Morgunblaðið - 21.12.1991, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
35
manni. Einhver bjargvættur er
nauðsynlegur í lífi litla mannsins
til þess að forða honum frá eigin
vitleysu. Hver skyldi hann vera
þessi bjargvættur í lífi okkar þjóð-
ar, sem hefur sett litla manninn í
þetta ljúfa ævilanga skuldabasl?
Eru það fjölskyldurnar fjórtán, sem
sumir segja að eigi tryggingafélög-
in, olíufélögin, bankana, Flugleiðir
og Eimskip? Eru það stjórnmála-
mennirnir, sem geysast um loftin
blá í einkaþotunni með konurnar
sínar á dagpeningum og fríu uppi-
haldi? Eru það bændurnir eða opin-
berir starfsmenn?
Nei og aftur nei. Þetta fólk er
allt að vinna fyrir litla manninn og
landið hans.
Kannski hefði ég átt að biðja
ræðumanninn á Königstrasse að
skrifa grein í Morgunblaðið um
málefni litla mannsins. Ég hefði
sagt honum fyrst frá lífeyrissjóðun-
um okkar, sem litli maðurinn ieggur
til 10 prósent af laununum sínum.
Þessir sjóðir nota féð til þess að
kaupa húsbréf af litla manninum
með 20% afföllum og verðtryggðum
vöxtum til 25 ára. Eða frá Byggða-
stofnun, atvinnutryggingarsjóði og
hlutafjársjóði, sem sjá til þess að
litli maðurinn sé ekki í vandræðum
með þessa bölvuðu peninga, sem
eru sosum undirrót alls ills í henni
verslu og hafa alltaf verið.
Eða frá íslenzku bókunum, sem
taka uppí 35 prósent vexti af litla
manninum meðan verðbólgan er
orðin sú sama og í Þýskalandi.
Vonandi hafa allir þessir aðilar
góð samráð sín á milli um að halda
uppi þessu nauðsynlega vaxtastigi
svo að litli maðurinn eyði ekki pen-
ingum sínum í að kaupa vitleysu í
útlöndum. Auðvitað er þetta hin
eina rétta stefna.
Allir þessir óþekktu bjargvættir
hljóta að vita það miklu betur en
litli maðurinn hvað honum er fyrir
bestu. Því hann er sjálfur svo vit-
laus eins og ræðumaðurinn skynjaði
svo skarplega.
Þarna á Königstrasse er fullt af
bönkum, sem vilja lána mönnum
þýsk mörk fyrir 8-11 prósent vexti
eða þá dollara fyrir 6-9%. Enda eru
markið og dollarinn ekki góðir
pappírar og hafa lækkað stórlega
miðað við íslenzka lánskjaravísitölu
í seinni tíð.
Mér skildist, að útlendingar
mættu kaupa bæði hús og fyrirtæki
í Þýzkalandi, bújarðir, sem akra og
engi, bara ef þeir ættu peningana.
Sem betur fer hefur hinn óþekkti
bjargvættur í mínu lífí, hver sem
hann í rauninni er, séð til þess að
ég á þá ekki og get ekkert keypt.
Þá þarf ég heldur ekki að hafa
áhyggjur af neinu. Enda hvað ætli
ég kunni svo sem að fara með hluta-
bréf í Mercedes Benz eða Deutsch
Bank? Hann Guðmundur í lífeyris-
sjóðnum er fullfær um það!
Guði sé lof fyrir okkar íslenzka
gjaldeyriseftirlit, bankalöggjöf og
sjóðakerfi, sem verndar litla mann-
inn frá því að svona bankastarfsemi
komi hingað og keppi við okkar
göfuga íslenzka fjármálakerfí. Auð-
vitað skiptir það litla manninn
meira meginmáli að útgerðarstjór-
inn í Eyjum heiti Sigurður og sigli
með þjóðarkvóta litla mannsins,
heldur hann héti da Silva eða eitt-
hvað svoleiðis og væri Portúgali og
legði upp fískinn á Islandi. Éða ef
einhver þýzk kerling gæti keypt
bújarðir í Aðaldal, án þess að hafa
svo mikið sem félagsskírteini í
framsókn. Það væri ljóta áfallið
fyrir þjóðernið!
Fram til baráttu íslendingar.
Frelsum heiminn frá þessu frelsi.
Niður með þetta frelsi og lága vöru-
verð í öðrum löndum! Niður með
þetta innkaupaferðafrelsi íslend-
inga! Hvað ætli litli maðurinn viti
um lífíð og tilveruna? Hann er svo
vitlaus að það verður að ráða fyrir
hann! Lifí siðferðið og sakleysið!
Er ekki mál til komið að við bjóð-
um Þjóðverjum móralska aðstoð við
það að koma sínum innri málum í
lag? Þetta er ekki hægt að horfa
uppá þetta hvernig allt er að sökkva
í frelsi, lesti og ódýran lúxus í því
landi. Þetta er ekki hægt!
Höfundur er verkfræðingur.
í félagshúsinu við Holtaveg
(gegnt Langholtsskóla)
kristi7e^
^starf
OPIÐ:
Laugardag 13:00 - 18:00
Sunnudag 13:00 - 18:00
Þorláksmessu 13:00- 18:00
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KOSTAR ÞESSA AUGLÝSINGU
0
UMBOÐSMENN UM LANDIÐ:
tuulnphone
Nú geta tveir talaö samtímis, í sama símtœkiö viö þriöja aöila í
TVÍBURASÍMANUM frá SWATCH — Nýtískuleg og falleg hönnun
10 mismunandi litir og útlit:
STÖÐLUÐ GERÐ (myod 7 -
VERÐ KR. 4.990
Tónval - Endurhringing
3 styrkleikar hringlngar
10)
LÚXUS GERÐ (mynd 1-6)
VERÐ KR. 5.490
Tónval - Endurhringing
20 skammvalsminni/nafnaminni
3 styrkteikar hringingar
HEKLA
LAUGAVEGI 174
S.695500/695550
suuatch
Reykjavík: Hagkaup, Heimilistœki, Húsasmiðjan, Kaupstaður í Mjódd, Ljósbœr. Mikligarður, Radíóbúðin, Raftœkjaverslunin Glóey, Títan hf„ Símval
Hafnarfjörður: Húsasmiðjan, Ljós og Raftœki Njarövík: Hagkaup Keflavík: Stapafell Akranes: Málnlngarþjónustan, Rafþjónusta Sigurdórs Borgames: Kaupfélag Borgfirðinga
Stykkishólmur: Húsið Höfðagötu ísafjörður: Húsgagnaloftiö, Straumur Blöndós: Kaupfélag V. Húnvetninga Sauöárkrókur: Verslunin Hegri Akureyri: Hagkaup, Radíónaust,
Radíóvinnustofan, Rafland hf. Húsavík: Kaupfélag Þingeyinga, Öryggi sf. Eigilstaðir: Kaupfélag Héraösbúa Seyöisfjörður: L. Haraldsson Höfn Hornafirði: Kaupfélag A. Skaft-
fellinga Vestmannaeyjar: Brimnes Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangœlnga Hella: Mosfell Selfoss: Kaupfélag Árnesinga