Morgunblaðið - 11.03.1993, Side 46

Morgunblaðið - 11.03.1993, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993 STJÖRNUSPÁ eftir Frances Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Þróun mála á vinnustað er þér mjög hagstæð í dag. Skemmtu þér vel í kvöld án þess þó að eyða allt of miklu. Naut (20. aprfl - 20. maí) Sumir eru að undirbúa frá- bært ferðalag. Fjölskyldu- hagsmunir eru í fyrirrúmi. Ný tækifæri gefast í vinn- unni í dag. Tvíburar (21. mat - 20. júnl) 7» Frumkvæði þitt skilar árangri og hagnaði í dag. Þótt þú viljir skvetta úr klaufunum í kvöld þarftu ekki að fara út í öfgar. Krabbi (21. júní - 22. júlí) H88 Rómantíkin er í brennidepli og sumir eru með giftingu á pijónunum. Þér hættir til að eyða of miklu við inn- kaupin. Ljón (23. júlf - 22. ágúst) Þér er falið áhugavert verk- efni í vinnunni og þú kemur miklu í verk í dag. Sjálfum- gleði ber að varast í kvöld. Meyja (23. ágúst - 22. september) <t.%' Sumir verða ástfangnir í dag. Nýstárleg skemmtun stendur til boða í kvöld. Hafðu eftirlit með útgjöld- unum. Vog . (23. sept. - 22. október) 'IS% Heppnin er með þér í við- skiptum í dag, en varastu að ofmeta stöðuna. Hófleg harðfylgni er við hæfi þeg- ar þörf krefur. Sporðdreki (23. okt. — 21. nóvember) Listrænir hæfíleikar njóta sín í dag. Sumir fara í bíó eða á hljómleika. Athyglin beinist að ferðalögum og rómantík. Bogmaður (22. nóv. - 21. desember) Þú hefur auga fyrir fegurð í dag og gætir keypt eitt- hvað til heimilisins. Sumir fá fjárhagslegan stuðning. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Óvenjulegt ferðalag gæti verið framundan. Ekki ætl- ast til of mikils af öðrum. Sinntu félaga þínum í kvöld. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) ðh Þú fínnur eitthvað áhuga- vert í afskekktri búð í dag. Þetta verður dagur annríkis og afkasta í vinnunni. Gættu hófs. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Víkkaðu sjóndeildarhring þinn með þátttöku í félags- lífinu. Ferðalög og skemmt- anir eru í sviðsljósinu. Stjörnuspána á aó lesa sem dœgradvöl. Spdr af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni vísindalegra staóreynda. DÝRAGLENS TOMMI OG JENNI Kiiui'mnjjmjiinui.i. ini. i..inii.;;miiiiiuiii!iiii.m.ini..iiiiu.iiinin. 111111»»;. iiunmmi:uuiii!s»..i..u,.i:!!T.,»»iiii ■ 1 '■■■ . ■ 1 FERDINAND HERE'5 THE WORLD FAM0U5 H0CKEY PLAYER ON HI5 UJAY TO THE GAME.. Hér er hin heimsfrægi hokkileikari á leið til leiks ... UNPER THE NEW RULE5 IF YOU 5TART A FI6HT, YOU ARE AUTOMATICALLY EJECTEP FROMTHE GAME... Samkvæmt nýju reglunni er manni sjálfkrafa hent útaf ef maður fer að slást ... Svo ég get alveg eins farið heim strax ... BRIPS Umsjón Guðm. Páll Arnarson Eftiráspekingar eru þeir kallaðir, sem gagnrýna á grundvelli allra spil- anna 52ja. Svokölluð „heimskuleg dobl“ eru slfkum spekingum einkar hugleikin. Vestur hefði til dæmis ekki fengið háa einkunn hjá Terencc Reese fyrir doblgleði sína í spili dagsins: Austur gefur; enginn á hættu. Norður ♦ G V G743 ♦ D97632 Vestur ♦ 94 Austur ♦ 42 ♦ ÁD109865 V ÁK865 llllll * 1092 ♦ Á4 111111 ♦ 10 ♦ DG102 Suður ♦ 73 ♦ K73 »D ♦ KG85 ♦ ÁK865 Vestur Norður Austur Suður — — 3 spaðar 3 grönd Dobl? Pass Pass 4 lauf Dobl?? Pass Pass Pass Hið alsjáandi auga gagnrýnand- ans telur doblið á þremur gröndum vafasamt, af þeirri undarlegu ástæðu að líklegt er að spilið tapist. Spekingurinn segir sem svo: „Ánd- stæðingarnir eiga tígulinn og hugs- anlega vinnast fjórir tíglar. Með doblinu er verið að reka þá úr spili sem að öllum líkindum fer niður í bút sem gæti unnist. Það er heimskulegt." Það reyndist rétt metið að suður þorði ekki að sitja. En hann flúði ekki f fjóra tfgla, heldur fjögur lauf. Hleypum spekingnum aftur að: „Do- blið á þremur gröndum er vont, en að dobla fjögur lauf er fráleitt. Þar fara þeir örugglega niður, svo það er best að þegja og ýta þeim ekki í tígulinn.“ Lesendum til upplýsingar skal þess getið að spilið kom upp nýlega í sveitakeppni hjá BR. Það minnti dálkahöfund á marga pistla Recse, þar sem hann amast við doblum af þessu tagi, „sem ættu með réttu að losa andstæðingana úr klfpunni“. Það sem fer mest f taugarnar á þess- um eftiráspekingum er hversu oft mótheijarnir þráast við að láta bjarga sér. í þessu tilviki sátu NS í fjórum laufum. Norður gat ekki breytt í 4 tígla, því frá hans bæjar- dyrum leit út fyrir að suður væri með 6-7-lit í laufi og jafnvel einn tígul (suður á einspil í hjarta, ekki satt). Vissulega gat suður SOS-re- doblað þrjú grönd, en hann var ekki viss um að sögnin skildist. í stuttu máli: NS sáu ekki öll spilin og tóku rangar ákvarðanir. Fjögur lauf dobluð fóru 5 niður! (Hjartaás, tfgulás og tfgull trompað- ur og hjarta, sem suður trompaði, o.s.frv.) Heimskulegu doblin tvö gátu AV því 1100 og 12 IMPa. Á hinu borðinu spiluðu AV fjóra spaða, sem standa; 420. Ef vestur hefði „tryggt sér töluna" með passi, hefði sveit hans því tapað a.m.k. 5 IMPum og hugsanlega 13 IMPum, því þijú grönd vinnast með litlu hjarta út! SKÁK Umsjón Margeir Pétursson Það hafa sést snilldarleg tilþrif á stórmótinu f Linares. í níundu um- ferðinni hafði Karpov (2.725) svart og átti leik gegn Ljubojevic (2.605) í þessari stöðu: 28. - Rd4!, 29. exd4 - exd4, 30. Hf2 (Það var ekki ráðlagt fyrir hvft að reyna að halda í manninn. Eftir 30. Bal — Be5 á hann ekkert betra en 31. f4 - Bxf4, 32. Hxf4 - Dxf4 og svartur hefur hrók, tvö peð og stórsókn fyrir tvo létta menn. Ekki gengur 31. g3 - Bxg3l, 32. hxg3 - Dxg3+, 33. Rg2 — He2 og mátar) 30. - dxc3, 31. dxc3 - Bg5, 32. g3 - Dh5, 33. f4 - Hde8, 34. Rg2 — He2, 35. Hd2. Karpov hefur unn- ið manninn til baka og allir menn hans taka þátt f sókninni. Hann flétt- aði nú aftur laglega og þvingaði Ljubojevic til uppgjafar. Lokin birt- ast hér í skákhorninu á morgun.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.