Morgunblaðið - 23.07.1992, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1992
IÞROTTIR UNGLINGA
Knattspyrnuskóli KSÍ:
Víslrað
landslUM
26 leikmenn voru valdir í knatt-
spyrnuskóla KSÍ sem kom sam-
an á Laugarvatni til æfinga fyr-
ir stuttu. Knattspyrnufélögin
tilnefndu 107 drengi og það
kom síðan í hlut þjálfaranna;
Þórðar Lárussonar og Kristins
Björnssonar að velja endanleg-
an hóp.
mr
Ymislegt var gert annað en að
sparka í bolta þá viku sem
skólinn var starfræktur og meðal
annars héldu þekkt-
ir þjálfarar fyrir-
Eiðsson lestra.
skrifar „Við höfum verið
gagnrýndir nokkuð
fyrir að velja hópinn svona snemma
og þá gjarnan bent á ungir knatt-
spymumenn fínni fyrir því þegar
þeim er hafnað. En við teljum að
rétt sé að velja drengina snemma,
aðrar Evrópuþjóðir hafa gert það
með góðum árangri og gjaman er
bent á að 21 leikmaður af 25 sem
V-Þjóðverjar völdu fyrir HM höfðu
leikið með yngri landsliðunum. Þá
hafa þjálfarar í fimmta flokki sagt
okkur að sumir drengjanna setji sér
það markmið að komast í skólann
og það er af hinu góða,“ sögðu
þeir Þórður og Kristinn þegar skól-
inn var heimsóttur á síðasta degi
hans.
Drengimir sem era í skólanum
era allir fæddir 1978 og því flestir
ijórtán ára. Tveir þeirra, Gunnar
Magnússon markvörður og Eiður
Smári Guðjohnsen hafa þegar kom-
ist í landsliðið U-16 ára.
Þessi hópur hefur hins vegar en
sem komið er ekki fengið landsleiki
en Þórður og Kristinn vonast til að
liðið fái landsleik á Bretlandseyjum
í haust. „Draumurinn er að fá
yngra landslið. Aðrar Evrópuþjóðir
eins og Danir og Svíar eru farnir
að leika landsleiki fyrir fjórtán ára
og yngri og við eram sannfærðir
um að það sé það sem koma skal,“
Gunnar Magnússon, markvörður
úr Fram sagðist vera ánægður með
dvölina á Laugarvatni: „Það er mjög
gott að fá tækifæri til að koma
saman, ég þekkti suma áður en hef
kynnst strákunum mun betur,“
sagði Gunnar.
Landsliðið vann pressuna
Hápunktur vikunnar á Laugar-
vatni var leikur landsliðsins gegn
svonefndu „pressuliði" sem fram fór
á grasvellinum á Laugarvatni.
Landsliðið sigraði 4:0 og það voru
þeir Atli Kristjánsson, Arngrímur
Arnarson, Ásgeir Ásgeirsson og Jón
Freyr Magnússon sem skoruðu
mörk landsliðsins í leiknum.
Morgunblaöið/Frosti
Knattspyrnuskóli KSÍ sem kom
saman í viku á Laugarvatni. Efsta röð
frá vinstri: Jón Freyr Magnússon
(Grindavík), Arnar Viðarsson (FH),
Sverrir Sverrisson (HK), Dagur Dag-
bjartsson (Völsungi), Gylfi Einarsson
(Fylki), ívar Benediktsson (ÍA), Sig-
urður Elí Haraldsson (Víkingi), Atli
Kristjánsson (UBK), Amgrímur Am-
arson (Völsungi), Ásgeir Ásgeirsson
(Fylki). Miðröð frá vinstri: Þórður
Lárusson þjálfari, Eyþór Rúnarsson
(KR), Jens Ingvarsson (Hetti), Guðjón
Jónsson (Selfossi), Gunnar Magnússon
(Fram), Tómas Ingason (Fram), Örvar
Gunnarsson (KA), Kolbeinn Guð-
mundsson (Fram), Kristinn Bjömsson
þjálfari. Neðsta röð frá vinstri: Guð-
mundur Sævarsson (FH), Tómas Þor-
geirsson (HK) Sigurður Þorvarðason
(Selfossi), Amór Gunnarsson (Val),
Ingólfur Ingólfsson (Haukum), Bjami
Vesterdal (Fylki) og Magnús Guð-
mundsson (Gróttu). A myndina vantar
Eið Smára Guðjohnsen úr ÍR.
Landsliðið og Pressuliðlð léku á laugardaginn og er þessi mynd úr leik
iiðanna sem landsliðið sigrað 4:0, Magnús Guðmundsson úr Pressuliðinu er hér
i baráttu við landsliðsmennina Gylfa Einarsson og Arngrím Amarson.
"V
Morgunblaðið/Frosti
Barátta um knöttinn í leik b-liða KR og Týs á KR-vellinum. KR-ingar
unnu alla þijá leiki sína og skoruðu 24 mörk og fengu ekkert á sig.
TENNIS / STORMOT VIKINGS
Úrslít Pollamótsins
fara fram um helgina
Riðlakeppnin í Pollamóti KSÍ og
Eimskips í sjötta flokki er lok-
ið og ljóst er hvaða lið koma til
með að leika í úrslitakeppninni á
Laugarvatni um helgina.
Leikið var í átta riðlum vítt og
breitt um landið og tvö félög, ÍBK
og Valur komust í úrslitin í bæði
a- og b-liðum. Auk þessara liða
komst Fram, ÍR, Grótta, Víkingur,
KA og Huginn í úrslit a-liðanna.
Hjá b-liðum verða það Breiðablik,
Fylkir, Þróttur, KR, Þór og Þróttur
Neskaupstað.
Athygli vekur að Fylkir sem ver-
ið hefur mjög sigursælt fer ekki til
Laugarvatn með a-lið sitt, liðið beið
lægri hlut fyrir ÍR í riðlakeppninni.
Urslitin í Pollamótinu hefjast á
laugardag og verður leikið á gra-
svellinum á Laugarvatni. Þá má
geta þess að stjórn KSÍ leikur árleg-
an leik sinn við Eimskip en mótinu
lýkur á sunnudaginn.
1100. sæti á sænskum lista
SEXTÁN ára piltur, Níels Sig-
urðsson vakti athygli á Stór-
móti Víkings ítennis um helg-
ina. Níels hreppti gullverðlaun
*í einliða- og tvíliðaleik í dren-
gjaflokki á sínu fyrsta móti hér-
lendis en hann hef ur verið bú-
settur í Svíþjóð frá fimm ára
aldri.
að er óneitanlega skrýtið að
leika tennis hérna heima og
þá helst vegna þess að við leikum
eingöngu á malarvöllum úti,“ segir
Níels sem tekið hefur miklum fram-
föram upp á síðkastið og er inn á
lista yfir bestu tennisleikara Sví-
þjóðar yfir þá spilara sem fæddir
lera 1976.
„Ég er í sæti númer 100 á Sví-
þjóðarlistanum og í því 30. í Stokk-
hólmi en á von á því að taka stökk
upp listann næst þegar hann verður
birtur, því að ég hef leikið vel á
þessu ári og komist í úrslit í nokkr-
um mótum," sagði Níels.
„Seinna stefni ég svo á að gera
eins og Einar [Sigurgeirsson], besti
spilarinn hér, komast í háskóla úti
til að geta einbeitt mér betur að
íþróttinni.
Helstu úrslit í stórmótinu urðu
þessi í yngri flokkum:
SNÁÐAR (f. 1982 og yngri)
Einliðaleikur:
1. Ragnar Ingi Gunnarsson TFK vann Frey
Pálss. Vík. 6:3 og 6:4.
3.-4. ÓIi Einarsson og Jón A. Jónsson Vík-
ingi.
HNOKKAR (f. 1980 og 1981)
Einliðaleikur:
1. Amar Sigurðsson vann Reyni Guðjónsson
6:1 og 6:0.
3.-4. Freyr Pálsson og Reynir Guðráðsson
Þrótti.
Tvíliðaleikur:
1. Freyr Pálsson/Amar Sigurðsson unnu
Reyni Guðráðsson/Frey Sigurðsson Þrótti
6:1 og 6:0.
Einliðaleikur hnáta
1. Katrín Atlad. vann írisi Staub 6:4 og 6:2.
3.-4. Þorbjörg Þórhallsdóttir Þrótti og Ema
H. Jónsdóttir TFK.
, SVEINAR (f. 1978 og 1979)
Einliðaleikur:
I. Teitur Marshall Þrótti vann Guðjón Gú-
stafsson TFK 6:0 og 6:2.
3.-4. Brynjar Sverrisson Þrótti og Hjalti
Kristjánsson.
Tvíliðaleikur:
Gunnar Einarss./ÓIi Einarsson.
MEYJAR
Einliðaleikur:
Stefanía Stefánsdóttir Fjölni vann Katrínu
Atladóttir Þrótti 4:6, 6:1 og 6:3.
Tvíliðaleikur:
Guðrún G. Stefánsdóttir/Hildur Guð-
mannsd. Þrótti unnu Irisi Staub/Katrínu
Atladóttir Þrótti 4:6, 6:1 og 6:3.
DRENGIR (f. 1976 og 1977)
Einliðaleikur:
1. Níels Sigurðsson Sollentuna vann Gunn-
ar Einarsson 6:1 og 6:0.
3.-4. Teitur Marshall íjölni og Sigurður
Andrésson.
Tvíliðaleikur:
Níels Sigurðsson/Aðalsteinn Guðjónsson
Víkingi unnu Guðjón Gústafsson/Hjalta
Kristjánsson TFK.
3.-4. Teitur Marshall Fjölni/Sigurður Andr-
ésson.
TELPUR
Einliðaleikur:
Hrafnhildur Hannesd. Fjölni vann Steinunni
Garðarsd. 6:2 og 6:0.
3.-4. Stefanía Stefánsdóttir og Eva Illín
Dereksdóttir TFK.
Tvíliðaleikur:
1. Stefanía Stefánsdóttir Fjölni/Eva H.
Dereksdóttir TFK unnu Evu Hrönn Stefáns-
dóttir/Svövu Knútsdóttir 6:1 og 6:1.
Níels Sigurðsson keppti í fyrsta
sinn hér á landi um síðustu helgi og
stóð sig vel.
BIKARINN
KR keppir
til úrslita
KR hefur þegar tryggt sér
sæti í bikarúrslitum 3. flokks
íSV-riðli en liðið sigraði
Reyni Sandgerði 5:0 um
helgina. Mótherjar KR verða
annað hvort ÍR eða Fram en
leik liðanna var frestað til
12. ágúst vegna utanlands-
ferðar ÍR.
Stórleikur 8-liða úrslitanna í
2. flokki var á milli KR og
ÍA. Skagamenn sigruðu 1:0 með
marki Þórðar Guðjónssonar
snemma í fyrri hálfleiknum eftir
varnarmistök KR-inga. ÍA mætir
FH í Kaplakrika í undanúrslitun-
um þann 7. næsta mánaðar. FH
sigraði HK í miklum baráttuleik
í Smárahvammi 2:1 og voru öll
mörkin skoruð í fyrri hálfleiknum.
Lúðvík Arnarsson og Eggert Þór-
arinsson skoruðu mörk FH en Jón
Þorgrímur Stefánsson minnkaði
muninn fyrir HK.
Framarar gerðu út um leikinn
gegn Þór á fyrstu tíu mínútunum
en þá höfðu þeir þegar skorað tvö
mörk en þau urðu níu áður en
yfir lauk án svars frá norðan-
mönnum. ÍBV vann léttan sigur
á Stjörnunni í Eyjum 5:1.
Eyjamenn taka á móti Fram í
hinum leik undanúrslitanna og
verður það án efa hörkuviðureign.
Þess má geta að Framarar þurftu
einnig að fara til Eyja í 8-liða
úrslit 3. flokks. Eftir venjulegan
leiktíma og framlengingu var
staðan 5:5 en Framarar stóðu sig
betur í vítaspyrnukeppninni.
Skoruðu þrjú mörk en leikmönn-
um ÍBV mistókst að skora úr
fyrstu þremur spyrnum sínum og
féllu þar með úr keppninni í 3.
aldursflokki.