Morgunblaðið - 21.12.1991, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
51
Utgerðarfélag
Akureyringa:
Gunnar Aspar
verður fram-
leiðslustjóri
GUNNAR Aspar tekur við starfi
framleiðslustjóra hjá Útgerðarfé-
lagi Akureyringa um áramót.
Gunnar Lórenzson, sem verið hef-
ur yfirverksjóri í frystihúsi, verð-
ur yfirmaður framleiðslubirgða
og afskipana hjá félaginu frá ára-
mótum.
Gunnar Lórenzson mun hafa með
höndum afgreiðslu frystitogara og
verður tímabundið tengiliður þeirra
við land. Þá tekur hann að sér þjálf-
un og kennslu fyrir áhafnir frystitog-
aranna með tilliti til gæðamála. Fyr-
irhugað er að efna til þjálfunar og
kennslu varðandi meðhöndlun afla
fyrir sjómenn á ísfisktogurum.
Gunnar Aspar tekur við starfi
Gunnars Lórenzsonar og verður
starfsheiti hans framleiðslustjóri.
Það kemur m.a. til af því að gert
er ráð fyrir að öll framleiðsla í landi
verði undir einni stjórn, þ.e. frysti-
húsið og fiskverkunarstöðin, og er
þess vænst að í kjölfarið náist betri
samræming og samnýting.
-----♦--------
Reykjahlíðarkirkja:
Hátíðlegt að-
ventukvöld
Björk, Mývatnssveit.
AÐVENTUKVÖLD var í
Reykjahlíðarkirkju síðastiiðinn
sunnudag, 15. desember. Fyrst
söng barnakór undir stjórn
Guðnýjar Jónsdóttur, síðan kór
Reykjahlíðarkirkju undir stjórn
Jóns Arna Sigfússonar, undir-
leikari var Juliet Faulkner.
Einsöngvarar voru Ólöf Kolbrún
Harðardóttir og Ásmundur Krist-
jánsson. Anna V. Skarphéðinsdóttir
las jólasögu. Séra Bjöm Jónsson
flutti ræðu. Kynnir og stjórnandi
aðventukvöldsins var séra Öm Frið-
riksson, prófastur á Skútustöðum.
Síðast var farið með bæn og
blessunarorð og að lokum sungu
allir viðstaddir Heims um ból. Þessi
helgistund í kirkjunni var mjög
ánægjuleg og verulega hátíðleg.
Mikið fjölmenni var.
Kristján
dyri kirkjunnar frá kl. 17.30. Jóla-
dagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14.
Annar jóladagur: Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 14. Barnakór Glerár-
kirkju syngur, félagar úr Glerbroti,
æskulýðsfélagi Glerárkirkju að-
stoða og fluttur verður helgileikur.
Gunnlaugur Garðarsson.
Hvítasunnukirkjan:Syngjum jól-
inn inn, sunnudag 22. desember
kl. 15.30. Kór safnaðarins syngur
jólalög, barnakórinn syngur brot
úr söngleik, þá verður einsöngur,
tvísöngur, fjórsöngur og margt
fleira, en að lokum syngja allir sam-
komugestir Heims um ból. Að-
fangadagur: Jólasamkoma kl.
16.30 til 17.30. Ræðumaður Vörð-
ur L. Traustason. Kór safnaðarins
syngur jólasálma. Annar jóladagur
kl. 15.30. Hátíðarsamkoma.
Ræðumaður Jóhann Pálsson. í
samkomunni verður niðurdýfing-
arskírn. Sunnudagur 29. desem-
ber. Vakningarsamkoma. Ræðu-
maður Rúnar Guðnason.
LAUFÁSPRESTAKALL: Sval-
barðskirkjaHátíðarguðsþjónusta á
aðfangadag kl. 16.Grenivíkur-
kirkja:Hátíðarguðsþjónusta kl.
22.00 á aðfangadagskvöld.Lauf-
áskirkja:Hátíðarguðsþjónusta
verður annan dag jóla kl. 14.00.
Morgunblaðið/Unnar Vilhjálmsson
Nemendur Framhaldsskólans á Laugum skáru út laufabrauð af kappi
og bjuggu til jólaskreytingar fyrir litlu-jólin sem haldin voru í skólan-
um fyrir skömmu.
Framhaldsskólinn á Laugum:
Mikið um hátíðar-
höld á haustönn
Laugum, lleykjadal.
MIIKIÐ hefur verið um hátíðarhöld á Laugum nú í lok haustannar.
1. desember var haldinn hátíðlegur að vanda. Hátíðin hófst með
glæsilegu borðhaldi þar sem nemendur ferðamáladeildar þjónuðu
til borðs. Sett var upp leikritið Grænjaxlar með aðstoð Maríu Sigurð-
ardóttur leikkonu og Harðar Benóníssonar. Hátíðin heppnaðist mjög
vel og lauk með dansleik með Rokkbandinu frá Akureyri.
borginni
„Virkilega spennandi
og óvenjuleg
unglingasaga eftir
einn efnilegasta
rithöfund okkar.“
Arnaldur Indrióason,
kvikmyndagagnrýnandi
Morgunblaðsins
►►►►►►►
Laugardaginn 14. desember voru
haldin litlu-jólin i skólanum. Dag-
ana á undan höfðu nemendur, kenn-
arar og starfsfólk skólans sett upp
jólatré, skreytt borðsal og setustof-
ur skólans, og skorið út laufabrauð.
á litlu-jólunum var snæddur jóla-
matur og léku nemendur á píanó
undir borðhaldinu. Afmælisböm
desembermánaðar voru heiðrað í
skólanum. Dansað var í kringum
jólatré og jólasveinar komu auðvit-
að í heimsókn og voru örlátir á
mandarínur. Skólahljómsveitir,
fjórar að tölu, héldu síðan uppi fjöri
til miðnættis, en hátíðarhöldunum
lauk með vistarveislum á setustof-
um heimavistar.
Nemendur hafa setið sveittir yfir
prófum, en jólafrí hófst 19. desem-
ber. Nú eru liðin 66 ár frá því Laug-
askóli hóf starfsemi sína, en fyrir
þremur árum var skólinn end-
urskipulagður og honum breytt úr
héraðsskóla í Framhaldsskólann á
Ólafsfjörður:
Auknuin álög-
um mótmælt
„BÆJARRÁÐ Ólafsfjarðar sam-
þykkti á fundi sínum 19. desember
að taka heilshugar undir sam-
þykkt stjórnar Sambands sveitar-
félaga frá 11. desember 1991.
Þar er stjórn Sambands íslenskra
sveitarfélaga að mótmæla þeim álög-
um sem ríkisstjórnin hyggst leggja
á sveitarfélögin í landinu og hafa
birst í frumvarpi til fjárlaga. Svo og
einhliða samningsrofi á verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga.
Hvatt er til samráðs ríkis og sveit-
arfélaga á jafnréttisgrundvelli eins
og gildandi samningur og lög gera
ráð fyrir.“
(Fréttatilkynning)
Laugum. Nemendur skólans eru
rúmlega 120 frá öllum landshlut-
um, þó flestir af Norðurlandi.
U.V.
HERNAMSÁRIN Á AKUREYRI OG EYJAFIRÐI
METSÖLUBÓK
„Bókin er svo vel skrifuð að hún færir mann leikandi létt á vit stríðsáranna."
(Morgunblaðið 4. des.)
„Þetta er vel skrifuð bók og skemmtileg aflestrar."
(Guðmundur Heiðar Frímannsson, bókmenntagagnrýnandi, Morgunblaðið 18. des.)
1. prentun: Uppseld
2. prentun: Uppseld
3. prentun: Að seljast upp
Jón Hjaltason áritar:
Akureyri í dag, 21. des.
Möppudýrið kl. 13.00-15.00
Bókval kl. 20.00-21.00
Reykjavtk á morgun 22. des.
Eymundsson,
Borgarkringlunni,
kl. 14.00-16.00.
BOKAUTGAFAN
HÓLAR
h i
K j fi
JL J 44