Morgunblaðið - 11.03.1993, Side 25

Morgunblaðið - 11.03.1993, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993 2£ Hafist handa við byggingu Grensáskirkju í næstu viku Nýja kirkjan AUSTURHLIÐ Grensáskirkju eins og áætlað er að hún líti út. Hægra megin er safnaðarheimili kirkjunnar sem reist var 1972. Ekki hefur verið hægt að veita jarðarfaraþjónustu í því og hefur það háð prestakallinu að sögn séra Halldórs. Safnaðarheimilið fyr- ir löngu orðið of lítið SÉRA Halldór Gröndal, sóknarprestur í Grensássókn, tekur fyrstu skóflustunguna að kirkju safnaðarins á laug- ardaginn kl. 14. Áætlað er að jarðvinna við bygginguna hefjist á mánudag og kirkjan verði fokheld um miðjan desember á næsta ári. Hún verður sambyggð núverandi safnaðarheimili við Austurver og mun taka um 350 manns í sæti. Arkitekt byggingarinnar er Jósef Reynis. Aðspurður sagði séra Halldór að Grensássókn hefði verið stofnuð árið 1963 og safnaðar- heimilið hefði verið vígt haustið 1972. Hann sagði að vaxandi starfsemi á vegum kirkjunnar hefði nú sprengt utan af sér safn- aðarheimilið og löngu væri orðið tímabært að byggja kirkju. Af starfsemi á vegum kirkjunnar nefndi Halldór kórskóla, kirkju- kór, barnakór, æskulýðsstarf, fermingafræðslu, helgistundir í hádeginu, fullorðinsfræðslu og starfsemi ýmissa hópa s.s. um sorgarsamtaka. Ennfremur sagði hann að orðið væri knýj- andi að sinna ellilífeyrisþegum í sókninni betur. Af sóknarbörn- um 6000 eru þeir 1200. Framkvæmdir taki 2-3 ár Halldór sagði að staðið hefði yfir söfnun til styrktar kirkju- byggingunni og nú væri væri nóg fé komið til þess að ljúka því að gera kirkjuna fokhelda. Hins vegar sagði hann að ekki væri búið að setja niður hvenær stefnt væri að því að ljúka byggingunni endanlega. Hann vonaðsti þó til að byggingarframkvæmdirnar tækju ekki nema 2-3 ár. islenskir Rósadagar Allar afskornar rósir með ts% afslætti. Gullpálmri Aðeins kr. 598,- Alparós 25% afsláttur Vikuna 11.-17.mars rafmagnssaxafónn • Skynjar blástursstyrk t • Tengjanlegur viö hljómborð (MIDI) ! • Innbyggöur hátalari • Viðurkenndur af þekktum Jassgeggjurum PHIUPS Espresso kaffivél Lítil og nett kaffivél sem býr til Ijómandi espresso eða cappuccino kaffi á augabragði. Gufurör sem flóar mjólkina. Gjörlð svo vel. < kr. 6.790.- matvinnsluvélin. % • Hakkar, rífur, hrærir, blandar, sneiðir, hnoðar og þeytir • Tvær hraðastillingar w kr. 7.990.- SUPERTECH sterio vasaútvarp (Digital) •Stafrænn skjár •Sjálfvirkur sföðvaleitari •19 stöðvar í minni • Handhægt og létt en frábær hljómburöur )\kr. 3.990.- Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SfMI 69 15 15 ■ KRINGLUNNI SlMI 69 15 20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.