Morgunblaðið - 11.03.1993, Side 54

Morgunblaðið - 11.03.1993, Side 54
54 MORGUNBLAÐIÐ IÞRÓTTIR FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993 T HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ ■ ALFREÐ Gíslason, þjálfari KA og fyrrum ieikmaður landsliðsins, segir í viðtali við íþróttablaðið, að hann hefði viljað sjá Pál Ólafsson, leikmanna Hauka, að nýju sem leik- stjómanda landsliðsins. ■ ALFREÐ segir: „Páll er, að mínu mati, búinn að spila best allra leikstjómanda í deildinni í vetur. Það er gott að spila með Palla, hann er "sterkur varnarmaður og fljótur að byggja upp sóknarlotumar. Ég myndi hiklaust nota hann sem leik- stjómanda í landsliðinu í dag.“ ■ ÞEGAR Alfreð var spurður um hvort hann hefði metnað til að þjálfa landsliðið, sagði hann: „Ætli ég láti ekki aðra um það. Vissulega dreym- ir margan þjálfarann um að taka að sér landsliðið en mér finnst þau mál í góðum höndum eins og er.“ ■ ALFREÐ var spurður um hver væri heitastur í landsliðsþjálfara- stöðuna. „Ég gæti trúað því að leit- að yrði til Kristjáns Arasonar ef sú staða kæmi upp að Þorbergur vildi hætta. Kristján er mjög metn- aðargjam og myndi örugglega skila því hlutverki vel.“ ■ TVEIR íslensku landsliðsmann- anna spáðu því að ísland yrði heims- meistari í könnun sem íþróttablaðið gerði meðal landsliðsmanna. Þrír spáðu þriðja sæti, þrír fjórða sæti og sex fimmta sæti. Fjórtán Ieik- menn af nítján spáðu því að ísland myndi hafna í fimm efstu sætunum. ■ ÞESS má geta _ að áður hafa landsliðsmenn spáð íslandi heims- meistaratitli. Það var gert fyrir HM í Danmörku 1978, en þá tapaði ís- lenska liðið öllum þremur Ieikjum sínum í riðlakeppninni - hafnaði í þrettánda sæti. I DAVÍÐ Sigurðssonj liðsstjóri landsliðsins, spáir því að Island leiki um fimmta sætið gegn Norðmönn- um. Lykilleikurinn í dag Island verður að vinna Ungverja ætli það sér gott sæti á mótinu ISLENSKA liðið æfði í Scandinavium-höllinni í gærmorgun og síðan voru fundir þar sem leikurinn við Svía var skoðaður og leikur Ungverja og Bandaríkjamanna. Ætlunin var að fara í bíó en hætt var við það þar sem borgartjórinn í Gautaborg var með móttöku fyrir öll liðin kl. 18 í gærdag. Strákarnir fá þó líklega að fara í kvikmyndahús á morgun. Leikmenn voru hressir og sögð- ust svo til búnir að ná sér eft- ir tapið gegn Svíum. Nú væri næsta verkefni, Ungvetjar og þann leik yrðum við að vinna. „Mér sýnist Ung- verjar vera með svipaðan hóp og á Ólympíuleikun- um nema hvað Gyurka er kominn aftur í hópinn og Ivanschic er ekki með,“ sagði Þorbergur Aðalsteins- Skúli Unnar Sveinsson skrifar frá Sviþjóð son eftir æfinguna í gær. „Það er ekki mikið að marka leik þeirra við Bandaríkjamenn en þeir virðast vera fljótir og frískir og ég er viss um að leikurinn verður mjög jafn og spennandi. Við unnum þá á Ólympíuleikunum og áttum góðan dag þá þannig að við verðum að ná góðum leik til að sigra þá. Strák- amir eru ákveðnir í að sigra enda verðum við að gera það ætlum við okkur að gera eitthvað hér á HM. Þorbergur Aðalsteinsson Urslitaleikir: Svíþjóð 22 Tékkó. 12 Rúmenía 9 Tékkó. 8 Rúmenía 25 Svíþjóð 22 Rúmenía 13 A-Þýskal. 12 Rúmenía 14 A-Þýskal. 12 Tapaði leik um 5. sætið gegn Dönum 13:14, eftir að staðan var 13:9. V-Þýskal. 20 Sovétn'kin 19 Tapaði leik um 5. sætið fyrir Spán- verjum 22:24. Júgóslavía 24 Ungverjal. 22 Svíþjóð 27 Sovétrikin 23 A-Þýskaland V-Þýskaland Tékkóslóvakía 1958 1961 1964 Frakkland 1970 A-Þýskaland 1974 Danmörk 1978 Sviss 1986 Tékkóslóvakía 1990 Hvað sögðu sænsku blöðin um viðureign Svía og íslendinga? Dularfulh að hetja Islands frá ÓL skyldi ekki vera með Sveinn Agnarsson skrifar frá Gautaborg Sænskur handbolti hefur aldrei fengið jafnmikla athygli og nú. Á íþróttasíðum dagblaðanna er allt að drukkna í'hand- bolta. Það er einnig mikið um handbolta í sjónvarpi og út- varpi. Handbolta- stjömur okkar eru viðurkenndar sem heimsins bestu. Loksins hefur hand- boltinn fengið þá umQöllun sem hann á skilið. Það á áreiðanlega ekki eftir að versna efir sigur Svíþjóðar á ís- landi, sem var þó ekki öruggur fyrr en í lokin. Hann var í jámum langt fram í seinni hálfleik. Þá var staðan jöfn, 15:15, en sex heimamörk í röð sáu til þess að allt loft fór úr íslend- ingunum og öll spenna í leiknum hvarf." Þetta mátti lesa í Expressen. „Handboltinn var í mikilli lægð fyrir um 15 árum. Þá var þetta kraftaíþrótt, stórir karlar börðu hver á öðrum og einhvers staðar í miðri kjöthrúgunni glitti í handboltann. Þetta var hörð íþrótt og gróf. Hand- bolti var ekkert fyrir augað og langt Ífi-á því að vera skemmtilegur. Nú er hins vegar aftur orðið gam- an að horfa á handbolta, jafnvel þótt opnunarleikurinn í gær hafí ekki ver- ið fullkominn. Einhvem veginn hafa mál æxlast þannig að tæknin hefur borið tröllin ofurliði. Línuspilið er komið aftur. Og þessi ótrúlegu snún- ingsskot úr homunum sjást æ oftar. Sænska landsliðið getur senn farið a kalla sig Hariem Globetrotters hand- boltans. Margir eru strax famir að tala um HM-gull og eitt er víst: Svíar eru komnir með handbolta á heilann. íþróttin hefur loks náð að slá í gegn. Fólk talar um handbolta í strætó, í lestunum, í búðunum. Það er nokkuð alveg nýtt.“ Aftonbladet „íslandssögumar eru oftast hræði- legar frásagnir og þar endar sjaldan jafn vel og handboltasagan um fyrsta Ieikinn á HM. Gunnlaugs saga Orms- tungu lýkur með því að hann og erki- fjandinn Hrafn Önundarson drepa hvor annan í bardaga um Helgu hina fögru. Annar fær svöðusár á höfði og fóturinn er höggvinn undan hin- um. Opnunarleikurinn á HM var lengi vel spennandi keppni, en þegar sænsku stríðsmennirnir náðu að koma afgerandi höggi á fslendingana var sagan úti. Handbolti er oft íþrótt sem auð- velt er að sjá fyrir. Þar skipta mestu vel æfð leikkerfí sem flestir þekkja. En handboltinn hættir að vera fyrir- sjáanlegur þegar íslendingar byija með Sigmar Oskarsson í markinu, og Héðinn Gilsson tekur upp á því að skjóta annars staðar á markið en hann er vanur. Að stjórstjama ís- lands frá Ólympíuleikunum í Barce- lona, Valdimar Grímsson, skuli síðan ekki fá að vera með, er einnig dular- fullt. En hin stóru mistök Þorbergs Aðalsteinssonar eru að skipta Guð- mundi Hrafnkelssyni inn á fyrir Sig- mar þegar staðan var 16:15. Hann hafði bara varið þijú skot á 20 mínút- um, afsakaði Þorbergur sig með eftir á.“ ídag „Þessa leiks verður áreiðanlega minnst sem slakasta leiks Svía á HM 1993. Og samt unnu drengimir hans Bengts 21:16 sigur á strákunum frá eldfjallaeyjunni, sem hafa drukkið í sig Snorra-Eddu og blóðugar sögur eins og Njálu með móðurmjólkinni. Á pappímum virkar sigurinn ömggur, í reynd var hann það ekki. Leikurinn var ekkert sérlega góður. Það viður- kenndu allir eftir á, ekki síst Bengt Johansson landsliðsþjálfari, sem aldr- ei er spar á sjálfsgagnrýnina. En spennandi var hann, og áhorfendur voru allan tímann vel með á nótun- um, ekki síst hinir eitt þúsund íslend- ingar. Þrátt fyrir ósigurinn gæti ís- land enn komið á óvart í keppninni. Hinn stóri og þungi Héðinn Gilsson er erfiður andstæðingur, sem ekki er hlaupið að að stöðva. Sannkallaður risi í liði minnstu handboltaþjóðar í heimi sem jafnframt er í hópi þeirra bestu. Á eldíjallaeyjunni er handbolti nefnilega eins og trúarbrögð. íslend- ingamir héldu í við Svía í fyrri hálf- leik, en eftir hlé fór reynslan að segja til sín. Svíar geta leikið mun betur en í gær og það verður erfitt að koma í veg fyrir að blágula maskínan rúlli alla leið í úrslitin." Göteborgs-posten „Það má ekki vera of létt. Það má ekki vera of erfitt. Það á að ganga svona um það bil eins vel og í fyrsta leiknum gegn íslandi. Eftir 21:16 sig- urinn á Islandi vitum við að sænsku heimsmeistaramir geta bara leikið betur. Allir nema kannski níu marka maðurinn Magnús Andersson. Hann var lágvaxnasti maðurinn á vellinum, en sá stærsti í leiknum. Andersson sýndi að í handbolta getur tæknin haft mun meira að segja en stærðin. Áhorfendur hafa áreiðanlega verið dálítið hissa á því hversu slælega Svíar byijuðu leikinn. Þá sýndu þeir enga heimsmeistaratakta. Islending- arnir voru vel undirbúnir undir leikinn og náðu að kasta möl í sænsku sig- urmaskínuna, enda voru það kannski hraunmolar. Að minnsta kosti varð leikur Svíanna hægur og skotin bám vitni taugaóstyrks. Lýðveldið ísland hefur engan her, en treystir á hjálp NATO og vamarsamning við Banda- ríkin. íslendingar em fámennir og hafa ekki úr mörgum leikmönnum að velja og verða að treysta að vem- legu leyti á atvinnumenn sem leika með erlendum liðum. Þeir vörðust hetjulega í 45 mínútur og þar vom fremstir í flokki markmaðurinn góði, Sigmar Þröstur Óskarsson og stór- skyttan Héðinn Gilsson frá Dussel- dorf.“ Tapið gegn Svíum var of stórt og það getur komið okkur í koll síðar því hvert mark er mikilvægt í svona keppni. Ef við náum að leika vörnina eins og á móti Svíum þá er ég í raun ekki smeykur. Einnig er mikilvægt að fá ein 5 til 6 mörk af hægri vængnum hjá Sigurði. Við höfum háttað undirbúningi okkar þannig að Svíaleikurinn var ekki unninn fyrirfram og menn eru því ekki langt niðri eftir tapið, menn em klárir í slaginn. Eini þrýstingur- inn á liðinu er metnaður okkar og stolt og við ætlum okkur sigur gegn Ungveijum. Ef það tekst þá þurfum við ekki einu sinni að hugsa um leikinn við Bandaríkin því þeir sitja eftir í okkar riðli,“ sagði Þorbergur. ■ ISLENSKA landsliðið býr ásamt því ungverska og bandaríska á Scandic-hótelinu sem er talsvert frá miðbæ Gautaborgar. Þar á bæ er íslenskur matsveinn sem heitur Sigurður. „Þetta er ágætis hótel en það verst er að geta ekki kvart- að yfir matnum vegna þess að einn matsveinninn skilur íslensku,“ sagði Geir Sveinsson. ■ STEFÁN Carlsson, læknir ís- lenska liðsins, fór í gær til starfs- bróður síns á sjúkrahús hér i Gauta- borg til að „fylgjast með áhuga- verðum uppskurði," eins og Stefán orðaði það. í leiðinni færði hann Snorra Ásbjörnssyni, unga drengnum sem skipt var um hjarta í á dögunum, fána HSÍ sem áritað- ur var af leikmönnum landsliðsins. € i i i Æ i i M Á MORGUN er ætlunin að nokkrir leikmenn landsliðsins fari á sjúkrahúsið til að heimsækja ís- lendinga sem bíða hér eftir líf- færaígræðslu. ■ ÞORBERGUR Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, útvegaði landslið- inu sænskan nuddara, Lasse Bergquest, en hann var nuddari hjá SAAB þegar Þorbergur var þjálfari liðsins. ■ ÍSENSKU strákarnir hafa fengið mikið af hitabuxum og hlíf- um frá fyrirtækinu Rehband en Per Carlén , línumaður Svía, vinn- ur einmitt hjá fyrirtækinu. ■ RÚMENAR komust í tæka tíð til Svíþjóðar. Þeir ætluðu að koma hingað um miðjan dag á mánudag, en vegna óveðurs í Rúmeníu kom- ust þeir ekki fyrr en seint á þriðju- dagskvöld, eða daginn fyrir leikinn gegn Norðmönnum. Stórhríð var í Búkarest, þegar leikmenn Rúm- eníu áttu að fljúga þaðan og urðu tafir á flugi. ■ LEIKMENN norska liðsins hituðu upp fyrir leikinn gegn Rúm- eníu, með því að fara og keppa í bogfimi á þriðjudaginn. Þá hafa norsku leikmennirnir verið dugleg- ir við að keppa í karaeoke-söng. ■ HÉÐINN Gilsson var kjörinn besti leikmaður íslenska liðsins gegn Svíum en Magnús Anderson bestur í liði Svía. ■ Á MORGUN hefur íslenska landsliðinu verið boðið til hádegis- verðar um borð í einu af skipum Eimskipafélagsins, Bakkafossi, sem liggur í Gautaborgarhöfn. ■ SIGURÐUR Sveinsson og Sig- mar Þröstur Óskarsson voru teknir í lyfjapróf eftir leikinn gegn Svium og eins Staffan Olsson og Mats Olsson. í í í

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.