Morgunblaðið - 21.12.1991, Síða 58
... bara í ganni.
Kjörís
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Kristján Guðmundsson formaður
verkalýðsráðsins.
vælum og fatnaði, tekjuskattur
verði afnuminn af almennum
launatekjum og útsvör lækkuð,
eignaskattur af íbúðarhúsnæði til
eigin nota verði afnuminn.
Skattbyrði heimilanna er nú með
þeim hætti, að ekki verður við
unað. Það er því krafa verkalýðs-
ráðs til forystu Sjálfstæðisflokks-
ins, að skattlagningu verði hagað
þannig að afkoma lágtekjufólks
batni þegar í stað svo um muni.
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokks-
ins mótmælir veiðileyfagjaldi sem
nýrri tegund skattheimtu með til-
heyrandi millifærslum og leggst
gegn takmarkalausum útflutningi
óunnins sjávarfangs og sölu kvóta.
Vcrkalýðsráðið telur eðlilegt að
skylt verði að allur fiskur veiddur
í íslenskri landhelgi fari í gegnum
íslenska gólf- eða fjarskiptamark-
aði.
Húsnæðismálum:
Húsnæði er ein af frumþörfum
fólks, þvi er það eitt af grund-
vallarmarkmiðum verkalýðsráðs
Sjálfstæðisflokksins, að hver ein-
staklingur eigi þess kost að eign-
ast þak yfir höfuðið. Verkalýðsráð-
ið telur að efla eigi sjálfseignar-
stefnuna og færa lánveitingar til
almenna húsnæðiskerfisins inn í
bankakerfið og vinna að lengingu
lánstíma.
Félagslegri samhjálp:
Svo sem aukinni umönnun og
hjúkrun aldraðra, sérstaklega ber
að styrkja félagasamtök, fyrirtæki
og stofnanir í viðleitni sinni til að
vinna að hagsmunamálum aldr-
aðra.
Lífeyrismálum:
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokks-
ins skorar á ráðherra og þingmenn
Sjálfstæðisflokksins að þeir beiti
sér fyrir því að án tafar verði af-
numin tvísköttun lífeyrisgreiðslna
og varar við hugmyndum sem fram
hafa komið um verulega skerðingu
á makalífeyri. Jafnframt verði unn-
ið að breytingum á lífeyrissjóðun-
um sem miði að því að gera lífeyris-
greiðslur réttlátari og rekstur sjóð-
anna hagkvæmari en í dag.
Vaxtamálum:
Unnið verði markvisst að varan-
legri lækkun raunvaxta, sem komi
sem fyrst til framkvæmda þannig
að sú lækkun verði marktækt
framlag við gerð yfirstandandi
kjarasamninga.
Fræðslumál atvinnulífsins:
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokks-
ins leggur áherslu á stóraukna
starfsmenntun í atvinnulífinu.
--- , ♦------------
Kennarafélag
mótmælir
niðurskurði
í menntakerfi
STJÓRN Hins íslenska kennarafé-
lags mótmælir með álýktun harð-
lega fyrirhuguðum niðurskurði í
menntakerfinu og telur það van-
hugsaða aðgerð að skerða hlut
menntunar á samdráttartímum.
Stjórn HKÍ bendir á að ekki sé
hægt að spara í skólakerfinu við
núverandi aðstæður nema skerða
þjónustu við nemendur.
Leggst gegn takmarkalausum
útflutningi óunnins sjávarfangs
Frá aðalfundi verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins
Aðalfundur verkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokksins var haldinn í
Reykjavík 2. nóvember sl.
A dagskrá fundarins voru venju-
leg aðalfundarstörf. í upphafí
fundar flutti Markús Öm Antons-
son borgarstjóri ávarp. Ræður
fluttu á fundinum Friðrik Sophus-
son, fjármálaráðherra og vará-
formaður Sjálfstæðisflokksins um
stefnuna í ríkisfjármálum og
Hrafnkell A. Jónsson formaður
verkalýðsfélagsins Árvakur á Eski-
firði, um stöðuna í kjaramálum.
Nokkur endurnýjun varð í stjórn
verkalýðsráðs, en hana skipa alls
65 manns víðsvegar af landinu.
Eormannaskipti urðu, þar sem
Guðmundur Hallvarðsson alþingis-
maður gaf ekki kost á sér til endur-
kjörs. Kristján Guðmundsson for-
maður málfundafélagsins Óðins
var einróma kosinn formaður
verkalýðsráðsins til næstu tveggja
ára. Hér fer á eftir ályktun um
atvinnu- og kjaramál, sem fram-
kvæmdastjórn verkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokksins gekk endanlega
frá á fyrsta fundi sínum 3. desemb-
er sl.:
„Verkalýðsráð Sjálfstæðis-
flokksins ítrekar sem fyrr það
meginmarkmið að dagvinnutekjur
nægi til framfærslu. Um langan
tíma hefur launafólk fórnað miklu
sem þóléndur í síendurteknum
efnahagsaðgerðum ríkisstjóma.
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins
mótmælir því öllum hugmyndum
um einhliða breytingar á
samningsbundnum og lögbundnum
réttindum launafólks, sem náðst
hafa fram í frjálsum kjarasamn-
ingum.
Þjóðarsáttarsamningarnir hafa
skilað launafólki nokkrum kjara-
bótum, sérstaklega hefur þetta
komið fram í hagstæðara matvöru-
verði. Verkalýðsráð Sjálfstæðis-
flokksins leggur áherslu á, að það
er réttur hvers einstaklings að
hafa atvinnu og skylda hverrar
ríkisstjómar að tryggja það. Verk-
alýðsráð Sjálfstæðisflokksins lýsir
yfír áhyggjum vegna áralangra
erfíðleika í rekstri ýmissa þýðing-
armikilla atvinnugreina, sem hafa
valdið því að alvarlegir brestir hafa
komið í undirsteður atvinnulífsins.
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokksins
lýsir yfír áhyggjum vegna niður-
skurðar til velferðarmála, ef í ljós
kemur að hann muni íþyngja þeim
hópum sem standa höllum fæti í
samfélaginu.
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokks-
ins telur að ekki hafí farið fram
nægileg kynning á samningum um
EES, þannig að almenningur geti
áttað sig á með hvaða hætti íslend-
ingar skuldbinda sig til að lögfesta
m.a. gildandi EB-rétt á sviði at-
vinnu- og búseturéttinda og afsal
á dómsvaldi til EES-stofnana.
Verkalýðsráð Sjálfstæðisflokks-
ins leggur sem fyrr áherslu á úr-
bætur í:
Skattamálum:
Verkalýðsráð minnir á sam-
þykkt síðasta landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins um það markmið
flokksins að kaupmáttur launa-
fólks aukist um 3-4% árlega næstu
10 árin.
Skattar verði lækkaðir á brýn-
ustu lífsnauðsýnjum, svo sem mat-
MOKKAIS
MEÐ KRANSAKÖKUB0TN1