Morgunblaðið - 21.12.1991, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
19
Að yrkja með litum
o g mála með orðum
Bókmenntir
Skafti Þ. Hallgrímsson
Einar Már Guðmundsson og
Tolli (Þorlákur Kristinsson):
Klettur í hafi. Ljóð og málverk
135 bls.
Almenna bókafélagið. 1991.
Þegar sagnaskáldið Hómer
kemur til Reykjavíkur spyr það
leigubílstjóra hvernig hægt sé að
ímynda sér að í þessu regngráa
tilbreytingarleysi búi söguþjóð.
„Það er einmitt ástæðan," svaraði
bílstjórinn, „aldrei langar mann
jafn mikið til að heyra góða sögu
og þegar droparnir lemja rúðurn-
ar.“ (Bls. 83.)
Klettur í hafi nefnist fögur bók
sem þeir Tolli (Þorlákur Kristins-
son) og Einar Már Guðmundsson
hafa unnið í sameiningu, Tolli
myndefnið og Einar Már ljóð. Bók-
in er óður um ísland, landið, hafið
í kringum það, regngráa eyjar-
skeggjana og orðin og sögurnar
sem tengja þá saman og gefa þeim
lífið bærilegt. Tvö myndskáld
kveðast hér á, annað með pensli
og hitt með penna, og við erum
leidd inn á samsýningu tveggja
myndlistarmanna í bók. Annar
yrkir með litum, hinn málar með
orðum.
Margar myndir Tolla eru sögu-
ljóð. Þær skýra frá landinu og lífs-
baráttu fólksins, glímu þess við
haf og víðáttur en einnig er þar
sagt frá söngnum í hjarta okkar,
t.a.m. í Tónskipinu (s. 105) og
Sanisöng lands og sjávar (s. 109)
eða þá að við fylgjumst með blágr-
áma Bókaregnsins (s. 103) og
horfum á Sólarlag í bundnu máli
(s. 101).
Sama ást á söng og orði ein-
kenriir ljóð Einars Más. Hann seg-
ir t.a.m. frá eyjarbúanum sem
geymt hefur söguna í hjarta sér á
óravegum tímans umkringdur orð-
um, klettum og hafi og líti hann
furður heimsins, finnst honum þær
„skítur á priki miðað við undrin“
(s. 106) sem hann hefur daglega
fyrir augunum:
Og eyjabúinn snýr við
og ferðast um voldug höfin
en nú með f/arskann
í farangri hugans. (Bls. 106.)
Samspil þeirra Tolla og Einars
Más í þessari bók er á margan
hátt athyglisvert. Ljóst er að sum
ljóðin eiga upptök sín í myndheimi
Tolla. Einar segir t.d. á einum stað
undir bláleitri mynd sem nefnist
Amarvatn:
Strigi strengdur yfir heiminn
og rammaður inn með klettum
spegill í söltum dropa
gargandi fuglar og grjót.
Sjiðu pensildrættina,
hvernig þeir bylgjast um heiminn,
blámi í syngjandi öldu
orð sem sprikla einsog fiskar. (Bls. 25.)
Óravíðáttur mynda Tolla, hvort
sem þær eru af heiðum eða hafi,
klettum og strönd, tröllslegar eða
ægifagrar, eiga sér einnig sam-
hljóm í kvæðum Einars Más. Víð-
erni skoðar Einar gjarnan á flugi
andans líkt og nafni hans Bene-
diktsson forðum:
Löngu seinna
sleppir hann ömunum,
hleypir þeim út úr höfðinu
ogflýgur
um óravíð híbýli
sjávardjúp mikil
hávaxna kletta og björg,
með agnarsmá þorp í augum. (Bls. 29.)
Töfraheimur Einars Más úr
borgarhverfinu á sér einnig sam-
svörun í verkum Tolla. Landslag
bernskunnar er þeim nefnilega
sameiginlegt frá því að þeir ungir
léku sér saman á malarvellinum
við Ljósheima undir hnúkum átta
hæða blokkanna. Þannig er enginn
óravegur milli margra mynda
Tolla, þar sem hann kemur húsum
og blokkum fyrir í alls konar lands-
lagi, á heiðum uppi eða á öldum
hafs og blokkarlandslagi Einars
Más:
Skrýddur skurðgröfum líður tíminn,
hjá steingráum veggjum,
um hálendi húsa
er gnæfa sem krossar á hæð. (Bls. 9.)
Það er ýmiss konar bergmál úr
fyrri verkum Einars Más í þessari
bók, regngráminn og þokan úr
Eftirmælum regndropanna, hinn
barnslegi heimur hverfisbókanna
er einnig ógnin, draugar, forynjur
og tröll og jafnvel herstöðin á fjall-
inu úr Bömum náttúrunnar. Mynd-
heimur Einars er engan veginn
eins órólegur og í fyrstu ljóðabók-
Einar Már og Tolli
um hans en engin lognmolla þó.
Nú er hann hófstiíltari endá þótt
við og við bresti á skammvinn
myndgos:
Við
ferðumst á fleka
úr flóðlýstum mána
og líðum um heiminn
sem Ijóð. (Bls. 109.)
Víða birtast okkur hnitmiðaðar
myndir og líkingar snjallar. „Þessi
eyja er fljótandi skjöldur/ með
dranga sem standa einsog spjót“
(s. 26) segir á einum stað og stund-
um er málað með sterkum litum:
Þegar sólin flýtur við hafsbrún
stendur eyjan í björtu báli,
ísmolar tinda
glös gull af glóandi víni. (Bls. 24.)
Þótt oft sé í þessum kvæðum
horft á hin kosmískari öfl er ein-
staklingurinn og upplifun hans í
forgrunni. Þá er það jafnan borgar-
reynsla, sundrung gilda og firring
sem kemur í hugann eins og þegar
spurt er: „hvaðan himnarnir/ sem
speglast í glerbrotunum/ hafa
hrunið“ (s. 116) og ekki er heldur
alltaf langt í taktinn og tregann:
Víst vissum við
að tómleikinn er rótgróinn
borgarhluti í hjartanu
og einveran sálarlíf
þessa staðar.
Við fjúkum sem aska
um steinaldir húsa
og höngiim
/ stuðara myrkurs... (Bls. 119.)
Verk þeirra Tolla og Einars Más
eru á vissan hátt tvö sjálfstæð
verk og gætu staðið ein sér sem
málverkabók og ljóðabók. Eigi að
síður er grundvöllur bókarinnar
samvinna þessara tveggja lista-
manna sem eru meðal þeirra
fremstu á sínu sviði hér á landi
og árangurinn er að minni hyggju
einstök bók. Myndirnar og ljóðin
höfða sterklega til mín og ekki
síður sá galdur sem sprettur upp
úr samhljómi þeirra.
Stærðir: 36 - 45
Teg: 7204
Litir: svart/brúnt
Verð: 6.980,
Lihr: svarþbrúnt leð/rúsk
Stærðir: 41-46
Teg: 2985
Lihr: svart/brúnt
Vérð: 5.490,
Opið fram að jólum:
laugard. 21/12 frákl. 10-22.
sunnud. 22/12 frá kl. 13 - 18.
mánud. 23/12 frá kl. 9 - 23.
þriðjud. 24/12 frá kl. 9-12.
Sendum í póstkröfu - gleðileg jól
Stærðir: 36 - 41
Teg: 3043
Lihr: svart leð./rúsk.
Verð: 3.990,-
Stærðir: 36 - 41
Teg: 4531
Litur: svart rúskinn
Verð: 5.400,.
Stærðir: 36 - 45
Teg: 7205
Lihr: svart,brúnt1eð./rúsk.
Verð: 5.980,-
Skóverslun Laugavegi 60 - Sími 91 - 22453
SÉRTll-BOO