Morgunblaðið - 25.05.1993, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 25.05.1993, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINBÍULÍF ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1993 Reynslunni ríkari Vöruþróun I vetur hefur vöruþróunarhópur Hagræðingarfélags Islands efnt til fyrir- tækjaheimsókna til þess að kynna sér skipan og stjórnun vöruþróunar- verkefna í fyrirtækjum sem hafa skarað fram úr á sviði vöruþróunar og markaðsmála undanfarin ár Fyrirsögn þessara heimsókna hefur verið _Reynslunni rikari’ þar sem markmið með heimsóknunum var og er að læra af reynslu þessara fyrir- tækja, á hvern hátt best er að vinna að vöruþróun bæði skipulags- og framkvæmdarlega séð Þegar á heildma er litið þá hefur aðsókn að þessum heimsóknum verð mjög góð Þau fynrtæki sem nú þegar hafa verið heimsótt eru Islenskar sjávarafurðir, Epal, Vífilfell og Marel I óllum tilvikum hefur allur undirbúningur fyrirtækja vegna heimsóknanna verið góður og vill vöruþróunarhópur Hagræðingarfélagsins þakka framangreindum fyrirtækjum fyrir gott samstarf. Af dagskránni „Reynslunni rikari" eru 2 heimsóknir eftir; heimsókn til Mjólkursamsölunnar 27. maí n k. kl. 16:00 - 17:00 að Bitruhálsi 1 Meginefni þeirrar heimsóknar er að skoða fyrirtækið og ræða síðan um samspil þróunarstarfs og markaðssetningar almennt Síðasta heimsókn er síðan til Iðnlánasjóðs er þann 10 júní n.k. kl 16:00 - 17:00 að Ármúla 13a En þar mun sjóðurinn kynna starfsemi sína. Þeir einstaklingar sem áhuga hafa á að taka þátt í næstu heimsóknum eru beðnir að skrá f sima 68 7000. Vöruþróunarhópur Hagræðingarfélags (slands Nýjung Erlendir leyni- reikningar NÝLEGA tók til starfa hér á landi umboðsskrifstofa fyrir breska útgáfufyrirtækið Scope International Ltd. sem gefur út svonefndar PT viðskiptaskýrsl- ur lögfræðingsins Dr. W.G.Hill. Þar eru m.a. upplýsingar um hvernig stofna eigi leynireikn- inga erlendis, erlendar skatta- paradisir, útvegun erlendra vegabréfa, tvöfalda ríkisborg- ararétti og flutning fjármagns milli landa. Garðar Garðarsson sem hefur fengið umboðið fyrir Scop Inter- national, segir skýrslunar afrakstur margra ára rannsókna Dr. Hill á viðskiptaháttum auðmanna um all- an heim. Hægt er að fá sendan bækling hjá umboðsskrifstofunni á Hjarðarhaga 42 í Reykjavík. Að sögn Garðars opna skýrslur- nar leiðir fyrir þá sem hafa tekjur erlendis til að ráðstafa þeim á hag- kvæman hátt. í þeim er m.a. að fínna upplýsingar um aðila sem taka að sér að opna leynireikninga í bönkum í Sviss og eyjunni Mön. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HÚSNÆÐISBRÉF 1. FLOKKUR 1993 1. Uppboð - 25. maí 1993 Fyrsta uppboð húsnæðisbréfa fer fram 25. maí n.k. Frestur til þátttöku rennur út kl. 14:00 þann dag og þurfa bindandi tilboð í bréfin að hafa borist Húsnæðis- stofnun ríkisins. Húsnæðisbréf eru gefin út í tveimur einingum, 1 m.kr. og 10 m.kr. að nafnverði. Hús- næðisbréf eru verðtryggð með lánskjaravísitölu til 20 ára með 39 jöfnum greiðslum vaxta og afborgana. Upplýsingarit ásamt tilboðsgögnum liggja frammi hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, Suðurlandsbraut 24, Reykja- vík og nánari upplýsingar um útboðið veitir verðbréfa- deild stofnunarinnar. HANDSALI XIVSGNVH HANDSAL H F LÖGGI1.T VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI • AÐILI AÐ VERÐBRÉFAI’INGI ÍSLANDS ENGJATEIGl 9 ■ 105 REYKJAVÍK • SÍMI 686111 • FAX 687611 Morgunblaðið/Þorkell VIÐURKENNING — M.H. Riethoff, útflutningsfram- kvæmdastjóri hollenska íþróttavöruframleiðandans Rutaco, var stadd- ur hér á landi nýlega til að veita umboðsaðila Rutaco, J.S. Gunnars- syni hf., viðurkenningu fyrir góða sölu. Á myndinni eru eigendur J.S. Gunnarssonar ásamt Riethoff. Frá vinstri eru Aðalheiður Gunnarsdótt- ir, Steindór Gunnarsson, M.H. Riethoff og Jóhann Ingi Gunnarsson. Heildsala Góð sala á Rucanor íþróttafatnaðar HEILDSALAN J.S. Gunnarsson hefur undanfarin þrjú ár verið umboðs- aðili fyrir hollensku íþróttavörumar Rucanor frá Rutaco í samvinnu við Sportbæ á Selfossi. Einn af framkvæmdastjórum Rutaco var nýlega staddur hér á landi í tilefni þess að J.S. Gunnarsson hefur verið með mestu söluna í Evrópu miðað við íbúafjölda fyrir utan heimaland Rutaco, Holland. Salan hér á landi á síðasta ári nam um tuttugu milljónum króna. Að sögn Jóhanns Inga Gunnars- sonar, eins af eigendum J.S. Gunn- arssonar, er Rucanor með allan al- hliða sportfatnað ásamt því að bjóða upp á ákveðnar keppnisvörur. „Þegar við tókum við þessu umboði var Rucanor svo til óþekkt merki hér á landi. Við nýttum okkur umboðið vel og nú eru hér á landi 25 söluaðilar Rucanor um allt land. Það sem fyrst og fremst ræður úrslitum er gott merki og vönduð vara. Það er mikið um íþróttahópa sem kaupa af okkur, en þó leggjum við mesta áherslu á almennan markað.“ „Miðað við íbúafjölda erum við með mestu söluna í Evrópu fyrir utan heimalandið Holland. Þetta þótti yfirmönnum Rutaco merkilegt og í því tilefni kom útflutningsfram- kvæmdastjóri fyrirtækisins nýlega hingað til lands til að kynna sér hvemig staðið er að málum hér,“ sagði Jóhann Ingi. J.S. Gunnarsson er í eigin hús- næði í Skútuvogi. Heildsalan leggur aðaláherslu á innflutning á skófatn- aði þar sem fyrirtækið er með umboð fyrir mörg þekkt merki. Eigendur er þijú systkini, Jóhann Ingi Gunn- arsson, Steindór Gunnarsson og Að- alheiður Gunnarsdóttir. FYRIRTÆKIÐ — Ólafur Þorsteinsson & Co veitti bókiðnaðar- deild Iðnskólans gjöf í tilefni þess að um þessar mundir eru 10 ár frá því núverandi eigendur tóku við rekstri fyrirtækisins. Ólafur Þorsteinn- son & Co hf. sérhæfir sig í innflutningi á pappír og á rekstrarvörum fyrir prentiðnað. Gjöfin til Iðnskólans var um 100 tegundir af pappír og öðrum vörum, að verðmæti 600 þúsund krónum. Myndin var tekin við afhendingu gjafarinnar í prentsal Iðnskólans í Reykjavík. Þeir Stefán Haraldsson framkvæmdastjóri Ólafs Þorsteinssonar & Co hf. (t.v.) og Ingvar Ásmundsson skólameistari Iðnskólans takast í hend- ur. Að baki þeim eru Sigurður Örn Kristjánsson kennslustjóri, Sófus Guðjónsson kennari og Haraldur Blöndal deildarstjóri. með ONE TOUCH háreyðingarkremunum losar þú þig við óæskiieg hár á þægilegan og sársaukalausan hátt Regular ■ fyrir venjulega húð. Bikini - fyrir "bikini" svæði Sensitive fyrir viðkvæma húð. o kreminu er einfaldlega rúllað á hársvæðið og skolað af í sturtu eða baði eftir tiltekinn tíma (sjá leiðb.) o húðin verður mjúk - ekki hrjúf o ofnæmisprófað Útsölustaðir: Flestar snyrtivöru- verslanir, apótek og snyrtivörudeidir stórmarkaða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.