Morgunblaðið - 21.12.1991, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Mýrar á Mallorca
eftir Ingimund
Gíslason
Mallorca er stærst Baleareyja,
austanvert við Spán, og er í hugum
okkar íslendinga sólskinseyjan
fræga og ferðamannaparadísin
mikla. Þangað streyma milljónir
ferðamanna ár hvert, sér til hvíldar
og hressingar, og njóta sólar eftir
myrkur og kulda vetrarins á norður-
slóðum. A Mallorca áttu þau, tón-
skáldið Chopin og skáldkonan Sand,-
stormasamar stundir saman á öld-
inni sem leið.
En Mallorca hefur upp á ýmislegt
annað og meira að bjóða en sól-
skin, baðstrendur og diskóbari. Eft-
ir norðanverðri eyjunni liggur íjall-
garður og er hæsti tindurinn, Puig
Mayor, í 1.445 metra hæð yfir sjáv-
armáli. Niðri á láglendinu, á eyj-
unni miðri, eru fijósamar sléttur
og ræktun mikil. Þar er ræktað
grænmeti, ávextir ýmiss konar, ólíf-
ur og möndlur. Reyndar má segja
að öll eyjan sé umvafin gróðri. Er
það ólíkt því sem við eigum að venj-
ast' frá mörgum landsvæðum við
Miðjarðarhafið.
Port d’Alcudia er lítið sjávarpláss
við Alucdiaflóann á eyjunni norð-
austanverðri. Þar rétt fyrir sunnan
er S’Albufera, sem er allstórt vot-
lendi eða fenjasvæði við Alcuidiafló-
ann, þar sem ámar Sant Miquel og
Muro sameinast og renna til sjávar.
Þar skiptast á reyr- og stararmýr-
ar, tjarnir og langir skurðir. Skurð-
irnir voru grafnir á síðustu öld þeg-
ar gerð var tilraun til að þurrka
votlendið til að veijast malaríu. Sú
tilraun tókst aðeins að hluta til og
fyrirtækið, sem annaðist fram-
kvæmdir, fór á hausinn.
S’Albufera hefur frá alda öðli
verið aðsetur ijölda tegunda fugla
(meira en 200 hafa verið skráðar),
bæði farfugla á leið um svæðið eft-
ir árstíðum og einnig mikils fjölda
varpfugla.
A sjöunda áratugnum urðu
mestu breytingar frá því sögur hóf-
ust á þessu svæði með tilkomu ferð-
amannaiðnaðar í stórum stíl. Alls
staðar vantaði land undir hótel og
voru stór svæði þessa votlendis lögð
undir nýbyggingar, garða og vegi.
Var ekki annað sýnt en, að allt
þetta sérstæða griðland fugla og
sjaldgæfra jurta yrði nýtt til að
þjónusta ferðamenn, þegar stjórn-
völd gripu loks í taumana, árið
1985.
Yfirvöld Baleareyja keyptu þá
800 hektara af þessu votlendi, frið-
lýstu svæðið og stofnuðu þjóðgarð.
Göngustígir voru lagðir og byggð
feluskýli; þar geta fuglaáhugamenn
virt fyrir sér fuglalífið án þess að
styggja fuglana. I miðjum þjóðgarð-
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJÁ - NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJA
Asgeir Jakobsson
SÖGUR ÚR
TÝNDU LANDI
Ásgeir Jakobsson er landskunnur
fyrir œvisögur sínar um íslenska
athafnamenn. Þessi bók hefur
aö geyma smásögur eftir hann,
sem skrifaðar eru á góöu og
kjarnyrtu máli. Þetta eru
bráðskemmtilegar sögur, sem
eru hvort tveggja í senn
gamansamar og meö alvar-
legum undirtóni.
M.Scott Peck
Leiðin til andiegs
þroska
Öll þurfum viö aö takast á viö
vandamál og erfiðleika. Það er
oft sársaukafullt að vinna bug á
þessum vandamálum, og flest
okkar reyna á einhvern hátt að
forðast að horfast í augu við
þau. í þessari bók sýnir banda-
ríski geðlœknirinn M. Scott Peck
hvernig við getum mœtt erfið-
leikum og vandamálum og
öðlast betri skilning á sjálfum
okkur, og um leið öðlast rósemi
og aukna lífsfyllingu.
PbnuR wmm™
zophoníasson mem
VIKINGS
IÆKjARÆITV
Pétur Zophoníasson
VÍKINGSLÆKJARÆTT V
Fimmta bindið af Víkingslœkjarœtt,
niðjatali Guðríðar Eyjólfsdóttur og
Bjarna Halldórssonar, hreppstjóra
á Víkingslœk. í þessu bindi er fyrsti
hluti h-liðar œttarinnar, niðjar
Stefáns Bjarnasonar. Efninu fram
að Guðmundi Brynjólfssyni á
Keldum verður skipt I tvö bindi,
þetta og sjötta bindi, sem kemur
út snemma á nœsta ári (1992).
Myndir eru rúmur helmingur
þessa bindis.
Klnnhtigi Guðmuiidvvni
Gamanscmi
^Ðorra ^íuriusonar
Nokkur valin dæmi
------- --- |
Finnbogi
Guðmundsson
GAMANSEMI
SNORRA STURLUSONAR
23. seþtember voru liðin 750 ár
síðan Árni beiskur veitti Snorra_
Sturlusyni banasár 1 Reykholti. í
þessari bók er minnst
gleðimannsins Snorra og rifjaðir
upp ýmsir gamanþcettir í verkum
hans. Myndir í bókina gerðu
Aðalbjörg Þórðardóttir og
Gunnar Eyþórsson.
Pétur Eggerz
ÁST, MORÐ OG
DULRÆNIR HÆFILEIKAR
Þessi skáldsaga er sjöunda bók
Péturs Eggerz. í henni er meðal
annars sagt frá ummœlum
fluggáfaðs íslensks lœknis, sem
taldi sig fara sálförum að
nceturlagi og eiga tal við fram-
liðna menn. Þetta er forvitnileg
frásögn, sem fjallar um marg-
breytilegt eðli mannsins og
tilfinningar.
Auðunn Bragi
Sveinsson
SITTHVAÐ KRINGUM
PRESTA
í þessari bók greinir Auðunn Bragi
frá kynnum sínum af rúmlega
sextíu íslenskum prestum, sem
hann hefur hitt á lífsleiðinni.
Prestar þeir, sem Auðunn segir
frá, eru bœði lífs og liðnir og kynni
hans af hverjum og einum mjög
mlsmikil; við suma löng en aðra
vart meira en einn fundur.
SKUGGSJÁ
Bókabúð Olivers Steins sf
NÝJAR BÆKUR - SKUGGSJA - NYJAR BÆKUR - SKUGGSJA
inum er þjónustumiðstöð þar sem
fróðleg sýning hefur verið sett upp
og þar má einnig fá allar nauðsyn-
legar upplýsingar. Þjóðgarðurinn
er vinsæll meðal almennings og
ferðamanna og gestum fjölgar ár
frá ári. Fræðimenn svo og fugla-
og náttúruáhugamenn sækja þang-
að í auknum mæli.
Síðastliðið sumar átti ég leið í
þióðgarðinn. í 37 stiga hita hjólaði
ég frá hóteli mínu í Port d’Alcudia
með sjónauka og fuglahandbækur
í farteskinu. Frá hliðinu við inn-
gariginn, nálægt mynni Gran Can-
al, lá malarstígur inn á víðáttu-
mikla sléttuna. Hávaxið reyrgresið
bærðist tignarlega til og frá brenn-
heitri golunni og linnulaust kryb-
busuðið smaug miskunnarlaust inn
í merg og bein. Skugga frá sól var
aðeins að finna á stöku stað þar
sem álmar og aspir uxu að síkis-
bökkum. Það merlaði á flóa og
tjarnir og bleshænurnar kinkuðu
kolli án afláts. Flamingóar, hálegg-
ir og veimiltítur ráku nefin niður í
botnleðjuna í leit að æti. Tveir rauð-
hegrar kjöguðu áfram með spaugi-
legu, vaggandi göngulagi.
Þarna var mikill fjöldi ferða-
manna af ýmsum þjóðemum.
Venjulegir sólaralandafarar svo og
breskir fuglaáhugamenn með
barðamikla hatta og stóra sjónauka
á fæti. Við þjónustumiðstöðina
hlýddi hópur skólabama á fyrirlest-
ur kennara síns um náttúru svæðis-
ins. Það vakti athygli mína að í
garðinum voru víða hross og naut-
gripir á beit; líklegast til að halda
gróðri í hæfilegum skefjum þar sem
þarna fyrirfinnast engir villtir gras-
bítir.
Á bakaleiðinni kom ég við á
Smith’s Sandwiches við þjóðveg
númer 712 til að slökkva sárasta
þorstann. Yfir glasi af köldu Fanta
lét ég hugann reika heim á gamla
Frón: Eg minntist þess, þegar ég
ungur að árum öslaði mýrar á Suð-
urlandi og jaðrakaninn, sem þar
bjó, rauk upp með andfælum og
skerandi óhljóðum. Þá var ég í síma-
vinnu og Olafur Magnússon var
verkstjóri og jarðsíminn enn ólagð-
ur svo að ekki sé nú minnst á nú-
tíma ljósleiðara.
Það rifjaðist upp þegar ég æfði
upplestur á Iþökulofti, ásamt
nokkrum skólasystkinum mínum í
Menntaskólanum í Reykjavík, undir
leiðsögn Baldvins Halldörssonar,
leikara. Það kom í minn hlut að
lesa kaflann Mýrlendi í Ámessýslu,
úr bókinni Skáldatími eftir Halldór
Laxness. Þar lýsir Halldór á
ógleymanlegan hátt „þessu blauta
flatlendi á íslandi þar sem mikill
hluti þjóðarinnar hefur staðið í votu
í þrjátíu fjörutíu kynslóðir" en jafn-
framt „þeirri jarðnesku sælu sem í
mýrinni býr“. Vísast er að öll um-
fjöllun um mýrar og forir hafa í
aldanna rás eingöngu vakið upp
óljúfar minningar hins stritandi
manns um blauta og kalda fætur.
Mótar sú reynsla kynslóðanna enn
Ingimundur Gíslason
„Eru íslendingar ekki
að blekkja sjálfa sig
þegar þeir segjast búa
í svo til óspilltu landi?
Geta þeir ekki lært eitt-
hvað af reynslu Mall-
orcabúa, mistökum
þeirra og fram-
kvæmdasemi?“
afstöðu márgra íslendinga til þessa
merkilega hluta af náttúru lands-
ins. Með snilldarlegum náttúrulýs-
ingum sínum ræðst Halldór til at-
lögu við þessi neikvæðu viðhorf.
Ég hugsaði um þær breytingar
sem orðið hafa víða í byggð á Suð-
urlandi á þessari öld. Upphækkaðir
vegir liggja nú um sundurgrafið
landið sem að auki er hólfað niður
í óteljandi misstóra reiti með girð-
ingum. Og ég rifjaði í huganum upp
viðtal við dr. Þóru Ellen Þórhalls-
dóttur líffræðing sem birtist í Morg-
unblaðinu nú í vor. Þar segir hún
að um 2,4% af votlendi á Suður-
landi hafí verið ræst fram. Sam-
kvæmt athugunum hennar eru nú
aðeins 26 ferkílómetrar eftir af
óröskuðum mýrum á þessu svæði,
af þeim 1.100 ferkílómetrum sem
áætlað er að þar hafí verið árið
1930. Þóra telur að í íslensku vot-
lendi sé fólgið sérstakt og merkilegt
vistkerfí plantna og dýra sem ekki
megi glatast. Að hennar mati er
nú ekki seinna vænna að bregðast
við að taka út og friða þær fáu
mýrar sem enn eru ósnortnar.
Eru íslendingar ekki að blekkja
sjálfa sig þegar þeir segjast búa í
svo til óspilltu landi? Geta þeir ekki
lært eitthvað af reynslu Mall-
orcabúa, mistökum þeirra og fram-
kvæmdasemi? >•
Höfundur er augnlæknir.
Bréf BSRB til þingmanna:
Tillögnr ríkisstjórnar
í þágn hinna efnameiri
ALÞINGI stendur frammi fyrir
afdrifaríkum ákvörðunum þessa
síðustu daga fyrir jól - segir í
bréfi til þingmanna frá Bandalagi
starfsmanna ríkis og bæja. „Sú
ríkisstjórn, sem nú situr stefnir
að því að minnka umsvif ríkisins
á fjölmörgum sviðum og eru
niðurkurðaráform hennar nú sem
óðast að koma til kasta þingsins.
Það er sjálfsagt og eðlilegt að
fyllsta aðhalds sé jafnan gætt, en
þá að því tilskildu að slíkar tiltekt-
ir komi réttilega niður á þjóð-
félagsþegnana.
Síðan segir í bréfí BSRB, sem
Ögmundur Jónasson formaður und-
irritar: „Hefur þú sett það niður
fyrir þét, ágæti þingmaður, hversu
mjög niðurskurður ríkistjórnarinnar
kemur við fjárhag venjulegs launa-
fólks í landinu? Álögur á sjúklinga
hafa verið auknar, barnabætur á að
skerða þannig að meðaltekjufjöl-
skyldna með 3 börn missir um 4.000
krónur á mánuði, skólagjöldum er
komið á, námslán á að skerða, og
nú síðast berast fréttir um að per-
sónuafsláttur hækki ekki 1. janúar
þrátt lýrir loforð um hið gagnstæða,
en með þessu eru skattleysismörk
lækkuð um áramótin.
BSRB snýr sér til þín, þingmaður
góður, í trausti þess að þú hugleiðir
þá röskun á kjörum almennings sem
þessar aðgerðir hafa í för með sér.
Ótal sparnaðaraðgerðir eru nærtæk-
ari en þær sem seilast alltaf og
ævinlega í vasa þess fólks sem gerir
ekki meira en að komast af á launum
sínum, s.s. hátekjuskattur, fleiri
skattþrep og fjármagnsskattur.
Talsmönnum ríkisstjórnarinnr
hefur orðið tíðrætt um að allir þurfi
að axla sameiginlegar byrðar þjóð-
arinnar. Þær ráðstafanir, sem kynnt-
ar hafa verið eru ekki í þessum anda.
Þær byggja á mismunun í þágu
hinna efnameiri í þjóðfélaginu.“