Morgunblaðið - 23.07.1992, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1992
I
Hávaði á vinnustað
eftir Sigurð Karlsson
Hávaði er skilgreindur sem
óæskilegt eða gagnslaust hljóð.
Mælieiningin er desíbel (dB). Hljóð-
aflið tvöfaldast við hver 3 dB,
þ.e.a.s. 83 dB er tvöfalt meira hljóð-
afl en 80 dB.
Mikill hávaði getur valdið heym-
arskemmdum. Sé dvalið í hávaða í
langan tíma er hætta á varanlegum
heymarskemmdum. Búast má við
að þrír hundraðshlutar starfsmanna
sem vinna að jafnaði í 85 dB(A)
hávaða í tíu ár verði fyrir heyrnar-
skemmdum og einn af hveijum tíu
sem vinna í 95 dB(A) hávaða á
sama tíma. Önnur áhrif hávaða
geta verið aukinn hjartsláttur, höf-
uðverkur, aukin streita o.fl.
Reglur
í byijun árs 1986 tóku gildi regl-
ur um hávaðavamir á vinnustöðum
og heymareftirlit starfsmanna
(Stj.tíð. B, nr. 77/1986). Markmið
reglnanna er að hávaði á íslenskum
vinnustöðum verði undir 85 dB(A)
að meðaltali á átta stunda vinnu-
degi. Þessu marki skyldi náð strax
í nýjum fyrirtækjum og með endur-
bótum og samhliða endumýjun í
starfandi fyrirtækjum.
dB 140 B-i Sársaukamörk
J Þrýstíioftshreyfill
120 L
100 L 1 Lofthamrar
80 L 1 Umferdarhávaði
60 1 ! Skrifstofuhávaði
1 íbúð
40 L 1 Bókasafn
20 L I Svefnherbergi
J Náttúrukyrrð
0 L • Heyrnarmörk
Heyrnarmælingar
Skv. 10. gr. reglnanna skal at-
vinnurekandi sjá um að heyrnar-
mæling fari fram og er starfsmönn-
um skylt að gangast undir hana.
Notkun heymarhlífa leysir viðkom-
andi ekki undan heyrnarmælingu.
Heyrnar- og talmeinastöð íslands
Ferðamenn!
Þið, sem ætlið að ferðast um landið eða
til útlanda, ættuð að kynna ykkur
Ferðaupplýsingar í ferðablaði
Morgunblaðsins, sem kemurútá
föstudögum.
Þareraðfinna mikiðaf upplýsingum um
flest það sem viðkemurferðalögum og
þeirri þjónustu sem í boði er, s.s. um
gistingu, viðlegubúnað, tjaldstæði, veiði,
flug, óbyggðaferðir, ferjur, sérferðir, hesta,
sérleyfi, bílaleigur, skóla o.fl.
er nú að skipuleggja aukið átak í
heymarmælingum skv. ákvörðun
samstarfsnefndar þar að lútandi.
Tekið skal fram að Heyrnar- og
talmeinastöðin hefur unnið mark-
visst að mælingum á heym lands-
manna.
Ástandið
Vinnueftirlitið hefur áætlað þann
fjölda íslenskra starfsmanna sem
vinnur í hávaða yfir 85 dB(A).
Áætlunin er byggð á bæði ítarlegum
og lauslegum mælingum. Þar sem
engar mælingar hafa verið gerðar
byggir áætlunin á mati með hliðsjón
af framangreindum mælingum. Svo
virðist sem að um 10.000 manns
vinni í hávaða yfir mörkum, þ.e.a.s.
einn af hveijum tíu. Undanfarin ár
hefur Heymar- og talmeinastöðin
sent Vinnueftirlitinu hundruð til-
kynninga um heymartap vegna
hávaða í vinnu.
Leiðir til úrbóta
Þegar leitað er leiða til að draga
úr hávaða er æskilegt að farin sé
eftirfarandi leið:
1. Byijað við upptök hávaðans
(komið í veg fyrir myndun
hans).
2. Komið í veg fyrir útbreiðslu
hávaðans með yfírbyggingu
hávaðavaldsins.
3. Dregið úr endurkasti hávaða
með hljóðísogsefnum í rým-
inu.
4. Stytta vem starfsmanna í
hávaða til að ná meðaltalsháv-
aðanum niður fyrir hávaða-
mörk.
5. Nota heymarskjól. Heymar-
skjól teljast vera neyðarúr-
ræði og bráðabirgðalausn.
Hveijir eiga að draga úr
hávaða?
það er hagur að dregið sé úr
hávaða. Stjómendur fyrirtækja
þurfa að kappkosta að draga úr
hávaða þegar við hönnun fyrirtækja
og endumýjun. Það þarf að gera
við ákvörðun um véla- og tækja-
kaup, ákvörðun um staðsetningu
þeirra og skiptingu vinnusala og
einnig við hljóðtæknilega hönnun
vinnusala (t.d. varðandi
ótíma/hljóðendurkast). Seljendur
búnaðar skulu, skv. fyrrnefndum
reglum, láta kaupendum í té upplýs-
ingar um þann hávaða sem búnað-
Sigurður Karlsson
urinn gefur frá sér. Starfsmenn
eiga einnig að leggja sitt af mörkum
t.d. með þvi að beita réttum vinnu-
brögðum. Verkstjórar eiga að leið-
beina mönnum um rétt vinnubrögð.
Hávaðamælingar
Vinnueftirlitið gerir hávaðamæl-
ingar á vinnustöðum. Annars vegar
er um að ræða skemmri mælingar
sem gerðar em með einfaldari
mælum en gefa þó yfírleitt nokkuð
góða mynd af hávaðanum. Þetta
eru kallaðar staðbundnar mælingar
eða mælingar á einstökum hávaða-
völdum. Hins vegar eru gerðar ítar-
legri mælingar sem eru, auk stað-
bundinna mælinga, mælingar á
þeim hávaða sem einstakir starfs-
menn verða fyrir á vinnudegi
(skammtamælingar), ótímamæling-
ar (bergmálsmælingar) og tíðni-
greiningar hávaða. Allar eru þessar
mælingar staðbundnar nema
skammtamælingamar þar sem
starfsmennimir ganga með litla
mæla á sér t.d. í einn vinnudag.
Hávaðamælingarnar era grandvöll-
ur frekari aðgerða til að draga úr
hávaða. Vinnueftirlitið býður fyrir-
tækjum hvar á landi sem er upp á
þessar mælingar.
Höfundur er deildartæknifræð-
ingur hjá Vinnueftirlitinu.
Morgunblaðið/Þorkell
Margir notfærðu sér boð Hitaveitu Reykjavíkur um að skoða Nesja-
vallavirkjun um helgina.
Nesjavallavirkjun:
Fjöldi fólks í skoðunarferð
Selfossi.
FJÖLDI fólks þekktist boð Hita-
veitu Reykjavíkur á laugardag
um að skoða Nesjavallavirkjun
og kynnast tæknibúnaði stöðvar-
innar.
Stöðugur straumur fólks var all-
an daginn um hlöðin á Nesjavöllum.
í leiðinni var fólki síðan boðið að
þiggja kaffí og meðlæti í mötuneyti
starfsmanna. Sig. Jóns.
r
Lamtliagasalat
alléaf ferstt
teint
úr
pottiimm
Grœnmetisdagar
í Hagkaup 23. -25. júU
Lambhagasalat
__ er ný fram-
LaQjtihqgj] iejg>sia 4 ísiensk-
um grænmetismarkaði sem
nú er kynnt af framleið-
endunum sjálfum í
Hagkaup. Til að salatið
haldi ferskleika sínum
sem lengst er potturinn
sem það er ræktað í
látinn fylgja því alla leið til
neytenda. Lambhagasalat er
hrein hollustuafurð, bragðgott og
bætiefnaríkt. Prófaðu Lambhagasalatið
á kynningunni í Hagkaup, það fæst
þar núna á einstöku tilboðsverði,
aðeins 69 krónur stykkið.
HAGKAUP
-altt í einniferö