Morgunblaðið - 25.05.1993, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAI 1993
5
Þriggja daga leit lögreglu og bj örgunar s veitarmanna lauk síðdegis á sunnudag
Stúlkan sem leitað var
að fannst lálin í bílinun
HELGA Helgadóttir, 21 árs
gömul stúlka sem leit hófst að
á föstudagskvöld, fannst látin
í bíl sínum í Fossárgili í Kjós
síðdegis á sunnudag. BOl
hennar hafði farið út af vegin-
um og oltið niður um það bil
12 metra háan hamar og hafn-
að á hvolfi ofan í Fossá á stað
þar sem hann sást hvorki frá
veginum né úr lofti. Talið er
að Helga hafi látist samstund-
is.
Helga Helgadóttir var 21 árs
gömul, námsmaður frá Akra-
nesi, búsett að Skeiðarvogi 67 í
Reykjavík. Á föstudagskvöld hóf
lögreglan leit að Helgu en ekki
var þá vitað um ferðir hennar
frá því síðdegis á fimmtudag
þegar hún sást á leið úr bænum
og var talið að ferð hennar væri
heitið til Akraness þar sem for-
eldrar hennar eru búsettir.
Leitað hafði verið við alla vegi
í nágrenni borgarinnar og þyrla
Landhelgisgæslunnar hafði flog-
Helga Helgadóttir
ið yfir staðinn þar sem bílflakið
fannst en undirvagn grálitaðs
Renault bílsins féll inn í samlita
klettana og sást ekki þegar flog-
ið var yfír. Það var ekki fyrr en
leitarmenn fóru gangandi um
svæðið, laust eftir hádegi á
sunnudag, að þeir sáu bílinn í
gilinu og var stúlkan í honum
látin.
10-12 metra gil
Bíllinn fór út af veginum um
það bil 20 metrum frá vegriði
en án þess að skilja eftir sig
hemlaför. Á leið út af veginum
ók bíllinn yfír og braut vegstiku.
Þar sem stikan var sú síðasta
áður en vegrið tók við meðfram
veginum varð skarðið sem
myndaðist síður áberandi en ella.
Nokkrum metrum utan vegarins
má greina för eftir bílinn en
þaðan virðist hann hafa oltið,
lagt niður staur við enda
grindverks við gilbarminn og
síðan fallið niður 10-12 metra
háa hamra í Fossárgili þar sem
bíllinn staðnæmdist á hvolfí.
Talið er víst að ökumaðurinn
hafi beðið bana samstundis.
Að sögn lögreglu er ekki ljóst
hvað olli slysinu og því að bílnum
var ekið út af veginum en t.d
er talið hugsanlegt að stúlkan
hafí sofnað undir stýri.
Tónleikar til styrktar
Amnesty Intematíonal
HALDNIR verða tónleik-
ar til styrktar íslands-
deild Amnesty Internat-
ional í skemmtistaðnum
Tunglinu í Reykjavík í
kvöld kl. 21.
Fram koma GCD, KK-
band, Bogomil Font og
milljónamæringarnir, Kol-
rassa krókríðandi og Júpit-
ers. Kynnir verður Baltasar
Kormákur. Með þessu vilja
samtökin vekja athygli á
mannréttindabrotum í
heiminum, einkum ofsókn-
um á hendur götubörnum
í Gvatemala. Einnig vilja
þau vekja athygli á mann-
réttindaráðstefnu sem fyr-
irhugað er að hefjist í Vín
14. júní næstkomandi og
sótt verður af fulltrúum
180 ríkisstjórna. Fólk er
hvatt til þess að láta í sér
heyra með bréfaskriftum,
einkum til yfirvalda í
Gvatemala.
Morgunblaðið/Kristinn
Styrktartónleikar
ÍSLANDSDEILD Amnesty Internation-
al gengst fyrir tónleikum í Tunglinu
annað kvöld kl. 21.
í
Fyrsta leiguflugið frá
íslandi til Mexíkó
Á MÁNUDAGSMORGUN fór fyrsta beina leiguflugið frá íslandi til Canc-
un í Mexíkó með 220 manns á vegum Heimsferða með mexíkóska flugfé-
laginu TAESA. TAESA flugfélagið er stærsta leigufélag Mexíkó og hefur
vöxtur félagsins verið með ólíkindum; fyrir 5 árum átti það 2 flugvélar en á
í dag yfir 80. Aðaleigandi og stofnandi félagsins, Mr. Abed, er jafnframt
flugmaður og flaug hann fyrsta flugið til Islands. Mikið hefur verið um
ísland rætt í Mexíkó í framhaldi af þessum flugum og var ísland m.a.
kynnt í sérstakri hátíðardagskrá sem var sl. sunnudag í mexíkóska sjón-
varpinu og var sjónvarpað til 300 milljóna manna um alla Suður-Amer-
íku. TAESA mun fljúga í sumar fyrir Heimsferðir í beinu leiguflugi til
Cancun í Mexíkó fram í september. (Fréttatiikynníng)
_ w_______ _ _ _
Rýmum fyrir nýjum
vörum og seljum með
verulegum afslætti
eftirfarandi húsgögn:
Skrifborðsstólar,
gott úrval
Stakir stólar
Skrifborð 120x80 cm
og 160x80 cm
Skúffuskápar
m/ læsingu í borð
Hliðarborð
Skrifstofuskápar
m/ hurðum
Opnir bókaskápar,
einnig fyrir heimili
Prentaraborð
íslandskort á vegg
9.
s
Hallarmúla 2 • 108 Reykjavík • Sími 81321 I og 813509 • Fax 689315