Morgunblaðið - 21.12.1991, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
53
Bubbi:
*
Eg er .. ekkert sérstök
Hljómplötur
Andrés Magnússon
Á tónlistarferli, sem nú-spannar
um 15 ár, hefur Bubbi Morthens
komið víða við. Frá því að vera
trúbadúr með gítar til þess að vera
uppreisnarrokkari í leðri til þess að
vera trúbadúr með gítar. Hringnum
hefur verið lokað. Jólaplatan frá
Bubba í ár heitir „Ég er“ og er
tónleikaupptaka úr Púlsinum hinn
15. nóvember 1990. Og sem slík
er platan góð, á henni gefur að
heyra hinn sanna Bubba, trúbadúr-
inn með gítarinn.
Hljóðfæraleikurinn er yfirleitt til
fyrirmyndar og sérstaklega hefur
Bubba sjálfum farið fram sem gítar-
leikara, sem endurspeglast líka í
seinni lagasmíðum hans. Hins vegar
er hann engan veginn góður munn-
hörpuleikari. Undirleikararnir, þeir
Kristján Kristjánsson (KK) á gítar,
Þorleifur Guðjónsson á bassa og
Reynir Jónasson á harmonikku,
standa sig með prýði og sérstaklega
setur nikkan skemmtilegan svip á
mörg lög.
En lögin eru misjöfn. Á sama
tíma og ballöður á borð við Syneta,
Silfraður bogi, Stál og hnífur og
Sonnetta njóta sín til fulls er ekki
hægt að segja sömu sögu um
blúsana tvo, Isbjarnarblús og Seg-
ulstöðvarblús. Ékki svo að skilja
að flutningurinn sé hörmulegur, það
er hann síður en svo. Á hinn bóginn
er þetta ekki neinn blús, sem bæði
lögin eru þó í ætt við, heldur nán-
ast skandinavískar jasseftirlíkingar
af góðum blús. Slík tónlist getur
örugglega verið í góðu lagi á réttum
tíma og rúmi, en þessi plata er
ekki réttur vettvangur. Raddbeiting
Bubba í ísbjarnarblús er tilraun,
sem þessum gagmýnanda finnst
ekki ómaksins virði.
Tvö lög koma í fyrsta skipti út
á „Ég er“, en það em Rómantík
nr. 19 og Þarafrumskógur. Það er
skemmst frá að segja að hvorugt
laganna er tímamótaverk í íslenskri
popptónlist, og þá einkunn má e.t.v.
gefa skífunni allri. Fyrir menn eins
og undirritaðan, sem hafa fylgst
með Bubba frá upphafi, er „Ég er“
vitaskuld ómissandi í safnið og hún
sýnir þá hlið Bubba, sem honum
er líkast til kærust en hefur sjaldn-
ast notið sín til fulls á stúdíóafurð-
um hans. Fyrir þá sök er „Ég er“
merkileg, en að öðru leyti er platan
ekki neitt sérstök. Bubbi er ótví-
rætt með fremstu poppurum íslands
og fyrir vikið eru gerðar strangari
kröfur til hans en flestra annaira.
Kannski Bubbi hafi ofkeyrt sig með
GCD og þess vegna afráðið að taka
sér hvíld fyrir þessi jól, en „Ég er“
stendur því miður ekki undir þeim
væntingum, sem menn gera til ár-
vissrar plötu hans.
'nilfisk1
STERKA RYKSUCAN
Dansrænn bræðingnr
Hljómplötur
Guðjón Guðmundsson
Á safndiski Mezzoforte, Fortis-
simos, eru 15 lög, þar af tvö ný.
Eitthvað hafa þeir félagar breytt
útsetningum frá fyrri útgáfum og
eru þær allar einfaldari og dans-
rænni á safndiskinum. Einfaldleik-
inn er þó ekki alltaf til vansa, eins
og heyra má í ballöðunni klassísku
Early Autumn. Á disknum eru
smellir eins og Garden Party í
Sororicide:
Fyrsta flokks dauði og eyðilegging
Hljómplötur
Andrés Magnússon
Tónlist Sororicide er ekki fyrir
taugaveiklaða. Haldi lesendur að
þeir hafi einhverntíman kynnst
þungu rokki, ættu þeir að hlýða á
Sororicide og endurskoða afstöðu
sína, því tónlist þessara pilta skipar
Metallica á bekk með Paul
McCartney hvað þyngd áhrærir.
Það er erfitt að lýsa tónlist Sor-
oricide, helst að hún minni á brasil-
ísku hljómsveitina Sepultura, hjálpi
það einhveijum. Yfir allri plötunni
hvílir geigvænlegur drungi og það
væri synd að segja að textarnir léttu
yfirbragð hennar. Yrkisefnin virð-
ast helst fengin úr keðjusagar-
myndum og tónlistin er í stíl. Hið
eina sem spillir því er textinn Withe-
red Earth, sem íjallar um gróður-
eyðingu og annað frumlegt í þeim
anda. Umhverfisvæn lög eru orðin
leiðindaskylda allra poppara og
mikið óskaplega væri gaman ef ein-
hver léti umhverfísverndina eiga
sig!
Hljóðfæraleikurinn er yfirleitt
piýðilegur og trumbuslátturinn er
með ólíkindum. Tíðar taktskipting-
ar og hraði einkennir tónlistina og
það er ekki heiglum hent .að fást
við slíkt, en það gengur allt upp.
Hilmar Orn Hilmarsson ber mesta
ábyrgð á upptökum og honum ferst
starfinn vel úr hendi, en þó er ég
ekki frá því að gítararnir hefðu að
ósekju mátt vera framar. Það kem-
ur lítt að sök í sólóköflum, en þess
á milli drukkna þeir í bjögun.
Sororicide á bjarta (dimma?)
framtíð fyrir sér, iniðað við að hér
er einungis um frumraun að ræða
og eins hitt, að sveitarmeðlimir eru
allir ungir að árum. Lög eins og
The Entity, Vivisection, Sororicide
og Frightmares eru fyllilega sam-
bærileg við það besta, sem heyrist
í þessum geira tónlistar og lofa
góðu.
tveimur útgáfum (alltaf jafnung-
legt), No Limits, Rockall og fleiri
guilmolar.
Rótgróið afskipta- og áhugaleysi
virðist ríkja hér á laridi fyrir Mezzo-
forte - þrátt fyrir að sveitin hafi
að verðleikum fyrir löngu uppgötv-
uð erlendis. Tónlist Mezzoforte er
með því vandaðasta sem gerist í
bræðingsdeildinni og votta vinsæld-
ir hljómsveitarinnar á meginlandi
Evrópu glöggt um það. En hver fær
ráðið við einhæfan tónlistarsmekk
íslendinga? Ef til vill er við útgef-
andann að sakast því Mezzó hefur
ekki beinlínis verið otað að Islend-
ingum. Ekki minnist sá er þetta
ritar nema einna tónleika á allra
síðustu árum - í Tungiinu skömmu
eftir útkomu Playing for Time.
Á Fortissimos kemur fram fjöldi
tónlistarmanna auk félaganna í
Mezzoforte, meðal annars söngvar-
arnir Ellen Kristjánsdóttir og Noel
McCalla og erlendir listamanna sem
hafa áður komið við sögu á plötum
Mezzoforte.
Það verður að segjast að þetta
er ekki kjörgripur þeirra sem eiga
fyrri skífur Mezzoforte - til þess
eru útsetningar of einsleitar. Fyrir
þá sem hafa alltaf ætlað að kaupa
disk með Mezzó en aldrei látið verða
af því - þá er um að gera. Á honum
eru sýnishorn af því besta sem
sveitin hefur sent frá sér gegnum
tíðina.
Öflugur mótor með
dæmalausa endingu.
: "
lOlítra poki og
frábær ryksíun.
Afbragðs fylgihlutir.
NILFISK er vönduð og tæknilega
ósvikin - gerð til að endast.
VERÐ AÐEINS frá kr. 19.420 (stgr).
/FQniX
HÁTÚNI 6A SÍMI (91) 24420
J
Sverrir St.ormsker
Átján lög
eftir Sverri
Stormsker
GREITEST (s)hits er ný safn-
diskur með 18 lögum Sverris
Stormskers sem Skifan hf. gefur
út.
í kynningu útgefanda segir að á
þessum diski sé ferill Sverris rakinn
í stórum dráttum, en þar kennir
ýmissa grasa. Flest laganna á disk-
inum hafi verið ófáanleg um árabil
og voru aldrei gefin út á geisladiski.
Lögin er: Sjálfs er höndin holl-
ust, Dánarfregnir og jarðarfarir,
Ástaróður, Komdu með, Skál!,
Feigð, Búum til betri börn, Ég held
ég sé efins, Við erum við, Eg um
þig frá okkur til beggja, App-Bú,
Bless, Útó-pía, Állstaðar er fólk,
Andskodans, Þú ert eini vinur þinn,
Þórður og Magra veröld.
^4
>r vr >r >r vr >r >r vr >r >r 4r >r >r >r vr a: vr >r >r>r vr >r >r >r vr vr vr vr >r >r >r
llmker frá
Glit
Vasar - jólabjöllur -
könnur o.fl.
r r-
ii
Handunnir skartgripir-
postulínsnælur o.m.fl.
—
Kertastjakar og skartgripir úr
íslenskum steinum frá Petru
Sveinsdóttur á Stöðvarfirði
Steinvörur frá Álfasteini.
Klukkur - pennastatíf - fígúrur -
skartgripir o.fl.
Veggspjöld í úrvali t.d. ísl. hestalitir - fiskar - flórur
fuglar - sveppir - hvalir - stjörnukort. o.fl.
Úrval af íslenskum ullarvörum - keramik - T-bolir - kerti o.fl
*- -i
Kertastikur frá
Smíðagalleríi
OPIÐ LAUGARDAG KL. 10 -22
SUNNUDAG KL. 13 - 18
ÞORLÁKSMESSU KL. 9 - 23
AÐFANGADAG KL.9-12
J H A H J J1 J D
HAFNARSTRÆTI 3 v/NAUSTIN, SÍMI 91-22680