Morgunblaðið - 11.03.1993, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
58. tbl. 81. árg.
FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993
Prentsraiðja Morgunblaðsins
Stormasamasti fundur í ítalska þinginu frá því skömmu eftir stríð
Traustilýstá
stjom Amatos
Róm. Reuter.
HÆTTAN á pólitískri upplausn á Ítalíu minnkaði nokkuð
í gær þegar ríkisstjórn Giulianos Amatos forsætisráðherra
vann sigur í mikilvægri atkvæðagreiðslu. Ella hefði Amato
ekki komist hjá því að segja af sér með alvarlegum afleið-
ingum fyrir efnahagslífið í landinu.
og kenna sumir um, að sjónvarpað
Mikilvægt fyrir stjórnina
Atkvæðagreiðslan í gær var sú
mikilvægasta fyrir stjómina síðan
hneykslis- og spillingarmálaholskefl-
an skall af öllu afl^á ítölsku valda-
stéttinni. Amato vildi, að eigin sögn,
koma í veg fyrir, að dómstólamir
yrðu kaffærðir í málum með því að.
milda viðurlögin í sumum. Vegna
mikilla mótmæla neyddist hann þó
til að breyta áætlunum sínum og um
stund virtist ekki annað blasa við en
afsögn. í gær var hins vegar sam-
þykkt með 143 atkvæðum gegn 99,
að stjómin starfaði áfram.
„Nú er nóg komið - þegið þið,“
hrópaði Amato á þingfundinum í gær
þegar allt ætlaði um koll að keyra
vegna frammíkalla og kalla varð á
þingverði til að skilja tvo áfloga-
seggi. Segja fréttaskýrendur, að
fundurinn í gær hafi verið sá storma-
samasti síðan skömmu eftir stríðslok
Áður valda-
mestur, nú
úthrópaður
skattsvikari
Tókýó. Reuter.
SKATTAMÁL eru japönsk-
um almenningi ofarlega í
huga þessa dagana. Frestur
til að skila inn skattframtali
rennur út 15. þessa mánaðar
og fjölmiðlar hafa í vikunni
flutti fregnir af gífurlegum
auði fyrrverandi valdamesta
stjórnmálamanns landsins
sem safnað var án vitundar
skattyfirvalda.
Fyrr í vikunni fundust gull-
stangir, verðbréf og reiðufé,
samtals rúmlega milljarður jena
(560 milljónir króna), í peninga-
skáp á skrifstofu Shins Kanem-
arus, fyrrverandi leiðtoga Frjáls-
lynda lýðræðisflokksins, en hann
var handtekinn á laugardaginn
var. Kanemaru, sem er 78 ára
gamall, var valdamesti stjóm-
málamaður Japans þar til fyrir
hálfu ári. Þá sagði hann af sér
þingmennsku er upp komst að
hann hafði þegið 500 milljón jen
í mútur frá Sagawa Kyubin-
vöruflutningafyrirtækinu.
Japönsk yfirvöld leituðu í gær
í höfuðstöðvum Okasan-verð-
bréfafyrirtækisins í Tókýó að
gögnum sem rennt gætu frekari
stoðum undir grun um stórfelld
skattsvik. Talið er að fyrirtækið
hafi selt Kanemaru nafnlaus
handhafaverðbréf metin á um
milljarð jena. Gögn sem þar
kynnu að fínnast myndu sýna
hvernig Kanemaru kom undan
fé sem honum áskotnaðist.
var frá honum.
Amato ætlar að leggja tillöguna
um að tekið verði mildilega á minni-
háttar spillingarmálum fyrir þingið
og er talið, að hún verði samþykkt
þar.
Reuter
Háreysti þingmanna
MARGIR þingmenn risu úr sætum og hrópuðu ókvæðisorð að for-
sætisráðherranum, Amato, á meðan hann flutti ræðu sína. Sá hann
sig knúinn til að skipa þingmönnum að þegja. Slegist var í þingsaln-
um og urðu þingverðir að skilja tvo áflogaseggi.
Svissneskur kvenráðherra
Reuter
RUTH Dreifuss, sem starfað hefur fyrir sviss-
neska alþýðusambandið, sver embættiseið í
þinghúsinu í Bern eftir að hún hafði verið kosin
í sjö manna ríkisstjórn landsins. Upphaf lega
hafði karlmaður verið kosinn í embættið en
vegna mikillar óánægju almennings var honum
ekki fært að taka kosningunni.
Sjá einnig: „Þing Sviss ..." á bls. 27.
Finnar
deila um
róttækar
aðgerðir
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgnnblaðsins.
FINNAR hafa nú miklar
áhyggjur af skuldastöðu
þjóðarbúsins og slæmu efna-
hagsástandi. Tilkynnt var í
gær að ríkissjóður Finn-
lands yrði að fá heimild til
yfirdráttar til að borga vexti
af erlendum skuldum. For-
maður samtaka atvinnurek-
enda varar við greiðsluþroti
innan nokkurra vikna og
krefst tveggja ára stöðvunar
launahækkana og 15% nið-
urskurðar útgjalda til fé-
lagsmála.
Helsta skýringin á þvi að ríkis-
stjórnin var ekki búin að afla sér
heimildar til yfirdráttar vegna
vaxtagreiðslna með góðum fyrir-
vara er talin sú hve gengið hefur
fallið hratt að undanfömu. Frá því
horfið var frá fastgengisstefnunni
fyrir 18 mánuðum hefur gengi
marksins fallið um 35%.
Uppgjör í júní
Tauno Matomaki, formaður sam-
taka atvinnurekenda og stóriðnað-
arins og forstjóri stærsta einkafyr-
irtækis Finna, Repola-samsteyp-
unnar, varar við greiðslusþroti ríkis-
ins innan fárra vikna. Ef ekki komi
til róttæks aðhalds í opinberum út-
gjöldum verði þjóðarbú Finna gert
upp á vegum Alþjóðabankans í síð-
asta lagi í júní.
Casimir Ehrnrooth, annar þekkt-
ur talsmaður stóriðnaðarins og full-
trúi ríkustu ættar Finnlands, vill
aftur á móti lántökur ríkisins vegna
atvinnuleysis. Tæp 17% vinnufærra
manna em nú atvinnulaus. Ehrn-
rooth segist vilja sterkari ríkisstjórn
sem skapi ný störf með lánsfé dugi
aðrar leiðir ekki.
Jeltsín frammí fyrir
„pólitískri aftökusveit“
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, virt-
ist standa höllum fæti í valdabarátt-
unni við fulltrúaþingið á fundi þess
sem hófst í gær. „Forsetinn stendur
frammi fyrir vel skipulagðri pólitískri
aftökusveit hér á þinginu,“ sagði tals-
maður Jeltsíns, Vjatsjeslav Kostíkov.
Greidd vom atkvæði um tillögu þess efnis að
Jeltsín yrði ákærður fyrir brot á stjómarskránni
en hún var felld naumlega. Líklegt þykir að til-
lagan verði lögð fram aftur.
Leiðtogar afturhaldsaflanna og miðjumanna
á þinginu neituðu að veita forsetanum aukin
völd. í ályktunartillögu frá nefnd á þinginu var
þess krafist að fallið yrði frá þjóðaratkvæða-
greiðslu, sem Jeltsín hefur boðað, um hvort for-
setinn eða þingið ættu að stjórna Rússlandi. Hún
fékkst þó ekki samþykkt við fyrstu umræðu og
henni var vísað aftur til nefndarinnar.
Svar Jeltsíns
Jeltsín svaraði þessari árás með því að leggja
fram aðra tillögu þar sem þess var krafist að
þingið afsalaði sér völdum yfir seðlabankanum,
utanríkisviðskiptabankanum og fleiri stofnunum.
Talið er næsta ömggt að þingið hafni þessu
algjörlega þegar það kemur saman aftur í dag.
Rúslan Khasbúlatov, forseti þingsins og helsti
andstæðingur Jeltsíns, lét svo um mælt á fund-
inum að Jeltsín væri að reyna að grafa undan
stjórnarskránni og draga herinn inn í valdabar-
áttuna. Jeltsín talaði í síðustu viku um hugsan-
lega „úrslitakosti“ ef þingið gæfi ekki eftir og
gaf í skyn að hann væri reiðubúinn að afnema
stjórnarskrána og leysa þingið upp ef það hindr-
aði umbótastefnu hans. Svo virtist hins vegar í
gær sem Jeltsín hefði lítið svigrúm til að sigra
í valdabaráttunni án stuðnings hersins, að sögn
heimildarmanna The Daily Telegraph.
Sjá „Framtíð umbótastefnu ...“ á bls. 26.