Morgunblaðið - 11.03.1993, Blaðsíða 41
41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993
Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson
Sextíu kílómetrar
Tvo daga í viku ekur Einar Hafliðason, bóndi í Fremri-Gufudal,
skólabílnum um 60 kílómetra leið frá Reykhólum að Skálanesi.
Erfiður skólaakst-
ur í Reykhólahreppi
Miðhúsum.
REYKHÓLAHREPPUR er erfiður í skipulagningu vegna legu sinnar
og frá Skálanesi í Gufudalssveit í Reykhóla eru 60 kílómetrar en það-
an kemur barn í Reykhólaskóla á mánudögum og á föstudögum en á
þriðjudögum og miðvikudögum er starfrækt sel að Kiðabergi og þá
er leiðin sem börnin þurfa að fara innan við 5 kílómetrar.
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Frá ræðukeppni milli Stóru-Vogaskóla og Holtaskóla.
Ræðukeppni grunn-
skóla á Suðumesjum
Vogum.
Á VEGUM Félags stjórnenda grunnskóla á Suðurnesjum stendur
yfir ræðukeppni milli grunnskólanna á Suðurnesjum. Það er í ann-
að sinn sem keppni fer fram á milli allra skólanna, en áður höfðu
Holtaskóli í Keflavík og Njarðvíkurskóli keppt sín á milli en upphaf-
ið að núverandi fyrirkomulagi má rekja til íslenskuátaks sem félag-
ið beitti sér fyrir á síðasta ári.
Þegar erfið færð er verða bömin
að gista sem koma úr Gufudals-
sveitinni í Reykhólasveit. Heimavist
hefur verið lögð niður og heiman-
akstur tekinn upp í staðinn. Á dög-
unum fór fréttaritari með skólabíln-
um í Gufudalssveitina en þar sem
vegurinn er sjaldan mokaður má
segja að ekið hafi verið yfir holt
og hæðir.
Vegurinn frá Reykhólum liggur
yfir Hjallaháls, en hann er á milli
Þorskafjarðar og Djúpafjarðar og
þaðan yfir Ódijúgsháls og yfir í
Gufufjörðinn. Frá Brekku að Guf-
udal liggur vegurinn um hlíð sem
kölluð er Barmurinn og er sú vega-
lengd 2,5 km og þar vill safnast
mikill snjór og stundun er 2 til 3 m
ofan á veginn og hliðarhalli er mik-
ill. Þá tekur Einar Hafliðason bóndi
í Fremri-Gufudal á það ráð að aka
yfir ísilagðan Gufufjörðinn og geng-
ur það ágætlega.
Sveinn
Húsavík
Atvinnu-
ástand á
Húsavík
HÚSAVÍKURBÆR hefur nú
undanfarið gert atvinnumála-
könnun fyrir hvert ár og kemur
það margt fróðlegt fram. At-
vinnurekendur á Húsavík voru
á sl. ári 163 en voru 158 árið á
undan. Minni dekkbátar og trill-
ur eru jafn margar, þrátt fyrir
að afli þeirra fari minnkandi ár
hvert.
Heildar starfsmannafjöldi á
Húsavík var í könnuninni 1.027
en 1.002 árið áður. Fjölgun hefur
átt sér stað í öllum greinum nema
fiskveiðum, þar sem fækkaði um
5 störf og samgöngum, en þar stóð
starfsmannafjöldinn í stað.
Við þjónustustörf unnu um 57%
Húsvíkinga en 43% við framleiðslu-
og úrvinnslustörf og er það svipað
hlutfall og árið áður, en árin á
undan hafði fjölgað jafnt og þétt
í þjónustustörfum á kostnað fram-
leiðslu og úrvinnslu. Störfum á
vinnumarkaði hefur ekki fjölgað
markvert í mörg ár og voru störf
1992 jafn mörg og meðaltal árs-
starfa á Húsavík 1987-1992.
Atvinnuástand í dag er ekki
gott, um síðustu mánaðamót voru
skráðir atvinnulausir Húsvíkingar
73 en í janúar voru þeir 76, en
þetta eru ívið hærri tölur en síðast-
liðið ár.
Fréttaritari
Mánudaginn 1. mars keppti lið
Stóru-Vogaskóla í Vogum við B-lið
Holtaskóla í Keflavík og var um-
ræðuefnið: Á að banna ofbeldis-
og hryllingsmyndir í sjónvarpi?
Það var lið Vogamanna sem
studdi bannið en Keflvíkingar and-
mæltu. Þrír ræðumenn töluðu fyrir
hvort lið. Að umræðum loknum tók
dómnefnd að reikna út stig liðanna
og fóru leikar þannig að lið Stóru-
Vogaskóla sigraði með 66 stiga
mun, fékk 1.103 stig en andstæð-
ingarnir 1.037 stig.
Þá valdi dómnefnd Guðríði Þórð-
ardóttur, Stóru-Vogaskóla, ræðu-
mann kvöldsins.
E.G.
Vörusýninq
Kaupmenn
Innkaupastjórar
Vörusýning á fatnaði frá 1 7 fyrirtækjum veróur haldin í húsnæói okkar
í Sundaborg sunnudaginn 1 4/3 frá kl. 10-1 8 og mánudaginn 1 5/3 frá kl. 9-1 8.
Vörur til afgreióslu fyrir vorið og haustió ’93.
Tískusýningar báða dagana.
ISkXfi
'enPeysuT
&
Wlt
®
herrQf"~ASty
°fQtnOóur
H*
\h \ u (
* W^KlD'sVVt^R
barnaíatnaður
barnafatnaóur
VI
kv
V
erif.
Qtr> 0(3
ur
kventawaður
kvenfatnaður
kicis
bomo10’00
ba7na(otnaður
kt
'linc
útigallar- úlpur
... C0MPAMV
domu- og herrafatnaður
STROMPEN
sokkar
AGUST ARMANN hf
UMBOÐS-OG HEILDVERSLUN
Sundaborg, sími 686677