Morgunblaðið - 21.12.1991, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Hljómdiskur með tón-
list eftir Jón Nordal
ÍSLENSK tónverkamiðstöð hef-
ur sent frá sér nýjan hljómdisk
með fjórum hljómsveitarverk-
um eftir Jón Nordal. Diskurinn
er gefinn út í samvinnu við
Kammersveit Reykjavíkur og
að hennar frumkvæði. Stjórn-
arndi sveitarinnar er Paul Zu-
kofsky. Diskurinn er í röð diska,
sem nefnd hefur verið „Portra-
it“ og dregur hver um sig upp
mynd af einu tónskáldi.
Jón Nordal stundaði tónlist-
arnám í Reykjavík á æskuárunum
og útskrifaðist frá Tónlistarskóla
Reykjavíkur árið 1948 í píanóleik
og ári síðar í tónsmíðum. Eftir það
nam hann tónsmíðar viða um Evr-
ópu og komst í kynni við framúr-
stefnutónlist og ýmis fremstu tón-
skáld samtímans. Hann hefur frá
árinu 1945 samið yfir 30 stærri
verk, konserta, hljómsveitarverk,
leikhústónlist, kórverk, kammer-
verk og einleiksverk fyrir píanó
og orgel.
Á nýja disknum eru eftirtalin
verk: Adagio frá 1966 fyrir flautu,
píanó, hörpu og strengi; Epitafion,
samið 1974 til minningar um Ein-
ar Vigfússon sellóleikara, harm-
Jón Nordal tónskáld.
ljóð fyrir hljómsveit; Concerto
lirico frá 1975 fyrir strengi og
hörpu samið fyrir Kammerhljóm-
sveitina í Uppsölum og Tvísöngur
frá 1979 fyrir fiðlu, víólu, píanó,
slagverk og strengi og var skrifað
að beiðni Sinfóníuhljómsveitarinn-
ar í Malmö.
Kammersveit Reykjavíkur var
stofnuð 1974 af 12 hljóðfæralei-
kurum.
Verðlaun fyrir útvarpsstörf
HARALDUR Sigurðsson blaða-
maður við danska ríkisútvarpið
hefur fengið verðlaufl, sem danska
ríkisútvarpið veitir, Christian
KrÚger-verðlaunin. Nema þau
15.000 dönskum krónum. Verð-
launin fær Halldór fyrir störf að
útvarpsmálum.
Við verðlaunafhendinguna, sem
fram fór í Utvarpshúsinu í Kaup-
mannahöfn söng íslenzkur kirkju-
kór.
REDSTONE „CRAZYBOY“
SJ0NVARPS-
LEIKJATÖLVAN
★ Fullkomlega samhæfö fyrir Nintendo-lelki. ★ Vélinni fylgir
fjöldi frábærra leikja, þ.m.t. Super Mario Bros. ★ 2 Turbo stýri-
pinnar og tengingar við sjónvarp. ★ Stereo-útgangur fyrir heyrn-
artól. ★ A/V-útgangur. ★ íslenskar leiðbeiningar.
Verödæmi á leikjum:
Super Mario 2 kr. 2.980.
Super Mario 3 kr. 2.980.
Turtles II kr. 3.390.
Robocop II kr. 2.980.
Soccer kr. 2.980.
Double Dragon 1 kr. 2.780.
Double Dragon III kr. 2.980.
Top Gun 2 kr. 2.980.
Devil Boy 1 kr. 2.980.
Devil Boy II kr. 2.980.
Devil Boy III kr. 2.980.
Live Force kr. 2.980.
Batman kr. 2.980.
Chip and Dale kr. 2.980.
••
Verö:
Með 20 leikjum
kr.13.490 stgr.
Með 42 leikjum
kr. 14.990 stgr.
Með 76 leikjum
kr. 19.900 stgr.
TÖLVULAND
Borgarkringlunni, sími 91-688819
Síðustu dagana fyrir jól er jafnan mikið álag í verslunum landsins, og mæta kaupmenn því með
lengri opnunartíma. Viðskiptavinir geta einnig átt von á heimsóknum jólasveina og fleiri uppákom-
um.
Lokasprettur jólaverslunarinnar framundan:
Lengii opnunartími verslana
og mikið um uppákomur
MIKIÐ um það fyrir jólin að verslanir standi fyrir ýmis konar
skemmtunum, viðskiptavinum til ánægju og afþreyingar í jóla-
ösinni. Á flestum stöðum verður opið á sunnudag, og hér fer
á eftir yfirlit yfir opnunartíma helstu verslunarmiðstöðva í
Reykjavík og nágrenni dagana fyrir jól. Einnig fylgir yfirlit
yfir hvað gestir og gangandi mega eiga von á að fyrir augu
beri á þessum stöðum.
Kringlan
Verslanir í Kringlunni verða
opnar til klukkan 22.00 laugar-
daginn 21. desember. Á sunnudag
22. desember verða þær opnar frá
klukkan 13.00 til 18.00 og á Þor-
láksmessu til klukkan 22.00.
í frétt frá Kringlunni er skýrt
frá því að jólasveinar verði á stjái
alla daga fram til jóla og verða
þeir með sérstakar skemmtanir
laugardag klukkan 13.00 og
14.00, sunnudag klukkan 13.30,
14.30, 17.00, og 17.30, en á Þor-
láksmessu klukkan 18.30 og
19.00. Þá munu hópar úr Sinfó-
níuhljómsveit æskunnar leika létt
sígild lög í Kringlunni.
Auk venjulegra bifreiðastæða
Kringlunnar verðá bílastæði við
Verslunarskóla, Hús verslunar-
innar og norðan við Utvarpshúsið
til afnota fyrir viðskiptavini
Kringlunnar.
Miðbærinn
Miðbæjarfélagið hefur beðið
Morgunblaðið að vekja athygli á
að ýmsar uppákomur verða í
miðbæ höfuðborgarinnar laug-
ardaginn 21. desember.
Jólasveinar munu skemmta
ungum sem öldnum frá klukkan
13.00 til 14.00 og aftur frá klukk-
an 15.00 til 16.00. í kaffihúsum
miðbæjarins mun Jóna Einars-
dóttir spila jólasöngva á harmon-
iku frá klukkan 14.00 til 16.00.
í Hlaðvarpanum mun Grýla
hrella gesti og gangandi klukkan
15.00 og mun hún verða á kreiki
til klukkan 16.00. Þá mun hljóm-
sveitin „Hver þekkir þær“ spila í
Hlaðvarpanum og nemendur
Söngskólans munu syngja jóla-
söngva. Landbankinn í Áust-
urstræti verður opinn gestum og
gangandi milli kiukkan 13.00 og
17.00, þar sem boðið verður upp
á heitt kakó og piparkökur.
Landsbankakórinn mun taka lagið
og Grýla kemur í heimsókn. Þá
mun sönghópur taka lagið á Lækj-
artorgi við undirleik harmoniku
klukkan 14.00 og í Landsbankan-
um klukkan 14.30 í tilefni árs
söngsins.
Borgarkringlan
Á laugardag verður opið í Borg-
arkringlunni frá kl. 10.00 til
22.00. Þá munu 40 félagar úr
Harmonikufélagi Reykjavíkur
leika frá kl. 13.00 til 14.00, og á
eftir mun Óskar Einarsson leika
jólalögin á flygil fram á kvöld.
Sunnudaginn 22. desember
verður opið frá kl 13.00 til 18.00,
og meðan á opnunartíma stendur
mun Helga Þórarinsdóttir leika á
lágfiðlu og Reynir Sigurðsson á
flygil.
Á Þorláksmessu leika Helga og
Reynir aftur frá kl. 12.00 til
18.00, en svo tekur Jólaband
Kópavogs við og skemmtir gest-
um með léttri sveiflu fram til
klukkan 23.00.
Laugavegur
Laugavegurinn iðar af lífi um
jólin og þéttskipuð dagskrá er
laugardag, sunnudag og Þorláks-
messu.
Laugardag 21. des. er opið frá
kl. 10.00 til 22.00. Landsbanka-
kórinn syngur fyrir utan Lauga-
veg 77 klukkan 13.00, og hálftíma
síðar birtist jólasveinninn á
Laugaveginum og gefur bömun-
um gjafir. Klukkan 14.00 eru
skemmtiatriði jólasveina og
Landsbankakórinn tekur lagið á
ný, en nú við Laugaveg 7. Klukk-
an 16.00 syngja söngyarar frá
Óperusmiðjunni og kvöldinu lýkur
með leik sjö manna blásarasveit-
ar, frá klukkan 20.
Sunnudag 22. des. er opið frá
kl. 13.00 til 18.00, og hefst dag-
skrá klukkan 13.00 með söng
Kórs Austurbæjarskóla. Klukkan
14.00 verður jólasveinninn á ferð-
inni með gjafir og góðgæti fyrir
yngstu kynslóðina, og klukkan
15.00 gengur Kór Selásskóla
syngjadi niður Laugaveginn.
A Þorláksmessu verður opið frá
kl. 9.00 til 23.00. Jólasveinninn
gjöfuli verður á ferð í kerru sinni
frá klukkan 13.30 ásamt fleiri
félögum sínum, og Kór Austur-
bæjarskóla syngur á ný klukkan
15.00. Blásarasveit leikur klukk-
an 20.00.
Eiðistorg
Laugadag kl. 14.00—15.00
verður Draumalínan og Conný
með tískusýningu á undirfatnaði
á 3. hæð, en einnig verða jóla-
sveinar á sveimi um torgið. Frá
klukkan 15.00—16.00 leikur
skólahljómsveit Tónskóla Sel-
tjarnarness og Bossanova Band.
Klukkan 16.30 er jólaball með
Ellý Vilhjálms, Bjarna Arasyni,
trúðum og jólasveinum.
Opnunartímar verða sem hér
segir: laugardag 21. des. kl.
10.00—22.00; sunnudag 22. des.
kl. 13.00—18.00; Þorláksmessu
23. des. kl. 9.00 til 23.00.
Garðatorg og Mikligarður
Miðvangi
Á báðum stöðunum verða uppá-
komur laugardag, sunnudag og á
Þorláksmessu. Milli klukkan
15.00 og 18.00 verður jólasvein-
asprell, bjöllukór að svissneskum
sið, Brassband Sthallha Hú treður
upp og Karl Möller leikur af fingr-
um fram á orgelið.
Opnunartímar á Garðatorgi eru
frá 9.00 til 20.00 á laugardag, frá
11.00 til 20.00 á sunnudag, og
frá 9.00 til 23.00 á Þorláksmessu.
í Miklagarði Miðvangi verður opið
til klukkan 22.00 alla dagana.
Mjódd
Á laugardaginn 21. des. verður
opið frá 9.00—20.00 í Kaupstað
í Mjódd. Jólasveinar mæta á stað-
inn klukkan 14.00, og hálftíma
síðar hefst tveggja klukkustunda
löng dagskrá með ýmsum
skemmtikröftum. Þeir sem koma
fram eru André Bachmann, Ellý
Vilhjálms, Bjarni Arason, íslands-
meistararnir í rokkdansi, trúður-
inn Jógi og svo auðvitað jólasvein-
arnir.
Sunnudag 22. des. verður opn-
að kl. 13.00, og mun þá Karl
Möller spila jólalög og jólasveinar
koma í heimsókn. Klukkan 15.30
þeytir brassband Sthallha Hú
horn sín í anddyrinu. Klukkan
16.00 klingir bjöllukór klukkum
sínum og á eftir fylgir Karlakór
Reykjavíkur, og hefst söngurinn
klukkan 17.00. Klukkan 18.00
mæta hressir jólasveinar á svæðið
og syngja og leika. Lokað verður
kl. 20.00
Á Þorláksmessu 23. des. verður
opið kl. 9.00—22.00 ogjólasvein-
arnir mæta klukkan 14.00.
Klukkan 15.00 mæta André Bac-
hmann, Ellý Vilhjálms, Bjarni Ara
og fleiri, og dagskrá laugardags-
ins endurtekin. Klukkan 17.00
byrjar bjöllukórinn og Sthallha
Ilú blæs í lúðra klukkan 18.00.