Morgunblaðið - 22.04.1992, Qupperneq 48
48
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. APRÍL 1992
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þig langar til að koma nýrri
hugmynd þinni í framkvæmd.
Talaðu við yfirmenn þína í
vinnunni. Nærgöngul spurning
kann að koma róti á hug þinn
í kvöld.
Naut
(20. apríl - 20. maí) Iffö
Hittu ráðgjafa þína að máli.
Þú ferð í stutt viðskiptaferða-
lag. Þú hugar að möguleikum
þínum til endurmenntunar.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) 5»
Þú þarft á allri þinni skerpu
að halda til að stýra fjármálun-
um í höfn og ákveða hversu
miklar fjárhagsskuldbindingar
þór er óhætt að axla.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) Híi0
Þú talar við maka þinn um
uppeldi barnanna. Þið þurfið
að taka sameiginlega á. Þér
kann að sinnast við ættingja
þinn, en það verður ekkert al-
varlegt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Almenn skynsemi þín hjálpar
þér bæði heima við og í starf-
inu. Samvinna er mottó dags-
ins.
Meyja
(23. ágúst - 22. sentemher) <ti^
'í’ú ert í miklum vinnuham í
dag og þráir að skapa eitthvað.
Sinntu áhugamálum þínum ef
þú mögulega kemur því við. .
Vog
(23. sept. - 22. október)
í dag er tilvalið fyrir þig að
versla og sinna ýmsum verefn-
um heima fyrir. Þú kannt að
fá óvæntan gest í heimsókn.
Leitaðu ráð hjá fleiri en einum
aðila ef þú ert að hugsa um
að ráðast í einhveijar fram-
kvæmdir.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) C)(j0
Sinntu mikilvægu símtali og
-^þyijaðu á skapandi verkefni
meðan þú átt svona auðvelt
með tjáskipti við annað fólk.
Þú verður fyrir truflunum sem
koma í veg fyrir að þú getir
lokið öllum skylduverkunum.
Bogmaöur
(22. nóv. — 21. desember)
Hafðu ekki hátt um fjármála-
viðræður sem þú tekur þátt í.
Þú sinnir rannsóknarverkefni
sem tengist starfi þínu. Það
sem gerist á bak við tjöldin
kann að hafa slæm áhrif á
samband þitt við náinn ætt-
ingja eða vin.
Steingeit
t$2. des. - 19. janúar) X*
Þú átt örvandi skoðanaskipti
við vin þinn í dag. Þú leitar
leiða til að fá útrás fyrir ein-
staklingseðli þitt og sköpunar-
hæfileika og setur þér ný mark-
mið til að keppa að.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú þarft ef til vill að neita heim-
boði í dag til að hafa meiri tíma
fyrir starfið. Hugsun þín er
kristalstær og innsæi þitt
blómstrar.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) Lmn
Þú hefur samband við vini sem
búa í fjarlægð. í kvöld tekur
þú þátt í félagsstaifí. Gættu
þess að ofgera hvergi.
Stjörnusþána á að lesa sem
dœgradvól. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DÝRAGLENS
TOMMI OG JENNI
FERDINAND
SMÁFÓLK
YE5,MA'AM..WE'S MY 906...
NO, IF HE 5IT5 UiAY IN THE
BACK,HE U)0N T BOTHER ANY0NE
WHAT WA5 THAT THING l'E BEF0KE M EKCEPT AFTEK G,"
A50UT " I BEF0RE C" 0R 0K 15 IT "THKEE BEFORETOOO
50METHING? I 5H0ULP KN0U) IN CA5E 5HECALLS ON ME... EXCEPT AFTER TEN "? - ——
■ ^ /—>c-
ÍU> 1
Já, kennari ... hann er hundurinn
minn ... nei, ef hann situr aftast
ónáðar hann engan.
Hvað var þetta með „I á undan C“
eða eitthvað? Ég ætti að vita það
ef hún skyldi taka mig upp.
„E á undan M nema eftir G“ eða
er það „þrír á undan tveimur nema
eftir tíu?“
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Eiríkur Hjaltason hitti á besta
útspilið gegn 6 tíglum Sævars
Þorbjömssonar. Hann kom út
með lítið lauf og slemman sýnd-
ist dæmd til að tapast.
Norður gefur; allir á hættu.
Vestur Norður ♦ ÁKG3 VKD4 ♦ ÁK75 ♦ 104 Austur
♦ 42 ♦ D965
♦ G763 II V 1092
♦ 9 ♦ G43
♦ K97632 ♦ D85
Suður ♦ 1087 VÁ85
♦ D10862
*ÁG
Spilið kom upp í 6. umferð
Islandsmótsins og enduðu 7 pör
af 8 í slemmu. Tveir sagnhafar
töpuðu slemmunni eftir lauf út,
hinir fengu þægilegri vörn og
fríuðu spaðann, en Sævar náði
12 slögum þrátt fyrir útspilið.
Karl Sigurhjartarson í norður
sýndi í upphafi sagnhafa sterka
jafnskipta hönd og þegar Sævar
spurði frekar um skiptingu með
3 laufum, doblaði Eiríkur.
Skömmu síðar átti hann sjálfur
út og gerði vel í því að spila út
frá kóngum, þrátt fyrir fyrir-
stöðusögn suðurs í laufi.
Sævar drap á laufás, tók
trompin og þrisvar hjarta. Guð-
mundur Pétursson segir frá spil-
inu í mótsblaðinu og lýsir því
svo: „I afköstum fullkomnaði
vestur talninguna í lauflitnum
og gaf ennfremur í hjartaslögun-
um til kynna lengd sína þar.
vakandi eins og valur yfir ijúpu
lét Sævar ekkert af þessu fara
fram hjá sér, tæmdi hjörtun og
eftir að hafa tekið báða hæstu
í spaða skaðspilaði hann vestur
í lauf. Vestur gat ekkert gert
annað en spilað út í tvöfalda
eyðu.“ m
Umsjón Margeir
Pétursson
Það er lengi hægt að endur-
bæta skákir. Nýlega rakst ég á
skák í þýsku blaði sem ég hafði
áður birt hér í skákhorninu at-
hugasemdalaust. Þá fékk ég nýja
hugmynd sem reyndist standast:
Hvítur leikur og mátar í sjö-
unda:
Staðan kom upp í viðureign
Israelsmannanna Richlis og Man-
or á svæðamóti í Bern í Sviss
árið 1990. Langbesti og svo ekki
sé talað um glæsilegasti leikur
hvíts er:
25. Dxh6+!! og nú á svartur
ekki betri leið til að fresta hinu
óumflýjanlega en 25. - KxhG,
26. Bg+ — Kh5 (engu breytir 26.
— Hxg5, 27. Hxg5 og óveijandi
mát á h3 eða 27. — Kg7, 27.
Be7+ o.s.frv.) 27. Hh3+ - Kg6,
28. Bf6! - Dxd4+, 29. cxd4 -
Bxf6, 30. Hdg3+ - Bg5, 31.
Hxg5 mát!
Skákin hefur birst í ótal blöð-
um, m.a. með skýringum eftir
Rechlis sjálfan og hefur 25. Bg5
enga gagnrýni fengið fyrr en hér.
Rechlis hefur hins vegar fengið
mikið lof fyrir leið sina: 25. Bg5?!
(sá næstbesti) 25. — Hg6 (þessi
staða birtist hér í Mbl. fyrir rúm-
um tveimur árum) 26. Bxh6! —
Bg7, 27. Bg5+ - Kg8, 28. Bf6
— De8, 29. Hh3! og svartur gafst
upp, en hann hefði getað varist
betur.