Morgunblaðið - 11.03.1993, Síða 56

Morgunblaðið - 11.03.1993, Síða 56
EIMSKIP VIÐ GREIÐUM ÞÉR LEIÐ MORGUNBLADW, ADALSTRÆTl 6, 101 UEYKJAVÍK SlMl 691100, SÍMBllÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FIMMTUDAGUR 11. MARZ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Sjúkrabflarnir fá ekki skoðun án sjúkrakassa SKORTUR á sjúkrakassa og endurskinsþríhyrningum kom í veg fyrir að Ford Econoline sjúkrabíll í eigu Rauða kross íslands fengi skoðun hjá Bifreiðaskoðun á mánudag. Bíllinn er búinn afar fullkomnum búnaði til lækninga og neyðarblikk- ljósum. Jóhann Pétur Jónsson, deildar- stjóri sjúkraflutningadeildar, sagði að samkvæmt reglugerð ætti að vera sjúkrakassi í öllum breyttum bílum. Honum fyndist hins vegar fáranlegt að fylgja henni jafn stíft 'aftir og gert væri þegar um stóra og fullkomna sjúkrakassa á hjólum væri að ræða eins og umræddan Ræsting í skólum Lægsta boð 56% af áætlun bíl. Hann benti í því sambandi á að í bílnum, sem kostar 6-7 milljónir, væra lækningatæki t.d. hjartaraf- sjár, súrefnismettunarmælar og rafeindahitamælar, að verðmæti 2 milljónir króna. Púðar í stað kassa Jóhann sagði að starfsmenn Globusar hf. hefðu farið með bílinn í skoðun þar sem hann hefði verið innréttaður hjá umboðinu. Sjálfur hefði hann hins vegar í sama skipt- ið fengið skoðun á 3 bíla af sömu tegund vegna þess að hann hefði komið fyrir sjúkrapúðum í bílunum. Hann sagðist hafa tekið á móti á fjórða tug svipaðra bíla frá Bandaríkjunum og þessi aðferð hefði dugað ágætlega til að koma þeim í gegnum skoðun. Ekkert væri hins vegar fylgst með því hvort hann notaði alltaf sama púðann. Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir Lykilleikurinn í dag Islendingar mæta Ungverjum í C-riðli heimsmeistarakeppninnar í handknattleik í Gautaborg í dag, og er það talinn lykilleikur liðsins í riðlakeppninni. „Strákarnir eru ákveðnir í að sigra enda verðum við að gera það ætlum við okkur að gera eitthvað hér á HM,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari. íslendingafélagið í Gautaborg tók á leigu samkomustað nálægt Scandinavium-íþróttahöllinni, þar sem fjöldi stuðningsmanna ís- lenska liðsins hittist fyrir leiki, og var myndin einmitt tekin þar fyrir leikinn gegn Svíum í fyrradag. Það er Stefán Smári Kristinsson, 8 ára, búsettur í Gautaborg, sem verið er að skreyta fyrir leikinn. HM og aðrar íþróttafréttir / 52-55. HJÁ Innkaupastofnun ríkisins hafa verið opnuð tilboð í ræst- ingu í framhaldsskólum á höf- uðborgarsvæðinu. Útboðið var í þremur hlutum en samtals er um 84.000 fm að ræða og nær útboðið ‘ til næstu fimm ára. Lægsta boð, af þeim sem buðu í allt verkið, átti Hreint og beint hf. og nam það 56,54% af kostnaðaráætlun sem hljóð- ar upp á 900.720.000 kr. með virðisaaukaskatti. Hæsta boð átti Þvegillinn og var það 115,16% af kostnaðaráætlun. Alls bárust 13 tilboð í ræsting- una en af þeim buðu sjö aðilar í alla hlutana þrjá. Hreint og beint hf. var allsstaðar með lægsta til- boðið en samtals nemur tilboð þess fyrirtækis 509.294.000 króna. Verkfræðistofa Stefán Ólafs- sonar vann útboðsgögnin fyrir menntamálaráðuneytið en Inn- kaupastofnunin sá um útboðið. Áætlunin var byggð á kostnaðar- mælingum, sem verkfræðistofan gerði í þremur skólum. Upplýsingagjöf Samskipa hf. við sölu hlutabréfa í félaginu gagnrýnd Sambandið krafið um afslátt af verði bréfanna LANDSBRÉF hf. hafa óskað eftir því við Samband ís- lenskra samvinnufélaga, fyrrum eiganda Samskipa, sem hófu sölu hlutabréfa félagsins í apríl sl., að kaupendum verði bættur skaðinn af óraunsærri áætlanagerð fyrri sljórnenda sem hafi skilað sér í óraunhæfu gengi bréf- anna. Landsbréf var söluaðili bréfanna. Sigurður Markús- son, stjórnarformaður Sambandsins, staðfesti í samtali við Morgunblaðið að stjómendur Landsbréfa hefðu rætt við Sambandið um verðlagningu hlutabréfanna í Samskip- um. Einnig hefði einn þeirra fjárfesta sem keyptu bréfin látið frá sér heyra en samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er þar um Draupnissjóðinn að ræða. Sigurður sagði að engin ákvörðun hefði verið tekin í málinu. Reynt að leysa húsnæðisvanda kvennadeildar Landspítalans Líkur á meti í maí ALLAR líkur benda til að fæðingamet verði sett á kvennadeild Landspítalans í maimánuði og er nú leitað logandi ljósi að lausn á húsnæðisvanda deildarinnar ”að sögn Guðrúnar Bjargar Sigurbjörns- dóttur yfiryósmóður. Guðrún sagði að flestar fæðingar hefðu hingað til orðið 280 á einum mánuði en samkvæmt tölum frá mæðraeftirliti Reykjavíkur yrðu þær 300 í maí. Mætti síðan bæta 20 til 30 fæðingum kvenna af landsbyggðinni ofan á þá tölu. Aðspurð sagði Guðrún að ekki hefði verið gerð nein sérstök athugun á því af hveiju oft kæmi fæðingabylgja í maí en heyrst hefði að þær tengd- ust verslunarmannahelginni. Mikið hefur verið að gera á báðum fæðingar- göngum Landspítalans síðan fæðingarheimilið við Eiríksgötu var lagt niður og sagði Guðrún að af og til hefði þurft að leggja konur inn á setustofur og senda þær fyrr heim. Hún sagði ljóst að ekki væri hægt að notast við þá lausn í maí og væri nú leitað logandi ljósi að lausn á húsnæðisvanda deildarinnar. Annað hvort með því að rýmka til innan spítalans eða fá afnot af húsnæði annars staðar. Gunnar Helgi Hálfdanarson, forstjóri Landsbréfa, sagði í sam- tali við Morgunblaðið að Lands- bréf hefðu sent Sambandinu bréf í október síðastliðnum þar sem þess var farið á leit að fjárfestum yrðu bætt upp svokölluð óskýran- leg frávik frá uppgefínni áætlun í rekstri Samskipa þar sem gert var ráð fyrir 125 milljóna króna hagnaði. „Því hefur verið haldið fram að þessi frávik megi rekja til almennra efnahagsaðstæðna, en menn sjá ekki að þau verði skýrð á þeim grunni einum. Þá er hafður í huga samanburður við frávik í áætlunum Eimskipafé- lagsins. Frávik Samskipa virðast vera meiri í öllum meginatriðum og þá til hins verra. Við eram mjög ósáttir við þetta og létum það í ljós í október á síðasta ári þegar fyrir lá að tap ársins stefndi í allt að 200 milljónir. Síðan hefur komið í ljós að tapið er orðið a.m.k. 400 milljónir. Við bíðum eftir við- brögðum Sambandsins og endan- legu uppgjöri frá Samskipum áður en framhald verður ákveðið,“ sagði Gunnar Helgi. Ekki einsdæmi Gunnar Helgi sagði ennfremur að það væri áhyggjuefni hve oft rekstur íslenskra fyrirtækja færi á verri veg en stjómendur gæfu upp í áætlunum við hlutabréfaút- boð. „Samskipamálið er ekkert einsdæmi," sagði Gunnar Helgi. „Það virðist vera svo að stjórnend- ur þeirra fyrirtækja sem era ný á markaðnum geri sér ekki grein fyrir þeim skyldum og þeirri ábyrgð sem því fylgir að skrá sig til leiks. Það verður að stuðla að betri siðum á þessum markaði." Frá því að sala Sambandsins á hlutabréfum Samskipa hófst í apríl á síðasta ári hafa verið seld bréf fyrir um 100 milljónir á geng- inu 1,12. Stærstu fjárfestarnir eru Vátryggingarfélag íslands sem keypti bréf fyrir um 25 milljónir og Lífeyrissjóður verslunarmanna sem keypti fyrir 16 milljónir. Þá keypti Draupnissjóðurinn bréf fyr- ir um 18 milljónir og einnig mun Olíufélagið hafa verið meðal kaup- enda. Látið verður reyna á lagaákvæði Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun það vera afstaða Draupnissjóðsins að upplýsinga- gjöf Samskipa hafí verið ófull- nægjandi við sölu bréfanna. Þessi gagnrýni beinist að því að sölulýs- ingin hafí ekki gefíð rétta mynd af rekstrarhorfum fyrirtækisins. Hún er dagsett 29. apríl og kemur þar fram að hagnaður ársins sé áætlaður 125 milljónir. Hins vegar varð tap samkvæmt sex mánaða uppgjöri 129 milljónir. Sjóðurinn vill því láta reyna á hvort ákvæði laga um upplýsingaskyldur selj- enda og söluaðila hafí verið virt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.