Morgunblaðið - 21.12.1991, Síða 86
86
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 21. DESEMBER 1991
GETRAUNIR
ÍÞRÍrmR
FOLK
■ MICHAEL Thomas, sem kom
inná sem varamaður hjá Liverpool
fyrir Mölby í 2:1 sigri gegn Totten-
ham á miðvikudaginn, verður í
fyrsta sinn í bytjunarliðinu í dag,
þegar Liverpool fær Manchester
City í heimsókn.
■ THOMAS var keyptur í staðinn
fyrir Steve McMahon, sem gengur
að öllum líkindum yfir í City að
leik loknum. Thomas og McMahon
v,erða saman á miðjunni í dag.
■ PETER Reid, þjálfari og leik-
maður City, velur sjálfan sig senni-
lega í liðið og verður þá á miðj-
unni. „Liverpool lék vel gegn Tott-
enham og er á fleygiferð, en við
höfum fullan hug á að sigra eins og
í fyrri leiknum á Main Road í
ágúst,“ sagði Reid.
■ MARK Walters verður í hópn-
um hjá Liverpool.
■ PAUl Merson hefur verið veik-
ur alla vikuna, en lék með b-liði
Englands og skoraði gegn Spáni á
miðvikudag og verður sennilega
með Arsenal í dag. Hann hefur
ekki misst úr leik á tímabilinu.
■ GEORGE Graham sagði að
•’Merson, David Seaman, Nigel
Winterburn, David Rocastle og
Kevin Kampbell, sem léku allir á
Spáni, væru útkeyrðir eftir ferða-
lagið. „Þetta er ekki besti undirbún-
ingurinn fyrir leik gegn Everton,"
sagði Graham. Hann hafði samt
ekkert á móti landsleiknum og sagði
skiljanlegt að menn sínir vildu leika
fyrir landsliðið, því þeir væru mjög
metnaðarfullir.
■ TONY Cottee hefur náð sér
eftir meiðsli og verður með Everton
mdag.
■ ROBERTO Baggio verður
miðheiji Ítalíu með Vialli gegn
Kýpur í Evrópukeppninni í dag.
Ítalía þarf eitt stig til að tryggja
sér annað sætið í riðlinum á eftir
Sovétríkjunum og verður þá í við-
bragðsstöðu ef Sovétríkin v taka
ekki þátt í úrslitakeppninni.
■ TRAPA TTONI, þjálfari Ju-
ventus, segir að Baggio sé ómögu-
legur miðhetji en þeim mun betri á
miðjunni. Sacchi, landsliðsþjálfari,
er á öðru máli og með því að hafa
Baggio frammi, getur hann sett
Gianfranco Zola hjá Napólí á
miðjuna.
■ JEAN-Pierre Papin verður
sennilega valinn knattspyrnumaður
Evrópu á morgun.
■ ÞÝSKIR fréttamenn völdu
meistaralið Kaiserslautern sem lið
ársins í Þýskalandi.
■ TERRU Butcher, fram-
kvæmdastjóri Coventry, er hættur
að leika með liðinu og við það lækka
laun hans um 100 þús. ísl. kr. á
viku. Vikulaun hans verða „aðeins“
300 þús. krónur.
■ JÚRGEN Kohler hjá Juvent-
us, er besti leikmaðurinn í ítölsku
knattspyrnunni að mati frétta-
manna þar í Iandi. Kohler, sem er
fastamaður í þýska landsliðinu,
hefur slegið í gegn á sínu fyrsta
keppnistímabili með Juventus.
trrraciíí-'ásitelse**- «»c
sérstakt lið
Lothar Matth'áus.
Ríkisstjórn Úkraníu fór þess á
leit við Alþjóða ólympíunefnd-
ina, IOCj í fyrradag að hún viður-
kenndi Olympíunefnd Úkraníu og
geri henni kleift að senda sérstakt
lið íþróttamanna á Olympíuleikana
í Barcelona næsta sumar. Bent er
á að 15 þjóðir hafi viðurkennt Úkra-
níu sem sjálfstætt ríki. Moldavía
og Georgía höfðu áður sent IOC
samskonar erindi, en aðstoðar-
íþróttamálaráðherra Sovétríkjanna
sagði fyrr í vikunni að Sovétríkin
myndu senda sameiginlegt lið til
Barcelona.
Sovétríkin tóku fyrst þátt í
Olympíuleikum 1952 og síðan hefur
íþróttafólk frá Úkraníu unnið til
meira en 400 verðlauna á Ólympíu-
leikum og þar af fengið 177 gull-
peninga. 93 Úkraníumenn voru í
liði Sovétríkjanna á ÓL í Seoul 1988
og uppskáru þeir 53 verðlaunapen-
inga, þar af 19 gull.
Juan Antonio Samaranch, forseti
IOC, sagði fyrir skömmu að fulltrú-
um ríkja innan núverandi Sovétríkja
yrði boðið til höfuðstöðva IOC í
Sviss í mars n.k. til að finna lausn
á þátttöku Sovétríkjanna, nýja sam-
veldisins eða einstakra ríkja innan
þeirra.
Knattspyrnusamband Úkraníu
hefur þegar ákveðið að knatt-
spyrnumenn frá Úkraníu megi leika
fyrir hönd Sovétríkjanna í úrslita-
keppni Evrópumóts landsliða í Sví-
þjóð í júní n.k., en hefur sagt sig
úr sovésku deildinni og stofnað eig-
in sex liða deild.
„Við getum endurheimt Evrópumeistaratitilinn,"
segir Mattháus, íyrirliði Þjóðverja
Bryan Robson, fyrirliði United. Á
myndinni hér til hliðar sjást Bobby
Charlton, sem var meistari með félag-
inu 1967 og Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri.
BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Þýskalands, skaut töppum úr
kampavínsflöskum í Leverkus-
en, eftir að lið hans hafði tryggt
sér farseðilinn í úrsiitakeppi
EM í Svíþjóð, með því að vinna
Luxemborg, 4:0. „Strákarnir
hafa leikið vel að undanförnu
og sýna að þeir leika best und-
ir pressu," sagði Vogts.
Lothar Mattháus, fyrirliði þýska
liðsins, sem hefur aldrei verið
betri, þó að hann sé 30 ára, sagði
að þýska liðið sé komið í þann
gæðarflokk sem það var í HM á
Italíu. „Ef við höldum áfram að
leika eins og við höfum leikið síð-
ustu fjóra leiki okkar, þá hef ég trú
á að við getum endurheimt Evrópu-
meistaratitilinn í Svíþjóð,“ sagði
Mattháus.
Þjóðverjar leika fjóra vináttu-
landsleiki áður en þeir halda til
Svíþjóðar - gegn ítölum, Tékkum,
Tyrkjum og einnig vonast þeir eftir
að leika gegn írum eða Portúgölum.
Úkranía óskar I
eftir að senda *
„Hef trú á að United
fari alla leið“
- segir Paul McGrath, fyrrum leikmaður Man. United, sem leikur með
Aston Villa á Old Trafford í dag. Robson og Sharpe klárir í slaginn
BRYAN Robson, fyrirliði Man-
chester United og hinn efnilegi
Lee Sharpe hafa náð sér eftir
meiðsli og leika með gegn As-
ton Villa á Old T rafford í Man-
chester í dag. „Ég er nú með
alla leikmenn mína heila - í
fyrsta skipti síðan ég kom til
Old T rafford,11 sagði Alex
Ferguson, framkvæmdastjóri
Man. Utd., sem tók við liðinu
1986. Man. Utd. og Leeds há
nú mikið einvígi um Englands-
meistaratitilinn.
Robson hefur misst af tveimur
síðustu leikjun United vegna
meiðsli á fæti - vöðvi tognaði.
Sharp hefur átt við meiðsli að stríða
í nára í sjö mánuði, eða síðan hann
fagnaði sigri með félögum sínum í
úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa,
þegar United lagði Barcelona. Hann
hefur leikið þijá leiki með unglinga-
liði félagsins á tíu dögum og hefur
staðist prófið.
„Við eigum erfiða leiki framund-
an yfir jólin og því er gott að vera
með'alla leikmennina heiia,“ sagði
Ferguson. Það verða margir kunnir
kappar sem koma á Old Trafford,
eins og Ron Atkinson, fram-
kvæmdastjóri Aston Villa, sem var
áður stjóri hjá United og leikmenn-
irnir Paul McGrath, miðvörður og
markvörðurinn Les Sealey.
McGrath hefur trú á því að
United vinni meistaratitilinn nú -
í fyrsta sinn síðan 1967. „Eftir að
ég sá United leika gegn Chelsea á
Stamford.Bridge, sá ég að leikmenn
félagsins hafa alla burði til að fara
alla leið og fagna meistaratitli.
Leikmennirnir eru sterkir og góðir.
Liðið er betra en þegar ég lék á
Old Trafford með leikmönnum eins
og Gordon Strachan og Jesper Ols-
en. Nú leika ungir og stórgóðir leik-
menn með liðinu, eins og Ryan
Giggs og Lee Sharpe.“ United vann
Chelsea, 3:1.
Leeds leikur úti gegn Notting-
ham Forest í dag.
Besti árangur-
inn ,ygleymdislM
Morgunblaðinu hefur borist eft-
irfarandi bréf:
Enn einu sinni hefur stjórn
Skotsambands íslands gengið
fram hjá besta árangri ársins í
skotfimi, við val á íþróttamanni
ársins í skotfimi. Að þessu sinni
var í annað sinn valinn Einar
Páll Garðarsson, haglabyssumað-
ur og fyrrverandi stjórnarmaður
í Skotsambandinu. I bæði skiptin
sem hann var valinn voru aðrir
en hann með besta árangur ársins.
■ _ Tryggvi Sigmanson í Noregi
(Islenskur ríkisborgari) hlaut 575
stig í loftskammbyssu í Finnlandi
í júlí 1991. Besti árangur Einars
Páls Garðarssonar sem vitað er
um er hinsvegar aðeins 189 stig
í Haglabyssu Skeet í Leirdal í
sumar. Það svarar til 572 stiga í
Loftskammbyssu.
Auk þess fara mótin í Leirdai
ekki fram í samræmi við alþjóða-
reglur.
Er stjórn Skotsambandsins
ekki búin að blekkja ÍSÍ og ís-
lensku þjóðina nógu lengi með
þessum makalausa titli?
Carl J. Eiríksson
Heimaleikir frá 1979 1 X 2 Mörk Úrslit Mín spá 1 x 2
01 • —7.1-/.J—
Arsenal : Everton 8 2 2 14-6
Chelsea : Oldham 4 2 0 13-4
Liverpool : Manchester City 5 2 1 18-8
Manchester Utd. : Aston Villa 7 3 1 28-11
Norwich : Queens Park R. 4 2 2 6-5
Sheffield Wed. : Wimbledon 1 1 2 2-4
West Ham : Sheffield Utd. 1 0 0 5-0
Blackburn : Derby 5 0 0 15-3
Brighton : Millwall 1 1 1 1-1
Grimsby : Leicester 1 1 0 4-2
Middlesbro : Oxford 1 1 1 1-1
Port Vale : Wolves 1 0 1 4-3
Sunderland : Portsmouth 1 2 1 7-5
Þjóðvevjar
óstöðvandi
KNATTSPYRNA
OLYMPIULEIKAR