Morgunblaðið - 21.12.1991, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
Flug'þjónusta við Siglfirðinga
Okur eða eðlileg gjaldtaka
eftir Valbjörn
Steingrímsson
Fyrir skömmu voru töluverðar
deilur í bæjarstjórn Siglufjarðar
um verðlagningu íslandsflugs hf.
á flugleiðinni Reykjavík — Siglu-
fjörður. Þær deilur hafa vakið upp
umræðu um það hvort flugfélög
sem starfa í skjóli einokunar geti
einhliða stjórnað rekstri sínum án
-^fskipta hins opinbera og þeirra
sveitarfélaga sem mæla með því
að ákveðið flugfélag fái einkaleyfi
á flugleiðinni. Um þessi málefni
verður fjallað hér.
Staðan í dag.
í dag eru tvö flugfélög með
reglubundið áætlunarflug til Siglu-
fjarðar. Flugfélag Norðurlands er
með leyfi til áætlunarflugs á flug-
leiðinni Sigluijörður — Akureyri.
FN býður sínum farþegum uppá
framhaldsflug til Reykjavíkur og
þá með Flugleiðum. íslandsflug hf.
er með áætlun á flugleiðinni Siglu-
fjörður — Reykjavík.
Hið opinbera.
Ríkisvaldið, að fenginni umsögn
margra aðila þar með talið viðkom-
andi sveitarstjórna sem í hlut eiga,
veitir flugfélögum sérleyfi á flugi
til ákveðinna staða. Þegar Amar-
flug, nú íslandsflug hf., fékk sér-
leyfi á flugleiðinni Reykjavík —
Siglufjörður var eðli máls sam-
kvæmt leitað eftir umsögn bæjar-
stjórnar Siglufjarðar. Þar sem Arn-
arflug hafði lengi þjónað bæjarfé-
^Jlaginu og íbúum þess vel þótti sjálf-
sagt og eðlilegt að sú umsögn
væri jákvæð og góð í alla staði og
það sem meira er að bæjarstjórnin
óskaði hreinlega eftir því að Amar-
flug fengi þetta sérleyfi.
Verðstefna íslandsflugs hf.
Þegar íslandsflugi eða öllu held-
ur Amarflugi var veitt þetta sér-
leyfí síðast vom af hálfu bæjaryfír-
valda á Siglufírði engar athuga-
semdir gerðar við verðstefnu
félagsins. Síðan em liðin ein tvö
ár. Margt hefur breyst á þeim tíma
og eitt af því er það að almenning-
ur, ég þar meðtalinn, sættir sig
ekki við að einstök flugfélög eins
og íslandsflug geti komist upp
með, í skjóli einokunar að bjóða
ekki öllum viðskiptavinum sínum
upp á afslátt á almennum fargjöld-
um en á Vestmannaeyjaflugleið-
inni býður íslandsflug afslátt ef
keyptur er farmiði báðar leiðir en
að því verður vikið hér síðar. Auk
þess flaug Amarflug ekki til Vest-
mannaeyja á þeim tíma.
V estmannaeyjaflug
Islandsflugs hf.
íslandsflug flýgur nú milli
Reykjavíkur og Vestmannaeyja í
samkeppni við Flugleiðir. Á þeirri
flugleið einni af öllum þeim flug-
leiðum sem íslandsflug er með er
hægt að kaupa flugfarmiða með
40% afslætti ef keyptur er farmiði
báðar leiðir. Með þessari háttsemi
mismunar íslandsflug viðskipta-
vinum sínum eftir því hvar á land-
inu þeir búa.
Umræður í bæjarráði
Þessi mismunun á fargjöldum
íslandsflugs hf. var rædd óform-
lega í bæjarráði Siglufjarðar fyrr
í sumar og var bæjarstjóra falið
að hafa samband við forráðamenn
félagsins, benda þeim á þetta órétt-
læti og leita eftir leiðréttingu.
Framkvæmdastjóri félagsins lofaði
bæjarstjóra því að fargjöld yrðu
endurskoðuð þegar vetraráætlun
félagsins yrði gefín út. Voru bæjar-
fulltrúar sáttir við þessa niðurstöðu
og töldu menn þar með að málinu
væri lokið. Vetraráætlun íslands-
flugs kom fyrir almenningssjónir í
september sl. Þá kom íljós að fyrri
loforð forráðamanna íslandsflugs
höfðu verið svikin. Þegar þessi nið-
urstaða lá fyrir var ljóst að annað-
hvort sættu bæjaryfírvöld sig við
hana eða gripu til einhverra að-
gerða. Það er skemmst frá því að
segja að fulltrúar Alþýðuflokksins
og F-listans töldu í Ijósi fjárhags-
þrenginga íslandsflugs að ekki
væri raunhæft að halda málinu til
streitu.
Auk þess óttuðust þeir að ferð-
um myndi fækka til Siglufjarðar
ef íslandsflug yrði neytt til að gefa
viðskiptavinum sínum kost á af-
sláttarfargjöldum. Ég var og er á
þeirri skoðun að ef íslandsflug
treysti sér ekki til að bjóða Siglfirð-
ingum og öðrum viðskiptavinum
sínum sambærileg kjör og þeir
bjóða Vestmannaeyingum þá væru
vafalaust til önnur flugfélög sem
væru tilbúin til þess. Það er kjarni
málsins.
Tillöguflutningur í bæjarráði
og málsmeðferð þar
Endurrit úr fundargerðum bæj-
arráðs Siglufjarðar 9. og 16 okt
1991.
Tillaga: „Bæjarráð Siglufjarðar
ítrekar fyrri áskorun til íslands-
flugs hf. að endurskoða nú þegar
gjaldskrá félagsins á flugleiðinni
Reykjavík — Siglufjörður. Það er
krafa bæjarráðs að Siglfírðingar
og aðrir þeir er nota vilja þjónustu
íslandsflugs njóti ekki lakari kjara
en íslandsflug býður á flugleiðinni
Reykjavík — Vestmannaeyjar. Ef
íslandsflug hf. er ekki reiðubúið
til fyrrnefndrar endurskoðunar
mun bæjarráð Siglufjarðar óska
eftir því við Samgönguráðherra að
hann beiti sér fyrir því hið fyrsta
að aflétt verði einokun íslandsflugs
hf. á flugi til Siglufjarðar.“
Greinargerð: „Bæjarstjóm Siglu-
fjarðar hefur í gegnum tíðina stutt
dyggilega þau flugfélög sem hing-
að fljúga og átt við þau góð sam-
skipti. Því er leitt til þess að vita
að nýir eigendur íslandsflugs hf.
(áður Arnarflugs hf.) skuli ekki
sýna meiri sanngirni við rekstur
síns félags gagnvart einni af bestu
áætlunarleið fyrirtækisins. Það er
með öllu óþolandi að íslandsflug
láti Siglfirðinga greiða niður flugf-
argjöld til og frá Vestmannaeyjum.
Þar að auki lofaði framkvæmda-
stjóri íslandsflugs hf. því fyrr í
sumar að fargjöldin yrðu endur-
skoðuð þegar vetraráætlun kæmi
til framkvæmda. Tilefni tillögu
þessarar er fyrst og fremst að ná
fram lækkun flugfargjalds þegar
keyptur er farmiði fram og til baka.
Því er þessi tillaga flutt.“
Yalbjörn Steingrímsson
Á bæjarráðsfundi 16. október
Valbjörn Steingrímsson
„Vetraráætlun Islands-
flugs kom fyrir almenn-
ingssjónir í september
sl. Þá kom í ljós að fyrri
loforð forráðamanna
íslandsflugs höfðu ver-
ið svikin.“
var tillagan tekin til afgreiðslu.
Tillagan var felld með tveimur
samhljóða atkvæðum. Lagðar voru
fram eftirfarandi bókanir: Bókun
1: „Við undirrituð teljum að tillögu-
flutningur af þessu tagi sé ekki til
að bæta þjónustu við Siglfirðinga.
Þvert á móti teljum við að fram-
setning á þessum nótum geti skað-
að hagsmuni okkar og spillt fyrir
góðum samskiptum við viðskipta-
aðila okkar annarstaðar."
Olafur Marteinsson, Ólöf Kristj-
ánsdóttir.
Bókun 2: „Mér þykir leitt til
þess að vita að bæjarfulltrúarnir
Ólafur Marteinsson og Ólöf
Kristjánsdóttir skuli ekki treysta
sér til þess að setja hagsmuni Sigl-
firðinga ofar hagsmunum íslands-
flugs hf. í tillögu minni segir skýrt
'Andrúmsloft j ólanna
Standa þau aðeins yfir einn dag?
Hugleiðing á jólum
eftir Alfreð J. Jolson
Þegar við virðum fyrir okkur
heiminn eins og hann var 1991 Iigg-
ur okkur við að efast um hvort
Kristur hafí í raun og veru komið
í heiminn fyrir nærfellt 2000 árum.
Hatrið virðist geisa af svo mikilli
grimmd í Júgóslavíu.
Næstum því ár er liðið síðan
Persaflóastríðinu lauk og þar liggja
tugir þúsunda manna grafnir í
sandinn og aðrar þúsundir skjálfa
af kulda í flóttamannabúðum.
Dauðasveitirnar í Suður-Ameríku
myrða þúsundir útigöngubarna á
götunum, hundrað milljónir barna
ráfa heimilislausar um götur borg-
anna og eru þau flestöll feig.
Hvar er Kristur? Er návist hans
ekki annað en skammvinn fagnað-
aróp og gjafmildi 25. desember?
I myndasögunni Smáfólk (Pea-
nuts) velti Linus því eitt sinn fyrir
sér hvers vegna við gætum ekki
varðveitt andrúmsloft jólanna allt
árið. Þá svaraði Lúsía: „Hvað er
að þér? Ertu svona ofstækisfullur?"
En hvers vegna ekki? Jólin eru
ekki staður eins og Jólaeyjan sem
^Jqmes Cook fann 24. desember
1777. Þau eru auðvitað hátíð sem
valin hefur verið dagsetning á þeim
tíma sem heiðingjar héldu sigurhá-
tíð sólarinnar hátíðlega. En jólin eru
meira en hátíð.
Einhver skrifaði söguna „Maður-
inn sem var jól“, en jólin tákna
raunverulegan mann — sem ekki
var aðeins maður heldur líka Guð
— Jesúm Krist. Þegar Hirohito keis-
ari dó 1989 var talað um hann sem
guðinn sem varð maður. Það þurfti
fyrirskipun frá sigurvegaranum,
Douglas McArthur, til þess að nema
hann úr guða tölu.
En Guð varð aðeins í eitt skipti
maður — og hélt áfram að vera Guð.
I Zica, í þeirri Júgóslavíu sem
var, er lítil kirkja með sjö dyrum.
Sjö konungar Serbíu voru krýndir
í þeirri kirkju og það þótti ekki við
hæfi að nýr konungur gengi inn í
kirkjuna gegnum sömu dyr og ann-
ar konungur. Þess vegna voru gerð-
ar nýjar dyr fyrir hvern nýjan kon-
ung.
Og Jesús kom í heiminn á sama
hátt og við öll, gegnum móðurlíf
konu — að vísu sérstakrar konu —
Maríu meyjar.
Á jólunum eru gefnar gjafir.
Patrick Hugh Flinn gekk þvert yfir
Evrópu til Konstantínópel 1933 og
skrifaði um þá ferð bók sem hann
nefndi „Gjafatími". í henni minntist
hann allrar þeirrar gestrisni sem
hann varð þá aðnjótandi, því honum
var alls staðar gefið. Annar maður
sem ferðaðist einn um jólin í landi
þar sem islam voru einu trúarbrögð-
in og kristindómurinn var bannaður
vildi halda upp á jólin svo hann gaf
börnum sem hann hitti sælgæti.
Hann hélt jólin hátíðleg með því
að gefa.
Guð gaf sjálfan sig — son sinn!
Um hina ríku og frægu hefur verið
skrifuð bók sem nefndist „Aðeins
þeir bestu“. Guð gaf okkur þann
sem bestur var, hann gaf okkur
sjálfan sig. Getum við gert minna?
Guð biður okkar að gefa sjálf okkur
— kærleika okkar til hans — sér-
staklega með því að elska aðra en
láta ekki nægja að biðja til hans
og segja honum að við elskum hann.
Á jólunum ríkir umhyggja. Mörg-
um finnast tilkynningar óþolandi.
Stundum eru engar tilkynningar í
kirkjunni eða presturinn vísar
mönnum á kirkjublaðið. í kirkjubúð-
um nokkrum var sungið á þessa
leið:
Tilkynningar! Tilkynningar! Tilkynningar!
Hversu hræðilegur er sá dauðdagi!
Hveisu hræðilegur er sá dauðdagi!
Hversu hræðitegur er sá dauðdagi að biða
bana af málæði!
Hversu hræðilegur er sá dauðdagi!
En í dag minnumst við tilkynn-
ingar sem fjárhirðar fögnuðu og
menn hafa fagnað alla tíð síðan:
„í dag er yður frelsari fæddur."
Það er það sem við vonuðum, það
sem við þráðum. Hjálpræði okkar
var ekki aðeins orð eða áform —
það var maður — Jesús Kristur.
Því getum við talað um manninn
sem var jólin. Hann var Jesús. Jes-
ús er jólin. Jesús er frelsari okkar.
Alfreð J. Jolson
Fagnið! Ákveðið að lifa í tímanum
sem tilheyrir Jesú, frelsara ykkar —
og ákveðið það nú! Að lifa eins og
Jesús — að vera Jesús. Að gefa og
miðla af tíma ykkar, fjölskyldu ykk-
ar og heiminum ykkar. Biðjið og
syngið líka:
Þií, barnið helga í Betlehem,
ég bið þig, kom til mín
og hreinsa mig af sök og synd
svo sál mín verði þín.
(Phillips Brook, T.Ó. þýddi.)
Já, Linus, við getum varðveitt
andrúmsloft jólanna allt árið, eins
og Jesús er hjá okkur alit árið. Guð
blessi ykkur á þessum jólum og
alla jóladaga nýja ársins.
Höfundur er biskup kaþólskra á
íslandi.
og skorinort að Siglfirðingum beri
sambærileg kjör og Vestmannaey-
ingar njóta í viðskiptum sínum við
íslandsflug hf. Það er ljóst að
bæjarstjóri hefur reynt á kurteisan
og yfírvegaðan hátt að ná fram
hagsmunum Siglfirðinga í þessu
máli en það ekki dugað. Því var
að mínu mati nauðsynlegt að fram
kæmi afdráttarlaus skoðun bæjar-
stjórnar í málinu. Því miður virðist
meirihluti bæjarráðs vilja óbreytt
ástand og það hlýt ég að harma.“
Valbjörn Steingrímsson.
Bókun 3: „Þar sem ekki liggja
fyrir upplýsingar um fargjöld hjá
íslandsflugi, Flugfélagi Norður-
lands og Flugleiðum treysti ég mér
ekki til að taka afstöðirtmeð eða
á móti.“
Skarphéðinn Guðmundsson.
Innanlandsflugið, almennt.
í ljósi þessa sem hér hefur fram
komið vakna margar spurningar.
Hvers vegna komast flugfélög eins
og íslandsflug upp með slíka hátt-
semi? Hvers vegna hefur svokölluð
flugeftirlitsnefnd eða samgöngu-
ráðuneytið ekki mótað einskonar
samkeppnisreglur þar sem öllum
flugfélögum er fljúga á einka-
leyfisvernduðum flugleiðum er
gert skylt að bjóða ákveðin afslátt-
arfargjöld eins og t.d. Flugleiðir
gera á öllum sínum leiðum óháð
því hvort samkeppni er á flugleið-
inni eða ekki? Hvers vegna keypti
Flugtak Arnarflug hf. ef rekstrar-
grundvöllurinn er svo slæmur að
mismuna þarf viðskiptavinum fyr-
irtækisins? Fyrst Árnarflug hf.
þurfti meðmæli frá bæjarstjórn
Siglufjarðar til þess að fá þessa
flugleið er þá ekki rökrétt að Sigl-
firðingum komi meira við en ella
hvernig þjónustustigið er hjá fyrir-
tækinu?
Að lokum
Þetta málefni sem hér hefur
verið til umræðu er ekki einkamál
Siglfírðinga og íslandsflugs. hf.
Þetta er málefni allrar þjóðarinnar.
Mikill ferðakostnaður er ein
ástæða margra fyrir hinum mikla
flótta landsbyggðarfólks til höfuð-
borgarsvæðisins. Kerfí sem úthlut-
ar sérleyfum verður að setja al-
mennar reglur um viðskiptahætti
þeirra sem sérleyfi fá. Því vil ég
hér skora á samgönguráðherra, að
hann beiti sér fyrir leiðréttingu
þessara mála. Núverandi ástand
er með öllu óþolandi. Þessu ástandi
er etv. best lýst með því að það
kostar 11.900 kr. að fljúga fram
og til baka á flugleiðinni Siglu-
fjörður-Reykjavík hjá íslandsflugi
en 14.300 kr. Akureyri-Dublin hjá
Samvinnuferðum-Landsýn, reynd-
ar í leiguflugi.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins á Siglufirði
og ájafnframt sæti í bæjarráði.
♦ ♦ ♦---
Vetrarsól-
stöðuferð
NÁTTÚRUVERNDARFÉLAG
Suðvesturlands fer í stutta nátt-
úruskoðunarferð sunnudaginn
22. desember út fyrir Engey með
ms Árnesi. Farið verður frá
Grófarbryggju klukkan 12.30
í frétt frá félaginu segir að mikið
útfiri verði klukkan 13 og því kjör-
ið tækifæri að virða fyrir sér strönd-
ina og mynda hana. Tekin verða
sýni af botndýrum með botnsköfu
og krabbagildru. Ferðin tekur hálfa
aðra hlukkustund og kostar 1.200
krónur. Hálft gjald verður fyrir
börn á aldrinum 8 til 14 ára. Gefi
ekki á sjó er boðið í gönguferð með
gömlu höfninni og lífríki hennar og
saga rifjuð upp. Lagt verður af stað
frá Hafnarhúsinu.
Þá bendir félagið á að mánudag-
inn 23. desember verður stór-
straumsfjara, sem er ein stærsta
fjara ársins klukkan 13,52. Gefst
þá gott tækifæri til. þess að skoða
fjöruna.