Morgunblaðið - 11.03.1993, Page 27

Morgunblaðið - 11.03.1993, Page 27
2', Clinton villaðstoð við Rússa sem fyrst Washington. Reuter. BILL Clinton, forseti Banda- ríkjanna, sagði eftir fund með Francois Mitterrand, forseta Frakklands, í Hvíta húsinu á þriðjudag að sjö helstu iðnríki heims þyrftu að ákveða aðstoð við Rússa fyrir árlegan fund þeirra í Tókýó í júlí. Bill Clinton kvað brýnt að gera ráðstafanir til að stuðla að því að ekki yrði horfíð frá umbótastefn- unni í Rússlandi. Hann sagði að hann myndi reyna að ná samstöðu á meðal leiðtoga iðnríkjanna sjö um fjárhagsaðstoð við Rússa fljót- lega eftir fund hans og Borís Jelts- íns, forseta Rússlands, í Kanada 4. april, ef ekki fyrr. Clinton sagði ennfremur að hann og Mitterrand hefðu verið sammála um að Frakkar ættu ekki að senda fleiri hermenn til Bosníu og að Bandaríkjamenn ættu ekki að senda landhermenn þangað nema allar fylkingarnar semdu um frið. „Frábær fundur" með Nixon Clinton tjáði sig einnig um fund sinn með Richard Nixon, fyrrver- andi Bandaríkjaforseta, í Hvíta húsinu á mánudagskvöld. Þeir ræddu meðal annars um ferð Nix- ons til Moskvu nýlega og hvemig bregðast ætti við óvissunni í Rúss- landi. „Við erum á sömu bylgju- lengd hvað þetta mál varðar,“ sagði Clinton og lýsti viðræðum þeirra sem „frábærum fundi“. „Ég fékk margar mjög góðar hug- myndir frá honum.“ Auka þarf aðstoðina til að bjarga Jeltsín Nixon, sem er áttræður, ritaði nýlega grein í New York Times þar sem hann sagði að Clinton gæti tryggt sér sess sem „afburða- stjómmálaleiðtogi“ ef hann tæki að sér að gegna forystuhlutverki í alþjóðlegum aðgerðum til að bjarga Rússlandi. Stjórn Jeltsíns myndi falla ef aðstoðin við Rússa yrði ekki aukin vemlega. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993 Reuter Sorg í Sarajevo SERBNESK kona harmar hér son sinn við útför í Sarajevo, höfuðborg Serbíu. Talið er að 130.000 manns hafi beðið bana vegna stríðsins í landinu frá því í maí í fyrra. Um 740.000 flóttamenn em í Bosníu og rúm milljón manna hefur flúið til annarra landa. Þá er talið að 70.000 manns hafi verið í haldi í fangabúðum og 20.000 konum hafí verið nauðgað. Ástandið er nú verst í byggðum múslima í austurhluta Bosn- íu við landamærin að Serbíu. Fregnir herma að serbneskir hermenn ráðist á byggðimar til að stökkva íbúunum á flótta. „Konur, böm og aldrað fólk er drepið, venjulega skorið á háls,“ segir Sadako Ogata, yfirmaður Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þing Sviss kýs konu í ríkisstjórn ZUrlcb. Fri önnu g)urimilóUur, fréUaritarn Morftunblaðulna, SAMEINAÐ þing svissneska þjóðþingsins kaus Ruth Dreif- uss, starfsmann svissneska alþýðusambandsins, i sjö manna ríkisstjórn landsins í gær. Christiane Brunner, þingmaður Jafnaðarmannaflokksins (SP), dró framboð sitt til baka eftir að hvorug kvennanna hafði hlotið meirihluta atkvæða í tveim- ur atkvæðagreiðslum. Dreifuss hlaut 144 atkvæði í þriðju umferð og Brunner 32 en 96 nægðu þá til að ná kosningu. Dreifuss var kjörin í stjórnina í stað Rene Felbers, utanríkis- ráðherra. Ráðherrarnir munu skipta með sér ráðuneytum í dag. Talið er Iíklegt að Dreifuss verði innanríkisráðherra. Um 10.000 manns biðu úrslita kosninganna fýrir framan þinghús- ið í Bern í gærmorgun. Flestir urðu fyrir vonbrigðum þegar Dreifuss var kjörin. Brunner var fagnað inni- lega þegar hún og nýi ráðherrann ávörpuðu mannfjöldann. Brunner er orðin hetja kvenréttindahreyfing- arinnar. Hún sagði að kjör Dreifuss væri aðeins upphaf baráttu kvenna fyrir jafnrétti í stjórn landsins og hvatti konur til að láta að sér kveða í stjórnmálum, með kvennalistum ef með þyrfti. Meirihluti. þjóðþingsins kaus Francis Matthey í ríkisstjórnina fyr- ir viku. Hann afþakkaði kjörið í gær og sagði að virða bæri rétt kvenna til að dga sæti í æðstu stjóm lands- ins. Ovænt óánægja greip um sig meðal þjóðarinnar þegar hann var kjörinn. Honum var ekki fært að taka kosningunni. Studdi Brunner Dreifuss hefur undanfarin ár far- ið með félagsmál í alþýðusamband- inu. Hún bauð af sér góðan þokka á fundum með stærstu þingflokkun- um, þingflokkum FDP og Kristilega þjóðarflokksins (CVP), í fyrradag. Hún gaf kost á sér í ríkisstjórnina til að tryggja að kona tæki þar sæti en segist hafa vonað að Brunn- er yrði kjörin. Hún segist harma að þjóðþingið hafí ekki þorað að kjósa óvenjulega konu eins og Brunner heldur frekar kosið hvers- dagslega, einhleypa konu eins og hana sjálfa. Færeyjar Þörf er á meirinið- urskurði Kaupmannahöfn. Frá N.J.Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. FULLTRÚAR Alþjóðagjald- eyrissjóðsins hafa enn ekki lagt blessun sína yfir fær- eysku fjárlögin en helsta skil- yrði dönsku stjórnarinnar fyrir 8,5 milljörðum kr., sem lánaðar voru Færeyingum, var, að útgjöldin yrðu ekki meiri en tekjurnar. Jogvan Sundstein, sem fer með fjármálin í færeysku lands- stjórninni, segir, að vegna þess verði að grípa til enn meiri nið- urskurðar en hingað til og hefur í því sambandi verið talað um uppsagnir opinberra starfs- manna, lækkun tekjutrygging- ar hjá sjómönnum, nýja skatta og hugsanlega hækkun virðis- aukaskatts, sem nú er 23%. Fulltrúar Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins hafa verið í Þórshöfn síðustu tíu dagana en við brott- förina afhentu þeir sínar eigin tillögur um aukinn niðurskurð. Helgarfargjöld til Skandinavíu. NORÐURLANDAFARGJÖLD SAS* Keflavík - Kaupmannahöfn 26.940.- Keflavík - Stokkhólmur 30.060.- Keflavík - Osló 26.940.- Keflavík - Gautaborg 26.940.- Keflavík - Krlstiansand 26.940.- Keflavík - Malmö 26.940.- Keflavík - Stavanger 26.940.- Keflavík - Vásterás 30.060.- Keflavík - Bergen 26.940.- Keflavík - Norrköplng 30.060.- Keflavík - Helslnkl 30.680.- Keflavík - Jönköping 30.060.- Keflavík - Tampere 30.680.- Keflavík - Kalmar 30.060.- Keflavík - Turku 30.680.- Keflavík - Váxjö 30.060.- Keflavík - Vaasa 30.680.- Keflavík - Orebrö 30.060,- * Verð mlftaö vlð altt að 5 daga hámarksdvöl (4 nætur) að meðtallnnl aðfaramótt sunnudags. Enn betri kjör fyrir hópa, 15 manns eða flelrt. innlendur flugvallarskattur er 1.250 kr. og danskur flugvallarskattur 680 kr. Fjölmargir gistimöguleikar. Verö á gistlngu á mann er frá 2.600 kr. nóttin í 2ja manna herbergi. Haföu samband við söluskrifstofu SAS eöa ferðaskrifstofuna þína. SAS á íslandi - valfrelsi í flugi! Laugavegl 172 Síml 62 22 11

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.