Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Golfverur
i úrvali
□ Golfhanskar frá kr. 700,- D V2 sett + pútter kr. 9.600,-
□ Púttholur frá kr. 195,- □ 6“ golfpokar kr. 1.470,-
□ Höggteljarar frá kr. 390,- □ Gjafakassi (9 stk.) kr. 2.960,-
□ Hlífar f/járn (8) kr. 1.150,- □ Æfingamotta stór kr. 3.430,-
□ Hlífar f/tré (1) kr. 550,- □ Golfkerrur frá kr. 6.810,-
□ Pokastandur kr. 3.200,- □ Nike- og Foot Joy skór
□ Maxfli skyggni kr. 550,- □ 18 gerðir af golfboltum
□ Boltatína kr. 695,- □ Bollar, bangsar, lyklakippur
□ Golfhandklæði kr. 295,- □ VHS myndbönd, 3 gerðir'
□ Ótal smáhlutir f/golfarann □ Regnhlífar fró kr. 1.850,-
Þú fœrðjólagjöfgolfarans
íþróttabúöin
Borgartúni 20, sími 620011.
hjá okkur
V etrarhj ólreiðar
Aurblaðka á frambretti.
eftirMagnús
Bergsson
Nú er vetur genginn í garð og
fyrr en síðar telja flestir að kominn
sé tími til að setja reiðhjólið í
geymslu.
Með tilkomu fjallahjóla er í raun
hægt að nota reiðhjólið allt árið um
kring svo lengi sem viðkomandi hef-
ur vald á því. Allir þeir, sem rækta
líkama sinn að einhvetju marki,
gætu haft vald á reiðhjóli. Allir þeir
sem stunda skíði eða líkamsrækt
hafa næga krafta og hæfni til að
nota reiðhjól yfir vetrarmánuðina.
Hjá flestum er það líklega veðrið og
ófærðin, sem verður til þess að fólk
setur hjól sín í geymslu. Svo eru það
aðrir sem láta það ekkert á sig fá
enda er í raun ekkert að veðrinu,
allavega hér á suðvesturhorninu.
Veðurfar hér á landi er tiltölulega
milt. I raun er það aldrei vont held-
ur mismunandi gott. Það sem gerir
hjólreiðar erfiðar er frekar bílaum-
ferðin. Þar skiptir engu hvort sumar
er eða vetur nema það, að sóðaskap-
urinn umhverfis bílana er enn meiri
yfir vetrarmánuðina. Saltið og
nagladekkin sem tæta upp malbikið
svo og olíuleki af öllum þessum bílum
verður til þess að sérstaklega þarf
að útbúa hjólið til að halda fatnaði
og skóm hreinum.
Þessi útbúnaður er reyndar lítið
annað en breið ’ bretti og góð aur-
blaðka á frambrettið. Þau bretti, sem
henta best, ættu að vera úr plasti.
Þó er ekki átt við þau sem hægt er
að smella á í fljótheitum. Vandamál
geta þó skapast ef dekkið er nær
því að nuddast í brettið. Það getur
orðið til þess að brettið hreinsi sig
ekki sjálft þegar snjór hleðst á það.
Þá getur reynst erfitt að hjóla suma
daga. Gott ráð er að skipta um dekk
og fá sér mjórra. í slabbinu er betra
að láta dekkið skera sig niður á fast
frekar en að fljóta ofan á krapinu.
Svo er annað ráð, sem getur reynst
enn betur, að verða sér úti um ann-
að gjarðasett með mjórri gjörðum.
Dekkin verða kúptari og því mjórri.
Allur sá fíni sandur sem leyst hefur
upp af malbikinu hefur afar slæm
áhrif á endingu gjarða og brem-
„Það er ekki víst að
fólk geri sér almennt
grein fyrir því hversu
góð föt skipta miklu
máli, ef reiðhjól er not-
að árið um kring. Fötin
þurfa að halda vatni og
vindi, vera létt og geta
„andað“.“
supúða og því meir sem gjörðin er
fyrir innan belg dekksins því minni
líkur eru á því að sandur komist að
gjörðinni.
Aurblaðka á frambretti er mikil-
væg til að hlífa skóm, sveifarlegum
og drifbúnaði. Ef þessi hlíf er ekki
til staðar gera bretti í sjálfu sér
ærið lítið gagn. Aurblaðkan þarf að
ná vel niður fyrir brettið. Best er
að blaðkan sé svo síð, að ekki sé
meira en 4 til 5 sm frá henni niður
á jörð. Hægt er að fá aurblöðkur í
sumum hjólreiðaverslunum, en þær
eru oft of stuttar. Þá er lítið annað
að gera en að sníða blöðkuna sjálf-
(ur). Það efni sem reynst hefur best
hingað til, er þykkt PVC-efni sem
má fá í seglagerðinni Ægi. Efnis-
magnið er á stærð við A4-blað, og
er því gott að nota slíkt blað til að
fá sniðið fyrir aurblöðkuna. Þegar
búið er að klippa PVC-efnið til hefur
reynst best að nota heftara til að
festa það á sinn stað.
• Gratík
eftir
• Hauk Dór
• Ingiberg H.
• Jód Reykdal
• Karólínu L.
• Tolla
• m Kall
INNROMMIN
★ Rammið inn fyrir jólin ★
RAMMA -nÖ3_
MIÐSTOÐIN SIGTÚNI 10-SÍMI 25054 y—_v
★ Stór
★ plaggata-
★ verslun
★ með
★ gott
★ verö
★ Ný sending
★ plaggöt