Morgunblaðið - 11.03.1993, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 11.03.1993, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993 Djarfar fórnir í Linares Hér eru verðlaunasveitir úr yngri hópum ásamt þeim Guðmundi Theórdórssyni frá Mjólkurbúi Flóa- manna og Ingimundi Sigurmundssyni, mótsstjóra, sem er yst til vinstri. __________Skák______________ Margeir Pétursson ELDSNÖGGI Indverjinn, Vyswanathan Anand, vék úr efsta sætinu á stórmótinu í Linares á mánudaginn þegar hann varð að játa sig sigrað- an af heimsmeistaranum í skák, Gary Kasparov. Heims- ,meistarinn er efstur þegar þetta er skrifað, með 7'/2 vinning. í tíundu umferðinni vann Kasparov frækinn sigur á Anatoly Karpov. Eftir er að tefla þijár umferðir en mótinu lýkur um helgina. Taflmennskan á mótinu hefur verið afskaplega fjörug og skemmtileg og sumar skákirnar hreint ævintýralegar. Þeir sem eiga mestan heiðurinn af þessu eru þeir Anand og Lettinn Shirov sem sótti okkur Islendinga heim fyrir ári. Shirov er framúrstefnu- maður í nútíma skáklist að tvennu leyti, hann er óhræddari en aðrir við að tefla miðtafl með kónginn úti á borðinu, auk þess sem hann hikar ekki við að fóma liði fyrir óvissar bætur. Það er ekki eins mikill lista- mannsbragur yfir taflmennsku Anands, hann flækir taflið fyrst og fremst vegna þess hversu fljót- ur hann er að reikna afbrigði. Hann teflir upp á að leggja svo erfíð vandamál fyrir andstæðing- inn að hann nái ekki að leysa þau á þeim tveimur klukkustundum sem keppendur hafa á fyrstu 40 leikina. Indveijanum hefur tekist þetta meistaralega í Linares og sjaldan teflt betur. Heimsmeistarinn hefur teflt af sínum venjulega styrkleika og Karpov hefur einnig tekist mjög vel upp, stílhreinar skákir hans eru skemmtileg andstæða við flækjutaflmennsku ungu mann- anna. Það má því segja að í Linar- es sjáist flest það besta sem skák- snillingar samtímans hafí fram að færa. Flókið afbrigði móttekins drottningarbragðs hefur átt vin- sældum að fagna í Linares. Við skulum sjá hverig Anand hélt á málunum í fjórðu umferð: Hvítt: Boris Gelfand Svart: Vyswanathan Anand Móttekið drottningarbragð 1. d4 — d5, 2. c4 — dxc4, 3. e4 - c5, 4. d5 - Rf6, 5. Rc3 - b5, 6. Bf4 - Da5! Þessi staða hefur komið upp í flórum skákum á mótinu. í fyrstu umferðinni lék Shirov 7. Bd2!? gegn Kramnik og í sjöttu umferð- inni reyndi Beljavskí 7. a4!? — Rxe4 8. Rge2 gegn Kamskí. 7. e5 - Re4, 8. Rge2 - Ra6,9. f3 a b c d • f g h í annarri umferð mótsins fékk Anand þessa stöðu upp gegn Beljavskí og lék 9. — Rxc3, 10. Rxc3 — Bf5, en eftir 11. g4 — Bg6, 12. a4 — Rb4 en eftir 13. Kf2! mátti hvítur vel við una og vann í 45 leikjum. Indveijinn hef- ur fundið stórkostlega endurbót á þeirri skák, mjög óvænta mannsfórn: 9. - Rb4!!, 10. fxe4 - Rd3+, 11. Kd2 - g6!, 12. b3? Hvíta staðan er afar vandtefld, en þessi leikur veikir skálínuna al-h8 og það reynist afdrifaríkt. Gelfand er ekki öfundsverður af því að þurfa að veija þessa stöðu gegn vel undirbúnum andstæð- ingi. Til dæmis leiðir hið nærtæka framhald 12. Be3 — Bg7, 13. Dc2 — Bxe5, 14. Rcl til tapaðrar stöðu á hvítt eftir 14. — Rxb2!, 15. Dxb2 — b4. 12. - Bg7 13. bxc4 Nú vinnur svartur lið og þar með skákina. Nauðsynlegt var að víkja Bf4 undan, en eftir 13. Be3 - Rxe5, 14. Hcl - Rd3, 15. Hc2 - Rb4, 16. Hb2 - Bg4 stendur svartur líka til vinnings. 13. - Rxf4, 14. Rxf4 - Bxe5, 15. Rfe2 — b4, 16. Da4+ - Dxa4, 17. Rxa4 — Bxal, 18. Rxc5 - 0-0, 19. Rd3 - a5 Anand er orðinn skiptamun yfír fyrir peð auk þess sem hann ræður yfir biskupaparinu og hættulegum peðum á drottn- ingarvæng. Úrslitin eru því ráðin. 20. g3 - Bg7, 21. Bg2 - Ba6, 22. c5 - Hac8, 23. c6 - Hfd8, 24. Hcl - Bh6+, 25. Ref4 - Bxd3, 26. Kxd3 - e5, 27. Kc4 — exf4, 28. Hel — fxg3, 29. e5 — Bf4, 30. hxg3 — Bxg3, 31. He3 - Bf4, 32. He4 - Bh2, 33. Bh3 - Hc7, 34. He2 - Bg3, 35. He3 - Bf4, 36. He4 - g5, 37. Kc5 - He7, 38. Kd4 - f6, 39. d6 - Hxe5, 40. Hxe5 - Hxd6+ og Gelfand gafst upp án þess að bíða eftir svari andstæðingsins. Þessi ósigur tók svo mikið á Hvít- Rússann að hann tapaði næstu þremur skákum sínum líka. Grunnskólamót Árnessýslu Það var mjög góð þátttaka í árlegri sveitakeppni grunnskól- anna í Ámessýslu. Það var Skák- félag Selfoss og nágrennis sem stóð fyrir mótinu. Alls tóku 17 sveitir frá 11 skólum þátt í mót- inu, niu úr 1—7. bekk og 8 úr 8.—10. bekk. í hverri sveit vom fjórir aðalmenn og einn til fjórir varamenn, svo heildarfjöldi þátt- takenda var alls u.þ.b. eitthundr- að talsins. Mótsstjóri var Ingimundur Sig- urmundsson og honum til aðstoð- ar vom Magnús Gunnarsson, Úlf- héðinn Sigurmundsson og félagar úr SSON. Helstu styrktaraðilar vom að venju Mjólkurbú Flóa- manna og Landsbankinn á Sel- fossi. Úrslit urðu þessi: Yngri flokkur, 1.—7. bekkur: 1. Reykholtsskóli 21 v. af 32 mögulegum 2. Barnask. Eyrarbakka 20R v. 3. Villingaholtsskóli 19 v. 4. Sólvallaskóli 18R v. 5. Gmnnskólinn Stokkseyri 18 v. 6. Sandvíkurskóli 14 v. 7. Grunnskólinn Þorlákshöfn 13 v. 8. Barnaskólinn Þingborg 11 v. 9. Flúðaskóli 9 v. Eldri flokkur, 8—10. bekkur: 1. Flúðaskóli 21 v. af 28 mögul. 2. Grannsk. Þorlákshöfn 17R v. 3. Sólvallaskóli 17 v. 4. Bamaskólinn Eyrarbakka 17 v. 5. Héraðssk. Laugarvatni 16R v. 6. Reykholtsskóli 11 v. 7. Gmnnsk. Stokkseyri 10R v. 8. Ljósafossskóli 1R v. Veitt vom sérstök verðlaun fyrir bestan árangur einstaklinga á hveiju borði fyrir sig, en það vom veglegar skákbækur frá Skákprenti sem Skákfélag Sel- foss og nágrennis gaf. Eftirtaldir hlutu þau: Yngri flokkur: 1. borð: Gunnar Helgason, Sól- vallaskóla og Sævar Sigurmunds- son, Eyrarbakka 2. borð: Guðni Páll Sæland, Reyk- holtsskóla 3. borð: Ólafur Már Ólafsson, Stokkseyri 4. borð: Friðrik Einarsson, Stokkseyri Eldri flokkur: 1. borð: Erling Tómasson, Eyr- arbakka 2. borð: Ingvar Þrándarson, Flúðaskóla 3. borð: Kristján Hafsteinsson, Sólvallaskóla 4. borð: Kjartan Kárason, Laug- arvatni. I Brids______________ Amór Ragnarsson Undanúrslitakeppni sveitakeppni Bridsfélags Homafjarðar Það má segja með sanni að undan- úrslitaleikimir í aðalsveitakeppni Bridsfélags Homarfjarðar hafi verið spennandi og hnífjafnir. Þeim lauk þannig að sveit Hótels Hafnar sigraði sveit Ingólfs Baldvinssonar með 1 IMPa 0g sveit Björns Gíslasonar sigr- aði sveit Jóns Axelssonar einnig með 1 IMPa. Og rétt er að minna á að sveit Ingólfs komst í undanúrslitin með sigri á 1 IMPa. Það verða því sveitir Bjöms Gíslasonar og Hótels Hafnar sem leika til úrslita um kom- andi helgi. - JGG Bridsdeild Félags eldri borgara Sunnudag 28. febrúar 1993. Mætt voru 14 pör. Ólöf Guðbergsdóttir/Guðrún Þórðardóttir 193 ÞorsteinnErlingsson/GunnþórunnErlingsd. 192 SigurieifurGuðjónsson/HjálmarGíslason 188 NúmiÞorbergsson/JónHermannsson 172 Meðalskor 156 Fimmtudag 4. mars 1993. Mætt vom 8 pör. Ásta Erlingsdóttir/Vilhjálmur Gunnarsson 104 BergurÞorvaldsson/ÞórarinnAmason 90 Samúel Samúelsson/Guðmundur Þorgrímsson 86 Meðalskor 84 Bridsfélag Suðurnesja Nú er aðeins einni umferð ólokið í Sparisjóðsmótinu sem er aðalsveita- keppni vetrarins. Sveit Torfa S. Gísla- sonar hefir vænlegustu stöðuna, hefir hlotið 169 stig og á auk þess frestað- an leik. Næstu sveitir: Jóhannes Ellertsson 158 Gunnar Guðbjörnsson 157 Gunnar Siguijónsson 127 Bjöm Blöndal 117 Sveit Bjöms á frestaða leikinn við efstu sveitina. Hafmn er undirbúningur að Kefla- víkurverktakamóti nr. 2 en þar spila saman vanir og óvanir. Spilað verður í Stapanum 29. marz en aðaltvímenn- ingur vetrarins Samvinnuferða/Land- sýn mótið hefst 5. apríl og verður einn- ig spilað í Stapanum. Bridsfélag byijenda Sl. þriðjudagskvöld, 2. mars, var spilaður eins kvölds tvímenningur að vanda. Alls mættu 26 pör og urðu úrslit eftirfarandi: N/S riðill Álfheiður Gísladóttir - Pálmi Gunnarsson 281 Einar Hallsson - Jón Þór Kristmannsson 242 HelgiIngólfsson-GuðmundurGislason 229 A/V riðill AmarEyþórsson-BjörklindÓskarsdóttir 293 Gunnlaugur Hjartarson - David Lúðvíksson 289 Snorri Karlsson — Egill Darri Brynjólfsson 247 Næsta spilakvöld er þriðjudaginn 16. mars og er spilað í húsi Bridssam- bandsins í Sigtúni 9. Allir byijendur eru hvattir til að mæta en spila- mennskan hefst kl. 19.30 Bridsfélag Hafnarfjarðar Sl. mánudag hófst þriggja kvölda hraðsveitakeppni og spila 11 sveitir í A-riðli og 5 sveitir í B-riðli. Staðan eftir fyrsta kvöldið er þannig: A-riðill ólafúrGíslason 597 KjartanJóhannsson 594 Hjálmar S. Pálsson 587 KristóferMagnússon 581 B-riðiIl EysteinnEinarsson 495 SteinarHólmsteinsson 474 Sófus Bertelsen 458 Nk. mánudag verður spiluð önnur umferðin í hraðsveitakeppninni og hefst spilamennskan kl. 19.30 Minningarmót um Guðmund Jónsson á Hvolsvelli Sunnudaginn 21. mars verður hald- ið á Hvolsvelli minningarmót um Guð- mund Jónsson, sem var formaður Bridsfélags Hvolsvallar og nágr. um árabil. Spilamennska hefst kl. 10 og spilaður verður barómeter. Hámark- sparafjöldi verður 36 pör. Peninga- verðlaun verða fyrir fimm efstu sætin og 1. verðlaun 40.000 kr. Spilað verð- ur í Félagsheimilinu Hvoli, og keppnis- gjald er 5.000 kr. á parið. Spiiað er um silfurstig. Keppnisstjóri verður Kristján Hauksson og skráning er á skrifstofu Bridssambands íslands í s. 91-689360 og hjá Ólafi Ólafssyni, Hvolsvelli, í síma 98-78134. Reykjanesmót í tvímenningi Reykjanesmót í tvímenningi var spilað um helgina. 20 pör spiluðu og urðu úrslit þessi: RagnarJónsson-ÚlfarFriðriksson 104 Ámína Guðlaugsd. - Bragi Erlendsson 83 Guðm. Þorkelsson - Friðþjófur Einarsson 74 Spilað var í Reykjavík. Keppnis- stjóri var Einar Sigurðsson. Bridsfélag Nesjamanna Lokið er tveimur umferðum af þremur í hreindýramótinu óg er staða efstu para þessi: Sigurpáll Ingibergsson - GunnarP. Halldórsson 370 AmiHannesson-GísliG./BragiBjama. 362 RagnarBjömsson-ÓlafurMagnæússon 345 ÁsmundurSkcggjason-BjömRagnarsson 345 GesturHalldórsson-JónNíelsson 342 Eskifjörður Nuddstofa opnuð Eskifirði. NUDDSTOFA hefur verið opnuð í kjallara íþróttahússins á Eski- firði. Hún hefur hlotið nafnið Fínt form. Eigandi er Guðbjörg Steins- dóttir nuddfræðingur. í Fínu formi er hægt að fá al- um, ljós, gufubað og heitan pott. hliða nudd og rafmagnsnudd. Þar Opið verður frá 10 til 22 alla daga er einnig hægt að komast í líkams- nema sunnudaga. rækt með tilheyrandi leiðbeining- B.J. Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson Nudd og- líkamsrækt Hans Einarsson bregður á leik í nuddstofunni Fínu formi á Eski- firði. Anton Pétursson og Jón Baldursson fylgjast með.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.