Morgunblaðið - 11.03.1993, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993
NUER
TVOFALDUR
1. VINNINGUR
1
Færeyskur flautuleikari og
færeyskur píanóleikari
Tónlist
Ragnar Björnsson
Ernst Sondum Dalsgarð er ný-
bakaður flautuleikari, tók einleik-
arapróf frá Konunglega danska
tónlistarháskólanum í Kaupmanna-
höfn á sl. ári og í efnisskrá er
hann sagður fyrsti Færeyingurinn
sem tekur einleikarapróf í flautu-
leik frá Konunglega danska tónlist-
arskólanum. Johannes Andreasen
píanóleikari er okkur að góðu kunn-
ur, en hann gisti ísland ekki fyrir
löngu, lék þá með austurrískum
sellóleikara í safni Sigurjóns Ólafs-
sonar og sýndi þá að hann er mjög
gðður kammermúsíkus. Þeir félag-
ar byrjuðu tónleikana á Serenöðu
í D-dúr, óp. 41 eftir Beethoven.
Serenaðan er tæplega ein af merk-
ari tónsmíðum Beethovens og ekki
meira merkt honum en svo, að hún
gæti þess vegna verið eftir ein-
hvern samtíðarmann hans eða fyr-
irrennara. í flutningi þarf því að
marka hana skýrum og fjörlegum
dráttum til þess að halda áheyrand-
anum vel vakandi. Þeir félagar
fluttu Serenöðuna látlaust og
hreint, en átakalítið. Þarna hefði
þurft sterkari mótun og meiri skap-
hita til þess að lyfta verkinu úr
meðalmennskunni. Johannes lék
Johannes Andreasen
tvö stutt verk, Stúlkuna með hörg-
ula hárið og Serenöðu, eftir De-
bussy. Johannes lék þessi tvö verk
smekklega, en lítið segja þau um
hann sem einleikara. Síðustu
„Myrkir músíkdagar" færðu okkur
sönnur á því að Færeyingar eiga
gqð tónskáld og það sannaðist enn
með þeim Kristian Blak og Sunleik
Rasmussen sem áttu tvö verk á
efnisskránni og bæði áhugaverð. í
efnisskrá vantaði annars allar upp-
lýsingar um höfunda og verk, í
sumum tilfellum eru slíkar upplýs-
ingar nl. nauðsynlegar. Paul Taff-
anel átti síðasta verk fyrir hlé,
Andante Pastoral er Scherzettino,
skemmtilegt verk og vel skrifað
fyrir flautuna og hér sýndi Ernst
Sondum að hann býr yfír töluverðri
tækni. Taffanel var ekki ómerkur,
fæddur 1844, var flautuleikari,
hljómsveitarstjóri og tónskáld
franskt, skólastjóri tónlistarskóla,
tónlistarstjóri óperu í París og
stjórnandi flautudeildar Parísar-
konservatórisins og kennari frægra
flautuleikara. Eftir hlé kom Ib Nör-
holm með Immanens fyrir sóló-
flautu, verk í þrem þáttum, hröðum,
hægum, hröðum. Vel skrifað verk,
en án þess að þekkja það hefði ég
haldið að miklu fleiri svipbreytingar
hefði þurft til í flutninginn, þrátt
fyrir að margt kæmi fallega út hjá
Sondum, t.d. miðkaflinn. Manni
hættir til að setja Fr. Kuhlau á bás
með þeim mörgu tónskáldum sem
skrifað hafa námsefní, ágæt, fyrir
planónemendur þ. á m. sónatínur
fyrir hin ýmsu stig píanónámsins.
Því kom Grande Sonate concertante
í a-moll op. 85 manni algjörlega í
opna skjöldu. Stór og mikið unninn
fyrsti þáttur, að vísu dálítið lang-
dreginn Adagio-þáttur og skemmti-
legur Rondó-þáttur. Maður skyldi
minnast þess að Kuhlau skrifaði
margar óperur, píanókonserta og
mikið magn kammerverka. Því er
engin furða að Danir vilji eigna sér
hann, enda undi hann sér víst vel
í Danmörku, eins og fleiri.
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
90 manna sameiginlegur stórkór eldrí og núverandi kórfélaga Fjölbrautaskóla Suðurlands tók lagið í
lok afmælistónleikanna.
Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands 10 ára
Afmælistónleikar fyrir fullu húsi
Selfossi.
TÍU ÁR eru síðan kór Fjölbrautaskóla Suðurlands var stofnaður. Veg-
ur kórsins hefur farið vaxandi með ári hverju og hann á sér djúpar
rætur í félagslífi skólans og menningarlífi Sunnlendinga. Stjórnandi
kórsins frá upphafi hefur verið Jón Ingi Sigurmundsson.
Kórinn hélt upp á afmælið með og verkefnum í sögu kórsins. Á þeim
tónleikum 20. febrúar fyrir fullu
húsi í samkomusal skólans. Þar komu
fram fjórir kórar og var hver og einn
nefndur eftir ákveðnum tímabilum
tíu árum sem liðin eru hefur kórinn
farið í tvær söngferðir, til Danmerk-
ur og Svíþjóðar og til Þýskalands.
Auk þess hefur hann tekið þátt í
íslenskt landslag
á Kjarvalsstöðum
LAUGARDAGINN 13. mars, opriar á Kjarvalsstöðum sýningin „ís-
lenskt landslag 1900-1945". Á sýningunni eru um 120 myndir eftir
26 listamenn sem allir fengust við gerð landslagsmynda á þessu tíraa-
bili, frá því að fyrstu íslensku listamálararnir komu fram á sjónarsviðið
í upphafi aldarinnar og þar til hilla tók undir ný og breytt viðhorf til
landslags með tilkomu abstraktlistarinnar.
. Flest verkin á sýningunni eru í
einkaeign. Að auki verða á sýning-
unni nokkur öndvegisverk íslenskrar
listasögu, s.s. Heklumynd Ásgríms
Jónssonar og Fjallamjólk Jóhannes
fjölda tónleika og haldið marga sjálf-
stæða tónleika og ávallt fengið góða
dóma. Fyrir síðustu jól gaf kórinn
út geisladisk og snældu með úrvals-
Iögum.
Afmælistónleikarnir voru vel sóttir
enda nýtur kórinn viðurkenningar
meðal almennings sem ein af perlum
skólans og sunnlenskrar tónlistar.
Lagavalið sýndi þversnið af söng og
hljóðfæraleik kórfélaga í gegnum tíð-
ina. Tveir einsöngvarar komu fram
á tónleikunum, Soffía Stefánsdóttir
og Kristjana Stefánsdóttir. Þær
sungu með kórnum þegar þær voru
við nám í skólanum en leggja nú
meðal annars stund á söngnám.
I lok tónleikanna söng 90 manna
sameiginlegur kór eldri og núverandi
kórfélaga. Söngnum á tónleikunum
var mjög vel tekið og stjórnandanum,
Jóni Inga Sigurmundssyni, og söng-
fólkinu var vel fagnað.
Sig. Jóns.
-----------» ? ?-----------
FjöLVÍTAMÍN FRAMTÍÐARINNAR
FYRIR NÚTÍMAFÓLK.
Kjarvals. Jafnframt hefur verið gefm
út vegleg sýningarskrá eftir safnvörð
Kjarvalsstaða, Kristínu G. Guðna-
dóttur, og 36 litprentuðum myndum
af verkunum.
í fréttatilkynningu frá Kjarvals-
stöðum segir að fjölbreytileiki ein-
kenni sýninguna öðru fremur, og
hversu ólíkum augum listamennirnir
hafa litið landið. Þarna megi sjá þró-
unina frá hinum upphöfnu og róman-
tísku myndum Þórarins B. Þorláks-
sonar frá upphafi aldarinnar til raun-
særra landslagsmynda Ásgríms
Jónssonar, og stflfærðum landslags-
formum Jóns Stefánssonar til ex-
pressjónískra mynda Jóns Engil-
berts._________,_________^_
Þýðendakvöld
á Fógetanum
FJÓRÐA þýðendakvöldið á þess-
um vetri verður á Háalofti Fóget-
ans í kvöld, fimmtudaginn 11.
mars, kl. 20.30 og er helgað þýð-
andanum og skáldinu Magnúsi
Asgeirssyni.
Hjörtur Pálsson segir frá Magn-
úsi, ævi hans og starfí. Lesið verður
úrval úr þýðingum hans. Auk Hjart-
ar lesa Alda Arnardóttir, Hugrún
Gunnarsdóttir og Karl Guðmunds-
son.
Aðgangseyrir er 300 krónur.
»
L
»
f
:
>