Morgunblaðið - 23.07.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1992
11
Takmarkanir á akstri vinnuvéla á stofnbrautum:
Greiðari umferð og
minni slysahætta
eftir Svein Andra
Sveinsson
Reglur er takmarka akstur vinnu-
véla og dráttarvéla á umferðarmestu
götum höfuðborgarsvæðisins gengu
í gildi þann 1. júlí sl., eins og flestir
ökumenn hafa sjálfsagt tekið eftir.
Er nú akstur vinnuvéla bannaður
allan sólarhringinn á Kringlumýrar-
braut sunnan Listabrautar, á Hafn-
arfjarðarvegi frá Kringlumýrarbraut
að Vífilstaðavegi og á Vesturlands-
vegi milli Reykjanesbrautar og
Höfðabakka.
Á virkum dögum frá kl. 7.30 til 9
og frá 16.30 tii 18.30 mun bannið
gilda á Vesturlandsvegi frá Höfða-
bakka að Skarhólabraut í Mos-
fellsbæ, á Gullinbrú, á Sæbraut, að
mörkum Garðabæjar og Hafnarfjarð-
ar, á Stekkjarbakka milli Reykjanes-
brautar og Höfðabakka, á Breið-
holtsbraut, á Höfðabakka norðan
Stekkjarbakka á Bæjarhálsi, á Suð-
urlandsvegi milli Bæjarháls og Breið-
holtsbrautar, á Miklubraut, á
Kringlumýrarbraut norðan Lista-
brautar, á Hringbraut austan Suður-
götu, á Bústaðavegi á Hafnarfjarðar-
vegi sunnan Lyngáss, á Reykjavíkur-
vegi norðan Strandgötu og á Álfta-
nesvegi austan heimreiðar að Bessa-
stöðum.
Langur aðdragandi
Á síðasta ári samþykkti stjóm
Samtaka sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu fyrstu tillögu sínar að
reglum um takmarkanir á akstri
vinnuvéla. Var það í kjölfar mikillar
umræðu meðal sveitarstjórnarmanna
á svæðinu um þessi mál. Þesar tillög-
ur voru sendar til umsagnar ýmissa
aðila, meðal annars komu umsagnir
frá Félagi vinnuvélaeigenda og Verk-
takasambandinu. Var tekið tillit til
margra þessara athugasemda. Það
var síðan á stjórnarfundi í ár sem
tillögurnar voru samþykktar í endan-
legum búningi og sendar aðildar-
sveitarfélögunum til samþykktar.
Eftir samþykki þeirra voru þær
sendar viðkomandi lögreglustjórum
og auglýstar í Lögbirtingablaðinu.
Framúrakstur og afkastageta
Meginrökin að baki þessum tak-
Sveinn Andri Sveinsson
„Menn verða að koma
upp því vinnulagi að
hafa vinnuvélarnar á
vinnustað og í þeim til-
vikum sem fara verði
með vinnuvélarnar
milli hverfa að nota fá-
farnari götur eða
hreinlega flylja þær á
milli á vörubílspalli.“
mörkunum eru tvíþætt. Annars veg-
ar er það aukið umferðaröryggi sem
af þessu hlýst. Það gefur auga leið
að akstur hæggengra vinnuvéla á
vegum með háum hámarkshraða
leiðir af sér aukinn framúrakstur og
þar með aukna slysahættu. Færa
má og gild rök fyrir því að umferð
hæggengra vinnuvéla um umferðar-
þungar götur auki hættu á aftaná-
keyrslum. í skýrslu Talnakönnunar
hf. um umferðarslys í Reykjavík, sem
unnin var fyrir umferðarnefnd
Reykjavíkur kemur fram að aftaná-
keyrslum hefur fjölgað ár frá ári, en
þau verði helst á stofnbrautum og
við umferðarljós. Vekur það athygli
að 37% meiðsla á folki í umferðinni
er vegna aftanákeyrslna.
Hins vegar eru þau sjónarmið að
baki er snúa að þeirri íjárfestingu
sem liggur í gatnamannvirkjunum, í
þeim mannvirkjum til að mynda sem
takmarkanirnar ná til liggja milljarð-
ar af opinberu fé. Mannvirki þessi
eru byggð til þess að afkasta
ákveðnu magni af umferð. Því jafn-
ari sem umferðin um götumar er,
þeim mun meiri eru afköstin. Hæg-
gengar vinnuvélar draga að sjálf-
sögðu úr þessari afkastagetu og geta
oft á tíðum skapað umferðaröng-
þveiti. Eitt besta dæmið um slíkt
mannvirki er Ártúnsbrekkan, sem í
raun er sprungin hvað afkastagetu
varðar, en þar aka um að jafnaði
tæplega 50.000 bílar á sólarhring. Á
þessum stað hefur umferð vinnuvéla
verið bönnuð allan sólarhringinn til
að reyna að greiða fyrir þessum
50.000 bifreiðum.
Viðbrögð vinnuvélaeigenda
Þessar reglur hafa hlotið mjög góð
viðbrögð flestra, að undanskildu Fé-
lagi vinnuvélaeigenda. Telja þessi
samtök reglurnar gera vinnuvélaeig-
endum og verktökum erfítt um vik
að sinna störfum sínum, auk þess
sem umferð vinnuvéla í íbúðarhverf-
um aukist við þetta og þar með slysa-
hætta.
Varðandi fyrra atriðið er það að
segja að menn verða að gera sér það
ljóst að vinnuvélar eru síðast og síst
hugsaðar sem samgöngutæki. Menn
verða að koma upp því vinnulagi að
hafa vinnuvélamar á vinnustað og í
þeim tilvikum sem fara verði með
vinnuvélarnar milli hverfa að nota
fáfarnari götur eða hreinlega flytja
þær á milli á vörabflspalli.
Um síðara atriðið er það að segja,
að ef velja eigi á milli þess að vinnu-
vélar fari um stofnbrautir eða götur
í íbúðarhverfum, hljóta hinar síðar-
nefndu að verða fyrir valinu þar eð
minni slysahætta hlýst af því, enda
má segja að með því sé verið að
halda niðri hraðanum á þeim götum.
Höfundur er borgarfulltrúi og
formaður Samtaka sveitarfélaga
á höfuðborgarsvæðinu.
Ódýru,
vinsælu
hressingar- og heilsudagarnir á
Hótei Örk hefjast á ný 30. ágúst
og standa Í7 vikur
Verðfrá kr■ 3.000 á dag
Á dagskránni veröur:
Yogaleikfimi
Hugrækt
Sund og líkamsrækt
Fræðsla um heilnæma
lifnaðarhætti
Skemmtikvöld með
vinsælum listamönnum
Gönguferðir og útivist
Lágmarksdvöl 2 nætur
ítvíbýli*
Heilsufæði
Sjúkranudd
Slökunarnudd
Svæðanudd
Aromatherapy
Andlitsböð
Hand- og fótsnyrting
Hvíld og skemmtun
- hámarksdvöl 2 vikur
*Verð fyrir manninn í tvíbýli
2 vikur kr. 3.000 pr. nótt
1 vika kr. 3.500 pr. nótt
4 nætur kr. 3.850 pr. nótt
2 nætur kr. 4.450 pr. nótt
Aukagjald fyrir einbýli kr. 1.500
pr. nótt
Innifalið. Gisting í björtum, rúm-
góðum herbergjum með öllum
þægindum, heilsufæði (hálft
fæði), yogaleikfimi, hugrækt,
fræðsla- og kynning, skemmtun |
og píanóleikur.
Hringið og biðjið um að fá senda dagskrá
^HÓTEL ÖÐK
Hveragerði, sími 98-34700 — myndsími 98-34775.
Metsölublað á hveijum degi!
ALLT AÐ 70% AFSLÁTTUR.
HAGKAUP
- allt í einni ferö