Morgunblaðið - 11.03.1993, Síða 2

Morgunblaðið - 11.03.1993, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993 Hundraðhestaflageng*ið leggur í dag af stað í ferð þvert yfir landið Á véMeðum homaámiUi FIMM vélsleðamenn leggja af stað frá Hornbjargi í dag og ætla þeir að fara þvert yfir landið til Hornafjarðar en þessi leið hefur ekki verið farin áður í einum rykk. Þeir áætla að verða fjóra daga á leiðinni. Erfiðasti áfang- inn er frá Steingrímsfjarðarheiði að Holtavörðuheiði og munu þeir félagar sofa i snjóhúsi ef þurfa þykir. „Við áætlum að verða Qóra daga á leiðinni og koma til Horna- fjarðar á sunnudagskvöld en að sjálfsögðu gæti margt tafíð fyrir okkur,“ sagði Ólafur Sigurgeirs- son einn leiðangursmanna í sam- tali við Morgunblaðið. Erfíðasti áfanginn Hann sagði að erfíðasti áfang- inn á leiðinni yrði eflaust frá Steingrímsfjarðarheiði yfír Laxárdalsheiði að Holtavörðu- heiði og hefur leiðin ekki verið farin fyrr í einum áfanga. Ólafur kvað ekki víst að snjór væri óslit- ið alla leiðina en taldi líklegt að einhveijir renningar fyndust. Sæluhús er á Laxárdalsheiði en Ólafur sagði óvíst hvort þeir fé- lagamir myndu notast við það, í versta falli myndu þeir gera sér snjóhús en fátt er um skála á þessari leið. Þeir félagamir áætla að ná til Hveravalla á tveimur sólarhring- um. Ólafur sagði að ferðin frá Holtavörðuheiði og austureftir yrði mun léttari, á henni væru mörg sæluhús og leiðin vel kunn og hefðu' snjósleðamenn oft farið hana. Fimmmenningamir em í 10 manna ferðaklúbb sem nefnir sig Hundraðhestaflagengið. „Við er- um ekki að fara þessa ferð okkur til frægðar en við verðum að fínna uppá einhveiju til að geta verið að rugla svona í miðri viku, ann- ars tæki okkur enginn alvarlega," sagði Ólafur. Morgunblaðið/Sverrir Hundraðhestaflagengi Félagarnir fimm úr Hundraðhestaflagenginu sem taka þátt í Jeið- angrinum. F.v. Viðar Pétursson, Eggert Þór Sveinbjörnsson, Ólaf- ur Sigurgeirsson, Sævar Reynisson og Magnús Krisfjánsson Eignir verktakafyrirtækisins Hagvirkis-Kletts hf. voru kyrrsettar í gær Islandsbanki mælir ekki með nauðasamningum ÍSLANDSBANKI samþykkti ekki að mæla með nauðasamn- ingum Hagvirkis-Kletts þegar eftir slíku samþykki var leit- að. Valur Valsson, bankastjóri Islandsbanka, staðfesti þetta í gær. I dag mun Þorgerður Erlendsdóttir, héraðsdómari í Reykjanesi, kveða upp úrskurð sinn um hvort fallist verði á beiðni fyrirtækisins um heimild til nauðasamningsumleit- ana. Hugmyndir fyrirtækisins um nauðasamninga gera ráð fyrir 60% niðurfellingu á höfuðstóli skulda. í yfirlýsingu frá Hagvirki-Kletti segir að ljóst sé að gjaldþrot bíði fyrir- tækisins náist ekki nauðasamningar. í gær féllst sérstaklega skipaður sýslumaður á kröfu Ragnars H. Hall, bústjóra þrotabús Fómarlambsins, áður Hagvirkis, um kyrrsetningu á eignum til tryggingar fyrir þeim 373 milljón króna kröfum sem þrotabúið mun gera í riftunarmáli vegna samn- inga um sölu á eignum Hagvirkis til Hagvirkis-Kletts í desember 1990. Hagvirki-Kletti hefur verið birt stefna í staðfestingarmáli vegna kyrrsetningarinnar og verður það mál þingfest 16. mars. Ríki og íslandsbanki samtals undir 40% Valur Valsson vildi ekki ræða hve háar kröfur íslandsbanki ætti á hendur Hagvirki-Kletti eða tjá sig nánar um málið. Eyjólfur Kristjánsson, lögfræðing- ur hjá Hagvirki-Kletti, sagði að- spurður að afstöðu ríkissjóðs til nauðasamninganna hefði ekki verið leitað en í máli hans kom fram að samanlagðar kröfur ríkissjóðs og ís- landsbanka á hendur fyrirtækinu myndu ekki ná því 40% sem þurfí til að fella frumvarp til nauðasamn- inga sem geri ráð fyrir eftirgjöf á 60% skulda. Hann lagði áherslu á að endanleg afstaða íslandsbanka til málsins lægi ekki fyrir. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær gera hugmyndir Hagvirkis-Kletts ráð fyrir 10% greiðslu í reiðufé, 10% með verð- tryggðu skuldabréfí en 20% með vaxtalausu, óverðtiyggðu skulda- bréfí til 5 ára. Beiðni Hagvirkis- Kletts um nauðasamningsumleitanir hefur hlotið samþykki u.þ.b. 100 lán- ardrottna félagsins sem eiga hjá fé- laginu rúm 25% af þeim skuldum sem það telur sig eiga ógreiddar en kyrr- setningarkröfurnar eru ekki þar á meðal. Ragnar H. Hall, bústjóri Fómar- lambsins, sagðist, í samtali við Morg- unblaðið í gær, mundu gera kröfur um að kröfur þrotabús Fómarlambs- ins á hendur Hagvirki-Kletti fái að njóta atkvæðisréttar við afgreiðslu væntanlegs fmmvarps um nauða- samninga en gera allt eins ráð fyrir að þeim atkvæðisrétti verði mót- mælt. Eyjólfur Kristjánsson sagðist gera ráð fyrir að kyrrsetningarkröf- umar yrðu ekki viðurkenndar við meðferð nauðasamninganna. í máli hans kom fram að verði heimild til nauðasamningsumleitana veitt og nái nauðasamningamir fram að ganga við atkvæðagreiðslu eftir 4 vikna innköllunarfrest krafna falli kyrrsetning eigna félagsins úr gildi. Fari svo að þrotabú Fómarlambs- ins vinni það riftunarmál sem höfðað hefur verið til staðfestingar kyrrsetn- ingunni verður þrotabúið bundið af nauðasámningunum að svo miklu leyti sem kröfur þess kunna að verða teknar til greina. Kyrrsetning án eignamats Að sögn Guðgeirs Eyjólfssonar, sem var skipaður sérstakur sýslu- maður í kyrrsetningarmálinu eftir að Guðmundur Sophusson sýslumað- ur í Hafnarfírði vék sæti, krafðist bústjóri Fómarlambsins ekki mats á virði þeirra eigna sem Hagvirki- Klettur benti á vegna kyrrsetningar- innar þegar málið var tekið fyrir í gærmorgun. Því byggist sú veðsetn- ing sem kyrrsetningin felur í sér ekki á mati á verðmæti eigna félags- ins, en vinna matsmanna var stöðvuð eftir að sýslumaðurinn í Hafnarfirði sagði sig frá málinu. Eignarhald á samlögim- um kannað HALLDÓR Blöndal landbúnað- arráðherra hefur ákveðið að láta vinna lögfræðilega álitsgerð um það hver eigi mjólkursamlög landsins og aðrar afurðastöðvar i landbúnaði. Samkomulag er um að ráðist verði í hagræðingu á vinnslustigi mjólkur. í tengslum við það télur ráðherra nauðsynlegt að fá úr því skorið, hvernig eignarhaldi á af- urðastöðvum í mjólkuriðnaði sé háttað og hvaða möguleika eða rétt mjólkurframleiðendur hafí til að leysa þær til sín, þar sem um bland- aðan samvinnurekstur er að ræða. -----»-♦ ♦---- Aðalfundur Skelj- ungs hf. á morgun Hörður Sig- urgestsson verður kos- inn í stjórn AÐALFUNDUR Skeljungs hf. verður haldinn á Hótel Sögu á morgun kl. 14. Samkvæmt upplýs- ingum Morgunblaðsins verður Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélags íslands, kjörinn í stjórn Skeljungs á fundinum og mun hann þar með taka sæti Thors Ó. Thors heitins. Morgunblaðið hefur jafnframt upplýsingar um að Jón Halldórsson, formaður Sameinaðra verktaka, sótt- ist eftir stjómarsetu í Skeljungi, en ekki var orðið við ósk hans. Litið er á þijú sæti í stjóm Skeljungs sem Eimskipafélagssæti, en Eimskip á 11,5% hlut í Skeljungi. Þau þijú sæti voru skipuð þeim Indriða Páls- syni, Halldóri H. Jónssyni og Thor Ó. Thors. Þegar Halldór H. Jónsson féll frá, kom Sigurður Einarsson, forstjóri ísfélags Vestmannaeyja hf., inn í stjórnina. Samkomulag mun hafa tekist meðal eigenda Skeljungs um að Hörður Sigurgestsson taki nú sæti Thors Ó. Thors. -----♦-» ♦---- Bolungarvík Fjórar millj- ónir söfnuð- ust í hlutafé Bolungarvfk. í GÆRKVÖLDI var haldinn form- legur stofnfundur hins nýja út- gerðarfélags i Bolungarvik Ösvar- ar hf. Mikil samstaða hefur verið meðal Bolvíkinga um þetta félag sem ætlað er að vinna að því að kaupa eignir þrotabús EG. Stofn- hluthafar voru 183 talsins og alls safnaðist hlutafé upp á rúmlega 4,1 milljón króna sem skiptist í 415 tíu þúsund króna hluti. Samþykkt var að stjórn félagsins hefði heimild til að auka hlutfé í 5 milljónir króna og skuli því lokið fyr- ir 1. júní n.k. í stjóm félagsins voru kosin Björgvin Bjamason banka- starfsmaður, Bjamveig Samúelsdótt- ir verkakona, Markús Guðmundsson stýrimaður, Karvel Pálmason fyrr- verandi alþingismaður og Kristján Jón Guðmundsson fyrrum útgerðar- stjóri EG. Endurskoðendur félagsins voru kjömir Jón Þorgeir Einarsson °S Asgeir Sólbergsson. Það var létt yfír fólkinu, sem var vel á annað hundrað, að loknum þess- um stofnfundi. Þó mikið og erfítt verkefni bíði þessa nýstofnaða félags hefur það sýnt sig undanfarið að samstaða Bolvíkinga er alger í þessu máli. Með þann bakhjarl hefur þessi fyrsta stjóm Ósvarar hf. störf sín strax í dag. -Gunnar. dag 27 metra fall Steinn Guðmundsson slapp lítið meiddur úr flugferð á vélsleða fram af 27 metra gilbrún 4 íslenski fjárfestingarbankinn —- Iðnlánasjóði verður breytt í fjár- festingarbanka 28 Verðkönnun vikunnar Allt að 122% verðmunur er á nasli í söluturnum á höfuðborgarsvæð- inu 36 Leiðari Tillögugerð vinnumarkaðarins 28 •TfACftcVÆMASTl K.OSTUR1NN - ÞEGAR ALLSERGÆTT. Viðskipti/Atvinnulíf Dagskrá ► Fóru offari við sjónvarpsleit - Segir myndavélin alltaf satt? - Nýjar gervihnattarásir í Evrópu - Stafrænt útvarp - Hin raunveru- legu Bart, Magga og Hómer ► Jötni skipt í tvö hlutafélög - Hriktir í stoðum heildsölukerfis- ins - Útnefningar á athyglisverð- ustu auglýsingu ársins 1992 - Viðtal við Philip Kotler

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.