl. 9-18
Gamlársdagur 31.des. kl. 9-12
Sunnudaginn
Mánudaginn
Þriðjudaginn
Laugardaginn
Mánudaginn
LAUGAVEGS SAMTOKIN
Ilmur af draumi
Bókmenntir
Skaftii Þ. Halldórsson
Gunnar Gunnlaugsson: Ilmur
af draumi. Ljóð. Vaka-Helgafell.
1991.
Ilmur af draumi nefnist nýút-
komin ljóðabók eftir Gunnar Gunn-
laugsson. Þetta er ekki stór bók,
56 síður, og lætur ekki mikið yfir
sér. Flest ljóðin eru fremur stutt
og byggjast á skáldlegum ljóð-
myndum. Kveðskapur Gunnars er
ekki átakamikill en í hæglátum og
oft og tíðum snotrum smámyndum
er þó djúp tilfinning fyrir lífinu og
tilverunni og samúð með því sem
lifir og hrærist.
Efni kvæðanna tengist að jafnaði
tilfinningum eða heimspekilegum
vangaveltum sem túlkaðar eru með
smámyndum. Ástir, sorgir, lífsgát-
an mikla og firringin, þráin og von-
in eru meðai efnisatriða ljóðanna.
Fólk verður Gunnari gjarnan að
yrkisefni. Hann yrkir um drenginn
sem fær fyrstu fótboltaskóna og
ræður ekki við að þræða í þá reim-
amar fyrir spenningi. Annars konar
innsýn inn í kviku sálarlífsins er í
kvæði um ekkju sem heldur aftur
af sorg sinni þegar dánarbúið er
gert upp þar til píanóið er fjarlægt:
En þegar þeir tóku píanóið
byijuðu tungiskinsbláir
Chopinvalsar að streyma
niður kinnamar. (s. 18)
En það eru einnig ljóð sem eru
vangaveltur um tilveruna, hið smáa
í hinu stóra, tímann, elífðina og ljóð-
ið. Skáldið veltir sér ekki upp úr
djúpum heimkspekilegum viðfangs-
efnum heldur kemur athugasemd-
um sínum fyrir í haganlega gerðum
myndum. Þannig verða sandkornin
kulnaðar sólir í myndheimi Gunnars
og Atlantshafið er svitadropi á enni
Guðs:
og lif mitt...
ilmur
af draumi. (s. 29)
Á skáldið sækir líka tregi tímans
sem á stundum er settur fram á
óvenjulegan hátt eins og þegar seg-
ir frá annarrar persónu ljóðsjálfí í
kvæðinu Að eldast, þér, sem gengur
eitt í þröng á skínandi vori:
og heyrir bjöllunni hringt
í skólanum þínum
sem ekki er lengur til. (s. 16)
Gunnar Gunnlaugsson
Öllu flóknari ljóðmynd er af snjó-
göngu þeirri í eilífðarsnjónum þegar
1. p. ljóðsjálf spyr sig hvað um það
verði eftir dauðann og lítur um öxl:
skil blekkinguna
í einni svipan
horfi á snjóinn
hvergi nokkurt spor... (s. 49)
Flest'kvæði Gunnars byggjast á
slíkum smámyndum. Sumar kunna
að vísu að koma kunnuglega fyrir
sjónir. Firringu er lýst sem fugli
sem frosinn er við svell. Ljóðsjálfið
ætlar að þíða vænginn frá svellinu
og beygir sig niður:
Sá þá
að hann var
úr gleri (s. 48)
Þótt minnið sé kunnuglegt er hér
listilega spunnið og svo er um flest
hin smærri ljóð. Hin lengri ljóð bók-
arinnar höfða síður til mín. Þau eru
reyndar örfá. Lengsta ljóðið er
t.a.m. um heitstrengingu manns
sem allt gengur á móti dag einn,
að gera nú betur þann næsta. Þetta
er mun útleitnara ljóð en hin og
síðra að mínu mati auk þess sem
það stingur að vissu marki í stúf
við flest annað í bókinni. Ég hygg
að skáldinu takist betur hin smá-
gerva myndsmíð sem svo mjög set-
ur mark sitt á þessa bók.
Úr kvikmyndinni Barton Fink.
Laugarásbíó:
Þreföld gullverðlaunamynd
PROPAGANDA Films og Laugarásbíó frumsýna á annan í jólum banda-
rísku kvikmyndina Barton Fink eftir bræðurna Joel og Ethan Cohen,
en hún fékk þrenn gullverðlaun á kvikmyndahátíðinni Cannes. Þetta
mun vera í fyrsta sinni í 40 ára sögu hátíðarinnar í Cannes, sem ein
og sama kvikmynd fær öll hclztu verðlaunin, þ.e. bezta kvikmyndin,
bezta leikstjórn og bezta leik í karlhlutverki.
Framleiðsufyrirtækið Propaganda gerð hennar ásamt fleiri aðilum. í
Films í Los Angeles, sem er í eigu tengslum við frumsýninguna hér
Sigurjóns Sighvatssonar, fjármagn- kemur Siguijón Sighvatsson til
aði gerð myndarinnar og stóð að landsins næstkomandi sunnudag.
BARNASKÓR BARNASKÓR
Loðfóðraðir
leðurskór.
Stærðir: 31-36
Verð kr. 4.360.
Vlargar gerðir
af spariskóm
á stráka
og stelpur
smáskór
Skólavörðustíg 6b,
sími 622812.